Morgunblaðið - 14.03.2015, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 14.03.2015, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2015 Til Skagastrandar Áréttað skal að frystitogarinn Arnar HU 1 kom á fimmtudag til Skaga- strandar að lokinni góðri veiðiferð í Barentshafið. Aflinn í túrnum var 1.200 tonn, mest þorskur. Rang- hermt var í fréttinni að Arnar hefði komið til Sauðárkróks. Ekki á vegum RFF Ranghermt var í myndatexta á for- síðu Morgunblaðsins í gær, að tísku- sýning í Vörðuskóla á fimmtudags- kvöld hefði verið á vegum Reykjavík fashion festival (RFF). Rétt er að sýningin var í tengslum við Hönn- unarMars, sem nú stendur yfir. LEIÐRÉTT Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Glæsilegur sparifatnaður í björtum litum Stærðir 36–52 Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Dömublússur 8.900 kr. Str. M-XXXL Opið kl.10–16 gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn U M H VE RF ISV I‹URKENNIN G 2014 umhverfis- og auðlindaráðuneytið Kuðungurinn 2014 Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári er þess verðugt að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2014. Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum. Tillögur skulu berast umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eigi síðar en miðvikudaginn 1. apríl nk. merktar „Kuðungurinn“ á netfangið postur@uar.is eða með pósti í umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík. Nánari upplýsingar er að finna á www.uar.is/kudungurinn. Markmið sjóðsins er að auka almenna þekkingu á íslenskri náttúru svo að umgengni okkar og nýting á verðmætum hennar geti í ríkari mæli einkennst af virðingu og skynsemi. Samhliða er leitast við að bæta tengsl Íslendinga við náttúru landsins og efla með því gott hugarfar, mannlíf og atvinnustarfsemi í sátt við umhverfið. Markmiði þessu verði náð með því að styrkja verkefni sem fást við sköpun og miðlun þekkingar um náttúruna í víðum skilningi. Farvegurinn getur verið í gegnum listir, hvers kyns fræði og vísindi. Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar. Skilafrestur er 15. apríl. Heildarúthlutun á þessu ári nemur allt að 25 milljónum króna. Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar má fá á vefsíðu sjóðsins: www.natturuverndarsjodur.is. Umsóknir sendist sjóðnum í Pósthólf 10, 550 Sauðárkróki. ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30 30-45% AFSLÁTTUR RÝMUM FYRIR NÝJU AF ÖLLUM DÝNUM 14. MARS - 6. APRÍL Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu nr. 8/2014 þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að Íslandsbanki hefði brotið gegn upplýsingaskyldu sinni samkvæmt lögum um neytendalán. Með úrskurði sínum staðfesti áfrýj- unarnefndin þá ákvörðun Neytenda- stofu að ekki hafi samræmst þágild- andi lögum um neytendalán að miða við 0% verðbólgu út lánstímann í upp- lýsingum til neytenda þegar samn- ingur var gerður. Í úrskurðinum var vísað til dóms EFTA-dómstólsins í máli E-27/13, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að 0% verðbólguvið- mið gefi ekki rétta mynd af þeim kostnaði sem leiðir af verðtryggingu og þar með heildarlántökukostnaði. Áfrýjunarnefnd neytendamála hef- ur ekki heimild til að kveða á um hvernig fara skuli með endur- greiðslur samningsins og verða því aðilar að leysa það sín á milli með samkomulagi, leita til úrskurðar- nefndar í viðskiptum við fjármálafyr- irtæki eða fela dómstólum að leysa kröfunni. Ólögmæti 0% verðbólgu- áætlunar staðfest

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.