Morgunblaðið - 11.02.2015, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 11.02.2015, Blaðsíða 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2015 Á forsíðu vikublaðs- ins Reykjavíkur hinn 17. janúar er auglýsing frá löggiltum múr- arameistara. Þar eru tilgreindar flísalagnir sem hluti af þeirri þjón- ustu sem hann býður upp á. Eflaust hafa margir lesendur lagt flísar eða fengið ein- hvern nákominn til að hjálpa sér við slíkt. En hitt kannast þó flestir við, að hafa leitað til fagmanns í grein- inni. Ef ekki til að leggja flísar með gæði í huga, þá til þess að flota gólf, múra upp veggi, eða í aðra múrvinnu. Múrverk er fyrst og fremst fagvinna þar sem ending og áferð skipta miklu máli. Viljum við halda í iðnina? Sjá hana eftirsóknarverða, löggilta og að vinnan teljist vönduð, fagmannleg og verkið fallegt? Að virða verðmæti og gera vel Þegar fram koma hugmyndir um að endurskoða og jafnvel afnema lög- gildingu iðngreina þurfum við að staldra við. Vissulega draga menn ekki alltaf skarpar línur milli tilrauna þess handlagna við að afgreiða hand- verk, á milli handverks og hönnunar eða handverks og lista, en hug- myndin um ábyrga og vel menntaða iðnaðarmenn er aldagömul og gegn. Hún er líka í samræmi við kröfur um að virða verðmæti og hamla gegn só- un. Það er hlutverk fagmannsins að skila vönduðu verki sem greitt er fyr- ir. Löggilding iðngreina er í sam- ræmi við kröfuna um öryggi og vönd- uð og fagleg vinnubrögð. Stefnan stuðlar líka að því að varðveita mik- ilvæga þekkingu. Löggilding er réttmæt Um 60 löggiltar iðngreinar eru skráðar á Íslandi. Sumar hafa verið fjölmennar, aðrar fámennar og sum- ar eru við það að gleymast. Náms- leiðirnar eru nokkrar en nám undir handleiðslu meistara er algengast. Í sumar iðnir vantar fólk, aðrar eru vinsælar og enn aðrar hafa takmað- arkað aðgengi vegna fárra meistara. Vissulega getur farið svo að iðn hverfi eða að tækniþróun geri lög- gildingu úrelta. Það verður að teljast til undantekningar. Allt þarf þetta umræðna og endurskoðunar við en þá með það fyrir augum að styrkja iðngreinarnar og efla iðnnám. Af hverju? Til þess að auka fjölbreytni í atvinnulífi, höfða til ungs fólks með ólíka hæfileika og rækta það sem manninum er eiginlegt: Að skapa, rækta, upphugsa og stunda. Löggilt- ar iðngreinar mynda kjölfestu en svo erum við flest eitthvað að stússa án beinnar hjálpar fagmanna. Þýskt dæmi Við skulum horfa til Þýskalands og nota iðngreinina flísa- og mósaík- lagnir til þess að skoða hvað um fagið varð eftir að löggilding 53 af 94 iðn- greinum þar í landi var afnumin árið 2004. Þar á meðal var einmitt sú sér- grein sem er innan iðnar múrarans hér hjá okkur. Aðilar á borð við Fé- lagsvísindastofnun við Háskólann í Göttingen og iðnsambönd hafa fylgst í áratug með þróun þessa fags og hinna sem ekki eru löggilt lengur og birt niðurstöður sínar. Í iðnumdæmi Erfurt fjölgaði t.d. fyrirtækjum í greininni úr 226 í 1.232 á tíu árum og er það yfir 500% fjölgun. Lærlingum fækkaði úr 54 í 14. Nú eru aðeins 8 nemar eftir á samningi hjá meistara en meisturunum fækkar óðum. Eft- irspurn er samt mikil eftir faglærð- um aðilum í greininni og beiðnum um verkefni til þeirra fjölgaði mikið. Umfang verkefna í heild var aftur á móti svipað. Þar með deildust verk- efni á miklu fleiri fyrirtæki en áður, sem flest eru lítil, jafnvel einyrkjar. Veruleg fagþekking hefur glatast, og margir þeirra menntuðu sem eftir eru hafa nóg að gera við að lagfæra galla eftir fúskarana. Þegar litið er heilt yfir handverk sem gefið var frjálst, ef nota má það orðalag, kem- ur í ljós að dæmið hér að ofan er nokkuð lýsandi. Á fimm árum eftir 2004 voru 60% nýrra handverksfyr- irtækja í Þýskalandi horfin og gjald- þrot mjög algeng. Fyrir 2004 lifðu 70% nýstofnaðra fyrirtækja í sömu greinum lengur en fimm ár. Svört vinna