Morgunblaðið - 22.05.2015, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.05.2015, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2015 BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Framkvæmdahugur er í kúabænd- um. Menn eru að auka framleiðsluna með viðbyggingum og breytingum fjósa, byggingu nýrra fjósa og fjölgun mjaltaþjóna. Þannig er verið að byggja tvö risafjós sem hvort um sig verður með um 240 mjólkandi kúm og fjórum mjaltaþjónum. Afar lítið hefur verið fjárfest í úti- húsum í sveitum frá hruni. Unnsteinn Snorri Snorrason, bútækniráðgjafi hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðar- ins, segir að uppsöfnuð þörf sé á fjár- festingum. Þá ýti markaðsaðstæður á bændur að stækka og skerðing á beingreiðslum ef þeir ná ekki að framleiða upp í kvótann. Á móti komi óvissa vegna þess að búvörusamn- ingur er að renna út. „Það er pressa á bændum að auka mjólkurframleiðslu. Kvótinn hefur verið aukinn mikið tvö ár í röð. Síðan berast góðar fréttir af útflutningi á skyri og fjölgun ferðamanna. Eitt- hvað verður fólkið að borða og drekka,“ segir Stefán Bragi Bjarna- son, framkvæmdastjóri VB landbún- aðar. Fyrirtæki hans flytur inn vélar og tæki til landbúnaðar og er stærsti seljandi mjaltaþjóna. Byrjað á 14-16 fjósum Stefán segir að bættar markaðs- aðstæður og bjartsýni hafi skilað sér í ýmsum framkvæmdum síðustu tvö árin og nú sé víða verið að huga að stækkun. „Þrátt fyrir að ákveðin óvissa sé um hvað tekur við af núver- andi búvörusamningi eru margir að spá í breytingar á fjósum og stækkun og eitt og eitt dæmi er um byggingu nýrra fjósa,“ segir Finnbogi Magn- ússon, framkvæmdastjóri Jötuns véla, en fyrirtæki hans rekur ráðgjaf- ardeild til að aðstoða bændur við und- irbúning fjárfestinga. „Við erum hlaðin bjartsýni um að Ísland sé landbúnaðarland framtíð- arinnar. Hér er til svo mikið af vatni og landið þekkt fyrir hreinleika. Þá er jarðaverð mun lægra en annars staðar í Norður-Evrópu og þekking- arstig gott. Það er aðeins pólitíska ástandið sem óvissa er um en við verðum að trúa því að landbúnaður- inn njóti áfram velvilja stjórnvalda,“ segir Arnar Bjarni Eiríksson, kúa- bóndi og húsasmíðameistari í Gunn- bjarnarholti í Árnessýslu. Hann rek- ur jafnframt fyrirtækið Landstólpa sem flytur inn fjárfestinga- og rekstrarvörur fyrir landbúnaðinn. Flestir sem eru að huga að fjós- byggingum hafa á einhverjum stigum undirbúningsins samband við Land- stólpa út af stálgrindarhúsum, inn- réttingum eða rekstrarvörum. Arnar Bjarni veit því um flestar fjósbygg- ingar. Hann áætlar að ráðist verði í 8 til 10 nýbyggingar fjósa eða meiri- háttar viðbyggingar á Suðurlandi í ár og um 6 á Norðurlandi. Framkvæmdirnar eru mismiklar, allt frá því að fjölga um nokkrar kýr og upp í það að byggja ný fjós fyrir 240 kýr. Algengt er að bændur séu að fara úr 40-50 þúsund lítra framleiðslu og upp í 60 þúsund lítra og fái sér um leið sinn fyrsta mjaltaþjón. Nokkrir eru að fjölga úr einum mjaltaþjóni í tvo. Stefán hjá VB landbúnaði reiknar með að selja 15-18 mjaltaþjóna í ár. Ef markaðshlutdeild seljenda verður svipuð og undanfarin ár þýðir það að rúmlega tuttugu mjaltaþjónar verði settir upp á landinu í heild. Kostar hundruð milljóna Dýrt er að byggja nýtt fjós. Áætlað er að aðstaðan kosti 1,8 til 2,6 millj- ónir á hverja mjólkurkú. Það þýðir 120 milljóna fjárfestingu fyrir 60 kúa fjós og hátt í hálfan milljarð fyrir 250 kúa fjós. Unnsteinn segir að erfitt sé að láta slíka fjárfestingu borga sig. „Þetta er þungt og hefur alltaf verið þungt í landbúnaði og ekki víst að bú- skapurinn sjálfur geti staðið undir henni án sérstakra ívilnana.“ Þeir sem rætt var við telja að bændur vandi betur undirbúning stórfjárfestinga en oft áður. Finnbogi Magnússon segir greinilegt að hópur bænda bíði eftir rétta tækifærinu til að hefjast handa. Aðrir láti vaða. Andri Daði Aðalsteinsson, markaðs- stjóri hjá Límtré-Vírneti, segir að fyrirtækið sé að byggja nokkur úti- hús í sveitum, aðallega fjós, og tals- vert sé um fyrirspurnir. Hann metur stöðuna þannig að margir séu að taka stöðuna, meta hvort vit sé í að ráðast í uppbyggingu. Flestir séu að hugsa um nýbyggingar til að geta fullnægt nýlegri reglugerð um aðbúnað dýra. „Ég dáist alltaf að því hvað bænd- ur eru duglegir að veðja á framtíðina. Þegar byggt er nýtt fjós og keyptir mjaltaþjónar eru menn að fara í fjár- festingu sem greiðist niður á löngum tíma, 30 til 40 árum. Þeir leggja allt undir, heimili sitt og atvinnu. Öll fjár- festing er því meiri binding og stærri ákvörðun en í öðrum atvinnurekstri,“ segir Stefán Bragi Bjarnason. Tvö stærstu fjósin sem nú er verið að byggja eru ætluð fyrir 240 til 250 mjólkandi kýr og fjóra róbóta til mjalta. Það fyrra er á vegum Sel- bakka, dótturfélags útgerðarfélags- ins Skinneyjar-Þinganess á Horna- firði, og er staðsett í Flatey á Mýrum. Hitt er Arnar Bjarni Eiríksson í Gunnbjarnarholti byrjaður að byggja. 