Morgunblaðið - 14.03.2015, Síða 46

Morgunblaðið - 14.03.2015, Síða 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2015 Ein umtalaðasta bókafrétt síðustu ára, að í júlí kæmi út í tveimur milljónum eintaka „ný“ skáld- saga eftir Harper Lee, höfund einnar þekktustu bandarísku skáldsögunnar, To Kill a Mock- ingbird, heldur áfram að hlaða utan á sig. Lee er orðin 88 ára gömul og dvelst nær heyrnarlaus á elliheimili í heimabæ sínum í Alabama. Lögfræð- ingur Lee fann í bankahólfi handritið Go Set a Watchman, sögu sem Lee skrifaði á undan „Mockingbird“ og fjallar um sömu karaktera. Lee var ráðlagt að vinna söguna betur og þá varð „Mockingbird“ til og gaf hún ekkert út eftir það. Einhverjir vina Lee töldu fráleitt að hún hefði gefið samþykki sitt fyrir útgáfunni í sumar, og sögðu að verið væri að misnota höfundinn í elli sinni. Alabama-ríki gekk í að rannsaka málið og í gær var úrskurðað að Lee væri með fullum söns- um og fær um að taka slíkar ákvarðanir. Umboðsmaður Harper Lee sendi í kjölfarið frá sér yfirlýsingu, tók undir að höfundurinn byggi yfir óskertum andlegum styrk og gleddist yfir því að önnur skáldsaga hennar kæmi nú loksins út. Hann bætti við að kæran, um að verið væri að misnota Lee, væri „skammar- og dapurleg“. Harper Lee veit sínu viti Höfundurinn Eftir ára- tuga þögn kemur loks út saga eftir Lee. VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Með bakið að framtíðinni nefnist yfirlitssýning á verkum þýska myndlistarmannsins og Íslandsvin- arins Jans Voss sem opnuð verður í Listasafninu á Akureyri í dag kl. 15. Sýningin er merkisviðburður í íslensku myndlistarlífi því yfirlits- sýningar á verkum Voss eru sjald- gæfar og hvað þá sýningar sem hann stýrir sjálfur, eins og hann gerir í þessu tilfelli. Voss fæddist árið 1945 í Þýska- landi og býr í Amsterdam. Hann hóf myndlistarferilinn sem mynda- sagnahöfundur, gerði teiknimynda- sögur, prentaði þær og gaf út. Voss stundaði m.a. myndlistarnám hjá Dieter Roth í Düsseldorf seint á sjöunda áratugnum og kom fyrst til Íslands árið 1971 fyrir atbeina hans. Hann hefur komið margoft hingað upp frá því og þá m.a. til fyrirlestra- og sýningahalds. Auk þess að vinna að myndlist hefur Voss undanfarin 30 ár rekið merkilega bókabúð og gallerí í Amsterdam, Boekie Woekie, sem selur bókverk myndlistarmanna. Verslunina stofnaði Voss með hópi myndlistarmanna og eru þrír úr þeim hópi enn eigendur hennar, auk Voss þær Rúna Þorkelsdóttir og Henriëtte van Egten. Það elsta frá 1968 Sýningin í Listasafninu á Ak- ureyri er umfangsmikil, allt safnið lagt undir og yfir 80 verk til sýnis af öllum stærðum og gerðum, frá agnarsmáum yfir í feiknastór, að sögn Voss. „Það eru þarna verk sem ég gerði snemma á ferlinum. Ég er að verða sjötugur bráðum þannig að þú sérð að ég hef úr mörgum árum að velja. Elsta verk- ið er frá 1968, ef ég man rétt,“ seg- ir Voss. Verkin séu því frá þeim tíma allt til þessa árs. „Þetta er því yfirlitssýning í þeim skilningi þótt hún hafi ekki verið hugsuð þannig upphaflega, þetta eru verk frá öll- um ferli mínum.“ Í tilefni sýningarinnar kemur út á vegum safnsins mikil bók eftir Jan Voss sem ber titil sýning- arinnar á ensku, With the Back to the Future, enda bókin á ensku. „Þetta er 160 síðna sýningarskrá þar sem ég lýsi hverju verki,“ seg- ir Voss og hvetur þá sem vilja fræðast almennilega um verk hans að kynna sér hana. „Hvað er mynd?“ Voss hefur á ferli sínum unnið verk í ólíka miðla, tví- og þrívíða þótt málverk séu áberandi þegar litið er yfir ferilinn. Hann segist þó ekki vera listmálari í hefðbundnum skilningi þess orðs. „Málverkið sem slíkt er ekki umfjöllunarefni hjá mér en ég nota málverk til að skapa ákveðnar aðstæður sem væri annars erfitt að gera,“ út- skýrir hann. Í tilkynningu frá safninu segir um verk Voss að undirliggjandi þáttur í verkum hans sé spurn- ingin „hvað er mynd?