Morgunblaðið - 14.03.2015, Page 27

Morgunblaðið - 14.03.2015, Page 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2015 Áritun Myndbandið við lagið „Unbroken“ í flutningi Maríu Ólafsdóttur var frumsýnt í gær. Af því tilefni var hópurinn sem fer fyrir hönd Íslands í Eurovision kynntur, og veitti einnig áritun. Golli Utanríkisráðherrar Arababandalagsríkj- anna koma nú saman til fundar í Kaíró í Egyptalandi. Heið- ursgestur fundarins, Margot Wallström, ut- anríkisráðherra Sví- þjóðar, hefur fengið þau skilaboð að hún fái ekki að ávarpa fundinn. Að sögn Wallström beittu Sádi-Arabar sér gegn því að fundarmenn fengju að hlýða á hana. Þegar Wallström leitaði skýringa á afstöðu Sádi- Araba fékk hún þau svör að Svíar hefðu gagnrýnt mannréttindabrot þeirra. Frú Wallst- röm kom ekki til hug- ar að skýringarinnar væri að leita í því að hún væri kona. Líf kýs að líta und- an Ekki eru nema nokkrir dagar síðan sendiherra Sádi- Araba á Íslandi lýsti því yfir að yfirvöld í Sádi-Arabíu hygðust veita fjárstuðning til byggingar mosku fyrir Félag múslima á Íslandi. Sverrir Agn- arsson, formaður félagsins, gerði lítið úr því þótt mannréttindabrot ættu sér stað í Sádi-Arabíu. Ef styrknum fylgdu engin skilyrði myndi félagið taka við honum. Af þessu tilefni lét Líf Magneudóttir, formaður mannréttindaráðs, hafa eftir sér að hún treysti dómgreind múslima á Íslandi til að fara eftir lögum og brjóta ekki á mannrétt- indum fólks. Með þessu hefur Líf kosið að líta undan. Enda þótt for- maður Félags múslima á Íslandi geri lítið úr mannréttindabrotum Sáda, er augljóst að Reykjavík- urborg getur ekki gert hið sama. Með yfirlýsingu sinni gerir Líf lítið úr andlegri og líkamlegri kúgun íbúa í Sádi-Arabíu. Spurningin er ekki hvort múslimum hér á landi sé treystandi, heldur hvort íslensk- ir aðilar, þar á meðal trúfélög, eigi að taka við styrkjum frá ríki sem er þekkt að mannréttindabrotum. Fjárstuðningur framar mannréttindum Mörgum er í fersku minni þegar sádiarabíski bloggarinn Raif Badwani var á síðasta ári dæmdur í tíu ára fangelsi og til að sæta eitt þúsund svipuhöggum fyrir að fjalla á gagnrýninn hátt um íslamstrú. Hér á landi er refsing fyrir slíkt brot brottvísun úr mannréttinda- ráði. Hvað sem því líður þarf þó enginn að velkjast í vafa um að Sádi-Arabar veita engan afslátt í trúmálum. Afstaða Sádi-Araba til frú Wall- ström hefur orðið til þess að ýta við sænskum jafnaðarmönnum. Margir þeirra krefjast þess nú að Svíar hætti við að endurnýja vopnasölusamning sinn við Sáda. Fjárhagslegir hagsmunir og mann- réttindi eru lögð á vogarskálarnar. Hagsmunamat af slíkum toga flækist hins vegar ekki fyrir Líf Magneudóttur. Hjá formanni mannréttindaráðs ræður fjárstuðn- ingur Sáda meiru en mannrétt- indin. Eftir Gústaf Níelsson »Enda þótt formaður Félags múslima á Íslandi geri lítið úr mannréttindabrotum Sáda er augljóst að Reykjavíkurborg getur ekki gert hið sama. Gústaf Níelsson Höfundur er sagnfræðingur. Formaður mannréttindaráðs lítur undan 12. mars verður ef- laust lengi minnst í stjórnmálasögu lands okkar sem dagsins þeg- ar ljóst var