Morgunblaðið - 22.05.2015, Blaðsíða 11
Gler, gluggar, glerslípun & speglagerð frá 1922
Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími: 565 0000 | Fax: 555 3332 | glerborg@glerborg.is | www.glerborg.is
Hurðir og gluggar
í miklu úrvali
skiptin séu góð og raða krökkunum í
hópa.“
Á eigin skinni
Aðspurð þvertekur hún fyrir að
unglingar með áhugamál af þessum
toga eigi öðrum fremur við félags-
fælni að stríða sem sé þá í raun tylli-
ástæða námskeiðanna. „Auk þess
sem meiningin er að krakkarnir hafi
gagn og gaman af er markmiðið þó í
og með að fyrirbyggja að þeir ein-
angrist, af því að á yngri árum þekkja
þeir yfirleitt fáa eða enga með sama
áhugamál,“ ítrekar Soffía Elín.
Sjálf þekkir hún á eigin skinni
hversu leiðinlegt er að hafa engan til
að tala við um áhugamál sín. „Þegar
ég var fimm ára átti ég alla stjörnu-
stríðs-kallana, sem ég lék mér með við
bræður mína tvo og frændur, horfði á
vísindamyndir og fantasíur með þeim
og pabba í sjónvarpinu, og fannst að
svona ætti lífið að vera. Smám saman
hættu bræður mínir og frændur að
hafa gaman af þessum köllum og gáfu
mér alla sína. Ég stórgræddi, átti
ábyggilega 150 kalla af öllu tagi og lék
mér með þá þar til ég var að verða 9
ára. Þá var ég orðin svolítið ein á báti
með þetta áhugamál, vinkonur mínar
höfðu ekkert gaman af svona dóti.
Þótt ég yrði svolítið sár þegar mamma
hélt að ég væri vaxin upp úr þessu og
gaf frændsystkinum mínum stjörnu-
stríðs-kallana mína, gleymdi ég þeim
von bráðar. Áhugi minn á öllu sem
viðkom vísindaskáldskap og fant-
asíusögum var þó enn mikill og er
enn.“
Margbrotin hugmyndafræði
Að vísu dalaði sá áhugi lítillega
um skeið, en kviknaði aftur þegar
Soffía Elín var sextán ára og fór að
horfa aftur á Star Trek-þættina og
liggja síðan í og yfir myndum og bók-
um um skyld efni. Henni finnst að
vonum ekkert undarlegt að unglingar
sem og fullorðnir heillist af þessum
heimi. „Í rauninni er hvorki hægt að
tala um afmarkað né fábreytt áhuga-
mál, því hugmyndafræðin að baki
sögunum er margbrotin og útpæld,
oft eru sögur innan í sögunum, plottin
ganga yfirleitt upp og rökhugsunin er
í fyrirrúmi.“
Soffía Elín er fyrir löngu búin að
fyrirgefa mömmu sinni, sem gaf dýr-
gripina forðum. Hún byrjaði bara að
safna upp á nýtt og á orðið dágott
safn af alls konar gripum. En hún er
vandlát, vill eingöngu kalla úr fyrstu
þremur stjörnustríðsmyndunum og
Star Trek. „Ég legg frekar áherslu á
að eignast stór vélmenni og geimskip
og hef keypt eitthvað af þeim í gegn-
um tíðina,“ segir hún. Gripirnir eru til
skrauts á heimili hennar og sál-
fræðistofu.
Pínulítill nörd?
Spurð hvort hún hafi einu sinni
verið eða sé kannski nörd svarar hún
neitandi – en örlítið hikandi. Kveðst
að vísu vera svolítil dellumanneskja,
en ekki forfallin því hún hafi alltaf
haft dellu fyrir mörgu samtímis. „Til
dæmis lék ég mér ekki bara að
stjörnustríðs-köllum þegar ég var lít-
il heldur líka Barbie og Pony-hestum
eins og vinkonur mínar, auk þess sem
ég hef alltaf verið mikil áhugamann-
eskja um hestamennsku og skíði.
Líka útivist, bíla og tónlist svo fátt
eitt sé talið.“
Í júní verður hún þó mest með
hugann við herkænsku, dreka og
dýflissur, nánar tiltekið Nexus No-
obs-námskeiðin. Herkænskuspilið
Warhammer annars vegar og hlut-
verkaspilið Dungeons & Dragons
hins vegar. Á hvoru námskeiðinu um
sig verða grunnreglur spilsins kennd-
ar undir handleiðslu sérfræðinga.
Herkænskunámskeiðinu lýkur með
því að þátttakendur mála herlið sitt
fyrir bardaga þar þeir halda um
stjórnartaumana. Og Soffía Elín
verður á tengslavaktinni.
Soffía Elín stundar doktorsnám í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands
og rannsakar fósturbörn á Íslandi. Hún segir áhuga sinn á fósturbörnum
hafa vaknað þegar hún starfaði sem sálfræðingur Barnaverndar Reykja-
víkur, enda sneru verkefni hennar þar að ýmsu sem viðkom fóstur-
börnum.
Hún lauk BA-gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2003 og meist-
aranámi í skóla- og þroskasálfræði frá háskólanum í Western Sydney í
Ástralíu 2008. Þar ytra starfaði hún í tveimur grunnskólum þar sem að-
stæður voru krefjandi í samfélaginu. Hún hefur verið sjálfstætt starfandi
sálfræðingur frá 2011 og sérhæft sig í sálfræðiþjónustu fyrir börn og
unglinga, m.a. unnið með sjálfstyrkingu, félagsfærni og ákveðniþjálfun.
