Morgunblaðið - 22.05.2015, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2015
Þorsteinn Ásgrímsson
thorsteinn@mbl.is
Hvenær verður stöðugt gengi stöð-
ugt gengi, því ljóst er að stöðugt
gengi er ekki alltaf það sama og stöð-
ugt gengi. Í raun er þessi heimspeki-
lega spurning orðin að gildri spurn-
ingu í stóra markaðsmisnotkunar-
máli Kaupþings þar sem menn hafa
hingað til frekar kafað í tæknilegar
lögskýringar eða tölulegar stað-
reyndir. Verjendur málsins hafa síð-
ustu daga gert fjölmargar athuga-
semdir við það hvernig mál
saksóknara er sett fram í ákæru og
einnig hvernig framburður vitna og
gögn málsins hafi verið notuð vísvit-
andi á villandi hátt, eða gögnum sem
bendi til sakleysis hafi verið sleppt
yfir höfuð.
Vífill Harðarson, verjandi Péturs
Kristins Guðmarssonar, fv. starfs-
manns eigin viðskipta bankans,
gerði eitt þessara atriða að umtals-
efni í gær, en hann benti á að í ákær-
unni væri rakið hvernig hlutabréfa-
verð Kaupþings hefðu þróast á
ákveðnu tímabili.
Villuleit í réttarsal
Segir hann meðal annars að hluta-
bréfaverð bankans hafi lækkað hratt
frá byrjun nóvember 2007, þegar það
var 1.090 kr. á hlut, og fram í miðjan
febrúar 2008, þegar það var komið
niður í 700 krónur á hlut. Á næstu
mánuðum „tókst ákærðu í upphafi að
hækka verðið aftur og síðan að halda
því nokkuð stöðugu,“ með miklum
hlutabréfakaupum. Var nokkrum
tíma varið í umræður um það hvenær
stöðugleiki væri stöðugleiki.
Í gær fann verjandi ákærða, Ein-
ars Pálma Sigmundssonar, upp á
leik sem hann hvatti viðstadda til að
taka þátt í. Hann sagði í málflutn-
ingi sínum að það væri ótrúlegt að
sjá ákveðinn grundvallar misskiln-
ing í rökstuðningi með ákæru máls-
ins og sagði að þetta væri eins og
leikurinn að finna fimm villur. Setti
hann upp tvær málsgreinar úr ákær-
unni og sagði viðstöddum að finna
þær þrjár villur sem þar væri að
finna. Tvær villur sagði hann tengj-
ast útreikningi á þróun gengis ann-
ars vegar og gengislækkun krónunn-
ar hins vegar. Ekki kom fram hver
sú þriðja var að mati verjandans.
Margt hefur því verið rætt í
réttarsal síðustu daga en eftir sem
áður hafa dagarnir verið nokkuð
einsleitir þar sem mikið hefur verið
um endurtekningar og flókin laga-
tæknileg atriði. Hafa nú þegar verj-
endur sjö af ákærðu farið í gegnum
málflutning sinn, en flest málin skar-
ast talsvert og ítrekanir samkvæmt
því.
Heimspekilegt í réttarsal
Umræður Pétur Kristinn og verjandi hans Vífill Harðarson í réttarsal þar
sem margt hefur verið rætt að undanförnu. Í gær var rætt um stöðugleika.
Leitað að villum í gögnum saksóknara að áeggjan verjanda ákærða í markaðs-
misnotkunarmáli Kaupþings Hvenær verður stöðugt gengi stöðugt gengi?
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Húnaþing vestra hefur nú lokað
urðunarstað sínum að Syðri–
Kárastöðum og þannig bæst í hóp
fjölmargra sveitarfélaga sem hafa
stigið það skref. Frá árinu 2012
hefur 14 urðunarstöðum verið lok-
að, sem þýðir að urðunarstöðum á
Íslandi hefur fækkað um tæp 40% á
fjögurra ára tímabili.
Frá þessu er greint á heimasíðu
Umhverfisstofnunar og þar segir
að aukin endurvinnsla úrgangs og
samdráttur í urðun séu lykilþættir
í þessari þróun en kröfur um
mengunarvarnir sem urðunar-
staðir þurfa að uppfylla hafi einnig
áhrif.
