Morgunblaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015 Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaup Spönginni og Fjarðarkaupum. Er á Facebook Kvíði, álag eða orkuleysi? Burnirótin hefur reynst mér mjög vel við þunglyndi og kvíða. Ég er mun hressari á morgnana og hef meira úthald og orku allan daginn og mæli hiklaust með henni. Eftir að ég fór að nota 24 stunda kremið hurfu þurrk- blettir í andliti alveg og ég er ekki eins viðkvæm fyrir kulda og áður. Það gengur mjög vel inn í húðina og mér finnst það frábært í alla staði. – Sigþrúður Jónasdóttir www.annarosa.is Burnirótin er talin góð gegn orkuleysi, kvíða, þunglyndi og streitu ásamt því að efla úthald og einbeitingu. 24 stunda kremið þykir einstaklega rakagefandi og nærandi fyrir þurra og þroskaða húð. Inniheldur andoxu- narefni og náttúrulega sólarvörn. „Við komum vegna þess að við skömmumst okkar fyrir landið okkar, þjóðina okkar, fyrir það að láta slíkt gerast,“ sagði Dmítrí Af- anajev, einn af þúsundum Rússa sem komu saman í Moskvu í gær til að votta minningu Boris Nemt- sovs virðingu sína. „Þetta er Pútín að kenna. En okkur líka.“ „Þetta er áfall. Það var kerfið sem drap hann,“ sagði annar Rússi, Vladímír Shlamin. „Við er- um á móti kerfi sem drepur mikla menn.“ Vinir Nemtsovs segja að hann hafi verið að vinna að skýrslu sem hann hafi sagt sanna þátttöku rússneska hersins í átökunum í austurhéruðum Úkraínu. Þeir telja að hann hafi verið myrtur vegna skýrslunnar. Flemming Splidsboel, lektor við Kaupmannahafnarháskóla og sér- fræðingur í rússneskum stjórn- málum, telur að morðið á Nemtsov á föstudag hafi lítil áhrif á stöðu andstæðinga Vladimírs Pútíns for- seta. „Stjórnarandstaðan í Rúss- landi er mjög veik,“ hefur fréttavefur danska ríkis- útvarpsins eftir Splidsboel. „Dauði Nemtsovs hefur mjög lítil áhrif. Það kemur svolítil alda en svo færist allt í venju- legt horf.“ Fylgiskannanir fyrir morðið bentu til þess að um 86% Rússa styddu Pútín for- seta. „Við skömmumst okkar fyrir landið okkar“ MORÐIÐ Á NEMTSOV TALIÐ HAFA LÍTIL ÁHRIF Á STÖÐU STJÓRNARANDSTÖÐUNNAR Í RÚSSLANDI BAKSVIÐ Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Í rúman áratug eftir að Vladimír Pútín varð forseti Rússlands árið 2000 lýsti hann andstæðingum sín- um sem spilltum eiginhagsmuna- seggjum eða fávitum en núna eru þeir fordæmdir sem föðurlandssvik- arar og óvinir Rússlands. Þegar Krímskagi var innlimaður í Rússland í mars í fyrra flutti Pútín ræðu á þinginu í Moskvu og sagði að landinu stafaði hætta af „sundurleit- um hópum föðurlandssvikara“ sem væru staðráðnir í því að ala á hættu- legu sundurlyndi meðal Rússa. Hann lýsti þessum hópum sem „fimmtu herdeildinni“ og skírskotaði til hugtaks sem notað hefur verið um menn sem ganga á laun til liðs við óvini föðurlands síns og vinna gegn hagsmunum þess, meðal annars með njósnum. Stuðningsmenn Pútíns í ríkisfjöl- miðlunum gripu þessi orð á lofti og tóku að birta greinar og „heimildar- myndir“ um hættuna sem Rússlandi stafaði af „fimmtu herdeildinni“, eða „landráðaliðinu“. Frjálslyndum stjórnmálamönnum á borð við Borís Nemtsov var lýst sem föðurlands- svikurum og hættulegum skósvein- um vestrænna heimsvaldasinna. „Óvinir á meðal okkar“ Blaðamaðurinn Yoshua Yaffa, fréttaritari í Moskvu, lýsir áróðrin- um í grein á vef The New Yorker: „Um tíma hékk risastórt veggspjald í stærstu bókaverslun Moskvu með mynd af Nemtsov, ásamt fleiri mönnum. „Fimmta herdeildin: það eru óvinir á meðal okkar,“ sagði á veggspjaldinu. Gífuryrtasti og sið- spilltasti þáttastjórnandi í rússnesku sjónvarpi, Dmítrí Kíseljov, sem var- aði eitt sinn við því að Rússar gætu breytt Bandaríkjunum í „geislavirka ösku“, hafði unun af því að nafn- greina og smána þá sem eru í „fimmtu herdeildinni“ svonefndu. „Pútín lögleiddi þetta hugtak í póli- tísku umræðunni í Rússlandi,“ sagði hann. „Við vitum hvað þeir heita.