í byggingariðnaði jókst að sama skapi, undirboðum fjölgaði í harðri samkeppninni, laun lækkuðu til langs tíma litið og skaðabótakröf- um vegna gallaðra verka fjölgaði. Stöldrum við Sannarlega er ekki hægt að alhæfa um allar iðnir eða spegla reynslu af afnámi löggildingar í einu landi fylli- lega yfir á annað. Sagan ytra segir okkur margt engu að síður. Nú er verið að skoða iðnnám í heild á Ís- landi og unnið hefur verið að úttekt á löggildingu iðngreina, jafnvel með breytingar í huga. Þá gildir að vinna verkefnin í samráði og með hag iðn- aðarmanna, kaupenda þjónustunnar og ungs fólks að leiðarljósi. Vinnan verður líka að taka til þess hvernig má aðlaga erlenda fagmenn, sem hingað flytja, að ábyrgu fagkerfi. Þeir eru jafn mikilvæg viðbót við vinnuafl í landinu og erlendir há- skólaborgarar eða ófaglært fólk. At- vinnufrelsi og fagmennska eru ekki eitt og það sama, hvað sem snertiflöt- um kann að líða. Telji einhver að Evrópusambandið knýi á um afnám löggildingar iðngreina, er það rangt. Þaðan hefur komið beiðni til sam- bandslandanna um að skoða og skil- greina þarfir fyrir löggiltar greinar. Engar kvaðir eru um fækkun þeirra. Það er eftir sem áður í höndum lög- gjafa hvers lands, í góðri sátt við fag- stéttirnar, að breyta einhverju í þessum efnum. Föstudaginn 23. jan- úar var fjallað í fjölmiðlum um þriðj- ungs fækkun nema í íslenska bygg- ingargeiranum. Viljum við að slík öfugþróun einkenni flestar iðn- greinar? Fagmennska? Eftir Sigurð Má Guðjónsson og Ara Trausta Guðmundsson » Löggilding iðngreina er í samræmi við kröfuna um öryggi og vönduð og fagleg vinnu- brögð. Stefnan stuðlar líka að því að varðveita mikilvæga þekkingu. Sigurður Már Guðjónsson Sigurður Már er bakara- og konditor- meistari. Ari Trausti er rithöfundur og jarðvísindamaður. Ari Trausti Guðmundsson Krabbameinsfélagið full- yrðir að skimunarpróf Bláa naglans, sem hóf í árs- byrjun að senda það öllum fimmtugum á árinu til að leita að blóði í hægðum, standist alls ekki viðmið um skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi. Í fram- haldi af þessu hefur leit- arstöðin hvatt Bláa naglann til að hætta þessum send- ingum vegna þess að það veitir falskt öryggi. Mér finnst rétt að benda á þetta hér í víðlesnum Velvakanda. Borgari. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Hópleit Böðuð bleiku Árlega greinast um 1450 manns með krabbamein hér á landi. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is Bridsdeild Breiðfirðinga Það var spilað á 10 borðum 8. febr. sl. Þetta var 3. dagur í 4 daga keppni þar sem 3 bestu gilda. Úrslit kvöldsins í N/S: Oddur Hanness. – Árni Hannesson 259 Guðm. Sigursteinson – Björn Árnason 246 Jón Jóhannss. – Sveinn Sveinsson 231 Úrslit A/V Magnús Sverriss. – Halldór Þorvaldss. 279 Björn Arnarson – Jón V. Jónmundss. 236 Hörður Einarsson – Björn Sigurbjörnss. 232 Guðrún Jörgensen – Þórður Ingólfss. 232 Staðan í mótinu: Guðm. Sigursteins. – Unnar A. Guðmss. 760 Magnús Sverriss. – Halldór Þorvaldss. 757 Oddur Hanness. – Árni Hannesson 752 Rúnar Lárusson – Guðlaugur Sveinss. 697 Ingibjörg Guðmundsd. – Sólveig/Kristín 687 Spilað er á sunnudögum kl. 19. E-60 Bekkur Verð frá kr. 59.000 Fáanlegur í mismunandi lengdum. Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is Íslensk hönnun og framleiðsla www.facebook.com/solohusgogn Retro borð með stálkanti Verð frá kr. 96.000 Fáanlegt í mismunandi stærðum. E-60 Stólar Klassísk hönnun frá 1960 Hægt að velja um lit og áferð Verð frá kr. 24.300 Útsölulok allt að 50% afsláttur RÚMFÖT HANDKLÆÐI DÚKAR METRAVARA RÚMTEPPI Z-Brautir og gluggatjöld Faxafeni 14,108 Reykjavík | Sími 525 8200 | www.z.is | Opið virka daga 10-18 — laugardaga 11-15 vefna ðarva ra frá 5 00 kr . mete rinn H ön nu n: M or gu nb la ði ð 01 15

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.