Morgunblaðið - 22.05.2015, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 22.05.2015, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2015 Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Aðalfundur Hollvina Grensásdeildar verður haldinn miðvikudaginn 3. júní nk. í kennslustofu Grensásdeildar og hefst kl. 17.30. Dagskrá fundarins: Venjuleg aðalfundarstörf StefánYngvason yfirlæknir mun gefa stutt yfir- lit um stöðu mála á Grensásdeild. Athugið að aðalfundurinn er haldinn á nýjum fundarstað, nú í húskynnum Grensásdeildar. Stjórn Hollvina Grensásdeildar. Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Álfholt 48, 0201, (221-7227), Hafnarfirði, þingl. eig. Þóra Guðrún Friðriksdóttir, gerðarbeiðendur Álfholt 48, húsfélag, Hafnarfjarðar- kaupstaður, Íslandsbanki hf. og Vörður tryggingar hf., fimmtudaginn 28. maí 2015 kl. 10.00. Hjallabraut 21, 0102, (207-5523), Hafnarfirði, þingl. eig. Guðrún Malena Ágústsdóttir og Guðjón Haukur Ingólfsson, gerðarbeiðendur Gildi - lífeyrissjóður, Hafnarfjarðarkaupstaður, Hjallabraut 21, húsfélag,Toll- stjóri og Vörður tryggingar hf., fimmtudaginn 28. maí 2015 kl. 13.00. Holtabyggð 3, 0202, (223-9092), Hafnarfirði, þingl. eig. Jóhann Konráð Birgisson, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf., Olíuverzlun Íslands hf. og Vátryggingafélag Íslands hf., fimmtudaginn 28. maí 2015 kl. 09.30. Hringbraut 21, 0101, (207-6055), Hafnarfirði, þingl. eig. Sigrún Krist- insdóttir, gerðarbeiðendur Hafnarfjarðarkaupstaður, Íbúðalánasjóður og Vátryggingafélag Íslands hf., fimmtudaginn 28. maí 2015 kl. 14.00. Hringbraut 4, 0103. (207-6031), Hafnarfirði, þingl. eig. Ewa Zubrzycka, gerðarbeiðendur Hafnarfjarðarkaupstaður, Sjóvá-Almennar trygging- ar hf. og Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra, fimmtudaginn 28. maí 2015 kl. 13.30. Hringbraut 4, 0204, (224-1968), Hafnarfirði, þingl. eig. Guðbjörg Aðalh. Haraldsdóttir, gerðarbeiðendur Hafnarfjarðarkaupstaður, Hringbraut 4, húsfélag ogTryggingamiðstöðin hf., fimmtudaginn 28. maí 2015 kl. 13.45. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, 21. maí 2015. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9. Árskógar 4 Opin smíðastofa, útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Bingó með vinningum kl. 13.15. Boðinn Handverk kl. 9-12. Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi kl. 10.15, söngstund kl. 14. Garðabær Vatnsleikfimi í Sjálandi kl. 7.30, 8.15 og 12.20, félagsvist FEBG. kl. 13, bíll frá Litlakoti ef óskað er, frá Hleinum kl. 12.30, frá Garðatorgi 7 kl. 12.40, og til baka að loknum spilum. Gerðuberg Handavinnustofa kl. 9-16. Glerhópur kl. 9-12. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Leikfimi Maríu kl. 10.30. Bókband með leiðbeinanda kl. 13-16. Kóræfing kl. 14.30-16.30. Gjábakki Handavinnustofa, botsía kl. 9.10, postulínsmálun kl. 9.30. félagsvist kl. 20. Grensáskirkja Vorferð miðvikudag 27. maí. Brottför kl. 13, heim- koma kl. 16.40. Áfangastaður Þingvellir, kaffi í Mosfellsbæ á heim- leiðinni. Verð kr. 2.000. Skráning í síma 528 4410, lýkur á hádegi þriðjudaginn 26. maí. Hraunsel Ganga alla daga Kaplakrika kl. 10-12. Leikfimi Bjarkarhúsi kl. 11.30. Brids kl. 13. Botsía kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 Opið kl. 8-16, kaffi til kl. 10.30, blöð og púsl, vinnustofa, leikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30. Bingó kl. 13.15, kaffisala í hléi. Fótaaðgerðir, hársnyrting. Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, listasmiðjan kl. 9, thai chi kl. 9, botsía kl. 10.20, bingó kl. 13 í umsjón nemenda úr 10. bekk Réttarholtsskóla. Nánar í síma 411-2790. Íþróttafélagið Glóð Í Boðanum Boðaþingi 9 línudansaæfing frá kl. 20 til 23, verð kr. 1.500, kaffi og meðlæti selt á staðnum. Korpúlfar Sundleikfimi kl. 9.30 í Grafarvogssundlaug, frjáls spil alla daga í Borgum og vöfflukaffi eftir hádegi. Norðurbrún Kaffi kl. 8.30. Útskurður kl. 9. Leikfimi kl. 9.45. Ganga kl. 10. Bókmenntahópur kl. 11. Hádegisverður kl. 11.30-12.30. Bingó kl. 14. Sléttuvegur 11-13 Dagblöð og kaffi kl. 8.30. Gönguhópur kl. 10. Hádegisverður kl. 11.30. Bíósýning kl. 13.15. Kaffi kl. 14. Vesturgata 7 Setustofa/kaffi kl. 9. Fótaaðgerð kl. 9. Hárgreiðsla kl. 9. Enska kl. 10.15. Matur kl. 11.30. Sungið við flygilinn undir stjórn Gylfa Gunnarssonar kl. 13.30. Kaffi kl. 14.30. Dansað í aðalsal kl. 14.30. Vitatorg Handavinna kl. 9, bingó kl. 13.30. Vorsýning 28./29. maí og 1./2. júní. Smáauglýsingar 569 1100 Bækur Blöð til sölu Stjórnartíðindi 1885 - 2000 - 5 ár, 130 bækur, gott band, Daily Post Reykjavík 1940 - ‘43, heft, Líf og list 50 - 53, ib, Þjóðviljinn 1886 - 1891 Ísafjörður ib, Þjóðviljinn ungi 1892 - ‘98 Ísafjörður, ib, Gandur 1,1, ib, Tíminn 1917 - ‘18, 1. - 2. ár, ib, Sunnudagsblað Tímans 1. - 4. árg , skinnband, Lesbók Morgunblaðsins 1. - 13. árg. skinn, Stjórnartíðindi 1885 - 1970 - 5 ár, 80 bækur, gott band, Skákheimsmeistaraeinvígið 1972, ib. Upplýsingar í síma 898 9475. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Íþróttir Verðlaunagripir - gjafavara -áletranir Bikarar, verðlaunapeningar, barm- merki, orður, póstkassaplötur, plötur á leiði, gæludýramerki, starfsgreinastyttur. Fannar, Smiðjuvegi 6, Rauð gata, Kópavogi, sími 5516488 Til sölu Sumarbústaðalóðir til sölu í Vaðnesi Til sölu fallegar sumarhúsalóðir með aðgangi að heitu og köldu vatni í vinsælu sumarhúsahverfi í landi Vaðness í Grímsnes- og Grafnings- hreppi ca 45 km frá Rvk. Vaxtalaust lán. Allar nánari upplýsingar gefur Jón í síma 896-1864. Rotþrær-vatnsgeymar- lindarbrunnar. Rotþrær og siturlagnir. Heildar lausnir - réttar lausnir. Heitir Pottar. Lífrænar skolphreinsistöðvar. Borgarplast.is, Mosfellsbæ, sími 561 2211 Óska eftir Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. Ýmislegt Teg. SMOOTHING - stærðir 32-40, D, DD, E, F og 32-38FF, G á kr. 7.880. Teg. SUSANNA - 32-42, DD, E, F, FF, G-skálar á kr. 11.885. Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10–18, laugardaga 10–14. Þú mætir – við mælum og aðstoðum. www.misty.is – vertu vinur Teg. 15450 Sérlega mjúkir og þægilegir inniskór úr leðri. Litir: bordo og brúnt. Stærðir: 36-42. Verð: 11.885. Teg. 915S Sérlega mjúkir og þægilegir inniskór úr leðri. Stærðir: 36-42. Verð: 12.900. Teg. 2173 Vandaðir og mjúkir inni- skór með hælkappa sem styður vel við ökkla og hæl. Litir: rautt og svart. Stærðir: 36-42. Verð: 12.500. Teg. 983 Fallegir og þægilegir inni- skór úr leðri. Litur: svart lakk. Stærðir: 36-42. Verð: 11.600. Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Opið mán.-fös. 10–18, laugardaga 10–14. Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf. Sendum um allt land www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Vespur Til sölu vespa ZNEN ZN50 QT-C11 Árgerð 2013, ek. 41 km. Blá á litinn. Götuskráð. Verð 180 þús. Má skoða það. Upplýsingar í síma 862 8980. Húsviðhald Tökum að okkur viðhald, við- gerðir og nýsmíði fasteigna fyrir fyritæki húsfélög og einstak- linga. Fagmenn á öllum sviðum. Tilboð/ tímavinna. S. 858 - 3373. brbygg@simnet.is Hreinsa þakrennur, laga vatnstjón, ryð á þökum og tek að mér ýmis smærri verkefni Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Bátavélar - Bílalyftur - Rafstöðvar o. fl. Bátavélar - Bílalyftur - Rafsuðuvélar - Utanborðsvélar - Vatnstúrbínur - Varaaflsstöðvar 10-15-30 kw. Kortalán. Vélaverkstæði Holti Sími 895-6662 www.holt1.is Vélar & tæki að taka pullurnar úr sófasettinu og búa til hús undir borðstofu- borðinu. Við notuðum puntið hennar að vild í mömmó og fór- um með eldhúsáhöldin út til að drullumalla. Við hertókum geymsluna og gerðum hana að húsinu okkar og breyttum öllu þar inni ef okkur þótti það henta betur. Hún steikti bestu kleinur í heimi og allir máttu borða eins og þeir vildu, ef þær kláruðust gerði hún nýjar í hvelli. Svo mátti líka sofa uppi í hjá henni og það var sko þess virði, þrátt fyrir hrotur, því hvergi var betra að vera en í ömmufangi. Og sængurnar hennar voru þær mýkstu sem ég veit um og alltaf svo góð lykt af þeim. Þegar við svo skriðum fram á morgnana var eins og enginn hefði verið að leik í húsinu. Allt var á sínum stað og húsið hreint og fínt. Amma lék oft litla flugu sem skreið á hálsinum á okkur aft- anverðum og ofan í hálsmálið. Það kitlaði en var líka svo þægi- legt. Þetta var eitt af hennar einkennum sem hélst þrátt fyrir að Alzheimers-sjúkdómurinn væri búinn að ræna hana mörgu. Hún mundi kannski ekki alltaf hver við vorum en ef lítið barn var með í för fór flugan af stað. Amma var líka trúnaðarvin- kona mín. Við deildum sárri reynslu sem gerði okkur nánari en nokkru sinni fyrr og svo gaf hún mér góð ráð í ástarmálum. Hún var líka traust og trú öllum samferðamönnum sínum. Hún átti oft erfitt og þurfti að hafa fyrir lífinu en aldrei minntist hún á það. Hún talaði bara um góða hluti. Hún sagði mér frá því hvernig hægt væri að elska fólk þrátt fyrir að eiga ekki skap með því og þannig var einmitt samband hennar og afa. Þrátt fyrir að leiðir þeirra hefði skilið þegar ég var bara smástelpa tal- aði hún alltaf fallega um hann og sagði mér við jarðarförina hans að hún hefði aldrei hætt að elska hann, þau hefðu talað saman daglega undir það síðasta og að hún upplifði sig sem syrgjandi ekkju þrátt fyrir að hafa ekki búið með honum svo árum skipti. Ég á eftir að sakna þín, elsku amma mín, og aldrei mun ég borða kleinu án þess að hugsa til þín. Þú ert fyrirmyndin mín og ég hlakka til þegar ég fæ að verða amma því þá ætla ég að gera allt eins og þú. Hvíldu í friði, elsku amma mín. Þín Anna Pála (Paula). Þú gengin ert hugglöð á frelsarans fund og fagnar með útvaldra skara, þar gleðin er eilíf, þar grær sérhver und. Hve gott og sælt við hinn hinsta blund útbreiddan faðm Guðs að fara. Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá því komin er skilnaðarstundin. Hve indælt það verður þig aftur að sjá í alsælu og fögnuði himnum á, er sofnum vér síðasta blundinn. (Hugrún) Takk fyrir allt, elsku Erla. Við áttum margar góðar stundir saman og ég mun ylja mér við góðar minningar um góða konu. Þín Hólmfríður (Día). Erla Baldvinsdóttir varð ung hluti af fjölskyldu okkar og bjó fyrstu búskaparár sín undir þaki tengdaforeldra sinna, Fannýjar Kristínar Ingvarsdóttur og Gísla Kristjánssonar