Morgunblaðið - 14.03.2015, Page 12
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Illugi Gunnarsson, menntamála-
ráðherra, heimsótti grunnskóla í
fæðingarbæ sínum, Siglufirði, nú í
vikunni. Um leið þáði hann boð
Baltasars Kormáks, sem er einn
fjögurra leikstjóra þáttarað-
arinnar, um að koma í heimsókn í
tökusettið, en á Siglufirði standa
nú yfir tökur á Ófærð, viðamestu
framhaldsþáttaröð sem gerð hefur
verið hér á landi fyrir sjónvarp.
Hinir leikstjórarnir eru þeir Bald-
vin Z., Óskar Axelsson og Börkur
Sigþórsson.
„Við Baltasar höfðum rætt það
að það gæti verið spennandi fyrir
mig og koma og heimsækja töku-
staði á Siglufirði, þegar færi gæf-
ist. Nú gafst það og það var svo
sannarlega þessi virði,“ sagði
menntamálaráðherra í samtali við
Morgunblaðið, nýkominn að norð-
an.
Illugi segir að það hafi verið
mjög fróðlegt, skemmtilegt og
hreinlega ævintýralegt að sjá allt í
„action“ hjá kvikmyndagerðarfólk-
inu, og það hversu umfangsmikil
starfsemi það er að gera svona
þáttaröð og hversu mikill fjöldi
starfsmanna kemur að verkefninu.
Vaxandi hlutur
skapandi greina
„Þess vegna þarf það ekki að
koma á óvart að hlutur skapandi
greina hefur farið vaxandi í okkar
efnahagsstarfsemi. Við sjáum það
að sú umgjörð sem búin hefur ver-
ið kvikmyndagerðinni hér á landi,
svo dæmi sé nefnt, þar sem um er
að ræða styrki úr Kvikmyndasjóði
annars vegar og hins vegar endur-
greiðslur á virðisaukaskattinum
vegna kvikmyndagerðar, er aug-
ljóslega að skila sér mjög vel.
Þessi grein hefur verið að eflast
mjög hér á landi á undanförnum
árum, sem er gleðiefni,“ sagði Ill-
ugi.
Hann segir að nú sé í undirbún-
ingi að endurnýja samkomulag og
yfirlýsingu um áframhaldandi
styrki til greinarinnar í gegnum
Kvikmyndasjóð. Aðspurður hvort
styrkirnir verði hækkaðir, sagði
menntamálaráðherra: „Við byrjum
á því að setjast niður og ræða
þetta. Við höfum kallað eftir áætl-
unum frá greininni sjálfri og í
framhaldinu, einhvern tímann á
næstu mánuðum, setjumst við yfir
að formgera þetta.
Menningarsaga
og samtímaspegill
Menntamálaráðherra heimsótti kvikmyndafólk á tökustað
Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir
Á tökustað Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra og Baltasar Kormákur.
Þetta verkefni hjá Baltasar og
önnur slík verkefni færa okkur
heim sanninn um það hversu mikil
gróska og afl er í þessari grein.
Mestu skiptir þó að þarna er verið
að búa til menningarsögu þjóð-
arinnar. Listamennirnir eru að
búa til samtímaspegil, sem kom-
andi kynslóðir geta virt fyrir sér.
Í mínum augum skiptir það meira
máli en krónurnar og aurarnir
sem kringum veltuna verða til,“
sagði menntamálaráðherra.
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2015
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við erum ekki mikið sjónvarpsfólk
en maður vill geta horft á fréttir og
veður. Við vissum af úrslitum Gettu
betur í sjónvarpinu og krakkana
langaði að horfa á þau. Við vitum
ekki hverju við misstum af öðru en
þeim,“ segir Guðrún Sigurjónsdótt-
ir, bóndi á Glitsstöðum í Norðurár-
dal í Borgarfirði. Vodafone slökkti
fyrirvaralaust á sjónvarpssendinum
sem þau voru stillt á. Þau svör feng-
ust hjá Ríkisútvarpinu og Vodafone
að aðrir sendar næðu til þessa svæð-
is en fólk gæti þurft að snúa loftnet-
um.
Finnst þetta lélegt
Tvö heimili eru á Glitsstöðum og
hélt fólkið að eitthvað hefði bilað.
Maður Guðrúnar hringdi í þjónustu-
ver Vodafone til að tilkynna það en
þar var honum tjáð að slökkt hefði
verið á sendinum af því að svo fáir
notuðu hann. Guðrún segir að sá sem
svaraði hafi ekki verið tilbúinn að
hjálpa þeim en sagt að þau yrðu að
tala við menn á æðri stöðum. „Okkur
finnst þetta lélegt. Fyrst það eru
svona fáir notendur hefði mátt hafa
samband við þá og láta vita af breyt-
ingunni,“ segir Guðrún.
