Morgunblaðið - 22.05.2015, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 22.05.2015, Blaðsíða 35
Úr frændgarði Bjarna Más Gylfasonar Bjarni Már Gylfason Guðrún Jóhannesdóttir húsfr. á Hellissandi og í Rvík Magnús Sigurðsson sjóm. á Hellissandi og í Rvík, fórst með bv. Jóni forseta 1928 Bjarni Magnússon yfirvélstjóri hjá Landhelgisgæslunni Ástríður Hannesdóttir húsfr. í Rvík Dóra Bjarnadóttir B.Ed. í Garðabæ Guðrún Jóhannesdóttir húsfr. á Hellissandi og í Rvík Hannes Friðsteinsson skipherra í Rvík Kjartan Magnússon kaupm. í Rvík Vilhjálmur Þór Kjartansson rafeindaverkfr. í Rvík Hannes Högni Vilhjálms- son dósent við HR Jóhannes Magnússon kaupm. í Rvík Skúli Jóhannesson kaupm. í Tékkkristal Vilhjálmur Skúlason verslunar- og skrifstofum. í Rvík Unnur Birna Vilhjálmsd. fv. alheims- fegurðar- drottning Rósbjörg Beck húsfr. í Rvík Edda Gunnarsdóttir verslunarstj. í Rvík Hannes Bjarnason vélstj. í Rvík Hildur Sveinsd. viðskiptafr. í Rvík Ágústa Hannesdóttir starfsm. í Skálatúni Gunnar Gunnarsson viðskiptafr. og fram- kvæmdastj. í Gbæ Gunnar Ásbjörn Bjarnason raf- magnsverkfr. í Rvík Alex Freyr Gunnarsson dansari Ásthildur Gunnarsdóttir stjórn- málafræðingur Guðmundur Geir Gunnarsson viðskiptafr. og fram- kvæmdastj. í Rvík Guðjón Geir Guðmundsson flugmaður og skrifstofum. í Rvík Marselíus Bern- hardsson skip- asmíðam. á Ísafirði. Guðmundur Marselíusson skipa- smíðam. á Ísafirði Sigríður Bernhards Guðmunds- dóttir ljósmóðir í Rvík Geirþrúður Anna Gísladóttir verkakona í Rvík Guðmundur Einarsson vélstj. í Rvík, fórst með bv. Braga við England 1940 Sigríður Guðmundsdóttir kaupmaður í Rvík Gunnar Bernhard gull- og silfursmíðam. og forstj. Bernhard í Rvík Gylfi Gunnarsson framkvæmdastj. í Garðabæ Ragna Gunnarsdóttir húsfr. á Akureyri og í Rvík Guðjón Rósinkrans Bernhardsson gullsmiður á Akureyri og í Rvík Kristín Marsellíus- dóttir húsfr. í Bolungarvík Marselíus Guðmundsson fiskmatsmaður Einar Guðmundsson umboðsm. OLÍS í Bolungarvík Guðrún Beck húsfr. í Rvík Þórólfur Beck einn fremsti knattspyrnu- maður Íslendinga fyrr og síðar iðnaðarins sem er ákaflega fjölbreytt, skemmtilegt og krefjandi starf. Í grunninn snýst starfið um að vinna, ásamt góðum hópi samstarfsmanna, að bættum starfsskilyrðum um 1.300 fyrirtækja í margvíslegum iðnaði. Daglegt líf mótast hins vegar af fjölskyldunni. Ég er ákaflega vel kvæntur. Við hjónin eigum fjögur börn þannig að heimilishaldið er fjörugt og krefjandi.“ Bjarni naut ferðalaga og útivistar á æskuárunum. Hann á ótal minningar um langa jeppatúra og tjaldferðir: „Það hefur að mörgu leyti mótað mig og mín áhugamál. Ég gekk í Hjálpar- sveit skáta í Kópavogi 1995 og var mjög virkur í því í 4-5 ár en síðan var stækkandi fjölskylda tekin fram yfir hjálparsveitarstarfið. Hins vegar fann ég annan flöt með fararstjórn og ég hef gripið í slík störf fyrir Ferða- félagið reglulega frá 1997.“ Á síðustu árum hefur Bjarni Már svo tekið hjólreiðar fram yfir eldri áhugamál: „Ég hefði ekki trúað því hvað hjólasportið næði miklum tök- um á mér. Í árslok 2011 hóf ég að æfa hjólreiðar skipulega og hef verið dug- legur að keppa í flestum greinum hjólreiða nema í fjallabruni. Ég æfi 8- 12 klukkustundir á viku, hjóla u.