á Akureyri, eftir að þau Kristján Gíslason kynnt- ust ung í Gagnfræðaskóla Ak- ureyrar, þar sem hún var falleg- ust allra stúlknanna í bekknum, eins og hann sagði, og hann eina ástin í lífi hennar, eins og hún sagði þegar hann dó. Ung að ár- um eignuðust þau fyrsta barn sitt af fimm og síðan fylgdi Erla Kristjáni gegnum þykkt og þunnt í áratugi: frá Akureyri til Siglufjarðar, Sauðárkróks, Vest- mannaeyja og Eyrarbakka með viðkomu í Reykjavík og Hafn- arfirði. Að lokum var mælir hans fullur og skekinn og þau slitu samvistir, því að gæfa er ekki sama og gjörvileiki, en Kristján hafði um árabil átt brigðulan vin sem sleppti ekki takinu fyrr en allt var komið í óefni. Við minnumst Erlu Baldvins- dóttur með virðingu og þakk- læti. Hún var ekki aðeins falleg kona og góð heldur dugandi kona sem skilaði góðu lífsverki. Við sendum samúðarkveðjur til barna hennar og allra afkom- enda. Margrjet Gísladóttir Ingvar Gíslason María Gísladóttir Ásdís Gísladóttir Margrét Eggertsdóttir Tryggvi Gíslason. Þegar ég ásamt móður minni og bróður fluttum að Háeyr- arvöllum 44 á Eyrarbakka 1975, féllum við strax inn í samfélag góðra nágranna, suma höfðum við þekkt lengi aðra skemur. Erla var ein af þeim sem við þekktum lítið en á því varð fljót- lega breyting. Þó aldursmunur væri mikill á mömmu og Erlu urðu þær fljótt góðar vinkonur og síðustu árin sem mamma lifði leit Erla inn hjá henni flesta daga. Eftir að ég flutti til Reykjavíkur fannst mér gott að vita af þessum heimsóknum Erlu. Það var því varla tilviljun þegar mamma varð fyrir því að lærleggur hennar brotnaði, að því er virtist vegna einhvers galla í beini, þar sem hún stóð á gólfinu, að Erla var stödd hjá henni, horfði á það sem gerðist og nota ég hér hennar lýsingu á slysinu. Hún var svo Önnu syst- ur og Helgu frænku, sem voru þarna á næstu grösum, hjálpleg við að annast mömmu og koma henni undir læknishendur. Af- leiðingarnar af þessu slysi drógu mömmu til dauða. Eftir fráfall mömmu hélt Erla uppteknum hætti og leit inn hjá Kalla bróður flesta daga. Á þessum árum hitti ég Erlu oft enda tíður gestur á Bakkanum á meðan Kalli og mamma lifðu. Það var einhvern veginn orðið hluti af tilverunni að Erla birtist inni á gólfi, hógvær og glæsileg fékk hún sér sæti, og umræðu- efnin voru ótæmandi. Það voru einfaldlega engin leyndarmál og allt uppi á borðinu eins og sagt er stundum, sama hvort um fjöl- skyldumál var að ræða eða bara málefni samfélagsins á líðandi stund og í persónulegum málum ríkti samhugur í gleði og sorg. Erla var fjölskylduvinur. Svo breyttust ytri aðstæður, Kalli bróðir deyr og um svipað leyti flytur Erla til Vest- mannaeyja, þar sem hún hafði áður búið og átti því góða end- urfundi við eyjarnar fögru. Eftir það voru það helst jólakortin sem sáu um samskiptin á milli okkar. Ég heyrði síðast í Erlu fyrir nokkrum árum þegar hún hringdi í mig og lét mig vita af að hún sá minningargrein sem ég skrifaði um frænda minn, hún vildi vera viss um að hún tengdi hlutina rétt sem hún gerði. Hvorugt okkar gat þá vit- að að næstu fundir okkar yrðu í þessum minningarorðum. Bjart- ar minningar um góðan ná- granna og traustan vin eru nú það sem eftir stendur. Líf vakn- ar og lífi lýkur, það er gangur lífsins. Við Eygló, Anna systir og Ágúst mágur vottum aðstand- endum Erlu, okkar innilegustu samúð og biðjum þeim Guðs friðar. Ársæll Þórðarson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.