Þegar rætt var við hana lágu eng-
ar upplýsingar fyrir um hvort þau
gætu náð sjónvarpsmerkinu annars
staðar. Þau geta ekki bjargað sér
með því að horfa á sjónvarp í tölvu
því netsamband er lélegt. Sam-
bandið frýs. „Maður gefst fljótlega
upp á þungum síðum, eins og Fa-
cebook, og reynir að bíða eftir betra
sambandi. Það er þó hugsanlegt að
það megi laga eitthvað hér innan-
húss og erum við að vinna í því,“ seg-
ir Guðrún.
Fyrirtækin látin vita
Samkvæmt upplýsingum Gunn-
hildar Ástu Guðmundsdóttur, upp-
lýsingafulltrúa Vodafone, þótti
óhætt að slökkva á sendinum við
Rjúpnaás í Borgarfirði þar sem aðrir
sendar þjónustuðu svæðið og hefðu
gert um tíma.
Hún segir að RÚV, 365 og Skjár-
inn hafi verið upplýst um að slökkt
yrði á sendinum. Erfitt geti verið að
ná beint til notendanna því þeir geti
notað sendana án þess að vera í
beinu viðskiptasambandi, með
myndlykla frá Vodafone. Hún tekur
fram að boðaðar hafi verið breyting-
ar þegar tilkynnt var að slökkt yrði á
eldra dreifikerfi RÚV. Þó hefði ef til
vill verið ástæða til ítrekunar í þessu
tilviki.
Tók Gunnhildur fram í svari sínu í
fyrradag að í flestum tilvikum dygði
að láta sjónvörpin leita að merkjum
upp á nýtt. Í einstaka tilvikum
þyrftu notendur að snúa loftnetum
sínum. Hún sagði að Vodafone hefði
haft milligöngu um að þjónustuaðili
myndi aðstoða fólkið á Glitsstöðum.
Guðrún á Glitsstöðum gat þess að
sjö greiðendur útvarpsgjalds væru á
Glitsstöðum, fimm einstaklingar og
tvö einkahlutafélög.
Útvarpshúsið Fimm gjaldendur á Glitsstöðum greiða útvarpsgjaldið, fimm
einstaklingar og tvö félög. Þeir hafa ekki fengið mikla þjónustu fyrir það.
Slökktu fyrir-
varalaust á sjón-
varpssendinum
Misstu af fréttum og Gettu betur
þegar Vodafone slökkti á sendinum
Morgunblaðið/Ómar
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Landsvirkjun auglýsir nú um
helgina útboð á ráðgjafarþjónustu
vegna fyrirhugaðrar stækkunar á
Búrfellsvirkjun. Útboðið er auglýst
á Evrópska efnahagssvæðinu og
rennur frestur til að skila inn til-
boðum út hinn 28. apríl næstkom-
andi.
Um er að ræða útboð á hönnun og
gerð útboðsgagna vegna fram-
kvæmda við 100 MW stækkun Búr-
fellsvirkjunar ásamt lokahönnun og
þjónustu á byggingatíma. Í kjölfar
stækkunarinnar mun orkugeta afl-
stöðvarinnar aukast um allt að 300
GW stundir á ári en í dag er nýting
rennslisorku 86% af rennsli Þjórsár
við Búrfell.
Áætlað er að
umfang verkefn-
isins sé um 30
mannár eða
50.000 vinnu-
stundir. Heild-
arstofnkostaður
framkvæmdar-
innar er áætlaður
um 14 milljarðar
króna. Þá er
áætlað að fram-
kvæmdirnar geti hafist fyrri hluta
árs 2016 og að stækkuð Búrfells-
virkjun geti tekið til starfa árið 2018.
Áformað er að staðsetja nýtt stöðv-
arhús neðanjarðar í Sámsstaðaklifi
og eru öll veitumannvirki ásamt inn-
takslóni (Bjarnalóni) fyrir stækkun
stöðvarinnar hluti af núverandi afl-
stöð.
Landsvirkjun undirbýr
stækkunina á Búrfelli
Auglýsa útboð á ráðgjafarþjónustu
Stækkun Vinna
gæti hafist eftir ár.
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf,
innborgun í VR varasjóð, lagabreytingar og
ný reglugerð Vinnudeilusjóðs VR.
Dagskráin og allar nánari upplýsingar á vr.is.
Taktu þátt í baráttunni fyrir
réttindum þínum!
Miðvikudaginn 25. mars kl. 19:30
á Hilton Nordica