6.000 fermetra fjósbygging Bygging fjóssins í Flatey er lengra komin. Vinnu við að framleiða lím- trésbita í 6.000 fermetra fjósbygg- ingu er að ljúka í verksmiðju Lím- trés-Vírnets á Flúðum og verður hún reist í júlí. Fjósið verður það stærsta á landinu. Þetta er aðeins fyrsti áfangi því áform eru uppi um frekari uppbygg- ingu í Flatey. Í fjósinu verða 4 nýir mjaltaþjónar frá Lely og leysa þeir af hólmi tvo eldri mjaltaþjóna. Stefán Bragi hjá VB landbúnaði segir að sérstaklega vel sé staðið að öllum undirbúningi hjá Selbakka enda mik- ilvægt að markmið um sparnað í vinnuafli og öðrum kostnaði náist með slíkum fjárfestingum. Tvö 240 kúa fjós nú í byggingu  Búist við að rúmlega 20 nýir mjalta- þjónar komist í gagnið á þessu ári Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Kýr í fjósi Nýjar reglur um velferð og aðbúnað mjólkurkúa knýja suma bændur til að huga að endurnýjun framleiðsluaðstöðu á búunum. Margir bændur huga að nýbyggingum eða breytingum á fjósum og nokkrir eru komnir af stað „Ég er búinn að grafa grunninn og er að klára brunahönnun. Hugmyndin er að fara að dóla sér af stað,“ segir Arnar Bjarni Eiríks- son, bóndi og húsasmíðameist- ari í Gunnbjarn- arholti. Hann er að byggja 240 kúa fjós. Arnar rekur tvö kúabú, í Gunn- bjarnarholti og Skáldabúðum og hyggst sameina þau á fyrrnefnda staðnum og stækka um leið. Hann er nú með alls um 160 mjólkandi kýr og hefur verið að fjölga að undanförnu, þannig að stækkunin nemur 60 kúm. Fjórir mjaltaþjón- ar verða í nýja fjósinu en nú þeg- ar eru þrír í þessum tveimur fjós- um. Ætlunin er að flytja inn í nýja fjósið á fyrri helmingi næsta árs. Segir Arnar að það megi ekki dragast mikið því núverandi að- staða sé fullnýtt og nauðsynlegt að fá meira rými. Nýja byggingin er stálgrind- arhús sem Landstólpi, fyrirtæki Arnars, flytur inn frá Hollandi. Hann hefur lengi átt farsælt sam- starf við þennan framleiðanda og eru húsin sem þaðan hafa komið að nálgast 100. Þau hafa verið sett upp víða um land. Arnar ætlar að gera tilraunir á eigin húsi með því að hafa hlið- arnar opnar. Loftræstingin verð- ur í gegn um gardínur á hlið- unum. Það fyrirkomulag er allsráðandi í Evrópu. „Ég mátti til að prófa þetta hér,“ segir Arn- ar Bjarni. Sameinar tvö bú í nýju fjósi og fjölgar kúnum um leið Arnar Bjarni Eiríksson Örn Karlsson á Sandhóli er með áform um að hefja myndarlega framleiðslu á nautakjöti í samvinnu við fleiri ábúendur í Meðallandi. Hann hefur fengið byggingarleyfi hjá Skaftárhreppi fyrir 240 gripa fjósi fyrir nautaeldi. Örn bindur vonir við að frumvarp sem heimilar innflutning á erfðaefni til að byggja upp holda- nautastofninn nái fram að ganga á Alþingi. Í umsögn til Alþingis bendir hann á að mjólkurkúastofninn henti illa til kjötframleiðslu vegna lítils vaxtarhraða gripanna. Til að ná ár- angri þurfi nautakyn sem vaxi hratt. „Til að hægt sé að lyfta nautakjöts- framleiðslu á hærra stig og gera úr henni alvöru búgrein er nauðsynlegt að fá inn til landsins nýtt erfðaefni,“ skrifar hann Alþingi. Örn tekur fram í samtali við Morgunblaðið að áformin myndu breytast ef frumvarpið næði ekki fram að ganga. Þyrfti að endur- skoða hversu hratt yrði farið í upp- byggingu og hversu stórt búið yrði. Hann segir að framkvæmdin verði alltaf áfangaskipt. „Við stefnum að því að setja upp hús fyrir 125 gripi í sumar.“ Holdanautin verða alin í fjósinu. Húsið verður einfaldara, þar sem ekki þarf aðstöðu til að mjólka. Þá munu nautin liggja í hálmstíum. Mikil kornrækt er á Sandhóli og ná- grannabæjum og fást not fyrir hálm- inn við nautaeldið. Undirbúa byggingu fjóss í Meðallandi fyrir 240 holdanaut Galloway-gripir í holdanautaræktun. Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 plankaparket Verðdæmi: 190 mm Eik Rustik burstuð mattlökkuð 7990.- m Vegna afnáms Vörugjalda nú kr. 6.990 m2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.