Morgunblaðið - 10.02.2015, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 10.02.2015, Blaðsíða 6
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Innri endurskoðun Reykjavíkur- borgar hefur verið falið að gera óháða úttekt á aðdraganda, innleið- ingu og fram- kvæmd ferða- þjónustu fatlaðs fólks hjá Strætó. Strætó keypti tölvukerfi, sem innleitt var vegna þjónust- unnar, frá danska fyrirtæk- inu Trapeze en sá samningur fór ekki í útboð. Afstaða Strætó til málsins er að umræddur samning- ur hafi verið gerður í samræmi við heimildir útboðsréttar. Hann hljóð- aði upp á kaup á hugbúnaði og uppsetningu hans fyrir 10 milljónir króna og rekstrar- og viðhalds- kostnað um 6,5 milljónir króna á ári eða 514 þúsund á mánuði. Bjarni Einar Einarsson kerfis- fræðingur sá um hugbúnaðinn sem áður var notaður í tengslum við ferðaþjónustu fatlaðra hjá Strætó og er notaður við þá þjónustu í Kópavogi og Akureyri. Hann smíð- aði sitt fyrsta kerfi fyrir þessa þjónustu árið 1992 og segir að það sé klæðskerasniðið að þörfum fatl- aðra. „Kerfið hjá mér kostar sáralítið miðað við þetta nýja kerfi. Ætli kostnaðurinn á ári hafi verið rúm- lega milljón með þróun og end- urbótum.“ Bjarni skoðaði kerfið sem nú er í notkun árið 2013 og leist illa á. Hann segist hafa varað hæstráð- endur við að taka það upp en á hann hafi ekki verið hlustað. „Þetta nýja kerfi er ekkert nema móðgun við mig. Að Strætó segi að ég geti ekki gert svona kerfi – það er móðgun því þetta nýja kerfi er ekkert nema bast- arður, það er svo gallað. Kerfið er einfalt og ópersónulegt og raðar fólki eins og bögglum. Markmiðið er að koma fólki frá A til B en ekki er hugsað um hvernig það er gert.“ Kostar yfir hálfa milljón á mánuði  Samningur Strætó um nýtt tölvukerfi fór ekki í útboð 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2015 Bjarni Einar er afkastamikill forritari sem gerði meðal annars einn fyrsta tölvuleik landsins, Sægreifann. Hann var byrjaður að smíða nýtt kerfi sem hefði kostað brot af því sem hið nýja gerði. „Það var spjaldtölvukerfi, líkt kerfinu sem nú er í gangi. Það lét bíl- stjórana fá allar breytingar um leið og þær áttu sér stað yfir daginn. Þetta var einföld og ódýr útfærsla. Byggðist á þeim forritum sem eru nú þegar til,“ segir Bjarni en þegar forritið var prufukeyrt gekk það eins og í sögu. Spjaldtölvukerfi sem virkaði FRAMTÍÐARFORRIT BJARNA VAR Í PÍPUNUM Bjarni Einar Einarsson Lögreglumaður má því aðeins beita skotvopni gegn manni þegar önnur úrræði eru ekki tiltæk og brýna nauðsyn ber til, til dæmis til að verj- ast lífshættulegri árás á sig eða aðra eða til að yfirbuga og handtaka af- brotamenn sem teljast hættulegir lífi fólks eða öryggi ríkisins. Kemur þetta fram í reglum um valdbeitingu lögreglumanna og notkun valdbeitingartækja og vopna sem dómsmálaráðherra setti á árinu 1999. Leynd hefur hvílt yfir regl- unum en Ólöf Nordal innanrík- isráðherra ákvað að birta þær nú. Þriðja heimildin fyrir beitingu skot- vopns gegn manni er að koma í veg fyrir alvarlegt ofbeldi gegn fólki eða að verulegu tjóni sé valdið á þjóð- félagslega mikilvægum hagsmunum eða stofnunum, rekstri þeirra eða starfsemi. Hafa má skammbyssu með Þegar skotvopni er beitt gegn manni skal lögreglumaður, ef unnt er, reyna að takmarka þann skaða sem af notkun skotvopnsins hlýst, svo sem með því að skjóta í fætur viðkomandi. Í ýtrustu neyð skal miða á stærsta hluta þess líkams- hluta sem honum er sýnilegur. Ávallt skal veita alla hugsanlega að- stoð eftir að skotið hefur verið á mann. Í reglunum kemur fram að geyma skal skotvopn og fylgibúnað með tryggilegum hætti á lögreglustöð. Lögreglustjóri getur þó ákveðið, í samráði við ríkislögreglustjórann, að skammbyssur séu í sérstökum til- fellum hafðar með í lögreglubifreið. Sérstakar sveitir lögreglu geta einn- ig haft önnur skotvopn meðferðis, að því er fram kemur. helgi@mbl.is Ekki skotið nema í brýnni nauðsyn  Birtar reglur um valdbeitingu lögreglu Morgunblaðið/Rósa Braga Umsátur Sérsveitin hefur sérstakar heimildir til vopnaburðar. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Heildarstaða lána í vanskilum hjá Íbúðalánasjóði hefur lækkað um rúma 53 milljarða króna síðan þau náðu hámarki í júlílok 2012; hafa lækkað úr 93 milljörðum króna í 39,8 milljarða. Upphæð lána sem voru „fryst“ hefur sömuleiðis lækkað mikið. Hún var 35,2 milljarðar í lok janúar 2011 en var rúmir 1,6 milljarðar í lok janúar á þessu ári. Hefur upphæðin helm- ingast síðan í lok júlí í fyrrasumar. Sigurður Erlingsson, forstjóri sjóðsins, segir lækkun heildarstöðu lána í vanskilum skýrast af skulda- úrræðum, fjölda eigna sem sjóður- inn hefur leyst til sín og betri stöðu heimila. Unnið er að greiningu á áhrifum skuldaleiðréttingarinnar á stöðu sjóðsins og áhrifum hennar til lækkunar vanskila. Eins og sýnt er hér til hliðar er frestur á uppboðum á um 450 eignum að renna út. Sig- urður segir að ætla megi að hluti eignanna sé með lán hjá ÍLS. Hann segir tapið vegna slíkra lána að langmestu leyti komið fram. Líklega komið undir 8% Heildarstaða lána í vanskilum náði hámarki í júlí 2012 og var undirliggjandi virði slíkra lána þá um 15% af lánasafni sjóðsins. Hlut- fallið var 8,17% um síðustu áramót og er að líkindum nú komið undir 8%. Það var lengst af 1-2% í sögu sjóðsins, sem var stofnaður 1998, og er því enn hátt í sögulegu samhengi. Heildarfjárhæð lána í vanskilum hjá lögaðilum hefur einnig lækkað hratt. Hún var um 33 milljarðar í mars 2013 og var það um fjórðungur lána til lögaðila. Hún var 26,1 millj- arður í desember og var það um 17,64% af útlánum til lögaðila. Þau tíðindi hafa einnig orðið í rekstri sjóðsins að eignum sem eru í sölu er farið að fækka hraðar en fjöldi eigna sem sjóðurinn leysir til sín. Sjóður- inn seldi 1.115 eignir í fyrra en þá fækkaði aðeins um 230 eignir sem voru til sölu eða leigu; þær voru alls 1.891 um áramótin. Með því að hægt hefur á fjölgun slíkra eigna mun að óbreyttu ganga hratt á listann í ár. Þannig voru 924 eignir í sölumeðferð hjá sjóðnum í árslok 2014 og voru flestar komnar á sölu hjá fasteignasölum. Þá er ver- ið að fara yfir kauptilboð sem sjóðn- um bárust í 400 eignir í sjö eigna- söfnum á Vesturlandi, Norðurlandi, Austfjörðum, Suðurlandi, Suður- nesjum og á höfuðborgarsvæðinu. Sigurður Erlingsson segir tíðinda að vænta af sölu eignasafnanna á næstu vikum. Hvað hinar 924 eign- irnar varðar hafi sala fullnustueigna gengið vel í desember og janúar og því gengið á listann. Hann segir söluverðið vel viðunandi. Fá milljarðatugi fellda niður „Markmiðið er að minnka vanskil verulega í ár. Við bindum vonir við að almenna niðurfærslan muni koma vanskilum töluvert niður. Það verður líklega ekki farið að skýrast fyrr en í lok mars hversu mikið van- skil lækka vegna niðurfærslunnar. Það mun líka hafa áhrif þegar frest- ur á uppboðum lýkur, enda mörg mál sem þá klárast, annaðhvort með úrræðum eða með því að uppboðs- ferlið gengur til enda. Á þessu ári væntum við því verulegrar breyt- ingar til lækkunar á vanskilum,“ segir Sigurður og bætir því við að hlutur sjóðsins í 80 milljarða nið- urfærslu verðtryggðra lána sé um 36 milljarðar. Fram