Morgunblaðið - 14.03.2015, Qupperneq 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2015
EITTHVAÐ FYRIR ALLA
Kirkjulundi 17 / 210 Garðabæ
Sími 557 4848 / www.nitro.is
Þar sem ævintýrið byrjarZnen F22 QT-32
Fjórgengis 50cc vespa sem nær 25 km. hraða.
Ekkert próf, engar tryggingar. Má aka á göngustígum.
ZTECH Classic
Rafmagnsvespa sem nær 25 km. hraða.
Ekkert próf, engar tryggingar. Má aka á göngustígum.
Znen Wacky QT-25
Létt bifhjólapróf / bílpróf.
Znen Sun QT-11
Létt bifhjólapróf / bílpróf.
Kr. 210.000,- Kr. 149.000,-
Kr. 220.000,-
Kr. 195.000,-
Kr. 1.999.000,-Kr. 2.599.000,-
CFORCE 600
CF500-2A
Kr. 1.459.000,-
Kr. 1.249.000,-
CFORCE 800
Götuskráð, tveggja manna, fjórhjóladrif, rafmagnsstýri, gasdemparar,
armafjörðun, spil, dráttarkúla, sætisbak, innspýting, álfelgur ofl.
UFORCE 800
Götuskráður, tveggja manna, fjórhjóladrif, rafmagnsstýri, sturtupallur,
spil, dráttarkúla, armafjörðun, bein innspýting, diskabremsur ofl.
Tilvalin
fermingargjöf! Tilvalin
fermingargjöf!
Væntanleg
25. mars Væntanleg
25. mars
Hjörvar Steinn Grétarssonvann Zhansaya Abd-umalik frá Kasakstan ífjórðu umferð Reykja-
víkurskákmótsins á fimmtudags-
kvöldið og var með fullt hús vinninga
ásamt fimm öðrum fyrir fimmtu um-
ferð sem fram fór í gærkvöldi. Hann
átti að tefla við Aserann Shakriyar
Mamedyarov í toppslag umferðar-
innar. Íslensku skákmennirnir hafa
margir hverjir staðið sig prýðilega þó
enginn eins vel og Jón Viktor Gunn-
arsson sem hafði hlotið 3 ½ vinning úr
fjórum skákum eftir sigur á Gawain
Jones á fimmtudagskvöldið. Hann
gerði jafntefli við næststigahæsta
keppanda mótsins, Tékkann David
Navara, sem mátti berjast fyrir jafn-
tefli peði undir í erfiðu hróks-
endatafli.
Með 3 vinninga af fjórum voru með-
al annarra Hannes Hlífar Stefánsson,
Einar Hjalti Jensson, Guðmundur
Kjartansson, Henrik Danielsen, Einar
Valdimarsson og Þröstur Þórhallsson.
Athygli vekur einnig frammistaða hins
unga Jóns Kristins Þorgeirssonar sem
er með 2 ½ vinnning eftir jafntefli við
indverska stórmeistarann Sahaj Gro-
ver í 4. umferð. Í þeirri umferð var
heldur meira jafnræði með kepp-
endum en í þeim fyrstu og margar
stórskemmtilegar baráttuskákir sáu
dagsins ljós. Mikla athygli vakti skák
Héðins Steingrímssonar við Aserann
Shakriyar Mamedyarov en Mamedya-
rov hafði sigur eftir að hafa náð að
snúa á Héðin í miðtaflinu.
Jón Viktor Gunnarsson dróst á
móti Svíanum Nils Grandelius í um-
ferð gærdagsins. Það vita flestir að
hann á heilmikið inni og gæti hæg-
lega nælt sér í áfanga að stórmeis-
tatatitli ef svo heldur fram sem horf-
ir. Hann fann glæsilega vinningsleið
gegn Gawain Jones þegar margir
töldu að hann þyrfti að taka jafntefli
með þráskák.
Gawain Jones – Jón Viktor Gunn-
arsson
Enskur leikur
1. c4 c5 2. Rf3 g6 3. g3 Rc6 4. Rc3
Bg7 5. Bg2 d6 6. O-O Bf5 7. d3 Dd7
Þetta dálítið frumstæða kerfi sem
byggist á framrás h-peðsins hefur
Jón Viktor margoft reynt í hraðskák.
Hvers vegna ekki að prófa það líka í
kappskák?
8. He1 Bh3 9. Bh1 h5 10. Rg5 h4
11. Rd5 hxg3 12. hxg3 Rf6 13. Rf4
Bg4 14. f3 e5!
Byrjunartaktík Jóns hefur gengið
fullkomlega upp, hann hefur náð að
opna h-línuna og getur hrókerað langt.
15. Rd5 Be6 16. e4 Rh5 17. Kf2
Bxd5 18. exd5 Rd4 19. g4 Rf6 20.
Bg2 O-O-O 21. Be3 Rh7 22. Rxh7
Hxh7 23. Dd2 f5 24. Hh1 Hdh8 25.
Bxd4 cxd4 26. Hxh7 Hxh7 27. Hh1
Hxh1 28. Bxh1 Dd8!
Mislitir biskupar eru engin trygg-
ing fyrir jafntefli því biskup svarts er
miklu virkari en sá hvíti.
29. Kg3 Bf6 30. Dh6!
Góður varnarleikur, annars kemst
biskupinn til g5.
30. … Da5!?
Lítur glæfralega út en Jón Viktor
hafði komið auga á hinn snjalla 32.
leik.
31. gxf5 De1+ 32. Kh2 e4!
Leikur peðinu ofan í þrælvaldaða
reitinn! Þessu þema beitti Kasparov
betur en aðrir.
33. Df8+ Bd8! 34. fxg6 Dh4+ 35.
Kg2 Dg5+ 36. Kf1 Dc1+ 37. Kg2
Dg5+ 38. Kf1 exd3 39. Dxd6 Dc1+
40. Kg2 Dg5+ 41. Kf1
Það lá ekki alveg ljóst fyrir hvernig
svartur ætlaði að tefla þessa stöðu til
vinnings. Þannig gengur ekki 41. …
d2 vegna 42. De6+ Kb8 43. Ke2!
o.s.frv. En Jón fann lausnina.
41. … Dc1+ 42. Kg2 Dd2+ 43. Kh3
Eða 43.Kg1 De3+ og 44. … d2.
43. … Dh6+ 44. Kg2 d2! 45. Dc5+
Kb8 46. Dxd4 Dxg6+ 47. Kh3 Dh7+
48. Kg2 Dc2! 49. Df4+ Ka8
- og hvítur gafst upp.
Hjörvar og Jón Viktor í fararbroddi
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Svefn
Góður nætursvefn Næring sem allir þurfa á að halda.
Rannsóknir sýna að afleiðingar lítils svefns eru meðal annars vinnutap,
minni framleiðni, aukin slysatíðni, aukin tíðni geðraskana og ofnotkun lyfja
og áfengis, offita, hjartasjúkdómar og fleira sem skerðir lífslíkur okkar veru-
lega.
Nútímamaðurinn sefur að meðaltali um klukkustund minna nú en hann
gerði fyrir hálfri öld. Hugsum um þetta og förum fyrr í háttinn.
Svefnpurka.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.