Morgunblaðið - 06.03.2015, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 06.03.2015, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 6. MARS 65. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420 1. Ívar Guðmundsson kominn á fast 2. Bjó til 606 milljarða upp á eigin spýtur 3. Er þessi mynd of dónaleg? 4. Zuckerberg með eina ráðningarreglu »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Mottusafnari dagsins, Svavar Sig- urðarson, hefur á síðustu árum misst móður sína, móðurbróður og -systur úr krabbameini. Það má því með sanni segja að sjúkdómurinn hafi haft áhrif á fjölskylduna. Svavar skipti munntóbaksnotkun út fyrir mottuburð 1. mars og er safnari nr. 1.356. Fylgstu með honum og fleiri mottusöfnurum á mottumars.is Motta í stað munntóbaks  Skráningarfrestur fyrir hina merku hljómsveitakeppni Músíktilraunir renn- ur út á sunnudaginn, 8. mars. Skráning fer fram á heima- síðu tilraunanna, musiktilraunir.is. Undankvöld Músíktilrauna fara fram dagana 22.-25. mars kl. 19.30 og úrslit laugardaginn 28. mars kl. 17. Á myndinni sést Magnús Thorlacius, söngvari sigursveitar tilraunanna í fyrra, Vio. Skráningu í Músíktil- raunir lýkur 8. mars  Fúsi, nýjasta kvikmynd Dags Kára, hefur verið valin til keppni á hinni virtu Tribeca-kvikmyndahátíð sem haldin verður í New York 15.-26. apríl nk. Fúsi verður í sk. „World Narrative“-keppni hátíðarinnar. Fúsi var heimsfrumsýnd á kvikmyndahá- tíðinni í Berlín í síð- asta mánuði og hlaut góðar við- tökur. Myndin verð- ur frumsýnd á Ís- landi 27. mars nk. Í keppni á Tribeca- kvikmyndahátíðinni Á laugardag og sunnudag Suðvestan og sunnan 10-18 m/s, hvassast við suðvesturströndina. Él sunnan- og vestantil á landinu, en bjartviðri norðaustan- og austanlands. Frost víða 0 til 3 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 15-23 m/s með slyddu eða rign- ingu á láglendi, en snjókomu á fjöllum. Mest úrkoma sunnantil. Snýst í sunnan 10-18 eftir hádegi með skúrum eða éljum. VEÐUR Haukar kjöldrógu granna sína í FH á heimavelli síð- arnefnda liðsins í uppgjöri grannliðanna í Olís-deild karla í handknattleik í gær- kvöldi. Munurinn var 13 mörk í leikslok, 33:20, Haukum í vil eftir að þeir skoruðu 11 af fyrstu 12 mörk- um leiksins. ÍR komst upp í annað sæti deildarinnar með sigri á HK, 31:28. »4 Haukar kjöldrógu FH-inga í uppgjöri Hafdís Sigurðardóttir, Aníta Hinriks- dóttir, Kolbeinn Höður Gunnarsson og Trausti Stefánsson keppa öll á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Prag í dag. „Að sjálfsögðu er stefnan tekin á að komast í úrslitin. Maður verður að setja markið hátt þegar maður er kominn á svona stórt mót. Ég gæti þurft að setja nýtt Ís- landsmet til þess,“ segir Hafdís. »1 Hafdís telur sig þurfa að setja Íslandsmet Haukar eru í þriðja sæti Dominos- deildar karla í körfuknattleik þegar tveimur umferðum er ólokið eftir afar þægilegan sigur á ÍR-ingum í gær- kvöld. KR-ingar hefndu sín á Stjörn- unni og sendu Garðbæinga niður í fimmta sætið eftir æsispennandi baráttu. Snæfell er í afar erfiðri stöðu eftir ósigur gegn Tindastóli á heimavelli. »2-3 Haukar þriðju og KR kom fram hefndum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Edwin Roald Rögnvaldsson golf- vallahönnuður hefur undanfarin ár viðrað þá hugmynd sína hvort ekki sé rétt að stærð golfvalla fari eftir að- stæðum á hverjum stað en sé hvorki bundin við níu eða 18 holur. Í