Morgunblaðið - 22.05.2015, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2015
KOLAPORTIÐ
kolaportid.is
Næg bílastæði í Hörpu
Einstök stemning í 26 ár
Opið laugardag og mánud
ag
frá kl. 11-17
LOKAÐ HVÍTASUNNUDAG
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta er mjög stórt og mikið verk
og krefjandi eftir því. En glíman hef-
ur verið vel þess virði,“ segir hljóm-
sveitarstjórinn Daníel Bjarnason um
óperuna Peter Grimes eftir Benjam-
in Britten sem Sinfóníuhljómsveit
Íslands og Íslenska óperan flytja í
tónleikauppfærslu í Eldborgarsal
Hörpu í kvöld kl. 19.30.
Í tilkynningu frá Listahátíð í
Reykjavík segir meðal annars að
verkið sé talið til helstu verka óp-
erubókmenntanna og sé reglulega á
fjölum helstu óperuhúsa heims.
Óperan er samtímaverk, samin árið
1945 og er byggð á samnefndu
harmljóði Georgs Crabbe frá upp-
hafi 19. aldar. Sögusviðið er Íslend-
ingum vel kunnugt, sjávarþorp þar
sem lífsbarátta íbúanna er samofin
hverfulleika hafsins. Skipstjórinn
Peter Grimes verður fyrir þeirri
ógæfu að tveir ungir piltar sem hann
ræður sér til aðstoðar týna lífinu
hvor á eftir öðrum. Í kjölfarið er Gri-
mes afneitað af bæjarbúum, með
átakanlegum afleiðingum. Flutning-
urinn á Peter Grimes er fyrsta sam-
starfsverkefni Sinfóníuhljómsveitar
Íslands, Íslensku óperunnar, Hörpu
og Listahátíðar í Reykjavík.
Spurður hvernig hann hafi undir-
búið sig fyrir flutninginn segir Daní-
el nauðsynlegt að setja sig vel inn í
verkið og reyna að skilja það. „Sem
hljómsveitarstjóri þarf maður að
kafa ofan í músíkina og textann til að
læra verkið mjög vel. Maður þarf að
hafa skoðun á tónlistinni og ástríðu
fyrir henni,“ segir Daníel og tekur
fram að það sé mjög auðvelt í tilfelli
Peter Grimes. „Því þetta er algjört
meistaraverk og það er ekki erfitt að
finna neistann þegar maður skoðar
þetta verk.“
Britten var aðeins 32 ára þegar
hann samdi verkið og því liggur
beint við að spyrja Daníel hvort erf-
itt sé að trúa því að svo ungur maður
geti samið jafnmikið stórvirki. „Það
er magnað að hann hafi ekki verið
eldri þegar hann skrifaði verkið og
segir ýmislegt um hann sem tón-
skáld og hans snilligáfu. Ekki það að
það skipti máli á hvaða aldri tón-
skáld eru þegar þeir skrifa snilld-
arverk – það er hálfgert aukaatriði.
En Peter Grimes er í raun fyrsta al-
vöru óperan sem Britten skrifaði og
það er magnað að hann hafi náð jafn-
góðum tökum og haft svona góða til-
finningu fyrir þessu flókna formi
sem óperan er í fyrstu atrennu
sinni.“
Við lánsöm að fá Skelton
Aðspurður segist Daníel binda
vonir við að hægt verði að setja Pet-
er Grimes upp sem sviðsverk hér-
lendis en ekki bara sem tónleika-
uppfærslu. „Það væri rosalega
gaman að sjá þessa óperu á sviði
hérlendis, en þetta er fyrsta skrefið í
því að kynna þessa óperu fyrir Ís-
lendingum,“ segir Daníel. Hann ber
samstarfsfólki sínu afar vel söguna.
Með hlutverk skipstjórans Peters
Grimes fer tenórinn Stuart Skelton,
sópraninn Judith Howarth syngur
hlutverk Ellenar Orford og barítón-
inn Ólafur Kjartan Sigurðarson fer
með hlutverk Balstrode.
