Morgunblaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015 Advania starfrækir tvö gagnaver hér á landi sem samanlagt nota 11 MW í raforku. Gagnaverin hafa verið að stækka en Eyjólfur Magn- ús Kristinsson, framkvæmdastjóri rekstrarlausna hjá Advania, segir að fyrirtækið hefði án efa get- að aflað frekari viðskiptavina væru tengingar betri til landsins. „Það er alveg á hreinu að þetta heftir okkur mikið,“ segir Eyjólfur og vísar til þess að teng- ingarnar til Bandaríkjanna í dag séu frekar slakar. Þá sé Farice-strengurinn að komast á aldur á næstu árum. „Ísland hefur verið markaðssett með frábæra legu á milli Evrópu og Bandaríkjanna. Þó að jarð- fræðileg lega okkar sé góð er gagnasambandið ekki gott nema aðra leiðina, til Evrópu. Það væri frábært að fá nýjan streng sem myndi auka hraðann til Bandaríkj- anna,“ segir Eyjólfur og telur Ís- lendinga missa af miklu tækifæri ef ekki tekst að koma á tengingu við strenginn milli Írlands og Bandaríkjanna sem Emerald var með á prjónunum. Kostnaðurinn við slíka tengingu sé aðeins innan við fjórðungur af því sem kostar að leggja streng þvert yfir Atlants- hafið, eða um sex milljarðar króna. Eyjólfur segir ákveðna við- skiptavini líta á það sem veikleika að til Íslands séu ekki nógu margir strengir. Slíka viðskiptavini verði Advania að strika út og eftir standi smærri markhópur til að sækja í. „Íslensk stjórnvöld og Farice hafa réttilega bent á að flutnings- geta strengjanna í dag sé meira en næg. Það er alveg rétt en Emerald benti á að sambandið til Bandaríkj- anna þyrfti að vera betra,“ segir hann og telur augljóst að starfandi gagnaver séu að missa af við- skiptum vegna þessa. „Við höfum verið að einblína á Evrópumarkað en við störfum í al- heimsumhverfi þar sem fyrirtæki vilja fá tengingar í allar áttir. Það er veikleiki að geta ekki tengst Bandaríkjunum betur. En við lifum alveg með þessu. Gagnaver Ad- vania hefur gengið ágætlega en við vildum gjarnan að þetta gengi betur,“ segir Eyjólfur. bjb@mbl.is Þörf á betri teng- ingum við landið  Gagnaverin missa af viðskiptavinum Eyjólfur Magnús Kristinsson VIÐTAL Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Það er alrangt að hér á bæ hafi enginn vilji verið til samstarfs. Þarna voru einfaldlega einkaaðliar á ferð sem vildu í raun að ríkið myndi borga brúsann,“ segir Ómar Bene- diktsson, framkvæmdastjóri Farice á Íslandi, um um- mæli Júlíusar Sólness verk- fræðiprófessors í garð Farice í Morgunblaðinu í gær. Þar gagn- rýndi Júlíus Fa- rice fyrir áhuga- leysi um samstarf við Emerald Net- works um lagn- ingu sæstrengs fyrir gagnaflutninga milli Íslands og Bandaríkjanna, með tengingu við Danice-sæstreng Fa- rice til Evrópu. Ómar segir að hér sé um gamalt mál að ræða, allt til 2008 og áður en hann kom að fyrirtækinu. Aðilar frá Emerald hefðu komið til Farice með hugmynd um streng milli Íslands og Bandaríkjanna. Fjármögnunin tókst ekki „Þeir vildu fá nánast gefins hluta af Danice-sæstrengnum og Farice átti bara að fá smá-pláss á þeirra streng í staðinn. Þetta var kannað vandlega og fór fyrir stjórn Farice á árunum 2008 og 2009, sem taldi þetta ekki hagkvæmt verkefni. Menn veltu vöngum yfir þessu áfram og síðan var hugmyndinni breytt, yfir í tengingu til Íslands við streng þvert yfir Atlantshafið. Þetta var rætt í stjórn Farice í lok árs 2010 og á árinu 2011, þar sem var bókað að stjórnin hefði áhuga á að taka þátt ef einhver alvara kæmist á með verkefnið og það tækist að fjár- magna streng á milli Írlands og Bandaríkjanna. Þetta hefur ekki tekist og nokkrir stórir aðilar hafa hætt þátttöku í þessu hjá Emerald,“ segir Ómar og telur að Emerald hafi einfaldlega orðið undir í sam- keppni við Hibernia Networks um lagningu strengs yfir Atlantshafið eða a.m.k. seinkað verkefninu. Hib- ernia