Morgunblaðið - 14.03.2015, Page 17

Morgunblaðið - 14.03.2015, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2015 Árni Björn Pálsson, sigurvegari Meistaradeildar í hestaíþróttum á síðasta ári, hefur tekið forystuna í keppninni í ár. Sigraði hann í tölt- keppninni í fyrrakvöld á Skímu frá Kvistum. Keppnin í tölti var spennandi. Stóð hún einkum á milli Árna Björns og Huldu Gústafsdóttur sem reið Kiljan frá Holtsmúla 1. Ragnar Tómasson og Sleipnir frá Árnanesi unnu sig síðan upp með góðri frammistöðu á greiða töltinu. Niðurstaðan varð sú að Árni Björn og Skíma fengu 8,33 stig og sigruðu, Hulda og Kiljan urðu í öðru sæti með einkunnina 8,22 og Ragnar og Sleipnir fengu bronsið með 8,17 stig. Árni Björn leiðir einstaklings- keppnina, er kominn með 35 stig. Ísólfur Líndal Þórisson er í öðru sæti með 30 stig. Næsta mót verður laugardaginn 28. mars. Það er skeiðmót, haldið utanhúss. helgi@mbl.is Árni Björn efstur í deildinni  Sigraði í tölti á Skímu frá Kvistum Ljósmynd/Jón Björnsson Töltmeistari Árni Björn Pálsson keppir á Skímu frá Kvistum. Félagið BBF 2014 ehf., sem áður hét Brim fiskeldi ehf., hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta samkvæmt úr- skurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Skiptastjóri hefur skorað á alla sem telja til skulda eða annarra réttinda á hendur búinu að lýsa kröfum sín- um innan tveggja mánaða. Brim fiskeldi ehf. var stofnað á árinu 2003 utan um þorskeldisrann- sóknir sem Útgerðarfélag Akureyr- inga hóf í Eyjafirði í maí 2001. Félag- ið var meðal stærstu fyrirtækja í að fanga þorsk til áframeldis og átti hlut í seiðaeldisstöð Nauteyrar við Ísafjarðardjúp sem framleiddi þorskseiði fyrir sjókvíaeldið. Draumur um þorskeldi Það tók þátt í fjölda verkefna í þorskeldi í samvinnu við önnur fyr- irtæki og stofnanir. Það var með áform um að þróa stórfellt þorskeldi og eldi annarra tegunda. Það aflaði sér starfs- og rekstrarleyfis fyrir 1200 tonna ársframleiðslu á svæðum í Eyjafirði og rekstrarleyfi fyrir 1000 tonnum í Rauðuvík. Það þróunarstarf í þorskeldi sem nokkur fyrirtæki hafa stundað hér við land hefur ekki leitt til arðbærs eldis. Einkum hefur verið rekið áframeldi á smáþorski sem fangaður hefur verið. Úr því hefur þó dregið smám saman vegna lítillar arðsemi. Þegar Brim hætti starfsemi, á árinu 2009, voru 4-5 starfsmenn í stöðinni. Skiptastjóri hefur boðað til skipta- fundar 25. maí nk. helgi@mbl.is Fiskeldi Brims gjaldþrota Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Þorskeldi Talsverð drift var í eldi á þorski í nokkur ár.  Þorskeldið gekk ekki upp  Starfsemi hætt 2009 Rúta með sautján farþegum fauk út af þjóðveginum undir Hafnar- fjalli klukkan 14:20 í gær. Betur fór en á horfðist og urðu engin slys á fólki. Rútan var á leið norð- ur. Bálhvasst var á svæðinu og ekkert ferðaveður. Farþegarnir sautján voru stuttu síðar fluttir á brott en rútan sjálf var skilin eftir. Björgunarsveitar- menn ferjuðu fólkið til Borg- arness. Ákvað Vegagerðin í kjöl- farið að loka fyrir alla umferð undir Hafnarfjalli um tíma en opnað var aftur síðdegis. Önnur rúta fauk út af veginum rétt við Akranes, til móts við Höfðasel, rétt fyrir klukkan tvö í gær. Öku- maður var einn í rútunni og var hann fluttur til aðhlynningar á sjúkrahúsið á Akranesi, að sögn lögreglu. Rútur fuku út af