Morgunblaðið - 14.03.2015, Qupperneq 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2015
Sigríður Indriðadóttir er mannauðsstjóri hjá Mosfellsbæ og for-seti bæjarstjórnar á Akranesi. „Ég er búin að vinna hjá Mos-fellsbæ í tæp sjö ár og líkar mjög vel. Stærsta verkefnið mitt
þessa stundina er að stýra innleiðingu á gæðakerfi á bæjarskrif-
stofum Mosfellsbæjar og það er krefjandi og skemmtilegt.“
Sigríður var kosin forseti bæjarstjórnar á Akranesi eftir kosning-
arnar síðastliðið vor. „Það er bæði gaman og gefandi að starfa í bæj-
arstjórninni. Við erum sex konur og þrír karlar og þetta er víðsýnn
hópur og samvinnan góð. Núna erum við að vinna stefnumót-
unarvinnu um hlutverk og gildi bæjarins.“
Eiginmaður Sigríðar er Hjörtur Hróðmarson rafeindavirki hjá
Símanum. Börn þeirra eru Ingveldur María 21 árs, sem er í söng-
námi í Boston og skiptinemi í Valencia á Spáni þennan veturinn. Svo
kemur Sigurlaug Rún 18 ára, en hún tekur þátt í Ísland Got Talent á
morgun á Stöð 2 ásamt hljómsveit sinni Fimmund, og sú yngsta er
Mirra Björt 12 ára, og hún er í Sönglist í Borgarleikhúsinu. „Það er
stundum eins og að búa í myndinni Sound of Music heima hjá mér.
Ég er svo heppin að fá að vinna við áhugamálin á báðum stöðum,
hef áhuga á bæjarmálum og fólki. Svo hef ég gaman af göngum, les
töluvert mikið, hlusta tónlist og hef almennt mikinn áhuga á heil-
brigðu líferni. Bókin á náttborðinu núna er Hin mörgu andlit lýð-
ræðis sem fjallar um íbúalýðræði og valdakerfi sveitarfélaga.“
Sigríður er búin að bjóða vinkonum sínum í hádegismat. „Það
verður smá skvísumót hjá okkur í tilefni dagsins.“
Sigríður Indriðadóttir er 43 ára í dag
Í Mosfellsbæ „Ég keyri Kjalarnesið með glöðu geði í hvaða veðri
sem er því það er frábært að vinna hjá Mosfellsbæ,“ segir Sigríður.
Mannauðsstjóri og
forseti bæjarstjórnar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Guðbjörg
Ámundadóttir,
Minna-Núpi, verð-
ur 90 ára hinn 15.
mars. Hún fagnar
áfanganum með
fjölskyldu sinni.
Árnað heilla
90 ára
Kaupmaðurinn
Bjarni Haraldsson
á Sauðárkróki,
betur kunnur sem
Bjarni Har., er 85
ára í dag, 14.
mars.
Hann ætlar að
taka daginn rólega og hyggst eyða
honum í faðmi fjölskyldunnar. Þeir
sem vildu gleðja hann í tilefni dagsins,
vinsamlegast látið Sauðárkrókskirkju
njóta þess.
Árnað heilla
85 ára
T
víburasysturnar Auður
Anna Ingólfsdóttir og
Anna Auður Hancherow
fæddust í Reykjavík 14.
mars 1955 og ólust upp í
Vesturbænum. Ægisíðan og fjaran
þar var spennandi leiksvæði, einnig
háskólasvæðið sem var í uppbygg-
ingu og Nauthólsvíkin á sumrin.
Vesturbæjarlaugin var mikið sótt og
gamli KR-völlurinn og Reykjavík-
urtjörnin buðu upp á frábært skauta-
svell á veturna og í minningunni var
veðrið gott og hægt að skauta langt
fram á kvöld. Þær gengu í Melaskóla
og Hagaskóla en svo skildi leiðir.
Anna í alþjóðaviðskiptum
Anna Auður fór í Verzlunarskól-
ann, varð stúdent 1979 og fór síðan í
viðskiptafræði við HÍ og útskrifaðist
1980. Að námi loknu fór Anna á veg-
um AISCEC til Dublin á Írlandi og
Auður og Anna Ingólfsdætur – 60 ára
Með fjölskyldunni Kirk Hancherow, Arnfríður mamma, Anna Auður, Jóel Reynir, Bryndís Fiona, Auður Anna,
Stefán Orri og Jennifer Simaitis, kærasta Stefáns, í brúðkaupi innan fjölskyldunnar fyrir örfáum árum.
Tvíburar í ferðamálum
og alþjóðaviðskiptum
Las Vegas Auður (t.v.) heimsótti Önnu síðastliðinn janúar og þær keyrðu úr
30 stiga frosti frá Calgary í 30 stiga hita þvert yfir Bandaríkin til Las Vegas.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Allt fyrir eldhúsið
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–17, laugard. kl. 11-14.
Retro
ískápar
Glæsilegur sýningarsalur
Opnun
artilbo
ð
249.00
0 kr.
Verð á
ður 27
9.000
kr.
Verð fr
á
209.90
0 kr.
Tvöfaldur
gorenje ísskápur
608 lt. No frost skápur
með led lýsingu, klakavél,
vatni og flýtilúgu