Morgunblaðið - 14.03.2015, Síða 22

Morgunblaðið - 14.03.2015, Síða 22
BAKSVIÐ Margrét Kr. Sigurðardóttir margret@mbl.is Samanlagður hagnaður Glitnis og Kaupþings þrefaldaðist á milli ára, hann nam 253,4 milljörðum króna á síðasta ári í samanburði við 79,1 milljarð árið á undan. Eignir slitabú- anna jukust samtals um 55 milljarða króna, eignir Glitnis jukust um 34 milljarða króna og Kaupþings um 22 milljarða króna. Rekstrarkostnaður beggja búanna var samtals 12,2 milljarðar króna. Stærstur hluti af rekstrarkostnaði fór í greiðslur til sérfræðinga og lög- fræðinga. Samtals námu þær greiðslur 5,8 milljörðum króna. Þóknanir til slitastjórna beggja bú- anna voru 388 milljónir króna sam- tals. Launakostnaður nam tæplega 1,9 milljörðum króna en í Kaupþingi störfuðu 50 starfsmenn og í Glitni 23 starfsmenn. Eignir Glitnis upp um 24 milljarða Hagnaður slitabús Glitnis fyrir skatta nam 164,4 milljörðum króna á síðasta ári, samanborið við 31,2 millj- arða á árinu 2013. Eignir búsins juk- ust um tæpa 34 milljarða króna og fóru í 960,2 milljarða króna úr 926,3 milljörðum árið á undan. Íslenskar eignir námu 352,3 milljörðum króna og erlendar eignir voru 610,4 millj- arðar króna. Stjórnunarkostnaður vegna búsins nam 7,2 milljörðum króna og jókst um rúmlega 2,2 milljarða á milli ára. Munar þar mest um virðisaukaskatt sem búið greiddi í kjölfar úrskurðar sem yfirskattanefnd kvað upp í tengslum við erlenda ráðgjafaþjón- ustu. Skattgreiðsla vegna þess úr- skurðar nam tæpum 2,5 milljörðum. Erlend ráðgjafarþjónusta sem slitastjórnin keypti nam 1,9 milljörð- um króna en þar er um að ræða lög- fræðiráðgjöf og aðra þjónustu utan- aðkomandi sérfræðinga. Slitabúið keypti ráðgjafarþjónustu hérlendis fyrir liðlega 1,2 milljarða en þar af nam lögfræðiþjónusta 388 milljón- um. Slitastjórnin, sem skipuð er þeim Steinunni H. Guðbjartsdóttur og Páli Eiríkssyni, fékk greiddar 190 millj- ónir vegna starfsársins 2014 og hækkaði þóknun slitastjórnar um 6 milljónir milli ára. Starfsfólk slita- stjórnarinnar fékk samtals greiddar 652 milljónir í laun á árinu en starfs- mennirnir voru að meðaltali 23 á liðnu ári. Auk þess keypti Glitnir þjónustu frá Íslandsbanka fyrir 275 milljónir. Framkvæmdastjóri Glitn- is, Kristján Óskarsson, fékk 46 millj- ónir í laun á árinu. Eignir Kaupþings 800 milljarðar Kaupþing skilaði 89,2 milljörðum í hagnað fyrir skatta sem var 86% hærri en árið á undan. Eignir Kaup- þings jukust um 21,7 milljarða króna og námu 799,8 milljörðum króna í árslok. Heildareignir Kaupþings í er- lendum myntum eru metnar á 641,8 milljarða króna en eignir í íslenskum krónum eru metnar á 158 milljarða. Heildarrekstrarkostnaður Kaup- þings nam 5 milljörðum króna og lækkaði um 100 milljónir frá fyrra ári. Þóknanir til sérfræðinga og lög- fræðinga er stærsti hluti rekstrar- kostnaðarins, eða tæplega 2,7 millj- arðar króna, og hækkaði um 8,7% milli ára. Þóknanir til slitastjórnar námu 198 milljónum króna í sam- anburði við 264 milljónir árið á und- an en í slitastjórn eru þau Feldís L. Óskarsdóttir, Jóhannes Rúnar Jó- hannsson og Theodór S. Sigur- bergsson. Laun og launatengd gjöld voru 1,2 milljarðar króna og lækk- uðu um 6,5% milli ára en starfs- mönnum fækkaði um 6 og voru í árs- lok 50. Eignir Glitnis og Kaupþings jukust um 55 milljarða Morgunblaðið/Kristinn Kröfuhafafundur Slitastjórn Glitnis fékk greiddar 190 milljónir á síðasta ári og slitastjórn Kaupþings fékk 198 milljónir en þá síðarnefndu skipa Jóhannes Rúnar Jóhannsson, Theodór Sigurbergsson og Feldís L. Óskarsdóttir.  