„Við lokun urðunarstaðar ber
rekstraraðili ábyrgð á hreinsun og
frágangi staðarins og hann ber
ábyrgð á eftirliti og vöktun í allt að
30 ár eftir lokun. Þegar urðunar-
stað er lokað gefur Umhverfis-
stofnun út svokölluð fyrirmæli um
frágang og vöktun þar sem mælt er
fyrir um hvernig rekstraraðilanum
beri að standa að hreinsun, frá-
gangi, eftirliti og vöktun. Þessum
fyrirmælum er þinglýst á viðkom-
andi jörð,“ segir á ust.is aij@mbl.is
Fjórtán urðunarstöðum fyrir úrgang hefur
verið lokað á undanförnum fjórum árum
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis-
ráðherra tók í fyrradag við He-
ForShe verðlaunum UN Women.
Verðlaunin eru veitt því landi sem
stendur sig best í að fá karla til liðs
við jafnréttisbaráttuna.
Samkvæmt tilkynningu frá utan-
ríkisráðuneytinu hefur næstum
einn af hverjum tólf íslenskum karl-
mönnum á aldrinum 15-64 ára
gengið til liðs við hina alþjóðlegu
HeForShe herferð og talaði Khet-
siwe Dlamini hjá UN Women um
hversu gott fordæmi slíkt væri fyrir
önnur lönd í heiminum. Hún nefndi
sérstaklega hversu hrifin hún væri
af átaki íslensku landsnefndar UN
Women og hvatti alla íslenska karl-
menn til að ganga til liðs við He-
forShe á heforshe.is
Ísland gott
fordæmi
Verðlaun Khetsiwe Dlamini hjá UN
Women afhenti Gunnari verðlaunin.
Ljósmynd/UN Women/Ryan Brown
Munur á dýrasta
og ódýrasta fisk-
inum úr fisk-
borðum er allt að
153%. Þetta
leiddi saman-
burður Verðlags-
eftirlits ASÍ í
ljós, þar sem bor-
ið var saman
verð á fisk-
afurðum í 25
fiskbúðum og öðrum verslunum
með fiskborð víðsvegar um landið
sl. miðvikudag. Kannað var verð á
33 algengum tegundum fiskafurða.
Í um 70% tilvika var verðmunurinn
á hæsta og lægsta að lágmarki 50%.
Lægsta verðið var oftast hjá Litlu
fiskbúðinni, Miðvangi, Hafnarfirði
eða í 14 tilvikum af 33 og hjá Litlu
fiskbúðinni Háaleitisbraut í 9 til-
vikum. Verslunin Kjöt og fiskur
Bergstaðastræti var með hæsta
verðið í 6 tilvikum af 33.
Mestur verðmunur í könnuninni,
153%, var á súrum hval sem var
dýrastur á 3.763 kr./kg hjá Fiskbúð
Sjávarfangs, en ódýrastur á 1.490
kr./kg hjá Litlu fiskbúðinni Háa-
leitisbraut. Minnstur verðmunur,
24%, var á roðflettu og beinlausu
ýsuflaki sem var ódýrast á 1.690
kr./kg hjá Litlu fiskbúðinni Mið-
vangi. Dýrast var ýsuflakið, 2.090
kr./kg, hjá Hagkaupi, Kringlunni
og Kjöt og fisk. Ekki er lagt mat á
gæði eða þjónustu, einungis verð.
153% verðmunur á súrum hval samkvæmt
verðsamanburði Verðlagseftirlits ASÍ
Úr fiskborði Verð-
munur er á fiski.
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
KIA SORENTO EX LUXURY 2,5
02/2006, ekinn 163 Þ.km, dísel, sjálfskiptur.
TILBOÐSVERÐ 1.990.000, ásett verð 2.290þkr.
Raðnr.253577
DODGE CHARGER R/T
Árg. 2006, ekinn 120 Þ.km, 5,7L, sjálfskiptur.
Verð 2.890.000. Rnr.253124
FORD MUSTANG GT PREMIUM
Árg. 2005, ekinn 93 Þ.km, 8 cyl, sjálfskiptur.
Supercharged, ca. 500 hö!
Verð 3.980.000. Raðnr.253617
FIAT JOINT 1 HÚSBÍLL
03/2007, ekinn aðeins 19 Þ.km, dísel, 5 gírar.
Verð 5.590.000. Raðnr.310829
TOYOTA HILUX DOUBLE CAB D/C SR 38“
Breyttur 09/2007, ekinn 100 Þ.km, dísel, sjálfskiptur,
pallhús ofl.Verð 5.880.000. Raðnr.285576
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is