““ Pútín áréttaði viðvörun sína um hættuna sem stafaði af óvinum Rúss- lands á blaðamannafundi í desember þegar hann var spurður hvort tal hans um „fimmtu herdeildina“ og föðurlandssvik stjórnarandstæðing- anna hefði valdið hættulegum klofn- ingi í samfélaginu. „Línan sem að- skilur aðgerðasinna í stjórnarand- stöðunni frá fimmtu herdeildinni er torséð að utan,“ sagði forsetinn. „Hver er munurinn? Aðgerðasinnar í stjórnarandstöðunni eru ef til vill mjög harðorðir í gagnrýni sinni, en þegar allt kemur til alls verja þeir hagsmuni föðurlandsins. Í fimmtu herdeildinni eru aftur á móti þeir sem þjóna hagsmunum annarra ríkja og eru aðeins verkfæri fyrir pólitísk markmið annarra.“ „Tortímum fimmtu herdeildinni“ Stuðningsmenn Nemtsovs og aðr- ir stjórnarandstæðingar rekja morð- ið á honum til „andrúmslofts haturs og ótta“ sem Pútín og bandamenn hans hafi skapað í Rússlandi eftir stjórnarbyltinguna í Úkraínu í byrj- un síðasta árs þegar Viktor Janúkó- vítsj var steypt af stóli forseta. Vladimír Ryzhkov, annar for- manna flokks Nemtsovs, RPR-PAR- NAS, segir að ráðamennirnir í Kreml hafi ýtt undir ofbeldi gegn frjálslyndum stjórnarandstæðingum með því að lýsa þeim sem föður- landssvikurum og óvinum Rúss- lands. „Á sovéttímanum hafði ríkis- valdið einkarétt á valdbeitingu,“ hefur The Financial Times eftir Ryzhkov. „Núna hefur ríkið ekki þennan einkarétt. Við stöndum frammi fyrir ofbeldi að ofan, ógnun- um að ofan og ótrúlegum ógnunum að neðan. Við stöndum frammi fyrir allskonar hópum þjóðernissinna, róttæklingum, fyrrverandi her- mönnum, íþróttafélögum. Og hvaða hópur sem er gæti beitt ofbeldi gegn þeim sem hann telur vera óvini Rússlands.“ Á meðal þessara hópa er Evr- asíska ungmennabandalagið, hreyf- ing ungra þjóðernissinna sem vill endurreisa rússneska keisaradæm- ið. Leiðtogi hreyfingarinnar, Andrej Kovalenko, sagði þegar hann ávarp- aði stuðningsmenn sína fyrir ári að ef Pútín léti ekki til skarar skríða gegn „fimmtu herdeild“ frjálslyndra stjórnarandstæðinga myndi stjórn hans falla, líkt og stjórn Rússlands- keisara árið 1917. „Vladimír Vladim- írovítsj! Gefðu okkur bara skipun!“ sagði Kovalenko í ræðunni. „Við bíð- um í ofvæni eftir því að þú segir: urrdan bítt’ann.“ Að sögn fréttaritara The Financial Times hafa ráðamennirnir í Kreml fært baráttuna gegn frjálslyndu stjórnarandstöðunni út á göturnar. Hópar þjóðernissinna, fyrrverandi hermenn og þingmenn í flokki Pút- íns hafi tekið höndum saman í janúar og stofnað hreyfingu sem nefnist „Andstæðingar Maidan“ með skír- skotun til uppreisnar andstæðinga Janúkovítsj á Maidan-torgi í Kænu- garði. Hreyfingin stóð fyrir mót- mælagöngu og útifundi í Moskvu viku fyrir morðið á Nemtsov. Einn bandamanna Nemtsovs, Míkhaíl Kasjanov, segir að ræðumenn á úti- fundinum hafi hvatt til þess að tekið yrði á frjálslyndu stjórnarandstæð- ingunum. „Þarna voru jafnvel spjöld með áletruninni: „tortímum fimmtu herdeildinni“,“ hefur The Financial Times eftir Kasjanov sem var for- sætisráðherra á árunum 2000 til 2004 og gegnir nú formennsku í flokki Nemtsovs ásamt Ryzhkov. „Raunar væri það að sumu leyti minna áhyggjuefni ef í ljós kæmi að Pútín fyrirskip- aði morðið,“ skrifaði blaða- konan og stjórnarandstæð- ingurinn Ksenia Sobtsjak. „Það væri skelfilegt kerfi, en samt kerfi sem hægt væri að hafa stjórn á. En ég tel að því miður sé það ekki þannig. Það var ekki Pútín sem gaf fyrir- mæli um morð. En það var Pútín sem bjó til djöfullegan tortímanda og hefur misst stjórn á honum.“ Væna andstæðinga um landráð  Pútín og bandamenn hans sakaðir um að ýta undir ofbeldi og ofstæki með því að lýsa stjórnarand- stæðingum sem landráðamönnum  Sagðir hafa skapað „andrúmsloft haturs og ótta“ í Rússlandi AFP Andstæðingur Pútíns kvaddur Líkmenn bera kistu stjórnarandstöðuleiðtogans Boris Nemtsovs eftir minning- arathöfn í Sakharov-miðstöðinni í Moskvu í gær þegar þúsundir manna vottuðu minningu hans virðingu sína. Rússland einræðisríki? » Blaðamaðurinn Alex Massie segir í grein í The Spectator að Pútín aðhyllist ekki lengur lýð- ræðislega valdboðshyggju heldur algert einræði. „Pútín fór reyndar yfir þessa línu fyrir nokkru.“ » Massie telur morðið á Nemtsov marka þáttaskil í rússneskum stjórnmálum. „Þetta er verknaður ráða- manna sem telja sig ekki leng- ur þurfa að þykjast.“ Vladimír Pútín

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.