Morgunblaðið - 14.03.2015, Síða 25

Morgunblaðið - 14.03.2015, Síða 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2015 H-Berg ehf | S. 565-6500 | hberg@hberg.is | hberg.is FRÁBÆR T VERÐ Nýjar vörur frá H-Berg Túrmerikdrykkur Möndlumjólk Íslensk framleiðsla Herzliya. AFP. | Benjamin Netan- yahu varð fyrir þeim álögum að hann skyldi vera forsætisráðherra til eilífðarnóns og gæti ekki losnað úr þeim nema hann ylli landi sínu þungum búsifjum og yrði versti leið- togi sögunnar. Þetta er leyndardómurinn á bak við pólitískt langlífi forsætisráð- herrans eins og honum er lýst í vin- sælustu skopþáttum í ísraelsku sjón- varpi í aðdraganda þingkosninga sem fara fram á þriðjudaginn kem- ur. Netanyahu reynir þá að halda völdunum þriðja kjörtímabilið í röð. Hann er 65 ára, haslaði sér völl í stjórnmálunum árið 1990 og var fyrst forsætisráðherra á árunum 1996 til 1999. Haldi hann velli í kosn- ingunum verður hann þaulsætnasti forsætisráðherrann í sögu Ísraels á eftir þeim fyrsta, David Ben Gurion, sem gegndi embættinu á árunum 1948-1954 og 1955-1963. Spaugþættirnir Eretz Nehederet, eða Yndislegt land, hafa verið sýndir í tæp tólf ár og veitt áhorfendunum kærkomið tækifæri til að hlæja að ísraelskum stjórnmálum sem fá oft á sig drungalegan blæ. Í aðdraganda kosninganna hefur athyglin einkum beinst að „Bibi“ Netanyahu. „Því fylgir mikil ábyrgð að leika forsætis- ráðherrann,“ segir Mariano Idelman sem leikur Netanyahu. „Ég þarf að bera virðingu fyrir honum. Hand- ritshöfundarnir þurfa það ekki eins mikið.“ Forsætisráðherrann er þó ekki eini stjórnmálamaðurinn sem hafður er að skotspæni í skopþáttunum. „Þeir eru allir skotspænir okkar. Hvort sem þeir eru vinstrimenn eða hægrimenn eirum við engum þeirra,“ segir leikkona Shani Cohen, sem leikur Tzipi Livni, en hún er ein af forystumönnum Síonista- sambandsins, bandalags miðju- og vinstrimanna. Þegar þættirnir eru teknir upp í Tel Aviv safnast hundruð manna saman fyrir utan myndverið til að taka myndir af sér með leikurunum. Eyal Kitsin, umsjónarmaður og kynnir þáttanna, segir að vinsældir þeirra megi fyrst og fremst rekja til þess að þeir líkist raunveruleik- anum. Kitsin er í hlutverki spyrils sem er alvarlegur í bragði, ólíkt „stjórnmálamönnunum“ sem svara með farsakenndum hætti. „Við erum tekin mjög alvarlega, fólk horfir á þættina eins og þeir væru frétta- þættir,“ segir hann. Herma eftir leikurunum Framleiðendur Eretz Nehederet segja að nær 30% Ísraela hafi horft á fyrsta þáttinn í nýjustu þáttaröðinni, miklu fleiri en á venjulega sjón- varpsþætti um stjórnmál. Skopþætt- irnir eru orðnir svo vinsælir að stjórnmálaforingjarnir eru farnir að birta sjónvarpsauglýsingar þar sem þeir herma eftir þeim sem leika þá. Aðalframleiðandi þáttanna, Muli Segev, segir að sér lítist vel á sjálfs- háð stjórnmálaforingjanna en kveðst ekki hafa áhyggjur af sam- keppninni. „Við höfum engar áhyggjur, við erum enn betri en þeir,“ segir Segev. „Í fyrsta lagi er- um við fyndnari. Samt megum við ekki gleyma því að hlutverk þeirra er fyrst og fremst að stjórna land- inu. Ólíkt okkur hafa þeir ekki gegnt hlutverki sínu síðustu árin.“ Ekkert er heilagt í myndverinu og í sviðsmyndinni er meðal annars eftirlíking af múrnum sem aðskilur Ísrael og Vesturbakkann, varnar- flaugar úr plasti og skopmynd af smyglgöngum á Gaza. „Við lítum á Ísrael sem bólu sem reynir að lifa rólegu lífi í róstusömum heimshluta með því að fela sig fyrir Palestínu- mönnum á bak við múr og fyrir Ha- mas undir Járnhvelfingu,“ segir Segev. „Þetta er það sem okkar yndislega land snýst um.“ Allir hafðir að skotspæni í skopinu  Engum stjórnmálaforingja eirt og ekkert er heilagt í vinsælum skopþáttum í Ísrael í aðdraganda þingkosninga  Sumir skotspónanna brugðu á það ráð að hæðast að sjálfum sér í kosningabaráttunni AFP Yndislegt land Leikarar sem leika Benjamin Netanyahu forsætisráðherra (t.v.), Naftali Bennett, leiðtoga hægri- flokksins Heimili gyðinga, palestínsku þingkonuna Hanin Zuabi og Mahmoud Abbas, leiðtoga Palestínumanna. Síonistasambandið með forskot » Síðustu skoðanakannanir fyrir þingkosningarnar í Ísrael benda til þess að Síonista- sambandið fái mest fylgi. » Í könnun blaðsins Yediot Ah- aronot er Síonistasambandinu spáð 26 þingsætum af 120. Likud-flokknum, undir forystu Benjamins Netanyahus, er spáð 22 sætum. » Síonistasambandið er bandalag Verkamannaflokks- ins og miðflokksins Ha Tnuah sem er undir forystu Tzipi Livni, fyrrverandi dómsmála- og utanríkisráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.