Morgunblaðið - 22.05.2015, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2015
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Hundruð tonna af vörum bíða nú
tollafgreiðslu, sem ekki er veitt
vegna verkfalls dýralækna. Gámur,
fullur af þurrvöru fyrir verslanir
Kaupáss, bíður tollafgreiðslu því í
honum er kassi af hunangi. Aðrar
vörur geta farið í gegnum tollinn en
þar sem hunang þarf stimplun frá
starfsmönnum Matvælastofnunar er
allur gámurinn stöðvaður.
Félag atvinnurekenda (FA) biðlar
til Matvælastofnunar að stimpla
skjölin enda stendur ekki í lögum
um innflutning á dýrum og dýra-
afurðum að ákveðin starfsstétt þurfi
að veita leyfið – aðeins stofnunin
sjálf.
Bjarga verður verðmætum
Ólafur Stephensen, formaður Fé-
lags atvinnurekenda, segir að fleiri
geti stimplað á pappírana en dýra-
læknar og matvælafræðingar.
„Samkvæmt lögum á hún að gera
það og við segjum: Matvælastofnun
er ekki öll í verkfalli og það er klárt
að yfirmenn geta stimplað þessa
vöru og það eiga þeir að gera,
bjarga þannig verðmætum og koma
í veg fyrir sóun.“
Einar Örn Thorlacius, lögfræð-
ingur Matvælastofnunar, bendir á
að málið sé ekki svo einfalt. „Það vill
þannig til að þeir starfsmenn sem
hafa þekkingu á þessum málaflokki
eru í verkfalli.
Það er rétt að það þarf ekki að
vera dýralæknir sem stimplar þessa
pappíra en starfsmaðurinn þarf að
hafa hugmynd um hvað hann er að
gera.“
FA bendir á að samkvæmt dóma-
fordæmum geta yfirmenn stofnun-
arinnar gengið í störf undirmanna í
því skyni að bjarga verðmætum.
Algjör tvíverknaður
Heilbrigðisvottorð með vörum frá
ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins
eru gefin út af þarlendum dýra-
læknum, í samræmi við sömu heil-
brigðisreglur og gilda á Íslandi.
„Þetta er því algjör tvíverkn-
aður, það þarf engan dýra-
lækni til að athuga hvort vott-
orðið frá erlendum dýra-
læknum fylgi vörunni. Það er
ekkert annað sem þarf að
gera. Það þarf fyrst og fremst
að ganga úr skugga um að
pappírarnir séu í lagi – það
þarf engan dýralækni til
þess,“ segir Ólafur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Beðið Innflutningsfyrirtæki mótmæla því að verkfall dýralækna þýði að MAST geti ekki stimplað nauðsynleg skjöl.
Yfirmenn geta
bjargað verðmætum
Ekki í lögum að ákveðin starfsstétt þurfi að stimpla leyfi
Malín Brand
malin@mbl.is
Í þau skipti sem svína- og kjúklinga-
bændur hafa fengið undanþágur til
slátrunar í verkfalli dýralækna hafa
sláturafurðir verið settar í frysti.
Um heiðursmannasamkomulag var
að ræða og í því fólst að vörurnar
færu ekki í sölu, en undanþágurnar
voru veittar vegna dýravelferðar. Á
meðan hefur innkoma hjá svína- og
kjúklingabændum í mörgum tilvik-
um verið lítil og margir lýst áhyggj-
um af því að geta ekki staðið í skilum
við fóðursala sína.
Skuli ekki líða skort
Í gær samþykktu dýralæknar inn-
an Dýralæknafélags Íslands að
bændur skyldu fá úthlutað
ákveðnum sláturdögum og að slátur-
afurðir færu á markað. Er það gert
til að bændur geti keypt fóður handa
skepnum sínum.
Í tilkynningu sem Dýralækna-
félag Íslands sendi frá sér í gær
kemur meðal annars fram að á sama
tíma og ekkert þokist í samninga-
viðræðum BHM og samninga-
nefndar ríkisins „þyngist róðurinn
hjá þeim sem aðgerðaleysi stjórn-
valda bitnar á“. Er þar vísað til
bænda og skepna þeirra.
„Í ljósi þessa hefur Dýralækna-
félag Íslands ákveðið að taka tillit til
þess við afgreiðslu undanþágubeiðna
að hætta sé á að framleiðendur
svína- og alifuglakjöts muni eiga í
erfiðleikum með að afla aðfanga og
fóðurs fyrir búfénað sinn,“ segir enn
fremur í tilkynningunni.
Góðar fréttir fyrir búin
Að sögn Jóns Magnúsar Jóns-
sonar, framkvæmdastjóra Ísfugls,
eru nú blikur á lofti hjá svína- og
kjúklingabændum. „Við fáum að
markaðssetja ákveðna daga í næstu
viku. Dýralæknafélagið sýnir því
skilning að við þurfum náttúrulega
rekstrarfé til þess að reka búin okk-
ar,“ segir hann. Ekki liggur fyrir ná-
kvæmlega um hvaða daga ræðir en
ljóst er að í næstu viku fá bændur að
slátra og koma vörum sínum fersk-
um á markað. „Ég er mjög ánægður
með að dýralæknar skuli sýna þessu
skilning,“ segir Jón Magnús um tíð-
indin um slátrun án kvaða.
Fá að slátra og
setja á markað
Ferskt svína- og alifuglakjöt á mark-
að í næstu viku Bændum léttir mjög
„Niðurstöður fundarins voru mikil
vonbrigði frá okkar hálfu og miðað
við þennan fund er ljóst að ríkið hef-
ur lítinn áhuga á því að viðhalda hér
sómasamlegu heilbrigðiskerfi með
þátttöku hjúkrunarfræðinga,“ sagði
Ólafur G. Skúlason, formaður Fé-
lags íslenskra hjúkrunarfræðinga,
að loknum fundi samninganefndar
félagsins og samninganefndar rík-
isins.