veginum í rokinu í gær Harpa Ólafsdóttir, formaður Þorsteinn Víglundsson, varaformaður Árni Bjarnason Birna Ósk Einarsdóttir Elínbjörg Magnúsdóttir Hjörtur Gíslason Konráð Alfreðsson Þórunn Liv Kvaran Framkvæmdastjóri sjóðsins er Árni Guðmundsson Gildi - lífeyrissjóður Guðrúnartúni 1 105 Reykjavík Sími 515 4700 www.gildi.is gildi@gildi.is lífeyrissjóður Efnahagsreikningur: 31.12.2014 31.12.2013 Verðbréf með breytilegum tekjum 165.575 130.262 Verðbréf með föstum tekjum 184.275 168.855 Veðskuldabréf 15.771 15.271 Bankainnstæður 4.018 19.157 Kröfur 1.507 1.829 Fasteign, rekstrarfjármunir og aðrar eignir 427 329 Skuldir - 234 - 1.380 Hrein eign til greiðslu lífeyris 371.338 334.324 Breytingar á hreinni eign: 2014 2013 Iðgjöld 14.060 13.624 Lífeyrir - 11.336 - 10.211 Framlag ríkisins vegna örorku 1.107 986 Fjárfestingartekjur 33.786 28.256 Fjárfestingargjöld - 230 - 223 Rekstrarkostnaður - 428 - 416 Aðrar tekjur 55 49 Hækkun á hreinni eign á árinu 37.014 32.066 Hrein eign frá fyrra ári 334.324 302.258 Hrein eign til greiðslu lífeyris 371.338 334.323 Kennitölur: 2014 2013 Hrein nafnávöxtun 9,9% 9,1% Raunávöxtun 8,9% 5,5% Hrein raunávöxtun 8,8% 5,3% Hrein raunávöxtun (5 ára meðaltal) 5,0% 2,9% Hrein raunávöxtun (10 ára meðaltal) 2,0% 2,5% Eign umfram áfallnar skuldbindingar (%) 1,7% - 2,6% Eign umfram heildarskuldbindingar (%) - 0,9% - 3,5% Fjöldi sjóðfélaga 28.073 26.772 Fjöldi launagreiðenda 4.369 4.330 Fjöldi lífeyrisþega 18.189 17.110 (Allar fjárhæðir í milljónum króna) Stjórn sjóðsins: Samruni Gildis og Lífeyrissjóðs Vestfirðinga Afkoma Séreign Hrein nafnávöxtun séreignardeildar sjóðsins var þannig: Framtíðarsýn I skilaði 7,4% ávöxtun, Framtíðarsýn II skilaði 6,5% og Framtíðarsýn III, sem er verðtryggður innlánsreikningur, skilaði 2,5%. Hrein raunávöxtun var á sama tíma 6,3%, 5,5% og 1,5%. Lífeyrisgreiðslur úr séreignardeild námu samtals 164 milljónum króna á árinu. Hrein eign séreignardeildar í árslok 2014 var 3.073 m.kr. og hækkaði um 130 m.kr. frá fyrra ári. Hrein raunávöxtun 8,8% Starfsemi á árinu 2014 Hrein nafnávöxtun samtryggingadeildar sjóðsins á árinu 2014 var 9,9% sem jafngildir 8,8% hreinni raunávöxtun. Ávöxtun innlendra hlutabréfa var 15,8% og erlend hlutabréf hækkuðu um 15,0% í krónum. Erlend hlutabréf sjóðsins samanstanda af skráðum verðbréfum og óskráðum fjárfestingarsjóðum. Raunávöxtun skuldabréfa var 4,7%. Hrein eign samtryggingadeildar í árslok 2014 var 368,3 milljarðar króna og hækkaði um 36,9 milljarða frá fyrra ári. Samkvæmt tryggingafræðilegri úttekt eru heildarskuldbindingar sjóðsins 0,9% umfram eignir í árslok 2014. Eignir sjóðsins skiptast þannig: Innlend ríkistryggð skuldabréf eru 37,4%, erlend hlutabréf 26,8%, innlend hlutabréf 16,5%, veðskuldabréf 4,3%, önnur skuldabréf 13,2%, innlán 0,9% og erlendir fasteignasjóðir 0,8%. Ársfundur 2015 Í lok árs 2014 var samþykktur samruni Gildis-lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs Vestfirðinga og tók Gildi við öllum eignum og skuldbindingum Lífeyrissjóðs Vestfirðinga 1. janúar 2015. Ársfundur sjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 15. apríl n.k. kl. 17.00 á Grand Hótel Reykjavík. Dagskrá fundarins verður auglýst síðar. Sjóðfélagafundur verður haldinn á Ísafirði 17. apríl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.