Morgunblaðið - 11.02.2015, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.02.2015, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2015 Taugar er yfirskrift ann-arrar uppsetningar Ís-lenska dansflokksins eftirað Erna Ómarsdóttir tók við sem listrænn ráðgjafi flokks- ins. Við ráðningu Ernu gaf hún það út að áhersla yrði lögð á frumsamin verk eftir íslenska og upprennandi danshöfunda sem og að spreyta sig á krefjandi verkum eftir erlenda danshöfunda. Með uppsetningu þessara verka má strax sjá merki um breytta stefnu flokksins, sem virðist nú endur- spegla samtímann vel. Auk þess tekur Dansflokkurinn nú þátt í Reykjavík Dance Festival í fyrsta skipti sem gefur enn betur til kynna að flokkurinn vilji ýta enn frekar undir grósku og frumkvæði sjálfstæðra danshöfunda. Taugin á milli verkanna í þessari uppsetn- ingu er sterk en þau vísa bæði í einskonar helgiathafnir, þó hvort á sinn ólíka hátt. Blýkufl eftir Sögu Sigurðar- dóttur var fyrra verk kvöldsins. Í sýningarskrá segir að verkið sé „… ekki síður athöfn en dansverk: Athöfn um ást – ást sem gengur nærri okkur. Leysir upp varnir og sameinar“. Verkið byggist að miklu leyti á helgiathöfnum súfista, en súfistar eru dulspekingar sem tilheyra ísl- am. Þeir nota eins konar lík- amlega íhugunaraðferð þar sem leitast er við að yfirstíga sjálfið og mannlegar kenndir til að nálgast hið guðlega. Þessi boðskapur var stundum nokkuð óljós; búningar og mikil lýsing drógu úr áhrifa- mætti þeirra hugmynda sem virt- ust liggja að baki. Samhengi var ekki alltaf auðskilið og stundum vandséð hvaða áhrif áttu að nást fram. Verkið náði góðu flugi á köflum framan af og undir lokin voru hreyfiform og fyrri samsetn- ingar endurgerðar og settar í nýtt og spennandi samhengi á áhuga- verðan hátt, og öðlaðist verkið þannig ágætlega sterka heild- armynd. Seinna verk kvöldsins var Lim- inal eftir pólska danshöfundinn og dansarann Karol Tyminski. Í verkum sínum skoðar Tyminski sjálfan líkama dansarans og svið tilfinninga í gegnum hreyfingu auk þess að fjalla um mannlegt ástand. Hreyfingin sem slík er að vissu leyti umfjöllunarefni og í gegnum sjálfsskoðun dansaranna beinist athyglin að líkamanum og takmörkunum hans. Margar ólíkar vísanir í nútímalíferni var að finna í verkinu, svo sem tölvuleiki, vinnuumhverfi og þrá eftir breyttu hugarástandi. Í upphafi verksins beinist athygli áhorfandans að Tyminski sjálfum þar sem hann einbeitir sér að einum líkamsparti í einu. Uppbyggingin leiðir smám saman til þess að sviðsmunir flétt- ast inn í hreyfinguna með áhrifa- ríkum hætti, sem þróast svo í að dansari og sviðsmynd eru lögð til jafns og koma saman í heildrænt hreyfiform. Umgjörð og búningar létu lítið yfir sér og virtust í fyrstu látlaus og einföld sem gaf gott tóm til stigmagnandi upp- byggingar. Þegar áhorfandi fékk á tilfinninguna að hápunktur verks- ins væri í þann mund að nást stækkaði verkið enn frekar og var aðdáunarvert hversu vel tókst til með notkun búninga og sviðs- myndar að stækka verkið allt fram að lokum þess. Íslenski dansflokkurinn sýndi það enn og aftur hversu sterkir dansarar flokksins eru og hversu færir þeir eru um að takast ólík verkefni á hendur. Morgunblaðið/Árni Sæberg Heildrænt „Uppbyggingin leiðir smám saman til þess að sviðsmunir fléttast inn í hreyfinguna með áhrifaríkum hætti,“ segir um Liminal eftir Tyminski. Borgarleikhúsið Blýkufl bbbnn Liminal bbbbm Tvö verk Íslenska dansflokksins undir yfirskriftinni Taugar. Blýkufl (Cloak) eftir Sögu Sigurðardóttur í samvinnu við dansara verksins: Ásgeir Helga Magnússon, Cameron Corbett, Einar Nikkerud, Höllu Þórðardóttur og Hjör- dísi Lilju Örnólfsdóttur. Tónlist: Hall- varður Ásgeirsson. Ljósahönnun: Björn Bergsteinn Guðmundsson. Búninga- hönnun: Elsa María Blöndal. Liminal eftir Karol Tyminski í samvinnu við dansara verksins: Ásgeir Helga Magnússon, Höllu Þórðardóttur, Hann- es Þór Egilsson, Karol Tyminski og Þyri Huld Árnadóttur. Tónlist: Valdimar Jó- hannsson. Ljósahönnun: Björn Berg- steinn Guðmundsson. Búningahönnun Agnieszka Baranowska. Uppfærslan á Taugum er hluti af Reykjavík Dance Festival. Frumsýning á Nýja sviði Borgarleikhússins föstudag- inn 6. febrúar 2015. MARGRÉT ÁSKELSDÓTTIR DANS Kraftmiklar Taugar Sterk heildarmynd „…öðlaðist verkið þannig ágætlega sterka heild- armynd,“ segir m.a. í rýni um Blýkufl Sögu Sigurðardóttur. Hildur Ásgeirs- dóttir Jónsson myndlistarkona, sem starfar bæði í Cleveland í Bandaríkjunum og á Íslandi, er einn listamann- anna sem valdir hafa verið á sýn- inguna Pretty Raw í The Rose Art Museum, listasafni Brandeis- háskólans. Á sýningunni er gengið út frá myndlist Helen Frankenthaler (1928-2011) og skoðað hvernig meta má módernískar hræringar í myndlist síðustu hálfrar aldar út frá verkum hennar. Skreyti og húmor, kvenleiki og karllegar eig- indir er meðal þess sem sýningar- stjórinn Katy Siegel hafði í huga við valið. Meðal annarra listamanna sem eiga verk á sýningunni eru t.d. Grace Hartigan, Larry Rivers, Lynda Benglis, Andy Warhol, Car- roll Dunham og Kara Walker. Verk Hildar í The Rose Museum Hildur Ásgeirs- dóttir Jónsson Sigrún Eðvalds- dóttir fiðluleik- ari og Selma Guðmundsdóttir píanóleikari koma fram í Salnum í dag kl. 12.15. Á efnis- skránni eru Pre- ludium og Allegro eftir Pugnani/ Kreisler, Rómönsur eftir annars vegar Beethoven og hins vegar Árna Björnsson auk tveggja laga eftir Sigvalda Kaldalóns í útsetn- ingu Atla Heimis Sveinssonar. „Þær Sigrún og Selma eiga langt samstarf að baki og hafa haldið tónleika víða um heim. Tón- leikarnir í hádeginu á morgun eru í aðdraganda tónleikaferðar þeirra til Kína í mars komandi,“ segir m.a. í tilkynningu. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Líttu inn í hádeginu sem hóf göngu sína haustið 2012 í Salnum undir list- rænni stjórn Guðrúnar Birg- isdóttur. Rómönsur fyrir fiðlu og píanó Sigrún Eðvaldsdóttir Um helgina var greint frá því að met- verð hefði fengist fyrir eitt olíu- málverkanna sem franski myndlist- armaðurinn Paul Gauguin (1848-1903) málaði á Tahiti árið 1892, mynd sem sýnir tvær ungar konur og kallast „Nafea faa ipoipo?“ – „Hve- nær giftist þú?“ Mun verkið hafa ver- ið selt fyrir 300 milljónir dala, um 37 milljarða króna. Samkvæmt óstað- festum heimildum í listheiminum mun kaupandinn vera í furstafjöl- skyldunni í Katar en þarlendir list- unnendur hafa á síðustu árum keypt mörg gæðaverk margra helstu mynd- listarmanna síðustu tveggja alda fyr- ir háar fjárhæðir, meðal annars eitt af fjórum sem Cezanne málaði af spila- mönnum fyrir um 250 milljónir dala. Verkið eftir Gauguin hefur verið í eigu hinnar svissnesku Staehelin- fjölskyldu í nær eina öld. Fjölskyldan hefur átt úrval afar verðmætra verka en hefur á síðustu árum selt nokkur, meðan annars málverk eftir Van Gogh, Monet og Cezanne. Frá 1946 hafa 18 verk fjölskyldunnar verið sýnd í Kunstmuseum Basel í Sviss. Nú hefur verkið eftir Gauguin verið lánað á yfirlitssýningu á verkum hans í Fondation Beyeler í Riehen, nærri Basel, en nýir kaupendur fá það af- hent í upphafi næsta árs. Í gær var síðan greint frá því í The Art Newspaper að í kjölfarið hafi Staehlin-fjölskyldan ákveðið að taka þau verk sem eftir eru í Kunstmu- seum Basel og semja við annað safn um að hafa þau til sýnis. Í yfirlýsingu segja stjórnendur safnsins í Basel harma að missa þessi mikilvægu listaverk sem hafa mynd- að kjarnann í verkum eftir impress- jónista og síð-impressjónista í safninu en þau eru meðal annars eftir Van Gogh, Cézanne og Manet. Dýrustu málverkin sögð seld til Katar  Seljendur taka verk sín úr safni EPA Dýrt Gestur skoðar hið dýra verk Gauguins í Fondation Beyeler. Innihurðir í öllum stærðum og gerðum! Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki Lei tið tilb oða hjá fag mö nnu m o kka r • Hvítar innihurðir • Spónlagðar innihurðir • Eldvarnarhurðir • Hljóðvistarhurðir • Hótelhurðir • Rennihurðir • Með og án gerefta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.