þ.b. 1.000 km á mánuði og keppi þegar ég get. Ég sit í stjórn Hjólreiðafélags Reykjavíkur og er á fullu að skipu- leggja mót með skemmtilegu fólki. Þetta er erfitt en það er hins vegar frábær tilfinning að standa á fertugu og vera í betra formi en nokkru sinni fyrr. Vegna hjólreiðanna hef ég að mestu lagt golfkylfunum, veiðistöng- inni og haglabyssunni og er meira að segja búinn að selja bassann en ég var bassaleikari í hljómsveitinni Krummafæti sem fæstir kannast við,“ segir Bjarni Már og glottir. Fjölskylda Eiginkona Bjarna Más er Jóhanna Vernharðsdóttir, f. 5.10. 1975, verk- efnastjóri með MS-próf í stjórnun og stefnumótun. Börn Bjarna Más og Jóhönnu eru Bergdís Bjarnadóttir, f. 21.9. 2000, Steinar Bjarnason, f. 24.9. 2002, Brynja Bjarnadóttir, f. 1.11. 2006, og Rakel Dóra Bjarnadóttir, f. 14.12. 2011. Bræður Bjarna Más eru Atli Gylfa- son, f. 13.6. 1975, viðskiptafræðingur í Reykjanesbæ, og Egill Gylfason, f. 4.9. 1975, lögfræðingur í Reykjavík. Foreldrar Bjarna Más eru Gylfi Gunnarsson, f. 13.6. 1955, fram- kvæmdastjóri í Reykjavík, og Dóra Bjarnadóttir, f. 27.5. 1957, kennari. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2015 L árus fæddist í Reykjavík22.5. 1903. Hann var sonurséra Sigurbjörns Á. Gísla- sonar, ritstjóra og prests í Ási í Reykjavík, og k.h., Guðrúnar Lár- usdóttur, rithöfundar og alþm., sem drukknaði ásamt tveimur dætrum sínum í Tungufljóti er bifreið sem þær voru í rann út í fljótið árið 1938. Sigurbjörn var sonur Gísla Sig- urðssonar, bónda í Glæsibæ í Sæ- mundarhlíð og í Neðra-Ási í Hjalta- dal, og Kristínar Björnsdóttur húsfreyju, en Guðrún var dóttir Lár- usar Halldórs Halldórssonar, pró- fasts á Valþjófsstað í Fljótsdal og síðar fríkirkjuprests og alþm. á Kollaleiru í Reyðarfirði, og Kir- stenar Katrine, af Knudsenætt, dóttur Péturs Guðjohnsen, ættföður Guðjohnsenættar. Meðal systkina Lárusar voru Gísli, forstjóri Grundar og Áss, Frið- rik stórkaupmaður og Lára kennari, móðir Einars Þorsteins Ásgeirs- sonar, arkitekts og frumkvöðuls. Lárus lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1922, lauk cand. phil.-prófi við Kaup- mannahafnarháskóla og stundaði þar nám í eðlisfræði en hætti námi og stundaði síðan ritstörf og blaða- mennsku í Kaupmannahöfn til 1927, lengst af hjá Berlingske Tidende. Lárus hóf störf hjá Reykjavíkur- bæ 1929, vann fyrst hjá bæjar- gjaldkera en var skipaður minja- og skjalavörður 1956. Lárus samdi skáldsögu og a.m.k. tvö leikrit, auk þess sem hann þýddi fjölda leikrita. Hann var formaður Leikfélags stúdenta og Leikfélags Reykjavíkur og framkvæmdastjóri þess um skeið. Lárusar verður þó fyrst og fremst minnst sem stofnanda Minjasafns Reykjavíkur að Árbæ, fyrir for- göngu að varðveislu Árbæjar og stofnun Árbæjarsafns og fyrir að bjarga fjölda merkra muna og minja úr fortíð Reykjavíkur sem fæstir sáu nokkur verðmæti í og annars hefðu farið forgörðum. Lárus lést 5.8. 