að þjóðin hefði með ríkisstjórn- arsamþykkt verið losuð úr viðjum aðildarum- sóknar að Evrópusam- bandinu. Alltof lengi hafði það dregist að stjórnvöld byndu endi á þann hráskinnaleik sem settur var á svið í kjölfar hrunsins 2008. Tveir flokkar með andstæða stefnu um aðild að Evrópusamband- inu sammæltust um ríkisstjórn vorið 2009, sem með naumum meirihluta knúði fram samþykkt á Alþingi um „að fela ríkisstjórninni að leggja inn umsókn um aðild Ís- lands að ESB og að loknum viðræðum við sambandið verði hald- in þjóðaratkvæða- greiðsla um vænt- anlegan aðildarsamning“. Hvor flokkurinn um sig, VG og Samfylk- ingin, áskildi sér rétt til að hætta þessu ferli hvenær sem væri. Í aðdraganda þess- arar samþykktar felldu þingmenn sömu flokka í júlí 2009 tillögu á Alþingi um að gengið skyldi fyrirfram til þjóðaratkvæðis um hvort sækja ætti um aðild. Um aðildarferlið sjálft voru hafðar uppi grófar blekkingar sem komu í ljós stig af stigi í viðræðuferlinu við ESB. Eftir þriggja ára formlegar samn- ingaviðræður við Evrópusambandið 2010-2012 ákvað fyrrverandi rík- isstjórn að stöðva frekari aðildar- viðræður í aðdraganda alþingiskosn- inganna vorið 2013. Í þeim kosningum töpuðu báðir stjórn- arflokkarnir miklu fylgi og við tók ríkisstjórn flokka sem lýst höfðu fyr- ir kosningar andstöðu við ESB- aðild. Í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar vorið 2013 var bókað að hlé yrði gert á aðildarviðræðum og úttekt gerð á stöðu viðræðna. Ekki yrði haldið lengra í aðildarviðræðum nema að undangenginni þjóðarat- kvæðagreiðslu. Í febrúar 2014 lagði utanríkisráðherra fyrir hönd ríkis- stjórnarinnar fram þingsályktun- artillögu þar sem ríkisstjórninni er falið að draga til baka umsókn Ís- lands um aðild að ESB. Ekki yrði sótt um aðild á nýjan leik nema að undangenginni þjóðaratkvæða- greiðslu um hvort Ísland stefni að aðild að Evrópusambandinu. Þessari tillögu var af stjórnarand- stöðunni mætt á Alþingi með löngum og sögulegum tilburðum sem urðu til að stöðva framgang til- lögunnar þannig að ekki reyndi á þingviljann í málinu. Þó virtist ljóst að fyrir tillögunni væri öruggur meirihluti. Það kemur því einkenni- lega fyrir sjónir þegar formaður Samfylkingarinnar gagnrýnir nú að málið sé ekki til lykta leitt á Alþingi. Ætla verður að sá meirihluti landsmanna sem um árabil hefur lýst sig andvígan aðild að Evrópu- sambandinu fagni því að endi sé loks bundinn á þetta öfugsnúna umsókn- arferli. Sama gildir væntanlega um þingmenn flokka eins og VG, sem hefur þrátt fyrir allt sem á undan er gengið, enn á stefnuskrá sinni að hag Íslands sé best borgið utan ESB. Með tilkynningu ríkisstjórn- arinnar er stigið réttmætt og mik- ilvægt skref, en síðan er það allra réttur að reyna að vinna annarri stefnu fylgi í framtíðinni. Eftir Hjörleif Guttormsson »Ætla verður að meirihluti lands- manna sem um árabil hefur lýst sig andvígan aðild að ESB fagni því að endi sé loks bundinn á þetta öfugsnúna ferli. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Ísland skorið niður úr ESB-snörunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.