Morgunblaðið - 14.03.2015, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 14.03.2015, Blaðsíða 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2015 ✝ Magnús Krist-ján Magnússon var fæddur á Akranesi 16. maí 1985. Hann lést af slysförum í Noregi 24. febrúar 2015. Foreldrar hans eru Magnús Magn- ússon, f. 13.11. 1944, og Inger Oddfríður Traustadóttir, f. 13.1. 1951. Þau skildu. Börn þeirra eru: 1. Steinunn Ingi- björg, f. 1970, gift Páli Vigni Þorbergssyni, f. 1969. Börn þeirra eru: Sesselja Gróa, f. 1992, unnusti hennar Ásmund- ur Þrastarson, f. 1991. Andrea Kristín, f. 1996, og Vignir Steinn, f. 2001. 2. Þorvarður Trausti, f. 1972. Samýliskona hans Sigurlaug Kjartansdóttir, f. 1986. 3) Eyjólfur, f.1973, giftur Auði Margréti Ármanns- mundur Hákon Halldórsson, f. 1981. Börn þeirra eru: Vildís Ásta, f. 2005, Hera Björg, f. 2009, og Halldór Bjarni, f. 2009. 3. Margrét Bjarnadóttir, f. 1990, gift David Geymonat, f. 1982. Sonur þeirra er Jón Leví, f. 2010. Sambýlismaður Inger er Magnús Þór Þór- isson, f. 16.3. 1950. Magnús Kristján lætur eftir sig unnustu, Marlen Lillevik, f. 20.3. 1984. Móðir hennar er Trude Albrigtsen. Sjúpfaðir hennar er Roald Balovara. Magnús Kristján ól mestan hluta bernsku sinnar á Hamraendum í Stafholt- stungum og vildi kenna sig við þann bæ. Hann lauk grunnskólaprófi frá grunn- skólanum á Varmalandi og stundaði eftir það nám við Borgarholtsskóla í Reykjavík. Að skólagöngu lokinni hóf hann störf hjá Loftorku í Borgarnesi. Árið 2011 hóf hann störf hjá Ístaki við jarð- gangagerð í Noregi og starf- aði þar til loka. Útför hans fer fram í Reyk- holtskirkju í dag, 14. mars 2015, klukkan 13. dóttur, f. 1972. Börn þeirra eru: Ármann Bjarni, f. 2003, Trausti Leif- ur, f. 2004, og Ing- er Elísabet, f. 2005. 4. Andrea, f. 1978, gift Stefáni Teitssyni, f. 1972. Börn þeirra eru: Jóhannes Freyr, f. 1999, Baldur Páll, f. 2004, og Anna Björk, f. 2011. Seinni kona Magnúsar er Björg Ólafsdóttir, f. 13.5. 1959. Barn þeirra er Sigurlaug, f. 2003. Börn Bjarg- ar úr fyrra hjónabandi eru: 1. Ólöf Bjarnadóttir, f. 1982, gift Sverri Fannari Einarssyni, f. 1983. Börn þeirra eru: Edda Björg, f. 2003, Margrét Valný, f. 2006, og Arnór Steinn, f. 2008. 2. Steinunn Þuríður Bjarnadóttir, f. 1986. Sam- býlismaður hennar Guð- Það er svo óendanlega sárt að sjá á eftir þeim sem maður elskar svo heitt. Elsku sonur minn og vinur Magnús Kristján, sem allt virtist brosa svo vel við. Á einu augabragði verður slys og hann allur. Feigum er víst ekki forðað og hann kallaður til annarra starfa, þótt við stöndum hér og hrópum „af hverju“ en fáum eng- in svör. Fyrsta samvinna okkar Magnúsar Kristjáns, meðgangan, var fjörug og kröftug, enda við m.a. að leika með leikdeild sveit- arinnar í leikritinu „Aldrei er frið- ur“ hoppandi upp á borð og niður aftur. Einhverjir voru farnir að spá í hvort fæðing yrði í einhverri sýningunni, en allt gekk vel. Það má segja að í kringum hann elskulegan hafi aldrei verið frið- ur, en í jákvæðum skilningi þó. Hann var alltaf að „redda“ ein- hverju. Strax frá upphafi sýndi hann mikla elju og dugnað við allt sem hann tók sér fyrir hendur. Hann var duglegur við að ganga í spor sér eldri og ekki skemmdi fyrir ef vélar eða tæki voru ann- ars vegar. Ég tala nú ekki um Steina frænda á Svartagili sem átti flottu gröfuna og allar hinar vélarnar. Ég trúi að hann verði einn margra til að taka á móti syni mínum við hliðið. Það kom fljótt fram hjá Magnúsi Kristjáni skarpskyggni og hve ráðagóður hann gat verið með úrlausnir. Þetta fylgdi honum til hins síð- asta ásamt greiðvikni, gleðinni og jákvæðninni. Hann var mikið náttúrubarn og sagði oft að hann skildi ekki hvernig