1974 er borgarbúar héldu þjóðhátíð vegna ellefu hundr- uð ára afmælis landnáms í Reykja- vík. Merkir Íslendingar Lárus Sig- urbjörnsson 95 ára Margrét Vilhjálmsdóttir Ragnhildur Árnadóttir 90 ára Jóhanna Guðbergsdóttir Kristín Björnsdóttir 85 ára Magni Kjartansson Njáll Gunnarsson Sigurlaug Pálsdóttir 80 ára Haraldur Ellingsen Helga Pálsdóttir Jónas Sigurðsson Kristín Rebekka Einarsdóttir Þorbergur B. Guðmundsson 75 ára Halldóra Ágústsdóttir 70 ára Hallgrímur Jóhannesson Hörður Gilsberg Jóna Sigursteinsdóttir Steinþór Bjarki Stefánsson 60 ára Ásrún Atladóttir Bjarney Guðmundsdóttir Guðríður Kristinsdóttir Jón Guðmundsson Kjartan Kjartansson Kristín K. Bjarnadóttir Magnús Jónsson Sigrún Bjarnadóttir Vilberg Grímur Helgason Þorleifur Eggertsson 50 ára Agnes Finnsdóttir Ammar Sharifa Bára Kristjánsdóttir Claudia Ilse Maria Hofmann Elín Oddleifsdóttir Eyrún Húnfjörð Árnadóttir Guðbjörg Elsa Helgadóttir Guðrún S. Róbertsdóttir Harpa Hilmarsdóttir Kjartan Sigurjónsson Kristján Guðmundsson Krzysztof Antoni Szczesniak Linda Rán Úlfsdóttir Sigurlaug G Kristjánsdóttir Sverrir Ágústsson Þorgerður Guðrún Jónsdóttir Þór Kristjánsson 40 ára Agnes Brá Birgisdóttir Alexandra Katharina Buhl Auðunn Sigurður Hermannsson Árni Þráinsson Davíð Kristjón Jónsson Guðlaugur Jóhann Jóhannsson Gunnar Þorsteinsson Ingibjörg Gestsdóttir Íris Þórlaug Ármannsdóttir Lars-Dean Hutt Níels Carl Carlsson Paula Gould Una Björg Hjartardóttir 30 ára Andrea Hilmarsdóttir Anne Balanant Artur Helmik Dröfn Ragnarsdóttir Gísli Már Árnason Gunnar Örn Gunnarsson Magdalena Maria Brzeska Mariusz Kulesza Marta Malwina Szmilyk Sigbjörn Nökkvi Björnsson Sigríður Harpa Jónsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Hörður ólst upp í Stykkishólmi, býr í Reykjavík, er að ljúka BSc-prófi í jarðfræði, starfar við hellulagnir og er starfsmaður á Hrafn- istu. Maki: Andrea Elsa Ágústsdóttir, f. 1987, sál- fræðingur. Foreldrar: Hörður Harð- arson, f. 1955, og María Davíðsdóttir, f. 1957 hjúkrunarkona en þau reka sveitakrána Kríuna. Hörður Bjarni Harðarson 30 ára Íris ólst upp á Djúpavogi, býr í Reykjavík, lauk BS-prófi í ferða- málafræði og spænsku og er í djasssöngnámi við Tónlistarskóla FÍH. Maki: Kolbeinn Einars- son, f. 1984, sjómaður. Foreldrar: Birgir Guð- mundsson, f. 1955, út- gerðarmaður hjá Bú- landstindi á Djúpavogi, og Anna Sigrún Gunnlaugs- dóttir, f. 1958, skrif- stofustjóri. Íris Birgisdóttir 30 ára Bergþór ólst upp á Seyðisfirði, býr í Kópa- vogi, er að ljúka BA-prófi í ensku við HÍ, stundar nám í netagerð við FSS og starfar hjá Thor-Net. Maki: Hildur Inga Þor- steinsdóttir, f. 1981, kenn- ari. Dóttir: Nína Björg Berg- þórsdóttir, f. 2013. Foreldrar: Þorsteinn Rúnar Eiríksson, f. 1952, og Sólveig Sigurðardóttir, f. 1954. Bergþór Þorsteinsson Fullkomnir fyrir sumarið! Mikið úrval af ungbarnaskóm ECCO - KRINGLAN - SÍMI: 5538050 STEINAR WAAGE KRINGLAN & SMÁRALIND WWW.SKOR.IS Ecco Peekaboo Stærðir: 19-26 Verð kr. 9.995 Ecco Mimic Stærðir: 19-26 Verð kr. 10.995

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.