“. Voss tekur undir þetta. „Þar sem ég bý til myndir vakti það áhuga minn í upphafi ferilsins hvað mynd gæti verið þannig að það eru nokkuð mörg verk hérna á sýningunni sem takast á við þessa spurningu,“ seg- ir hann. Spurður út í aðferðir sínar við list- sköpunina, hvort hann ákveði t.d. fyrirfram hvers konar verk hann ætli að gera áður en hann ræðst í verkið, segir Voss að hann hlusti einfaldlega á eigin hugsanir og þær endurspeglist í verkunum. Þá punkti hann einnig niður hugmyndir sínar eða hugsanir til að vinna með síðar. Eitt af verkunum á sýningunni nefnist „Robot in a Rowboat!“, gamall og fúinn árabátur sem pappavélmenni rær. Á myndinni með viðtalinu sést Voss róa bátnum á gólfi safnsins, kampakátur og greinilegt að það er stutt í leikinn hjá honum í listinni og þá líka orða- leiki. Voss er beðinn að segja aðeins frá þessu verki. „Titill sýning- arinnar er Með bakið að framtíðinni og sá sem rær bátnum snýr bakinu í það sem framundan er,“ segir Voss. Með þessu sé hann að benda á að fólk kjósi oft frekar að líta til fortíðarinnar en framtíðarinnar. „Framtíðin er ekki endilega það vænlegasta í lífi manns heldur frek- ar það sem liðið er. Mér fannst tit- illinn því viðeigandi og að þetta væri táknrænn gjörningur fyrir okkur mannfólkið. Við vitum ekki hvert við stefnum. Og vesalings náunginn sem rær bátnum er líka vélmenni,“ segir Voss. Þetta verk er gott dæmi um tví- og margræðni verka hans, eins og sýningargestir á Akureyri munu fá að kynnast. Að lokum er Voss spurður hvort hann telji mikilvægt að leika sér í listsköpun. „Já, að leika sér er mik- ilvægt yfirleitt og þá helst að leika sér skynsamlega,“ svarar hann kíminn. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Róður Jan Voss í verki sínu „Robot in a Rowboat!“. Vélmenni úr pappa mun sitja við árarnar á sýningunni. „Við vitum ekki hvert við stefnum“  Jan Voss stýrir sýningu á eigin verkum í Listasafninu á Akureyri  Yfir 80 verk til sýnis sem spanna nær hálfa öld Fjarlægt Eitt af verkum Voss á sýningunni í Listasafninu á Akureyri. „Þessi mynd hefur verið fjarlægð af öryggisástæðum,“ stendur málað á því. Söfn • Setur • Sýningar Sunnudagur 15. mars kl. 14: Ókeypis leiðsögn um Á veglausu hafi Tveir fyrir einn af aðgangseyri Hönnunarmars: Íslenskir gullsmiðir-ný verk og skartgripahönnun á frímerkjum Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár Á veglausu hafi í Bogasal Hvar, hver, hvað? í Myndasal Húsin í bænum á Veggnum Fjölbreyttir ratleikir fyrir alla fjölskylduna Safnbúð og kaffihús Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið frá 11-17 alla daga nema mánudaga. Listasafn Reykjanesbæjar • Til sjávar og sveita, Gunnlaugur Scheving • Sjálfsagðir hlutir, hönnunarsaga. • 15/15 – Konur og myndlist, úr safneigninni. 24. janúar – 26. apríl Byggðasafn Reykjanesbæjar Bátasafn Gríms Karlssonar Listasafn Erlings Jónssonar Opið virka daga 12-17, helgar 13-17. Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn Verið velkomin ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS LISTASAFN ÍSLANDS Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is Opið daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. KONUR STÍGA FRAM - SVIPMYNDIR 30 KVENNA Í ÍSLENSKRI MYNDLIST 13.2.-10.5.2015 A KASSEN CARNEGIE ART AWARD 2014 13.2. - 10.5. 2015 SUNNUDAGSLEIÐSÖGN kl. 14 í fylgd Einars Garibaldi myndlistarmanns SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar. IN THE CRACK OF THE LAND - Una Lorenzen LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is LISTAMAÐUR Á SÖGUSLÓÐUM Johannes Larsen á ferð um Ísland 1927 og 1930. 31.1–22.3.2015. SUNNUDAGSTÓNLEIKAR 15. mars kl. 15 - Hugvekja í tali og tónum um menningarleg og tilfinningarleg tengsl Íslands og Danmerkur frá sjónarhóli fiðluleikara og listamannsdóttur: Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari. Opið laugardaga og sunnudag kl. 14-17. Kaffistofan opin á sama tíma. SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Í BIRTU DAGANNA Málverk og teikningar Ásgríms Jónssonar, 1.2.-15.9. 2015 Opið sunnudaga kl. 14-17. Largo - presto Tumi Magnússon Á gráu svæði David Taylor Leiðsögn Á gráu svæði Sunnudag 15. mars kl. 15 Opið 12-17, fimmtudaga 12-21, lokað þriðjudaga www.hafnarborg.is, sími 585 5790 Aðgangur ókeypis Teikningar og skissur Helgu Björnsson tískuhönnuðar Opið kl. 12-17. Lokað mánud. Verslunin Kraum í anddyri Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.