Morgunblaðið - 04.03.2015, Side 10
Morgunblaðið/Kristinn
Tónar Egill Ólafsson og Jónas Þórir á æfingu í gær í Bústaðakirkju, þeir ætla að koma fram saman á laugardag.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þegar fólk býr til tónlist ferþað aldrei langt frá sjálfusér og þeim hughrifumsem það verður fyrir í
æsku – í það minnsta á það við um
mig. Á laugardaginn ætla ég að
setjast niður með gítar, ásamt
samstarfsmanni til margra ára,
Jónasi Þóri, og við ætlum að spila
lög frá ólíkum tímum, en spila þau
í anda þess þjóðlagastíls sem var
ríkjandi í kringum 1960 eða þegar
ég byrjaði að hlusta á tónlist og
verða fyrir áhrifum. Þegar ég lít til
baka átta ég mig á því að ég hef í
raun aldrei sagt skilið við þessi
áhrif, þegar þjóðlaga-bylgjan mikla
gekk yfir okkar heimshluta: Harry
Belafonte, Pete Seeger, Bob Dylan,
Joni Mitchell og Bítlarnir. Allt
þetta ágæta tónlistarfólk var undir
mjög sterkum áhrifum frá gamla
arfinum, þjóðlaginu.
Við verðum með samsafn
ólíkra laga í nýjum búningi, negra-
sálma, gömul popplög, þjóðlög, svo-
lítinn Beethoven, Bítlana, Egil
Ólafs og fleira,“ segir Egill Ólafs-
son en hann mun koma fram á
þjóðlagahátíð á Kexhosteli um
helgina og með honum verður Jón-
as Þórir sem spilar á Hammond-
orgel.
„Við ætlum að leyfa okkur að
velta vöngum yfir hlutverki tónlist-
ar, þess vegna þjóðlagsins í gegn-
um árþúsundin: Þjóðlag er lag sem
hefur sannanlega ferðast frá einu
samfélagi til annars, og hvert sam-
félag hefur gert það sama lag að
sínu – m.ö.o. gert nýtt lag sem
byggir á stundum lauslega á því
gamla. Ég ólst upp við að hlusta á
amerísku þjóðlagahefðina eftir
miðja síðustu öld, kalipsóið, skiffle,
Gershwin, blúsinn bæði þann
breska og ameríska, Bítlana og
varð fyrir sterkum áhrifum, þetta
voru þjóðlögin sem bárust til okkar
og við byggðum á þeim og bjugg-
um til nýja músík, sem við köll-
uðum okkar. Það er því músík sem
lýtur sömu lögmálum og þjóðlög.
Þannig er þjóðlagið alltaf í ferðum
og alltaf að ganga í endurnýjun líf-
daga. Það er endalaust verið að
semja nýjar sögur, lög, ljóð sem
byggja á flökkuarfi kynslóðanna.“
Egill segir að á tímum Pýþa-
górasar, á sjöttu öld fyrir Krist,
hafi módal-tóntegundirnar komið
til, tóntegundir sem við notum í ís-
lensku þjóðlögunum.
„Módal-tóntegundirnar varð-
veittust í grísk-kaþólska söngnum -
en margir lagboðar þar eru upp-
haflega þjóðlög sem kirkjan tók
upp og notaði. Kaþólskan varð út-
breidd og því varð þjóðlagið fyrir
áframhaldandi áhrifum af þessum
gömlu svokölluðu kirkjutónteg-
undum og Lúther hélt viðteknum
hætti og tók upp gamla drykkju-
söngva og gerði að sálmum. Þá
voru aðrir tímar og farið að glitta í
dúr- og moll-kerfið, nýjar tónteg-
undir og tempraða stillingin var
ekki langt undan.