Rannsakar fósturbörn
DOKTORSVERKEFNI
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2015
Sjúkraflutningamennirnir Arnar Páll
Gíslason og Sigurður Bjarni Sveins-
son leggja á morgun af stað á
gönguskíðum þvert yfir Mýrdals-
jökul, frá norðri til suðurs. Tilgangur
göngunnar er að safna í sjóð fyrir
fjölskyldu Guðsteins Harðarsonar,
sem var tveggja ára þegar hann lést
í hörmulegu slysi í Meðallandi 6.
apríl síðastliðinn. Leiðin er 27 km og
ganga þeir félagar einn kílómetra
fyrir hvern mánuð í lífi Guðsteins
heitins.
Leiðangursmennirnir eru sjúkra-
flutningamenn við Heilbrigð-
isstofnun Suðurlands og vanir fjalla-
menn. Þótt ekkert geti dregið úr
þeirri sorg sem fjölskyldan gengur í
gegnum, segjast þeir vilja a.m.k.
gera það sem þeir geti til að létta
þeim lífið. „Við viljum ekki að þau
hafi peningaáhyggjur ofan á allt
annað,“ segir Arnar Páll, frændi
Guðsteins. Hægt er að fylgjast með
Facebook-síðu leiðangursins, Guð-
steinsgangan.
Númer styrktarreiknings:
0317-26-103997,
kt: 060684-2359.
Vefsíðan www.facebook/guðsteinsgangan
Leiðangursmennirnir Sigurður Bjarni Sveinsson og Arnar Páll Gíslason eru
vanir fjallamenn og ætla að ganga yfir allan Mýrdalsjökul í einum rykk.
Til minningar um lítinn dreng
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Áhverju ári fáum við einndag til að gera það semvið viljum. Láta stjanavið okkur og fá ekkert
samviskubit yfir því. Gera okkur
glaðan dag og skammast okkar
ekkert fyrir að njóta þess í botn.
Fagna hækkandi aldri og fleiri
hrukkum. Já, afmælisdagar eru
vissulega með skemmtilegri dögum
ársins.
Sumir njóta þess til hins ýtrasta
að eiga afmæli og gera fæðingar-
daginn jafnvel að afsökun fyrir
hinni ýmsu mis-skynsamlegu hegð-
un. Nota hvert einasta tækifæri til
að segjast eiga afmæli og vilja jafn-
vel að öll vikan sé undirlögð þegar
afmælið er annars vegar. Í sumum
tilfellum gengur þetta upp en í öðr-
um ekki.
Á mánudaginn var átti ég afmæli.
Ég var þó ekki búin að eiga vikuna
út af fyrir mig eða fá að baða mig í
sviðsljósinu sem oft fylgir hækk-
andi aldri. Ekki ein að minnsta
kosti. Konan mín átti nefnilega af-
mæli daginn áður. Þetta var auðvit-
að engin breyting frá síðustu árum,
og það var vissulega viðbúið að við
myndum baða okkur í sviðsljósinu
saman.
En nú hef ég verið að velta því
fyrir mér hvort þetta sé algjörlega
frábært, eða hrein
hörmung. Sökum
þessa renna
afmælisdagarnir
okkar saman í einn
langan afmælisdag
og allt verður sam-
eiginlegt. Við höld-
um sameiginlegt
partí, fáum sam-
eiginlegar afmæl-
isgjafir og jafnvel
sameiginlegar af-
mæliskveðjur.
Við erum þó
ekki þær einu sem
gjalda fyrir þetta,
heldur þurfa vinir
okkar að líða fyrir
tvöfalt afmæl-
isspamm á tveimur
sólarhringum.
Kannski er það
ákveðið keppn-
isskap í okkur báðum
sem verður til þess að
við þurfum að toppa
okkur hægri vinstri. Og
við erum af samfélagsmiðlakynslóð-
inni svo að allir fá að vera með.
Hvort sem þeir vilja það eða ekki.
Á sama tíma hentar það mjög vel
að klára af veisluhöldin sem fylgja
afmælum. Þetta kann að hljóma
furðulega, en staðreyndin er hins
vegar sú að þeim fylgir oftar en
ekki töluverð fyrirhöfn sem ágætt
er að rumpa af á einu bretti.
En hvort ætli sé þá betra að eiga
afmæli á undan eða ekki? Að mínu
mati hentar það mér vel að konan
mín eigi afmæli á undan. Ég get
skipulagt afmælisdaginn hennar í
þaula og keypt gjöf án þess að finn-
ast ég þurfa að toppa eitthvað. En
ég er þannig af guði gerð að ég
kann mér ekki hóf þegar kemur að
makanum mínum. Ég geri það því
ansi erfitt fyrir hana að koma
á eftir og ætla sér að gera
allt enn stærra og betra
eins og hún vill gera. Þar
af leiðandi höfum við kom-
ist að þeirri niðurstöðu að
njóta og dekra hvor aðra
sameiginlega í tvo sólar-
hringa og þá þarf ekki
að hugsa um það hvor
gerir hvað fyrir hvora.
Afmælisdögunum
fylgir þó sú staðreynd
að við erum báðar naut
og því miklir nautna-
seggir (og þrjóskar –
það fylgir víst líka). En
þegar öllu er á botninn
hvolft held ég að þetta
fyrirkomulag henti okk-
ur bara stórvel, og ég
myndi ekki vilja breyta
því. Kannski erum við
bara svona afskaplega
samrýndar og óþolandi.
»Ég var þó ekki búin aðeiga vikuna út af fyrir
mig eða fá að baða mig í
sviðsljósinu sem oft fylgir
hækkandi aldri. Ekki ein að
minnsta kosti. Konan mín
átti nefnilega afmæli dag-
inn áður.
HeimurIngileifar
Ingileif Friðriksdóttir
if@mbl.is