Morgunblaðið - 14.03.2015, Síða 51

Morgunblaðið - 14.03.2015, Síða 51
MENNING 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2015 d KYNNTU ÞÉR ÁSKRIFTARLEIÐIR Í SKJÁHEIMI SKJÁRINN | WWW.SKJARINN.IS SÖGULEG DAGSKRÁ Nýir og spennandi þættir á hverjum degi. HISTORY CHANNEL / LAUGARDAGUR 19.30 StorageWars. Texas. Geymslu- uppboðin í Dallas draga að stóra hópa safnara og sérvitringa. En þegar Kenny Stowe dregur upp veskið rekamargir upp stór augu. Stórforvitnilegur þáttur. HISTORY CHANNEL / SUNNUDAGUR 21.00 SharkWranglers. Við Algoa-flóa í Suður- Afríku ganga tröllasögur umógurlegan hákarl – sannkallaða ókind. Chris Fischer og hansmenn taka að sér sérkennilegt verkefni semmargir myndu telja fífldirfsku. HistoryChannelogH2eruvandaðarsjónvarpsstöðvarsemsameina fróðleikogskemmtun–aðeins íSkjáHeimi. H2 / LAUGARDAGUR 20.00WWII. Lost Films. Einstökmynd sem veitir innsýn í daglegt líf bandarískra hermanna í Evrópu í seinni heimstyrjöldinni. Sjáðu stríðið í nýju ljósi – og í lit. H2 / SUNNUDAGUR 21.40 Stan Lee’s Superhumans. Stan Lee er lifandi goðsögn og hefur skapað persónur á borð við Spider-Man, Hulk, X-Men ogmargar fleiri. Í þessumþætti leitar hann uppi fólk sem semhefur ofurkrafta í raun og veru. skjárheimur er fáanlegur bæði hjá vodafone og símanum ANIREY, alþjóðlegt málþing um framtíð teiknimyndagerðar og sýnd- arveruleika, verður haldið í Háskól- anum í Reykjavík 19. mars nk. Í framhaldi af því verða dagana 20. og 21. mars haldnar ókeypis vinnu- smiðjur með fremstu fagmönnum heims á sviði rauntímakvikunar, stafrænna leikara, nýrra miðla í sagnagerð og nýrra viðskiptalíkana í tæknivæddum sagnaheimi, skv. til- kynningu. Á ANIREY munu helstu hugsuðir og frumkvöðlar sviðsins tala um framtíð og þróun sýndar- veruleika, kvikunar og stafrænna leikara. Frummælandi málþingsins er faðir Light Stage-tækninnar svo- kölluðu, Paul Debevec, sem starfar fyrir Institute for Creative Technol- ogies, Stofnun skapandi tækni, í Los Angeles. Hún var lykillinn að því að myndir eins og The Matrix, Avatar, The Curious Case of Benjamin But- ton, Gravity og Malificent urðu eins raunverulegar og raun ber vitni, segir í tilkynningunni. Einnig mun danska frumkvöðladúóið Rokoko sýna gestum hvernig hægt er að vinna hreyfimyndir á margfalt hag- kvæmari hátt og styttri tíma en áður fyrr og auk þess í rauntíma. Rokoko mun kynna nýjustu útgáfu sína af „mocap“-búningi sínum sem er að koma úr framleiðslu og forritum sem gerir kvikurum kleift að hreyfa teiknimyndafígúrur í rauntíma án mikils kostnaðar. Frekari upplýsingar um ANIREY má finna á vefsíðu Félags kvik- myndagerðarmanna, filmmakers.is, og á henni er einnig hægt að skrá sig. Frumkvöðlar sýndarveruleikans á ANIREY Sjónarspil Stilla úr kvikmyndinni Matrix frá árinu 1999.  Faðir Light Stage-tækninnar talar á málþingi í HR Kvikmyndavef- urinn Variety greinir frá því að leikstjórinn Baldvin Z sé kominn á mála hjá umboðsstof- unni Paradigm sem er með skrif- stofur í Beverly Hills, New York, Monterey, Nashville, Lundúnum og Austin. Síðasta kvikmynd Baldvins, Vonarstræti, naut mikilla vinsælda hér á landi í fyrra, hlaut 12 Eddu- verðlaun 21. febrúar sl. og var framlag Íslands til Óskarsverð- launanna í ár. Af öðrum norrænum listamönnum sem eru skráðir hjá Paradigm má nefna leikkonuna Lenu Olin og sænsk-íslensku leik- konuna Eddu Magnason. Baldvin hjá Paradigm Baldvin Z Pólska kvik- myndin Ida, sem hlaut Óskars- verðlaunin í ár sem besta er- lenda myndin og mikinn fjölda kvikmyndaverð- launa í fyrra, verður sýnd á morgun kl. 16 í Bíó Paradís vegna fjölda áskorana. Myndin gerist á sjöunda áraug síðustu aldar og segir frá Önnu, munaðarlausri stúlku sem alist hef- ur upp í klaustri í Póllandi. Þegar til stendur að hún gangi formlega til liðs við nunnurnar biður abbadís- in hana að hitta frænku sína, síð- asta eftirlifandi ættingja sinn. Frænkan segir Önnu frá uppruna hennar og foreldrum og saman fara þær í ferðalag sem sviptir hulunni af leyndarmáli í fjölskyldunni. Ida sýnd í Bíó Paradís Agata Trzebuch- owska leikur Idu KK og Magnús Eiríksson halda tón- leika á Café Rosenberg í kvöld kl. 22. Þeir munu leika lög úr lagasafni hvor annars auk sameiginlegra lagasmíða. Á árunum 2003 til 2007 gáfu þeir út þrjár plötur með þekktum rútubílasöngvum og köll- uðu þær 22 ferðalög, Fleiri ferða- lög og Langferðalög. Aðgangseyrir er 2.000 kr. Spila á Café Rósenberg Félagar Magnús Eiríksson og KK.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.