nýliðn- um mánuði hélt hann í Portúgal er- indi um efnið á ársfundi Samtaka golfvallarstjóra í Evrópu og í fyrra- dag fékk hann stuðningsyfirlýsingu við hugmyndina frá konunglega golf- klúbbnum á St. Andrews-golfvell- inum í Skotlandi (The Royal and Ancient Golf Club of St. Andrews, R&A), yfirvaldi golfíþróttarinnar í heiminum. Síðan 2008 hefur Edwin reglulega vakið athygli á málinu. Því til stuðn- ings bendir hann á að þó vinsældir golfs hafi aukist á Íslandi undanfarin ár hafi kylfingum fækkað víða erlend- is frá aldamótum og flestir séu sam- mála um að það sé vegna þess að 18 holu leikur taki of langan tíma. Auk þess vísar hann til þess að kostnaður við að leggja golfvelli og reka þá hafi hækkað mikið. Ennfremur sé lands- þörfin og auðlindaþörfin, eins og til dæmis vatnsþörfin, ekki í samræmi við það sem almenningur vilji í því efni. „Ég opna á það frelsi að golf- vellir megi til dæmis vera 15, 13 eða 11 holur, eins og þeir voru í 400 ár,“ segir Edwin. Stuðningur R&A stór áfangi Margir halda að golfvellir séu 18 holur vegna þess að 18 drykkir séu í einni viskíflösku en það er ekki skýr- ingin frekar en aðrar síðari tíma kenningar. Tilfellið er að 1764 ákvað R&A að fækka holum vallarins úr 22 í 18 til þess að gera völlinn betri. Vegna þess hve R&A varð áhrifamik- ill tóku aðrir klúbbar St. Andrews til fyrirmyndar og hafa gert það síðan. Edwin segir að þar sem markaður- inn segi æ oftar nei við ríkjandi fyr- irkomulagi sé kominn tími á breyt- ingar. Í fyrstu hafi fólk hrist höfuðið þegar það heyrði af hugmyndum hans, en eftir því sem hann hafi náð að skýra málið betur hafi skilningur á því aukist, ekki síst hjá þeim sem fara með ákvarðanavald í íþróttinni. „Stuðningsyfirlýsingin frá St. And- rews er stór áfangi fyrir mig,“ segir Edwin og bætir við að fyrir vikið verði vinnan við að afla hugmyndinni almenns fylgis mun auðveldari en áð- ur. Erlendis sé mörgum golfvöllum lokað af fyrrnefndum ástæðum og íbúar mótmæli vegna þess að þeir ótt- ast að grænu svæðin hverfi. Með hug- arfarsbreytingu megi fækka brautum um til dæmis þrjár til sex, allt eftir því hvað henti hverju svæði. „Nýja rýmið má þá nota fyrir almenna úti- vist og úr verður blönduð leið sem hentar öllum,“ segir Edwin. Boðar breytta tíma  Vill frjálst val um holufjölda á golfvöllum Morgunblaðið/RAX Viðhorf Edwin Roald hélt erindi um nýja hugsun varðandi stærð golfvalla í Portúgal fyrir skömmu. Fyrir skömmu veitti vefurinn Green Planet Architects Edwin Roald viðurkenningu og skipaði honum á bekk á meðal 25 fremstu golfvallaarkitektastofa heims á sviði umhverfisverndar og sjálfbærni. Í hópnum eru meðal annars stofur heims- þekktra kylfinga á borð við Jack Nicklaus, Arnold Palmer og Nick Faldo. Edwin segir alltaf gaman að fá klapp á bakið og það hvetji sig til frekari góðra verka. „Það er ánægjulegt að áhrifamenn í íþróttinni taki eftir því sem ég geri,“ segir hann. Liður í kynn- ingunni á breyttu viðhorfi sé að ræða við helstu styrktarfyrirtæki stóru atvinnumótaraðanna í golfi og hvetja þau til þess að halda mót á 10 til 17 holu velli. „Með því að fá þessi fyrirtæki í lið með mér opnast augu al- mennings enn frekar,“ segir hann, en nánari útskýringu á hugmyndum Edwins má sjá á vefsíðu hans (why18holes.com). Í hópi með Nicklaus og Palmer EDWIN MEÐAL UMHVERFISVÆNSTU GOLFVALLAHÖNNUÐA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.