Ægir - 01.04.2014, Side 24
24
Frá og með næsta skólaári býð
ur Fisktækniskóli Íslands starfs
fólki og stjórnendum í fisk
vinnslum upp á nýtt nám; Marel
vinnslutækni. Námið er skipu
lagt í samstarfi skólans við Mar
el og hefur að markmiði að
mæta þörfum fiskvinnslunnar
fyrir aukna sérhæfingu starfs
fólks, bakgrunn og þekkingu á
tækni og hugbúnaði. Með nám
inu er starfsfólk í fiskvinnslu
þjálfað í réttum stillingum
tækja búnaðar, fær fræðslu um
rétta umhirðu hans og mikil
vægi reglubundins viðhalds,
lærir um meginatriði hugbún
aðar í framleiðslustýringu og
hvern ig tækjabúnaðurinn stuðl
ar að auknum afköstum og arð
semi fyrirtækja í fjárfestingum í
fiskvinnslu.
Marel vinnslutækni er eins
árs nám, þ.e. tvær annir og er
kennt í lotum. Námsárinu er
skipt í fagbóklegar greinar og
vinnustaðanám undir leiðsögn
tilsjónarmanns. Námið er 36 ein-
ingar en inntökuskilyrði eru að
nemendur hafi lokið námi í fisk-
tækni eða sambærilegu námi.
„Þetta er að okkar mati
spennandi nám sem gefur mikla
möguleika hvað varðar störf við
vél- og hugbúnað frá Marel. Við
erum fullviss um að fiskvinnslur
sjái hag sinn í að hafa slíka sér-
menntaða starfsmenn innan
sinna raða,“ segir Ásdís Vilborg
Pálsdóttir hjá Fisktækniskólan-
um.
Önnur nýjung í námsfram-
boði Fisktækniskólans í haust er
eins árs nám í gæðastjórnun og
þurfa nemendur einnig að hafa
lokið námi í fisktækni eða samb-
ærilegu námi. Líkt og áður býð-
ur síðan skólinn nám á fisk-
vinnsluínu, sjómennskulínu og
fiskeldislínu.
Nánari upplýsingar um nám-
ið er að finna á heimasíðu skól-
ans, www.fiskt.is, en innritun fyr-
ir haustönn er hafin.
F
isk
v
in
n
slu
n
á
m
Fisktækniskólinn:
Ný námsleið í sam-
starfi við Marel
Allt til línuveiða
www.isfell.is
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi
• Ísnet Sauðárkrókur - Lágeyri 1
• Kristbjörg Ólafsfjörður - Pálsbergsgötu 1
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður -
Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
Nýja námsleiðin í Fisktækniskólanum gefur sérstaka fagþekkingu til að vinna með vélar og hugbúnað frá Marel.