„Við vorum svo lánsöm að fá til
okkar Stuart Skelton sem margoft
hefur sungið þetta hlutverk. Skelton
er Peter Grimes – hann á þetta hlut-
verk,“ segir Daníel og bendir á að
raddlega sé hlutverkið býsna krefj-
andi. „Auk þess sem það er sál-
fræðilega krefjandi,“ segir Daníel og
tekur fram að Skelton sé í karakter
alla tónleikana þó hann sé ekki með
búning eða mikla sviðsmynd. „En
það er búið að ramma tónleikana
mjög fallega inn þannig að þetta
verður meira en hefðbundin tón-
leikauppfærsla.“
„Þetta er algjört meistaraverk“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hljómsveitarstjórinn „Þetta verður meira en hefðbundin tónleikauppfærsla,“ segir Daníel Bjarnason.
Peter Grimes eftir Benjamin Britten
flutt í Eldborgarsal Hörpu í kvöld
Listahátíð í Reykjavík 2015
„Ég er lengi búinn að hlakka til að
takast á við Balstrode,“ segir Ólafur
Kjartan Sigurðarson sem á tón-
leikum kvöldsins glímir við Balst-
rode í fyrsta sinn á ferlinum, en
snemma á næsta ári syngur hann
hlutverkið á sviði í uppfærslu Óp-
erunnar í Saarbrücken í Þýskalandi
sem Brigitte Fassbaender leikstýrir.
„Þetta er eitt af þessum barítón-
hlutverkum sem menn í mínu fagi
bíða gjarnan eftir að fá að syngja,“
segir Ólafur Kjartan sem einbeitt
hefur sér að óperum eftir Wagner og
Verdi á undanförnum árum. „Balst-
rode passar þar vel inn í, því radd-
lega þarf maður að hafa burði
dramatísks barítóns til að syngja
þetta hlutverk,“ segir Ólafur Kjartan.
við flutning Kindertotenlieder eftir
Mahler með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands í Hörpu. „Ég hlakka mikið til,
því það er fátt skemmtilegra en að
koma heim og syngja.“
Hann fer lofsamlegum orðum um
samstarfsfólk sitt. „Kollegarnir á
sviðinu eru ekki af verri endanum –
hvort heldur þeir koma fljúgandi
með flugvél eða keyrandi í bíl. Ég er
alveg gapandi yfir hæfileikum þeirra
og vil sérstaklega nefna Daníel
Bjarnason. Hann stjórnaði mér í
Rigoletto sem var kveðjusýning Ís-
lensku óperunnar í Gamla bíó 2010.
Ég leyni því ekki að ég var mjög hrif-
inn af honum sem hljómsveit-
arstjóra þá, en ég er algjörlega orð-
laus núna. Ég er fullur lotningar yfir
þeim framförum sem hann hefur
tekið sem hljómsveitarstjóri. Hann
er snillingur þessi drengur.“ Þess má
geta að þeir Ólafur Kjartan og Daníel
munu vinna aftur saman í nóvember
„Gapandi yfir hæfileikum“
ÓLAFUR KJARTAN SYNGUR BALSTRODE Í FYRSTA SINN
Í ham Ólafur Kjartan á æfingu í Hörpu.
Sýningin Saga – Þegar myndir tala
verður opnuð í Listasafni Íslands
klukkan 18 í dag, föstudag. Á sýn-
ingunni, sem er framlag safnsins til
Listahátíðar í Reykjavík, má sjá val-
in verk fjölda íslenskra samtíma-
myndlistarmanna auk nokkurra er-
lendra er endurspegla frásagnar-
þáttinn í íslenskri sjónmenningu.
Sýningin var fyrst sett upp í fyrra í
Kunsthalle í Reclinghausen í Þýska-
landi. Verkin eru valin af þýskum
sýningarstjóra, Norbert Weber, og
endurspeglar valið þá sýn á íslenska
menningu sem hið glögga gestsauga
getur veitt. Auk Weber er Halldór
Björn Runólfsson sýningarstjóri-
.Verkin eru eftir Björk Guðmunds-
dóttur, Dieter Roth, Erró, Gabríelu
Friðriksdóttr, Helga Þorgils Frið-
jónsson, Hrafnkel Sigurðsson,
Huldu Hákon, Jóhannes S. Kjarval,
Kristleif Björnsson, Ólaf Elíasson,
Ólöfu Nordal, Ósk Vilhjálmsdóttur
& Önnu Hallin, Ragnar Kjart-
ansson, Sigurð Guðmundsson, Stein-
grím Eyfjörð og Þórð Ben Sveins-
son.
Frásagnarþátturinn Hluti málverksins Blá tónlist eftir Helga Þorgils Frið-
jónsson. Fjölbreytileg verkin á sýningunni eru valin af Norbert Weber.
Saga – Þegar myndir
tala í Listasafninu