er í meirihlutaeigu Kens Pet- erson, stofnanda Norðuráls á Grundartanga, og verður sá streng- ur lagður í sumar á milli New York og London. Hibernia hefur ekki haft í hyggju tengingu við Ísland. Mikil tækifæri í Evrópu Ómar telur að leggja beri meiri áherslu á gagnaflutninga milli Ís- lands og Evrópu, þar séu gríðarmik- il tækifæri fyrir Íslendinga varðandi uppbyggingu gagnavera. Sá mark- aður sé nær, Ísland samkeppnis- hæfara og fjárfesting í sæstrengjum nýtist betur. Hann segist ekki vita af neinum sem hafi beinlínis hætt við Ísland vegna þess að ekki sé bein tenging til Bandaríkjanna, þó að til lengri tíma telji hann það kost og opni ný tækifæri. Ómar telur jafnframt fjölmörg tækifæri fyrir Ísland í uppbyggingu smærri gagnavera. Ef einblína eigi á að fá gagnaver fyrir risa á borð við Apple, Microsoft eða Facebook þá sé þetta ekki bara spurning um gagnaflutningsmöguleika heldur miklu frekar að slík gagnaver kalli á fleiri virkjanir hér á landi. Apple og Facebook hafi að auki verið að leita staðsetninga fyrir gagnaver vegna Evrópumarkaðarins og því hafi tenging við Bandaríkin ekki skipt máli í þeim tilvikum. „Heimurinn ferst ekki þó að stóru risarnir komi ekki hingað. Við eig- um að einbeita okkur að því sem við höfum tengingar fyrir en ekki því sem ekki er hægt að tengja á besta veg í dag. Þegar við höfum slitið barnsskónum sem gagnaflutnings- land þá getum við tekist á við fleiri og stærri verkefni,“ segir Ómar og bendir á að starfandi gagnaver Verne og Advania hafi verið að stór- auka sín viðskipti og nýtingin á Fa- rice- og Danice-strengjunum verið að aukast, enda sýni batnandi af- koma Farice það á síðasta ári. Batnandi afkoma Farice Ómar hafnar jafnframt þeim orð- um Júlíusar að strengir Farice séu einhver raunasaga. Vissulega hafi ýmis ytri skilyrði ekki verið hag- stæð, eins og að þegar búið var að ákveða að leggja Danice-strenginn hafi hrunið skollið á 2008. Kostn- aður við Danice hafi tvöfaldast og Farice hafi orðið að fjármagna þann streng með íslenskum krónum og það hafi reynst dýrt vegna verð- tryggingar og hárra vaxta. En af- koman sé batnandi og engir tækni- legir örðugleikar komið upp á seinni árum. „Ef byrjunarörðugleikar á land- sambandi í tengslum við Farice- strenginn eru undanskildir þá hefur verið 100% uppisamband á kerfi Farice og sambandið ekki dottið niður í eina sekúndu síðan hann var lagður 2009.“ Stjórnvöld mættu gera betur Varðandi gagnrýni Júlíusar á stjórnvöld segist Ómar að hluta geta tekið undir hana. Þar hefði vissulega margt mátt gera betur og bendir Ómar í því sambandi á vinnubrögð í tíð fyrri ríkisstjórnar þegar erlendir aðilar bönkuðu upp á og könnuðu möguleika á samning- um um skattalegar ívilnanir vegna reksturs gagnavera. Þar hafi málin strandað á þáverandi fjármálaráð- herra, Steingrími J. Sigfússyni, þar sem ekki hafi einu sinni verið hægt að fá á hreint endurgreiðslu á virð- isaukaskatti. Úr því hafi svo verið bætt tveimur árum síðar en þá hafi skaðinn verið skeður. „Núverandi stjórnvöld mættu líka gera betur, en þar á bæ virðist vera mikill áhugi. Við þurfum bara að huga betur að innviðum okkar og regluverki áður en við getum tekið á móti stórum erlendum fjárfestum,“ segir Ómar og vísar þar m.a. til orkumála og gjaldeyrishafta. Áhugi var til staðar hjá Farice  Framkvæmdastjóri Farice vísar gagnrýni Júlíusar Sólness á bug  Segir Emerald Networks hafa viljað láta ríkið borga brúsann  Telur vænlegra að einblína á Evrópumarkað frekar en Bandaríkin Gagnaflutningar Gagnaver Verne Global á Ásbrú í Reykjanesbæ reiðir sig að stórum hluta á samband við umheim- inn gegnum Farice-strenginn til Skotlands og Danice-strenginn til Danmerkur, sem og Greenland Connect. Ómar Benediktsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.