Fundurinn stóð í tæpan hálftíma
og að sögn Ólafs er óljóst hver
næstu skref verða því annar fundur
hefur ekki verið boðaður.
Þann 27. maí nk. hefst allsherjar-
verkfall hjúkrunarfræðinga sem
starfa hjá ríkinu. „Það sem við erum
að fara fram á er að dagvinnulaun
hjúkrunarfræðinga séu saman-
burðarhæf við önnur háskólamenntuð
störf og að það sé stigið ákveðið skref
í þá átt að leiðrétta kynbundinn
launamun á milli stétta. Út á það
ganga kröfur okkar,“ segir Ólafur.
Spurður um stöðu verkfallssjóðs
hjúkrunarfræðinga segir hann sjóð-
inn standa ágætlega en vildi ekki
fara nánar út í hve digur hann væri.
malin@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Á leið á fund Lítið þokaðist í kjara-
deilu hjúkrunarfræðinga í gær.
Hjúkrunarfræðingar
brúnaþungir eftir fund
Nóg er til af kjöti fyrir komandi
Eurovision-veislu í búðum
Krónunnar og bendir Sigurður
Gunnar Markússon, fram-
kvæmdastjóri innkaupasviðs
Kaupáss, sem á og rekur Krón-
una, meðal annars á að það sé
búið að vera nægt framboð á
ferskum kjúklingi síðan um síð-
ustu helgi.
„Það væri vitlaust að segja
að allt væri í fínu lagi. Það er
nóg til af lambi, frosnu
nautakjöti en ekki allar
stærðir til af hamborg-
urum þó þeir séu til.
Í búðunum okkar er
eitthvað minna vöru-
framboð en fólk á að
venjast. En það er enginn
kjötskortur,“ segir Sig-
urður.
Minna vöru-
framboð
ENGINN KJÖTSKORTUR
HJÁ KRÓNUNNI
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Þyngsta nautið í Möðruvalla-
tilrauninni er komið yfir 500 kílóa
markið, var 501 kíló við síðustu
vigtun. Nautið fékk nafnið Þór
Saari og er aðeins ríflega 14 mán-
aða gamalt.
Tilraunaverkefnið á Möðruvöll-
um í Eyjafirði hófst í byrjun síð-
asta árs. Það gengur ekki síst út á
það að ákvarða hámarks vaxtar-
getu íslenskra nauta og bera sam-
an árangur og hagkvæmni mis-
munandi fóðrunar.
Þóroddur Sveinsson, lektor við
Landbúnaðarháskóla Íslands,
stjórnar rannsókninni. Hann segir
að kálfarnir sem aldir eru á úrvals-
heyfóðri og fá kjarnfóður til við-
bótar hafi vaxið mun hraðar í upp-
hafi en kálfar sem eingöngu eru
aldir á heyi. Vöxturinn jafnaðist
síðan nokkuð en nú er munurinn
aftur að aukast, kornkálfunum í
vil. Nautin eru nú orðin rúmlega
14 mánaða gömul og segir Þór-
oddur að báðir hóparnir vaxi vel.
„Heykálfarnir vaxa líka vel. Það
kemur skemmtilega á óvart. Þeir
eru á góðum heyjum, sömu heyjum
og kornkálfarnir,“ segir Þóroddur.
Við síðustu vigtun, síðastliðinn
miðvikudag, var meðalþungi korn-
nautanna 446 kíló. Heykálfarnir
voru 367 kg. Munurinn er því tæp
80 kíló. Ef litið er á vöxt kálfanna
frá fæðingu hafa kornkálfarnir
þyngst um tæpt kíló á dag að með-
altali en heykálfarnir innan við 800
grömm.
Ætlunin er að slátra hluta grip-
anna þegar þeir ná 500 kílóa líf-
þunga og þar með um 250 kílóa
falli og hluta þeirra þegar þeir ná
600 kílóa þunga eða 300 kílóa falli.
Þóroddur reiknar með að fyrstu
nautunum verði slátrað í ágúst.
Sá áfangi náðist í vikunni að
nautkálfurinn sem hefur verið
þyngstur nánast allan tímann, Þór
Saari, náði 500 kílóa markinu, var
nákvæmlega 501 kíló. Hann er að
sjálfsögðu í þeim hópi sem fengið
hefur kjarnfóður með heyinu.
Þór Saari kom frá bænum Torf-
um í Eyjafjarðarsveit. Þar búa
Þórir og Sara og var nöfnum
þeirra slengt saman með þessum
hætti, með hliðsjón af nafni þing-
mannsins fyrrverandi.
„Hann er stór og flottur,“ segir
Þóroddur um Þór Saari. Hann seg-
ir að vitað hafi verið fyrirfram að
eðlislægur munur væri á milli
nautanna. Nefnir hann sem dæmi
að það muni 200 kílóum á Þór
Saari og því nauti sem léttast er.
Nautið Þór Saari hefur vaxið hraðast
Þyngsta nautið í Möðruvallatilrauninni er komið yfir 500 kíló Nautin sem alin eru á kjarnfóðri
eru 80 kílóum þyngri að meðaltali við 14 mánaða aldur en nautin sem eingöngu fá heyfóður
Ljósmynd/Þóroddur Sveinsson
Tilraun Þór Saari var heldur óstýrilátur við vigtun á Möðruvöllum.