Morgunblaðið - 06.03.2015, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MARS 2015
Monróvíu. AFP. | Síðasti staðfesti
ebólusjúklingurinn í Líberíu var út-
skrifaður í gær og greindi Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunin, WHO, frá
því á miðvikudag að í fyrsta sinn í níu
mánuði hefði vika liðið án þess að
nýtt smit hefði verið greint.
Heilbrigðisstarfsfólk og em-
bættismenn fögnuðu þegar Beatrice
Yordoldo gekk út af meðferðarmið-
stöðinni, sem Kínverjar reistu til að
berjast gegn ebólufaraldrinum í
landinu, í úthverfinu Paynesville í
höfuðborginni Monróvíu.
„Í dag er ég mjög þakklát almátt-
ugum guði og kínversku miðstöðinni
og öllum líberísku hjúkrunarfræð-
ingunum, sem vinna með þeim,“
sagði Yordoldo, sem var lögð inn fyr-
ir tveimur vikum. „Ég vissi ekki að
ég gæti lifað þetta af.“
„Þetta er síðasta staðfesta ebólu-
tilfellið í öllu landinu,“ sagði Tolbert
Nyenswah, aðstoðarheilbrigðisráð-
herra, þegar Yordoldo var kvödd.
„Nú eru þrettán dagar liðnir án nýs
tilfellis. Þetta er mikill dagur fyrir
Líberíu.“
Tæplega 24 þúsund manns hafa
smitast af ebólu síðan í desember
2013, nánast allir í Líberíu, Gíneu og
Síerra Leóne. 9.807 þeirra hafa lát-
ist, samkvæmt tölum WHO. Þar af
hafa 4.117 látið lífið í Líberíu. Fyrir
sex mánuðum voru tilkynnt þrjú
hundruð ný tilfelli af sjúkdómnum á
viku.
Heilbrigðiskerfi Líberíu stendur
veikum fótum eftir borgarastyrjaldir
og þegar ebólufaraldurinn stóð sem
hæst varð að vísa fólki frá sjúkra-
húsum og heilsugæslum og létu
margir lífið á víðavangi. Nú hefur
tekist að snúa taflinu við með inn-
lendu átaki og erlendri aðstoð.
Ástandið er hins vegar ekki jafn
gott í Gíneu og Síerra Leóne. Þar
voru 132 ný tilfelli staðfest í liðinni
viku. Að sögn WHO smitast sjúk-
dómurinn víða í Síerra Leóne og
sömuleiðis er áhyggjuefni að þar
virðist sjúkdómurinn í sókn því að 51
nýtt tilfelli greindist í liðinni viku, en
aðeins 35 ný tilfelli í vikunni þar á
undan.
Heilbrigðismálastofnunin segir að
þetta bendi til að ekki sé skilningur í
þessum löndum á að einangra þurfi
sjúklinga strax og hefja meðferð án
tafar.
AFP
Heil heilsu Beatrice Yordoldo, síð-
asti ebólusjúklingurinn í Líberíu.
Síðasti ebólusjúkling-
urinn útskrifaður
Fyrsta vikan án ebólu í níu mánuði í Líberíu Enn
áhyggjur af útbreiðslu ebólu í Gíneu og Síerra Leóne
Fjöldi rússneskra hermanna hefur
fallið í átökunum í austurhluta Úkra-
ínu að sögn Alexanders Vershbows,
aðstoðarframkvæmdastjóra Atlants-
hafsbandalagsins. „Mikill fjöldi rúss-
neskra hermanna berst og fellur í
Austur-Úkraínu,“ sagði Vershbow á
blaðamannafundi í Riga, höfuðborg
Lettlands, í gær, að því er segir í
frétt frá AFP. Sagði hann að það
yrði stöðugt erfiðara fyrir rússnesk
stjórnvöld að leyna þessu.
Rússenskir embættismenn vísuðu í gær á bug full-
yrðingum Bandaríkjamanna um að rússnesk stjórnvöld
hefðu sent „þúsundir“ hermanna til að berjast með að-
skilnaðarsinnum í Úkraínu. „Þessar tölur, sem eru úr
lausu lofti gripnar, draga auðvitað kjark úr og rugla al-
þjóðasamfélagið í ríminu,“ sagði Alexander Lúkasj-
evits, talsmaður rússneska utanríkisráðuneytisins.
Victoria Nuland, aðstoðarutanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, sagði á þingi í vikunni að þúsundir rúss-
neskra hermanna væru í Úkraínu.
Margir Rússar
fallnir í Úkraínu
Rússar neita fullyrðingum
Alexander
Vershbow
Stuðningsmenn rússneska kommúnistaflokksins komu
saman í gær við leiði Jósefs Stalíns, einræðisherra Sov-
étríkjanna, og minntust þess að 62 ár voru liðin frá því
að Stalín lét lífið.
Arfleifð Stalíns er umdeild í Rússlandi, þar sem sagn-
fræðingar kenna honum sérstaklega um að hafa orðið
valdur að andláti milljóna manna. Margir Rússar telja
hins vegar Stalín hafa verið þjóðhetju.
AFP
Minnast Stalíns á ártíð hans
Saud al-Faisal prins, utanríkis-
ráðherra Sádí-Arabíu, hvatti í gær
Bandaríkjamenn til þess að taka þátt
í landhernaði gegn Ríki íslams í Sýr-
landi og Írak. Sagði hann að banda-
menn þyrftu að taka höndum saman
til þess að mæta samtökunum á jörðu
niðri, en Bandaríkin hafa ásamt
bandamönnum sínum haldið úti loft-
árásum á stöðvar Ríkis íslams síðustu
mánuði, en nokkur arabaríki, þar á
meðal Sádí-Arabía og Jórdanía, hafa einnig tekið þátt í
loftárásunum.
Faisal nýtti einnig tækifærið til þess að vara við því að
Íranir væru að reyna að „ná völdum“ í nágrannaríkinu
Írak með því að aðstoða í baráttunni gegn Ríki íslams.
Íranskar sveitir hafa á síðustu dögum aðstoðað íraska
herinn í sókn hans gegn borginni Tíkrít, fæðingarstað
Saddams Hussein, sem nú er á valdi Ríkis íslams. Martin
Dempsey, hershöfðingi í Bandaríkjaher, sagði á dög-
unum að aðstoð Írana gæti verið af hinu góða, svo fremi
sem hún ýti ekki undir frekari trúardeilur í Írak.
Vilja landhernað
gegn Ríki íslams
Sádar vara við Írönum
Saud al-Faisal
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 27.02.15 - 05.03.15
1 2
5 6
7 8
109
43
Kamp Knox kilja
Arnaldur Indriðason
Náðarstund kilja
Hannah Kent
Iceland Small World- lítil
Sigurgeir Sigurjónsson
Hreint mataræði
Dr. Alejandro Junger
Dansað við björninn
Roslund & Thunberg
Ömmumatur Nönnu
Nanna Rögnvaldardóttir
Iceland In a Bag
Ýmsir höfundar
Öræfi - kilja
Ófeigur Sigurðsson
Afturgangan
Jo Nesbø
Alex
Pierre Lemaitre