Morgunblaðið - 10.02.2015, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 41. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Dauðastríðið tók fimm vikur
2. Áfall þegar Fry og Clooney giftu sig
3. „Haf fyrir framan okkur“
4. Flassaði rassinum á rauða dreglinum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Þjóðleikhúsið hefur ráðið Þórarin
Eldjárn, rithöfund og skáld, til að
þýða leikritið Óþelló eftir William
Shakespeare. Á næsta ári eru 400 ár
frá andláti þessa frægasta leikskálds
allra tíma og hyggst Þjóðleikhúsið
minnast ártíðar skáldsins með upp-
færslu harmleiksins.
Þórarinn Eldjárn hefur áður þýtt
verk eftir Shakespeare fyrir Þjóðleik-
húsið. Fyrst Lé konung árið 2010 og
svo Macbeth sem frumsýnt var á jól-
um 2012. „Bæði verkin hlutu mikið
lof gagnrýnenda og áhorfenda og er
það mikill heiður fyrir Þjóðleikhúsið
að fá Þórarin Eldjárn aftur til liðs við
sig. Þýðing Þórarins á Lé konungi var
tilnefnd til Íslensku þýðingaverð-
launanna,“ segir m.a. í tilkynningu
frá Þjóðleikhúsinu. Talið er að Willi-
am Shakespeare hafi skrifað harm-
leikinn um Óþelló árið 1603, en heim-
ildir herma að það hafi fyrst ratað á
svið í nóvember 1604. Verkið er eitt
af þekktustu verkum höfundarins og
fjallar um ást, afbrýðisemi og
grimmileg svik.
Morgunblaðið/Kristinn
Þórarinn þýðir Óþelló
Kvartett saxófónleikarans Sig-
urðar Flosasonar og danska Ham-
mond-orgelleikarans Kjelds Laurit-
sens leikur á djasskvöldi Kex
hostels í kvöld kl. 20.30. Sigurður
og Lauritsen sendu nýverið frá sér
geisladiskinn Daybreak og eru tón-
leikarnir í kvöld útgáfu-
tónleikar þeirra hér á
landi. Kvartettinn í
kvöld skipa auk Sig-
urðar og Lauritsens
þeir Andrés Þór
Gunnlaugsson á
gítar og Einar
Scheving á
trommur.
Daybreak fagnað
Á miðvikudag Vestlæg átt, 8-15 m/s, en hvessir vestanlands síð-
degis. Él víða um land, en bjart með köflum suðaustantil. Frost 1 til
11 stig, kaldast inn til landsins, en frostlaust syðst.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 13-20, hvassast nyrðra og eystra.
Slyddu- eða snjóél, en bjart með köflum eystra og kólnar smám
saman. Hiti víða um frostmark, en frost 0-5 stig norðvestantil.
VEÐUR
„Ég er þannig gerður að ég
eflist við mótlæti og mætti
því til æfinga eftir áramótin
með því markmiði að leggj-
ast ekki niður og gefast
upp, heldur setja á mig
vinnuhanskana og láta
Henke skipta um skoðun.
