Húnavaka - 01.05.1988, Page 248
246
HUNAVAKA
ur á Sjávarútvegssýningunni í
Reykjavík í september. Vakti
hann óskipta athygli. Trefjaplast
h.f. sá um alla plastvinnu, en
niðursetningu vélar, tréverk og
rafbúnað allan önnuðust fyrir-
tæki á Siglufirði.
Þá voru keyptar og teknar í
notkun vélar til framleiðslu ein-
angrunarplasts. Þær voru áður í
eigu Sigurðar H. Þorsteinssonar.
Húsið var nokkuð endurbætt
og tekinn i notkun nýr einangr-
aður vinnslusalur með 6 m loft-
hæð. Var það vegna bátafram-
leiðslunnar.
Til þess að tryggja efnahags-
stöðu fyrirtækisins var leitað eftir
auknu hlutafé. Bar það nokkurn
árangur. Nýir hluthafar eru
Kaupfélag Húnvetninga,
Blönduósshreppur og fleiri.
Hjá fyrirtækinu voru unnin
sem svaraði 4,5 ársstörf og fer
starfsmönnum fjölgandi. Auk
þess að búa til þennan bát, var
unnið að hefðbundnum verkefn-
um, búnir til smábátar, kapp-
róðrarbátar, laxeldisker og fleira.
Framtíðin lofar góðu, þótt
auðvitað verði að kljást við ýmis
vandamál sem allir þekkja, svo
sem fjárhagsvanda og markaðs-
mál.
J.t.
FRÁ KVENFÉLAGINU VÖKU.
Félagsstarfið hefur verið með
hefðbundnum hætti, fundir
haldnir fyrsta þriðjudag hvers
mánaðar frá september til maí og
hafa verið vei sóttir. Ýmislegt er
þar gert til gagns og gamans. Til
dæmis bökuðu félagskonur
laufabrauð, bjuggu til jólaskreyt-
ingar og seldu aðventukaffi i des-
ember.
Þorrablót var haldið fyrsta
laugardag i þorra að venju og
þorrafagnaður fyrir eldri borgara
daginn eftir. Þar söng Jóhann
Már Jóhannsson við undirleik
Sigurðar Daníelssonar.
Einn fundur á vetri er tekinn í
að fara í skoðunarferð i eitthvert
fyrirtæki á staðnum og nú var
farið í hið nýja fyrirtæki Serki h.f.
Var okkur vel tekið og sýnd öll
starfsemi fyrirtækisins. Leikhús-
ferð var farin til Skagastrandar
og margt fleira gert til skemmt-
unar og fróðleiks.
Kvenfélagið Vaka varð 60 ára
8. janúar. Félagið var stofnað af
12 konum, búsettum á Blönduósi.
Fyrsti formaður var Jóhanna
Hemmert. Einn stofnenda er á lífi
og er það Helga Jónsdóttir, ekkja
Steingríms Davíðssonar fyrrver-
andi skólastjóra.
1 tilefni afmælisins voru
Grunnskóla Blönduóss færðar
100 þúsund krónur að gjöf til
tækjakaupa. Sextíu þúsund