Morgunblaðið - 23.02.2015, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2015
Benedikta Br. Alexandersdóttir
benedikta@mbl.is
Óþarfa offarsi, átta hurðafarsi eftir Paul SladeSmith, var frumsýndur álaugardaginn af Leik-
félagi Kópavogs. Farsinn heitir á
frummálinu Unnecessary farce og
er þekktasta og víðleiknasta leikrit
Smiths. Verkið var fyrst frumflutt í
Bandaríkjunum 2006 og hefur verið
sett upp 145 sinnum víðsvegar um
heiminn. Uppfærsla Leikfélags
Kópavogs er frumflutningur verks-
ins hér á landi.
Óþarfa offarsa er leikstýrt af
Herði Sigurðarsyni en hann sér
einnig um íslenska þýðingu leikrits-
ins. Hörður hefur leikstýrt fjölda
leikrita, bæði fyrir Leikfélag Kópa-
vogs og önnur leikfélög víðsvegar
um landið. Þó hann hafi fengist við
allar tegundir leiklistar þá segist
hann veikur fyrir góðum försum.
„Ég er persónulega dálítið veikur
fyrir försum þó ég sé ekkert endi-
lega að einblína á slíkt form leik-
listar frekar en eitthvað annað,“
segir Hörður. „Farsi er eitt léttasta
form leiklistar sem gengur út á það
að skemmta áhorfendum og fram-
kalla hlátur. Það er því ekki að
undra að slík leikrit séu vel sótt.
Það er ýmislegt sem einkennir
farsa en þar má oft sjá venjulegt
fólk í mjög óvenjulegum aðstæðum.
Það á sér yfirleitt eitthver leyndar-
mál og spinnur lygavef sem veldur
misskilningi og kemst upp. Það er
því algengt að einhver haldi að ein-
hver annar sé annar en hann er,
auk þess sem það er algengt að
einn telji annan aðra persónu en
Markmiðið að fram-
kalla gleði og hlátur
Leikfélag Kópavogs frumsýndi á dögunum farsa eftir Paul Slade Smith. Um er að
ræða hans þekktasta verk en farsinn hefur verið settur upp í 145 skipti víðsvegar
um heiminn og er nú frumfluttur undir yfirskriftinni Óþarfa offarsi á Íslandi í
leikstjórn Harðar Sigurðarsonar. Farsinn hefur fengið góðar undirtektir víða um
heim og verður spennandi að sjá viðbrögð íslenskra áhorfenda.
Löggugrín Erna Björk H. Einarsdóttir og Guðmundur L. Þorvaldsson fara
með hlutverk Billie Dwyer og Erics Sheridan, misgáfaðra lögreglufulltrúa.
Kynferðisleg spenna Helga Björk Pálsdóttir og Héðinn Sveinbjörnsson fara
með hlutverk Karenar Brown endurskoðanda og Franks öryggisfulltrúa.
Feykir.is er fréttavefur samnefnds
héraðsfréttablaðs á Norðurlandi
vestra, Feykis, sem komið hefur út í
nokkra áratugi.
Það er alltaf gaman að skoða
fréttamiðla sem birta efni úr hér-
aðinu og nærsveitinni. Vefurinn er lif-
andi og skemmtilegur og rata ýmsar
skemmtilegar fréttir þar inn af mönn-
um og málefnum. Fréttirnar eru að
stórum hluta til fréttir af íþróttum og
ýmsum tilkynningum. Fréttirnar á
vefnum eru skemmtileg viðbót við
allar fréttirnar sem eiga sínar rætur
að rekja sunnan heiða.
Þessi vefur er nokkuð aðgengileg-
ur og eru margir valmöguleikar fyrir
hendi um efnisflokka. Það er t.d. sér-
stakur flipi fyrir sýslurnar, Austur- og
Vestur-Húnavatnssýslur og Skaga-
fjörð. Efnisflokkarnir eru þó kannski
aðeins of margir, sem getur truflað
notandann.
Vefsíðan www.feykir.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Feykir Vefurinn er skemmtilegur með fróðlegum fréttum t.d. af Sauðárkróki.
Fréttir af landsbyggðinni
Jóhanna Rósa Arnardóttir, félags- og
menntunarfræðingur heldur erindið,
Flæði ungmenna frá skóla yfir á vinnu-
markað, á miðvikudaginn 25. febrúar
frá 16.20 til 17.05, í Stakkahlíð. Erindið
er byggt á doktorsrannsókn um flæði
fólks frá skóla yfir á vinnumarkað, at-
vinnutækifæri og starfsleitaraðferðir.
Í erindinu verður áherslan á stöðu
ungmenna að loknum framhaldsskóla
en ritgerðin tekur mið af fjórum
meginmenntunarleiðum ungs fólks;
þeim sem ljúka ekki framhaldsskóla-
prófi, þeim sem ljúka bóknámi og
starfsnámi á framhaldsskólastigi og
þeim sem ljúka háskólaprófi.
Endilega …
… fræðist um
flæði fólks
Fræðsla Fyrirlestur í Stakkahlíð.
Þessi litli kengúruungi dafnar vel í dýra-
garðinum í Krefeld í Þýskalandi. Hann hefur
verið nefndur Norman. Starfsmenn dýra-
garðsins hafa þurft að hugsa vel um hann
frá því hann fæddist í september á síðasta
ári. Eftir að hann kom í heiminn þá hafnaði
móðir hans honum. Starfsfólkið hefur því
verið duglegt að gefa honum að éta á hverj-
um degi og gengið um með hann í poka
framan á sér til þess að líkja sem mest
hreyfingum móður hans.
Yvonne Wicht, starfsmaður dýragarðs-
ins, hefur gengið litlu kengúrunni í móður-
stað en hún hefur tekið Norman litla með
sér heim á nóttunni til að gefa honum að
drekka frá því hann fæddist.
Kengúruunginn braggast með hverjum deginum
Norman dafnar vel undir móður-
legri umsjón starfsfólks
EPA
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver
.is
Velkomin á nýjan vef
Bakarameistarans
Nú getur þú pantað
Tertur, Brauðmeti og bakkelsi
Veislu og fundarpakka
og margt fleira í vefverslunni okkar
. ..
. ..
. ..