Ég var staðráðinn í að sýna
honum að ég ætti heima í
liðinu og væri launanna
virði,“ segir Arnór Smára-
son, knattspyrnumaður hjá
Helsingborg í Svíþjóð. »4
Setti bara á mig
vinnuhanskana
Trausti Stefánsson er fimmti Íslend-
ingurinn sem hefur náð lág-
marki fyrir Evrópumeist-
aramótið innanhúss í
frjálsíþróttum en hann
náði því á móti í Svíþjóð
um helgina. Hann
var átta dögum of
seinn til að setja
Íslandsmet sem
Kolbeinn Höður
Gunnarsson náði
helgina á undan en
þeir gætu nú báðir
keppt á mótinu í
Prag í byrjun
mars. »1
Trausti náði líka lág-
markinu fyrir EM
FH-ingar urðu í gærkvöld fjórða og
síðasta liðið til að tryggja sér sæti í
fjögurra liða úrslitakeppninni í Laug-
ardalshöll í Coca Cola-bikar karla í
handknattleik. FH vann Stjörnuna í
Garðabæ, 29:28, eftir að heimamenn
höfðu haft þriggja marka forskot
nokkrum mínútum fyrir leikslok. Þrír
leikmenn Stjörnunnar fengu að líta
rauða spjaldið í leiknum. »2
FH fékk síðasta miðann
eftir hádramatík
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Dansarinn Emilía Gísladóttir hefur
síðustu rúm tvö ár starfað með dans-
flokknum Compania Nacional de
Danza í Madríd á Spáni þar sem hún
er búsett. Hún er nýkomin aftur
heim til Madrídar frá París þar sem
flokkurinn dansaði í Théâtre des
Champs-Elysées. „Það var mikill
heiður að fá að dansa í þessu fallega
sögufræga leikhúsi. Svo fengum við
líka alveg glimrandi dóma sem
skemmdi ekkert fyrir,“ segir Emilía
af hógværð. Dómurinn sem hún vís-
ar til hljóðaði upp á heilar fimm
stjörnur.
Prógramm þeirra í París saman-
stóð af þremur verkum, SUB eftir
Itzik Galili, Extremely Close eftir
Alejandro Cerrudo og Casi-Casa
eftir Mats Ek. „Ég dansaði í seinni
tveimur verkunum og naut þess sér-
staklega að dansa Casi-Casa þar
sem það hefur lengi verið draumur
minn að dansa í verki eftir Mats
Ek.“
Ferðast um heiminn
Flokkurinn ferðast mikið og setur
upp danssýningar víða um heim. Í
nóvember voru þau til að mynda í
Japan. Næst fara þau til Þýskalands
að sýna verkið Nippon-Koku eftir
Marcos Morau og La Veronal.
En þessa dagana eru þau á fullu
að undirbúa fyrir næstu frumsýn-
ingu flokksins sem er Carmen, ball-
ett í fullri lengd eftir Johan Inger.
„Það er ekkert smá spennandi verk-
efni og ekki skemmir fyrir að ég fæ
að dansa aðalhlutverkið, Carmen.“
Hún segir það algjöran draum að fá
að vinna með Johan Inger, sér-
staklega þar sem hann lét semja al-
veg nýtt verk fyrir sig. Eftir það
taka við sýningaferðir um Spán með
Carmen. „Þannig að það eru bara
spennandi tímar framundan.“
Emilía fór í prufur fyrir flokkinn
sumarið 2012 og komst inn og byrj-
aði um haustið. Áður hafði hún starf-
að með Íslenska dansflokknum í sjö
ár og sagði hún tímabært að flytja út
fyrir landsteinana og prófa eitthvað
nýtt. Hún flutti út með kærasta sín-
um og 2 ára syni sem er nú að verða
5 ára. Þau hafa komið sér vel fyrir
og líður vel. Hún er á svokölluðum
sólóistasamningi hjá flokknum og
það er alveg meira en nóg að gera
hjá henni. Þess má geta að Emilía
tók þátt í þættinum Dans, dans,
dans árið 2011 ásamt Unni Elísabetu
Gunnarsdóttur og lentu þær í öðru
sæti.
Dansflokkurinn Compania Nacio-
nal de Danza var stofnaður 1987 og
er aðalnútímadansflokkur Spánar.
Hann er frekar stór; um 40 dansarar
og hann skiptist í tvo flokka, klass-
ískan og nútímadansflokk og býður
því upp á mjög fjölbreytt prógramm.
Allt frá tútúpilsi og táskóm og í nú-
tímadans.
Túlkar Carmen á Spáni
Dansflokkur-
inn hlaut glimr-
andi dóma í París
Dansverk Emilía Gísladóttir, til vinstri, í hlutverki sínu í Casi Casa eftir Mats Ek sem hlaut lofsamlega dóma í París.
Carmen Emilía á æfingu fyrir Carmen þar sem hún dansar aðalhlutverkið.