Tónskáldin gerðu þetta líka, til
dæmis Beethoven, tónlistin hans er
uppfull af stefjaefni sem á rætur í
þjóðlögum sem hann vinnur svo
útfrá.“
Þjóðlagið þjappar
okkur saman
Egill segir að í ævafornu þjóð-
lagi geti falist margslunginn gamall
arfur/tónamál frá ólíkum heims-
hlutum og ef þau eru skoðuð, rann-
sökuð þá kemur ósjaldan ýmislegt
Í þjóðlaginu er sameiginlegt
erfðaefni okkar allra
„Við ætlum að koma svolítið á óvart á laugardaginn,“ segir Egill Ólafsson, en hann kemur fram á þjóðlagahátíð-
inni Folk festival á Kex Hosteli ásamt Jónasi Þóri Þórissyni. Þeir verða með safn ólíkra laga í nýjum búningi.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015
Á Siglufirði er fagurt Þjóðlagasetur
og á vefsíðu þess www.folkmusik.is
má fræðast um fjölmargt í tengslum
við þjóðlög og setrið. Þar er líka hald-
in hvert sumar þjóðlagahátíð og í ár
verður hún 1.-5. júlí.
Markmið þjóðlagahátíðarinnar á
Siglufirði er að kynna þjóðlagaarf
ólíkra þjóða og þjóðarbrota. Á hátíð-
inni hefur tónlist fjölmargra þjóða
verið kynnt auk þess sem íslensk
þjóðlög sitja ætíð í öndvegi. Auk tón-
leika er boðið upp á fjölmörg nám-
skeið, bæði í tónlist og handverki,
gömlu og nýju. Þá er börnum þátttak-
enda boðið upp á ókeypis námskeið í
leiklist og tónlist. Þjóðlagahátíð á
Siglufirði var fyrst haldin sumarið
2000 og er vert að hvetja áhugasama
til að skoða hvað verður á dagskránni
nú í sumar og íhuga hvort sé ekki lag
að bregða sér norður og taka þátt í
gleðinni.
Vefsíðan www.folkmusik.is
Ljósmynd/Halldór Þormar Halldórsson
Þjóðlagasetur Maðdömuhúsið fagra er elsta hús Siglufjarðar.
Þjóðlagahátíð á Siglufirði
Nú hefur styrktarfélagið Jógahjartað
verið starfrækt í um 1 ár, en Jóga-
hjartað hefur það markmið að veita
börnum jógakennslu í sínum heima-
skóla.
Í dag gefst tækifæri til að koma á
fræðslufund og kynna sér starfsemi
Jógahjartans og sjá framvindu mála
og heyra reynslusögur um kennslu á
jóga, hugleiðslu og slökun fyrir 700
börn á síðastliðinni haustönn.
Fræðslufundurinn verður haldinn í
kvöld kl. 20 í jógasal Ljósheima,
Borgartúni 3. Aðgangur er ókeypis og
allir velkomnir. Í upphafi fundar verð-
ur stutt hugleiðsla, síðan ætla Arn-
björg Kristín, Dagmar Una og Eygló
Lilja að miðla af reynslu sinni af
kennslu í 5 grunnskólum. Einnig verð-
ur farið yfir hvað sé framundan hjá
Jógahjartanu og hvernig skólakerfið,
foreldrar, kennarar og börn hafa tek-
ið verkefninu.
Fleiri erindi verða flutt, stutt inn-
legg um kærleikann, gleðina, trúðinn
og jógann. Í lokin verður hugleiðsla
og gongslökun. Nánar á heimasíð-
unni: www.jogahjartad.com.
Fræðslufundur hjá
Jógahjartanu
Hvernig gekk að
kenna um 700
grunnskóla-
börnum jóga?
Getty Images/iStockphoto
Jóga Allir sem reynt hafa vita hvesu
gott er og slakandi að stunda jóga.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
570 8600 / 472 1111
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður
Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is
Bókaðu snemma
til að tryggja
þér pláss
DANMÖ
RK
2 fullor
ðnir
með fól
ksbíl
Netverð
, frá kr.
74.500á mann
FÆREYJAR2 fullorðnirmeð fólksbíl
Netverð, frá kr.34.500á mann
Árið 2014 var uppbókað í flestar ferðir með
Norrænu vegna mikillar eftirspurnar. Til að
tryggja sér pláss þá er mikilvægt að bóka
snemma og tryggja sér besta fáanlega verð.
Verð og siglingarátælun er komin á heimasíðu
okkar, www.smyrilline.is eða hringja í síma
5708600 og 4721111.