Morgunblaðið - 10.02.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2015
Malín Brand
malin@mbl.is
Snemma á mánudagsmorgni,þegar blaðamaður nær taliaf Gunnari Karli, er hannönnum kafinn við að skoða
leiðarnótur en það eru lýsingar á
því hvernig aka skuli leiðir í ralli.
Kannski óvenjuleg iðja hjá ungum
manni á mánudagsmorgni, en ekki
svo galið þar sem hann er að fara
að keppa í Wyedean-rallinu um
næstu helgi og þá er eins gott að
vera eins kunnugur leiðinni og
mögulegt er. Það verður ekki hjá
því komist að spyrja Gunnar Karl
hvenær áhugi hans á ralli hafi byrj-
að.
„Áhuginn byrjaði nú örugglega
bara á fæðingardeildinni því ég hef
alltaf verið með hana,“ segir Gunn-
ar Karl. Sem lítill strákur var hann
mikið í kringum föður sinn, Jó-
hannes Gunnarsson, og félaga hans
sem voru á kafi í sportinu. Ófáar
ljósmyndir eru til af Gunnari Karli,
litlum patta, sitjandi í rallbílnum að
„þykjast“ vera með. Þó eru enn
fleiri myndir til af honum í keppni,
enda hefur hann verið virkur kepp-
andi í akstursíþróttum hér heima
frá því hann var fimmtán ára gam-
all. Hann náði prýðilegum árangri
sem ökumaður í Unglingaflokki í
rallýcross en þar þurfa keppendur
að hafa náð fimmtán ára aldri.
Áhugi sem hvergi dvínar
Frá því Gunnar Karl varð
sautján ára hefur hann keppt í rall-
inu og náð góðum árangri og nú er
það Bretland. Það eru þrjár vikur
síðan Gunnar Karl kom til Bret-
lands og framundan eru fjögur röll
Áhuginn byrjaði á
fæðingardeildinni
Hinn átján ára gamli Gunnar Karl Jóhannesson segir að ralláhuginn hafi án efa
tekið sér bólfestu í honum strax á fæðingardeildinni. Í það minnsta man hann ekki
eftir sér öðruvísi en með óstjórnlega dellu og ekki hefur fjölskyldan, sem er meira og
minna í akstursíþróttum, latt drenginn. Nú er Gunnar Karl kominn til Bretlands
þar sem hann mun keppa í sínu fyrsta ralli á erlendri grundu um næstu helgi.
Tilbúnir Rallökumaðurinn Gunnar Karl Jóhannesson og George Gwynn
aðstoðarökumaður eru klárir í slaginn fyrir Wyedean Rally um næstu helgi.
Ljósmynd/Gunnar Karl Jóhannesson
Bíllinn MMC EVO X eftir reynsluakstur Gunnars Karls á dögunum með
kennaranum Matt Edwards. Gunnar Karl verður númer 50 í rásröðinni.
Tvær fimmtán ára stelpur, þær Hall-
dóra Líney Finnsdóttir og Hekla Bald-
ursdóttir, sigruðu í Ljóðaslammi
Borgarbókasafns Reykjavíkur sl.
föstudag. Þetta var í áttunda sinn
sem keppnin fer fram og þær stöllur
fluttu kraftmikið og hressandi ljóð
sem þær kölluðu „Gervisykrað sam-
félag“ en þema keppninnar þetta árið
var einmitt sykur. Í öðru sæti var
Fríða Ísberg með ljóðið „Aína“ og í
þriðja sæti Þór Þorbergsson með líf-
legt og lífrænt ljóð um „London“.
Flytjendur nýttu sér ýmsa mögu-
leika til sviðsetningar á ljóðunum og
léku sér með sykurþemað, allt frá því
að bursta tennur með sírópi yfir í að
dansa á sviðinu.
Upptökur af siguratriðunum þrem-
ur má sjá á vefsíðunni www.ljoda-
slamm.is, sem er undirsíða borgar-
bokasafn.is. Einnig má sjá myndbönd
á YouTube.
Vefsíðan www.ljodaslamm.is
Ljósmynd/Dagur Gunnarsson
Sigurvegarar Halldóra Líney og Hekla komu víða við í líflegum texta sínum.
Gervisykrað samfélag sigraði
Þau leiðu mistök urðu hér á þess-
um síðum í sl. viku að rangt var
farið með nafn höfundar teikningar
sem fylgdi með frásögn um sýn-
ingu sem heitir Mara og var opnuð
í tengslum við Vetrarhátíðina í
SÍM-salnum í Hafnarstræti í
Reykjavík. Hið rétta er að Halla
Birgisdóttir er höfundur mynd-
arinnar, sem sjá má hér. Halla er
ein þeirra ellefu myndlistarkvenna
sem eiga verk á sýningunni, en
þær eru allar nýlega útkskrifaðar
úr Listaháskóla Íslands. Beðist er
velvirðingar á þessu.
Vart er að taka fram að sýningin
mun standa áfram allt til 25. febr-
úar.
Leiðrétting
Halla teiknaði myndina
Mara Mynd Höllu Birgisdóttur.
Hvað gerir borg að góðum stað til
að búa á? Eykur skipulag og um-
hverfi Reykjavíkur líkur á því að íbú-
arnir verði hamingjusamir? Er svarið
falið í góðu aðgengi að útivist og
grænum svæðum, menningu eða
verslun og þjónustu? Stuðlar ná-
lægð við sundin, fjöllin og náttúr-
una að hamingju? Dregur það úr
sjúkdómum, hjónaskilnuðum?
Fundur um þetta efni verður hald-
inn í fundaröðinni Heimkynni okkar,
borgin, sem umhverfis- og skipu-
lagssvið stendur fyrir, í kvöld á
Kjarvalsstöðum kl. 20. Hugmyndin
er að færa umræðu um skipulags-
mál í vítt og breitt samhengi. Leitað
verður eftir gagnrýnni og hressilegri
umræðu þar sem ólík sjónarmið og
reynsluheimar mætast á málefna-
legum grunni.
Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi,
Anna María Bogadóttir arkitekt, Sig-
rún Helga Lund, doktor í tölfræði,
og Páll Jakob Líndal, doktor í um-
hverfissálfræði, verða með áhuga-
verð framsöguerindi á fundinum.
Allir velkomnir.
Hamingjan og borgarumhverfið
Stuðlar nálægð við sundin, fjöll-
in og náttúruna að hamingju?
Morgunblaðið/Golli
Borgin Í kvöld verður m.a. spurt hvað geri borg að góðum stað til að búa á.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.