kemur í árs- hlutareikningi ÍLS að 30. júní sl. námu útlán sjóðsins 755 milljörðum og lækkuðu þau um 14 milljarða frá áramótum. Lækkunin vegna leiðréttingar verðtryggðra íbúðalána hefur þau neikvæðu áhrif á stöðu sjóðsins að uppgreiðslur aukast og með því minnka eignir sem bera vexti í framtíðinni. Sigurður segir þann vanda bíða úrlausnar. Vanskilavand- inn verði hins vegar senn að baki. Sigurður segir lækkun heildar- stöðu lána í vanskilum eða frystingu ekki hafa áhrif á fjármögnunarþörf sjóðsins frá ríkinu á þessu ári. Hún sé óbreytt frá síðustu fjárlögum, eða 5,7 milljarðar. Með því að vanskilin séu að minnka ört sé hins vegar ekki útlit fyrir að sá vandi kalli á frekari fjármögnun frá ríkinu. Hann segir hagfelld ytri skilyrði, lága verðbólgu og kaupmáttarstyrkingu, eiga þátt í að vanskil þróist til betri vegar. Yfirveðsettar eignir úti á landi Í meirihluta tilfella vanskila og frystinga er um að ræða lán sem tekin voru á árunum 2005-2009. Raunverð fasteigna var þá sögulega hátt – það náði sögulegum hæðum í október 2007 – og fóru margir lán- takendur illa út úr verðbólguskotinu eftir efnahagshrunið 2008. Frysting lána þýðir að ekki er greitt af lánum á frystingartíma- bilinu. Lán sem lengi hafa verið í frystingu geta því hafa hækkað um- fram markaðsvirði eigna. Það sem út af stendur af láni sjóðsins eftir sölu eignar er því afskrifað. Þá á það þátt í yfirveðsetningu að lán voru tekin hjá ÍLS fyrir nýjum fasteignum á landsbyggðinni sem endurspegluðu byggingarkostnað á sínum tíma sem var að jafnaði nokkru hærri en markaðsverð. Af þessum sökum eru fasteignir ÍLS á landsbyggðinni kerfisbundið með hærri veðsetningarhlutföll. Vanskilavandi ÍLS er senn að baki  Forstjóri Íbúðalánasjóðs væntir verulegrar lækkunar vanskilalána í ár  Ríkið muni að óbreyttu ekki lengur þurfa að leggja ÍLS til verulegt fé vegna vanskila  Mikil eignasala framundan hjá ÍLS Að sögn Svanborgar Sigmarsdóttur, upplýsingafull- trúa Umboðsmanns skuldara, stendur gjarnan eftir svokölluð „eftirstæð“ krafa eftir að fólk missir hús- næði. „Það fær ekki nógu mikið fyrir nauðungarsölu þannig að það skuldar enn eftir að það missir fast- eignina. Í mörgum tilfellum hefur fólk ekki greiðslu- getu til að borga það sem út af stendur. Þá aðstoðum við fólk í greiðsluaðlögunarsamningum við að fá eft- irgjöf af eftirstæðri kröfu. Slíkar kröfur falla raunar niður hjá Íbúðalánasjóði eftir fimm ár.“ Hún segir húsnæðisvanda hinna tekjulægstu áberandi, þeir standi ekki undir greiðslubyrði af fasteignaveðlánum. Þessa hóps og þeirra sem missa húsnæðið bíði að fara á leigumarkað og sækja um húsa- leigubætur. Samið um það sem út af stendur ÞEGAR FÓLK MISSIR HÚSNÆÐIÐ Svanborg Sigmarsdóttir Sýslumenn og frestuð uppboð Fjöldi frestana til 1. mars skv. lögum 94/2014 * Nýlegar tölur. Ekki vannst tími hjá sýslumanni í gær til að uppfæra listann. ** 7 mál í Húnavatnssýslu, 3 mál í Skagafirði. *** Framhaldssölu frestað, 25 mál. Frestun ákvörðunar um framhaldssölu, 11 mál. Vinnslu máls frestað, 4 mál. **** Ákvörðun um framhaldssölu frestað, 12 mál. Framhaldssölu frestað, sem ákveðin hafði verið, 19 mál. Frekari vinnslu máls frestað eftir að framhaldssala var afstaðan, 7 mál. Höfuðborgarsvæðið* Vesturland Vestfirðir Norðurland vestra** Norðurland eystra*** Austurland Suðurland Vestmannaeyjar Suðurnes**** Samtals 280 17 10 10 40 12 37 6 38 450 Heimild: Sýslumenn á Íslandi Morgunblaðið/Ómar Holtin í Reykjavík Þúsundir heimila lentu í skuldavanda eftir hrunið. Sigurður Erlingsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.