fólk þrifist í stórborgum. Þó að hann starfaði í Noregi vissi hann alltaf hvað hver og einn úr fjölskyldunni aðhafðist því fjölskyldan skipti hann miklu máli. Hann var nokkurs konar „idol“ hjá systkinabörnum. Í einkalífinu var sonur minn hepp- inn. Hann átti yndislega unnustu, hana Marlen, sem hann var svo lánsamur að finna í Noregi. Þau eyddu sameiginlegum fríum sín- um ýmist hér á landi eða í Noregi. En það var sama hvort hann var í eða úr vinnu; hann var alltaf eitt- hvað að aðhafast. Ég er líka búin að heyra að hann hafi staðið sig vel hjá Ístaki þar sem hann hefur unnið síðustu ár og eiga Ístaks- menn þakkir skilið fyrir allt sem þeir hafa gert fyrir hann og okk- ur. Við vitum að enginn er ódauð- legur en þetta heljarhögg finnst okkur ótímabært. En það er ljúft til þess að hugsa að hann skilur eftir svo mikið af yndislegum minningum, hnyttnum svörum og athöfnum. Minningarnar eru fleiri en tölu verði á komið og oft- ar en ekki spaugsamar og skemmtilegar. Nú er friður. Magnús Kristján hefur lokið leik sínum á lífsins vegi. Við erum stolt af honum og hans verkum. Hans bíða nú önnur verkefni. Ég bið almættið um styrk okkur öll- um til handa. Góða ferð elsku hjartans Magnús Kristján og góða ferð inn í eilífðina. Þín elskandi, mamma. Elsku hjartans bróðir minn. Mikil ósköp sem ég sakna þín. Það er svo fjarstæðukennt að þú sért farinn. Hugurinn er á stöðugu reiki að tína til allar þær góðu minningar sem ég á um þig. Fyrsta minningin er frá því ég sá þig fyrst á fæðingardeildinni, eitt- hvað leist mér ekki nógu vel á þig. Mér fannst þú líta út eins og geim- vera, svo ljós yfirlitum að ég greindi ekki augabrúnir og hálf- krumpaður allur. Þú varst ekki lengi að bræða mig og þegar heim var komið sá ég þig sem heimsins flottasta litla bróður. Þú fæddist gömul sál, varst uppátækjasamur, kátur og ljúfur. Áhugi á bílum og traktorum kviknaði mjög snemma og nægði þér ekki að keyra um á leikfanga- bílum og traktorum hljóðlaust, heldur framkallaðir þú vélarhljóð sem hljómuðu allan liðlangan dag- inn og enginn úr fjölskyldunni gat hermt eftir. Ef það voru ekki vél- arhljóðin sem bárust frá þér var það söngur, spurningar eða vangaveltur. Þú varst mikill hugs- uður, velviljaður og kappsamur. Sveitamaður í húð og hár og hafðir alltaf nóg fyrir stafni. Það var fjár- sjóður fyrir frændsystkini þín að fá að vera með þér í leik og starfi, sjá þig slá á létta strengi og fylgj- ast með þegar púkinn í þér hrekkti aðra fjölskyldumeðlimi. Þrjóska og stríðni blunduðu jú sterkt í þér eins og þú áttir ættir til. Svo var stefnan tekin á Noreg þar sem þú varst svo lánsamur að hitta ástina þína hana Marlen. Mikið var það yndislegt. Feigum verður ekki forðað, bróðir kær, og þó að ég skilji ekki hvers vegna kall þitt kom svo fljótt þá hugga ég mig við fjöldann allan af þeim minningum sem ég á um þig. Ég geymi þær sem gull, þær lifa. Farðu í friði, glókollur minn, ég hlakka til að hitta þig aftur þegar þar að kemur. Um daginn dreymdi mig þig og eftir drauminn raulaði ég stöðugt lagstúf sem ég leitaði svo uppi og fann þennan fallega texta við. Mér fannst sem þú hefðir fært mér þennan lagstúf í kveðjuskyni, fyrir það er ég þakklát. Sumir hverfa fjótt úr heimi hér skrítið stundum hvernig lífið er, eftir sitja margar minningar þakklæti og trú. Þegar eitthvað virðist þjaka mig þarf ég bara að sitja og hugsa um þig, þá er eins og losni úr læðingi lausnir öllu við. Þó ég fái ekki að snerta þig, veit ég samt að þú ert hér, og ég veit að þú munt elska mig geyma mig og gæta hjá þér. Þó ég fengi ekki að þekkja þig þú virðist alltaf geta huggað mig, það er eins og þú sért hér hjá mér og leiðir mig um veg. Og þegar tíminn