Þóknanir til slitastjórna 388 milljónir  Samanlagðar eignir 1.760 milljarðar 22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2015                                    !"#$ "# $! %# #  $#  #   %% &'()* (+(      ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 $$$ !"$ "" ## %"# #" %$   "  #$ ! !"# " % %"$# #"$ $$  # "#  % !"#! ! Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Greiningardeildir bankanna spá 0,6%- 0,9% hækkun vísitölu neysluverðs í mars sem samsvarar 1,2% til 1,4% árs- verðbólgu. Verðbólgan er nú 0,8% en Hagstofan birtir vísitölumælingu fyrir mars á föstudaginn kemur. Arion banki spáir 0,6% hækkun vísi- tölunnar og Landsbankinn 0,7% hækk- un. Íslandsbanki spáir vísitölunni upp um 0,9% sem samsvarar 1,4% verðbólgu undanfarna 12 mánuði. Vegna útsöluloka mun fatnaður og skór væntanlega hafa umtalsverð áhrif til hækkunar, auk þess sem eldsneyti hefur farið hækkandi. Ekki er gert ráð fyrir miklum breytingum í matarverði milli mánaða. Greiningardeildir spá meiri verðbólgu í mars ● Árið 2013 nam kostnaður ríkissjóðs vegna allra ferða erlendis rétt um 900 milljónum króna. Innifalið í þeirri fjár- hæð er kostnaður við flug til og frá landinu, tengiflug erlendis, auk allra ferða með lestum, rútum, skipum og ferjum. Í tilkynningu sem fjármála- og efnahagsráðuneytið sendi frá sér vegna þessa kostnaðar segir að í tölunum sé tekinn saman kostnaður vegna erlendra samskipta og sá sem tengist því þegar íslenskir ríkisborgarar þurfi að leita sér læknisþjónustu erlendis. Ferðakostnaður ríkisins 900 milljónir á liðnu ári STUTTAR FRÉTTIR ... ORF Líftækni, Carbon Recycling International (CRI) og Kerecis hafa verið tilnefnd til Íslensku þekking- arverðlaunanna. Það er Félag við- skiptafræðinga og hagfræðinga (FVH) sem stendur fyrir valinu og að þessu sinni er verðlaunað fyrir verðmætasköpun með óhefðbund- inni nýtingu auðlinda. ORF Líftækni framleiðir meðal annars húðvörur úr próteini sem unnið er úr erfðabreyttu byggi auk þess að nýta byggið til líf- og lækn- isfræðirannsókna. CRI sem rekur verksmiðju í Svartsengi nýtir koltví- sýringsútblástur frá jarðvarmavirkj- un og breytir honum í endurnýjan- legt metanól sem blanda má við bensín til notkunar sem eldsneyti í samgöngum. Kerecis framleiðir á Ísafirði og markaðssetur erlendis lækningavörur til sárameðferða sem unnar eru úr þorskroði. Það voru félagsmenn FVH og dómnefnd skipuð sérfræðingum úr íslensku viðskiptalífi sem völdu fyr- irtækin en við valið var haft til hlið- sjónar hvernig fyrirtækin þrjú hafa í krafti nýsköpunar fundið og þróað leiðir til að bæta nýtingu á auðlind- um landsins með því að búa til nýjar afurðir úr efnivið sem fellur til við hefðbundna nýtingu. Verðlaunin verða afhent á Ís- lenska þekkingardeginum sem hald- in verður á Grand hótel 20. mars næstkomandi samhliða ráðstefnu þar sem fjallað verður um nýsköpun í auðlindanýtingu. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, er verndari Íslenska þekkingardagsins og mun afhenda verðlaunin. Bygg ORF Líftækni er tilnefnt til Íslensku þekkingarverðlaunanna. Kerecis, ORF og CRI fá tilnefningu  Óhefðbundin nýting auðlinda verðlaunuð Fermingargjafir fyrir stráka og stelpur Mikið úrval af gjafavöru fyrir dömur og herra · Töskur · Hanskar · Seðlaveski · Ferðatöskur · Tölvutöskur · Belti · Skart og skartgripaskrín Góðar vörur Sanngjarnt verð Persónuleg þjónusta Léttar ferðatöskur Kortaveski úr leðri frá kr. 4.800. Nafngylling kr. 1100. Tru virtu ál kortahulstur. Kr. 7200 Kemur í veg fyrir skönnun á kortaupplýsingum. Skartgripaskrín- Lífstíðareign Sjá ítarlegar upplýsingar á www.drangey.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.