Morgunblaðið - 23.02.2015, Side 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2015
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is HEYRNARSTÖ‹IN
Snjallara heyrnartæki
Beltone First™
Nýja Beltone First™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004
Evran hækkaði lítillega gagnvart
bandaríkjadal á föstudag vegna
frétta af samkomulagi grískra
stjórnvalda og Evruhópsins svokall-
aða. Þrátt fyrir hækkun föstudags-
ins veiktist evran um 0,1% gagnvart
dal þegar litið er á vikuna alla.
Hefur bandaríkjadalur þó verið á
hægfara niðurleið undanfarnar fjór-
ar vikur eftir mikið styrkingartíma-
bil frá miðju sumri. ICE-vísitalan
sem mælir gengi dalsins gagnvart
körfu helstu gjaldmiðla missti 0,05%
yfir vikuna að því er MarketWatch
greinir frá.
Hlutabréf í methæðum
Bandaríski hlutabréfamarkaður-
inn brást vel við fréttunum sem bar-
ust frá Grikklandi í vikulok. Bæði
S&P 500 vísitalan og Dow Jones-
vísitalan skutust upp í methæðir.
S&P 500 styrktist um 0,6% á
föstudag og endaði í 2.110,30 stigum,
með 0,6% hækkun yfir vikuna. Dow
Jones-vísitalan hækkaði um 0,9% á
föstudag og var í 18.140,44 stigum
við lokun markaða. Nam vikuhækk-
unin 0,7%.
Nasdaq Composite-vísitalan hæk-
aði áttunda daginn í röð, bætti við sig
0,6% og stendur nú í 4.952 stigum,
með 1,3% vikuhækkun.
Blaðamaður MarketWatch bendir
á að S&P 500 vísitalan hafi ekki verið
hærra metin síðan í desember 2004
ef miðað er við V/H hlutfall (verð á
móti hagnaði, e. P/E hlutfall). Er
V/H hlutfall S&P 500 nú komið yfir
17. ai@mbl.is
Grískur samningur lyft-
ir evru og Wall Street
S&P 500 og Dow
Jones slá ný met
AFP
Kátur Starfsmenn NYSE höfðu ástæðu til að brosa þegar met voru slegin á
föstudag. Markaðurinn brást vel við skammtímalausn á vanda Grikklands.
Hópur áhrifamikilla fjárfesta hefur
skrifað fjörutíu stærstu fyrirtækj-
um Frakklands bréf sem hvetur
þau til að nýta sér undanþágu-
ákvæði laga sem þingið samþykkti
í apríl síðastliðnum.
Svokölluð Florange-lög kveða á
um að sá sem hafi átt hlut í
frönsku fyrirtæki í meira en tvö ár
fái sjálfkrafa tvöfaldan atkvæðis-
rétt, nema fyrirtækið hafi gagn-
gert ákveðið að undanskilja sig
þessum reglum með breytingu á
samþykktum.
Nýju lögin snúa við fyrri fram-
kvæmd þar sem heimilt var, en
ekki skylt, að tvöfalda atkvæðisrétt
ef félag gerði sérstaklega breyt-
ingu á samþykktum í þá veru.
Financial Times segir fjárfesta ótt-
ast að nýju reglurnar geti styrkt
mjög stöðu franska ríkisins, sem á
stóran hlut í mörgum frönskum
fyrirtækjum. Er einnig hætta á að
verkalýðsfélög styrkist mjög á
kostnað minni hluthafa, en frönsk
verkalýðsfélög fara oft með at-
kvæðisrétt fyrir hönd starfsmanna
sem eignast hluti í gegnum ákvæði
í ráðningarsamningum.
Franska efnahagsráðuneytið
segir nýju lögunum ætlað að hvetja
til langtímafjárfestingar, draga úr
hlutabréfaveltu og stuðla að stjórn-
unarháttum sem horfir frekar til
langtímamarkmiða. ai@mbl.is
AFP
Áhrif Fjármálahverfi Parisar, La Défense. Lög sem samþykkt voru á síðasta
ári færa aukin völd til eldri hluthafa fyrirtækja. Ekki lýst öllum vel á.
Franskir fjárfest-
ar með áhyggjur
af nýjum lögum
Breytir atkvæðavægi hluthafa
Bandarískur dómstóll úrskurðaði á
fimmtudag að greiðslukortarisinn
American Express gæti ekki meinað
seljendum að bjóða notendum ann-
arra korta lægri verð eða hvetja með
öðru móti til að greiða með annarri
kortategund.
Samkvæmt umfjöllun Time er al-
gengt að greiðslukortafyrirtæki vest-
anhafs taki á bilinu 2-3% þóknun af
kortafærslum. Þóknun American Ex-
press hefur þó verið nokkru hærri og
þykir m.a. skýra rausnarlegri fríðindi
sem viðskiptavinir kortafyrirtækisins
njóta s.s. í formi punktasöfnunar.
Seljendur sitja hins vegar uppi með
sárt ennið ef viðskiptavinurinn reiðir
fram American Express kort frekar en
kort sem tekur lægri færsluþóknun, og
gæti verið vel þess virði að bjóða við-
skiptavininum t.d. afslátt fyrir að
greiða með annarri kortategund.
Skilmálar Amex og seljenda hafa
hins vegar kveðið á um að óheimilt sé
að bjóða slík tilboð, eða jafnvel bara
greina neytandanum frá að notkun
Amerian Express korta komi sér verr
fyrir seljandann.
Nú hafa slíkir skilmálar verið
dæmdir ólöglegir og segir Time lík-
legt að fyrir vikið geti American Ex-
press þurft að lækka hjá sér færslu-
gjöldin, og um leið draga úr fríðindum
kortanotenda. Er þó óvíst hvort dóm-
urinn heldur en AmEx hyggst áfrýja
niðurstöðunni. ai@mbl.is
AmEx tapar mik-
ilvægu dómsmáli
AFP
Bylur Viðskiptavinir bandarískrar verslunar búa sig undir vonskuveður.
Misháar færsluþóknanir kortafyrirtækja geta tekið skerf úr framlegðinni.
Eimskipafélag Íslands hf. og Sæ-
ferðir ehf. hafa undirritað viljayfir-
lýsingu um möguleg kaup fyrr-
nefnda félagsins á því síðarnefnda.
Í tilkynningu sem send var fjöl-
miðlum á laugardag er greint frá að
Sæferðir reka tvö skip í siglingum á
Breiðafirð; annars vegar ferjuna
Baldur sem siglir milli Stykkis-
hólms og Brjánslækjar með við-
komu í Flatey og hins vegar Sæ-
rúnu sem siglir skoðunarferðir um
Breiðafjörð. ai@mbl.is
Eimskip með áhuga á Sæferðum
Sundahöfn Verði af kaupunum myndi Eimskip eignast Baldur og Særúnu.