minn á jörðu hér, liðinn er þá er ég burtu fer, þá ég veit að þú munt vísa veg og taka á móti mér. (Ingibjörg Gunnarsdóttir.) Þín systir, Andrea. Elsku hjartans Magnús Krist- ján. Með tár í augum og sorg í hjarta sit ég og skrifa þér hina hinstu kveðju í okkar nafni. Við trúum því öll að nú sért þú á góð- um stað með góðum vinum og ætt- ingjum sem áður hafa kvatt þessa jarðvist. Það verður undarlegt og sárt að fá ekki lengur að njóta samveru þinnar því þú varst hvers manns hugljúfi, ástkær bróðir og mágur, sannur vinur og frændi barnanna. Við sjáum þig öll ljóslifandi fyr- ir okkur, hlæjandi grallarann sem átti svör við flestu. Við hlökkuðum öll til að fá þig heim í frí með Mar- len og börnin biðu spennt eftir því að fá elsku frænda loksins í heim- sókn í Hólminn. Það var því þung- bært að fá fréttirnar daginn fyrir heimkomuna en eins og þú hefðir eflaust sjálfur sagt „svona er bara lífið“. Við huggum okkur við allar þær stundir sem við áttum með þér í hlátrasköllum og hinum ýmsu uppátækjum í sveitinni og munum ylja okkur við þær minn- ingar áfram. Það má með sanni segja að sjaldan var lognmolla í kringum þig og í þinni návist komst enginn upp með að vera í fýlu. Þú hafðir einstakt lag á að sjá ljósið í myrkr- inu og finna jákvæðu hliðarnar á öllum hlutum. Þú varst vinnusam- ur og staðfastur, hafðir ríka rétt- lætiskennd, gekkst beint í hlutina og vannst þín verk af heilum hug. Síðasta ferð þín í Hólminn er okkur öllum í fersku minni. Uppá- klæddur fallegur ungur maður, brosandi út að eyrum, talandi ís- lensku og norsku á víxl, staðráð- inn í því að kynna ættingjana eins vel og unnt var fyrir Marlen, passa að allir skildu örugglega allt rétt. Þú sýndir óhikað umhyggju þína fyrir öllum á heimilinu og barst það með þér að vera heppn- asti maður í heimi að njóta allrar þessarar athygli. Elsku Magnús Kristján, við er- um þau heppnustu í heimi að hafa fengið að hafa þig hjá okkur, þótt við hefðum sannarlega viljað hafa tímann miklu lengri. Við vitum að þú verður áfram hjá okkur, vel geymdur í hjörtum okkar allra. Elsku bróðir, mágur og frændi, megir þú hvíla í friði og njóta næð- is á þeim stað sem þú nú dvelur á. Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir og fjölskylda. Ég verð að fá leyfi til að vera svolítið væmin minn kæri mágur, ég veit vel að væmnar kerlingar voru ekki þitt uppáhald. Þú kem- ur víst ekki aftur til okkar og þín er sárt saknað. Sakna þess að hringja í þig þegar kvöldmaturinn er til og bjóða þér að koma að borða með okkur. Sakna þess að geta ekki sagt Magnús gerir þetta eða hitt næst þegar hann kemur heim. Sakna þess að geta ekki spurt þig ráða og fengið þitt álit á fram- kvæmdum hér heima og í bú- skapnum. Sakna að geta ekki hringt og sagt þér fréttir af samyrkjubúinu. Sakna hversu þolinmóður og góður þú varst við frændur þína og frænku, hvað þú kenndir þeim margt. Sakna allra stundanna sem við sátum og spjölluðum um lífið og tilveruna, þegar farið var á flug í vangaveltum um hvað ætti að gera næst. Sakna kímnigáfu þinnar og stríðninnar. Sakna vináttu þinnar. Þessi erindi úr Kveðju eftir Bubba hafa sótt á huga minn síð- ustu vikur. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Sakna þín svo óendanlega mik- ið alla daga. Þín mágkona, Auður Margrét Ármannsdóttir. Við starfsmenn Ístaks í Narvik vorum harmi slegnir er okkur bárust tíðindi af fráfalli Magnús- ar. Þessi dapurlegu tíðindi bárust okkur í kjölfar þess að Magnúsar var saknað á heimfarardegi. Þeg- ar Magnús skilaði sér ekki í flug frá Noregi til Íslands áttuðum við okkur á að ekki var allt sem skyldi. Um morguninn hinn 25. febrúar höfðum við heyrt af slysi um nóttina áður, er maður hafði orðið fyrir lest í Narvik. Við tengdum þessa atburði ekki sam- an, en þegar Magnús hins vegar skilaði sér ekki í flugið varð óþægilegrar tilfinningar vart. Eft- ir að haft hafði verið samband við lögreglu var þessi óþægilega til- finning staðfest og ljóst var að Magnús hafði látist af slysförum. Mun hann hafa látist samstundis er hann varð fyrir lest laust eftir kl. 23 hinn 24. febrúar. Magnús hóf störf sem vélamað- ur hjá Ístaki í Noregi árið 2011 og vann þá fyrst við framkvæmdir í Skjåholmen við Hammerfest í Norður-Noregi, þar sem Ístak vann að gerð jarðganga í Finn- mörku. Síðar fluttist Magnús ásamt fleiri félögum sínum til Alta í Finnmörku þar sem Ístak hóf framkvæmdir við jarðganga- og vegagerð og starfaði Magnús þar uns hann hóf störf í Narvik haust- ið 2013 til að taka þátt í næsta stóra verkefni Ístaks. Magnús sinnti starfi sínu af samviskusemi og alúð og var ávallt vel liðinn af samstarfsmönnum sínum. Magn- ús var rólegur í fasi og fór ekki alltaf mikinn, en var mjög traust- ur starfsmaður sem ætíð var hægt að reiða sig á. Við störf sín í Noregi hafði Magnús kynnst stúlku í Alta og höfðu þau hafið sambúð þar. Þau áttu lífið fyrir sér þegar Magnús var kvaddur á brott alltof snemma í blóma lífins. Við send- um unnustu hans, foreldrum og öðrum aðstandendum hans okkar innilegustu samúðarkveðjur um leið og við kveðjum góðan dreng. Hans verður saknað, blessuð sé minning hans. F.h. Ístaks og samstarfsmanna í Narvik, Noregi, Brynjar Brjánsson. Magnús Kristján Magnússon Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTJANA JÓNSDÓTTIR, Bræðratungu 8, Kópavogi, lést 25. febrúar. Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju 18. mars kl. 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Félags aðstandenda alzheimersjúklinga, sími 533-1088, alzheimer.is . Sigurjón Hrólfsson, Jón Hrólfur Sigurjónsson, G. Erla Sigurbjarnadóttir, Hörður Sigurjónsson, Anna Rósa Sigurjónsdóttir, Jens Ágúst Jóhannesson, Helga Sigurjónsdóttir, Steinar Sigurðsson, Heiðar Sigurjónsson, Sólveig Jörgensdóttir, Sveinn Sigurjónsson, Erla Skaftadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, HALLDÓR R. HALLDÓRSSON, Þverási 27, Reykjavík, lést á Landspítalanum 9. mars. Útför hans fer fram frá Árbæjarkirkju föstudaginn 20. mars kl. 13. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á MND félagið. . Bryndís Eiríksdóttir, Sigríður G. Halldórsdóttir, Marteinn S. Sigurðsson, Kristín H. Halldórsdóttir, Brynjar H. Ingólfsson, Birna Margrét Halldórsdóttir, Hjálmar Arnar, Sigurður, Agnes Dís, Halldór Bjarki og Ingunn María. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, KRISTJANA F. ARNDAL listmálari, til heimilis í Hafnarfirði, lést á Vífilsstöðum þriðjudaginn 3. mars. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 19. mars kl. 15. . Þorgeir Þorgeirsson, Bergur Þorgeirsson og fjölskylda, Lilja Þorgeirsdóttir og fjölskylda, Finnur Þorgeirsson og fjölskylda, Fjóla Þorgeirsdóttir og fjölskylda. Þökkum auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og bróður, KOLBEINS SIGURJÓNSSONAR, Birkihlíð 3, Sauðárkróki, er lést föstudaginn 20. febrúar. Guð blessi ykkur öll. . Kristín Lúðvíksdóttir, Atli Freyr Kolbeinsson, Guðrún Ása Kolbeinsdóttir, Elvar Pálsson, Fannar Logi Kolbeinsson og systkini hins látna. Elskulegur faðir, sonur, fóstursonur og bróðir, HELGI BALDUR JÓHANNSSON frá Geldingaá, lést á sjúkrahúsi Akraness 8. mars. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 17. mars kl. 14. . Hilmar Þór Helgason, Guðný Helgadóttir, Hafsteinn Hrafn Daníelsson, Jóhann Þór Baldursson, Ásta Kristjánsdóttir og systkini.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.