Morgunblaðið - 13.06.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2015
Tilboðsverð frá19.950 kr.
Flugsæti aðra leiðina. Hótel og íbúðir í
Benidorm, Albir eða Calpe.
Nánar á vita.is
Alicante
Síðustu sætin í júní!
VITA - Skógarhlíð 12 - Sími 570 4444
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
fullu. Týr er nýkominn til landsins
eftir gæslustörf í Miðjarðarhafi en
áætlað var að hann færi í slipp við
heimkomu. Því má gera ráð fyrir að
gert verði við skipið áður en það
heldur aftur suður á bóginn í sept-
ember. Spurður um kostnað vegna
skemmdanna er Ásgrímur óviss, en
segir að líkur séu á töluverðum út-
gjöldum.
Þórs. Framanverður bakborði Týs
rifnaði upp að hluta við áreksturinn
en brú skipsins er einnig nokkuð
beygluð eftir spjótið. Týr er ekki
haffær eftir slysið.
Viðgerðir framundan
Ásgrímur segir að Þór klári eftir-
litsverkefni sín eftir helgi og í fram-
haldinu verði svo gert við skipið að
Bjarni Benediktsson, fjármála-
ráðherra og formaður Sjálfstæðis-
flokksins, fór yfir afnám fjár-
magnshafta, efnahagsmál og
lækkun skulda ríkisins á næstunni á
fjölmennum fundi í Valhöll í gær.
Sagði hann að það hefði verið
gott að koma með heildstæða áætl-
un um losun hafta fyrr, en það
skipti þó litlu máli þótt slík áætlun
hefði komið nokkrum mánuðum
fyrr eða seinna, ef í lokin kæmi
fram áætlun um losun hafta sem
raunverulega getur staðist. Nauð-
synlegt væri fyrir lífeyrissjóði og
fyrirtæki að komast úr höftunum.
Hann sagði að menn hefðu reifað
ýmsar hugmyndir um afnám hafta,
t.d. þrepaskiptan skatt og útgöngu-
skatt. Stöðugleikaskatturinn varð
fyrir valinu þar sem sú leið féll best
að þeim grunngildum sem lagt var
upp með í upphafi.
Unnu að afnámi frá grunni
Bjarni vék að málflutningi nokk-
urra stjórnarandstöðuþingmanna
sem sögðu leið ríkisstjórnarinnar
hafa verið komna fram fyrir síðustu
kosningar. Sagði Bjarni að þrátt
fyrir að það kynni að vera að ein-
hver hefði nefnt þá leið fyrir kosn-
ingar hefði alla vinnu og saman-
burð vantað þegar hann tók við
ráðuneytinu. ash@mbl.is
Fór yfir afnám
hafta og lækkun
skulda ríkisins
Nokkrir mánuðir til eða frá hefðu
skipt litlu máli við afnám hafta
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fjármagnshöft Bjarni Benedikts-
son fundaði í Valhöll í gærdag.
Ákæruvaldið
hefur gert kröfu
um að Guðjón St.
Marteinsson hér-
aðsdómari víki
sæti í Aurum-
málinu. Þetta
staðfestir Ólafur
Þór Hauksson,
sérstakur sak-
sóknari. Að-
spurður hvers
vegna ákæruvaldið hafi farið fram
á að Guðjón viki, segir Ólafur það
hafa verið vegna eftirmála málsins
í héraði.
„Mat ákæruvaldsins er að hann
geti ekki talist hæfur til að fara
með málið úr því sem komið er,“
segir Ólafur en krafa ákæruvalds-
ins verður tekin fyrir í september
næstkomandi.
ash@mbl.is
Vilja að Guðjón St.
Marteinsson víki
sæti í Aurum-málinu
Ólafur Þór
Hauksson
Brynja Dögg B. Guðmundsdóttir
brynjadogg@mbl.is
Í kjölfar umræðunnar að undanförnu
hefur tilkynningum um ærdauða til
Landssamtaka sauðfjárbænda fjölg-
að verulega. „Það sem við getum sagt
alveg örugglega er að um er að ræða
tugi bæja um nánast allt land og
dauðar skepnur skipta þúsundum,“
segir Svavar Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Landssamtaka sauð-
fjárbænda. „Við getum líka fullyrt að
við erum að tala um Vesturland,
Vestfirði, Norðurland, Austfirði,
Suðausturland og nýlega höfum við
fengið upplýsingar um að minnsta
kosti þrjá bæi á Suðurlandi. Fyrst
var ekkert á Suðurlandi en við erum
komin með upplýsingar um bæi sem
eru vestan Markarfljóts,“ segir Svav-
ar.
Margt nefnt til sögunnar
Ýmsar kenningar hafa verið
nefndar um ástæður ærdauðans.
Sem dæmi má nefna lélegt hey,
áburð, fóður og mengun vegna eld-
goss. Þá hafa sjúkdómar verið nefnd-
ir. Engin óyggjandi niðurstaða hefur
fengist og ekki hefur neitt verið úti-
lokað þó ólíklegt sé talið að ærdauð-
ann megi rekja til lélegs heys, erfða-
breytts fóðurs eða áburðar, nema um
einhvers konar framleiðslugalla hafi
verið að ræða.
„Í krufningu hefðum við átt að sjá
breytingar á lungum ef þetta væri
loftmengun eða gasmengun og ef
þetta stafar af mengun úr fóðrinu eða
jurtunum ættum við að sjá breyting-
ar á lifur. Þó maður vilji ekki taka
ákvarðanir út frá krufningum fyrr en
það koma fleiri þá eru engar vísbend-
ingar,“ segir Margrét Katrín Guðna-
dóttir, sjálfstætt starfandi dýralækn-
ir, sem vinnur að rannsókn málsins.
Hún bendir á að fóður og áburður sé
það sama og hafi verið notað síðustu
tíu ár og ef eitthvað mætti rekja til
þessara þátta ætti að sjást útbreidd-
ari vandi í hverri hjörð.
Einar Jörundsson, dýralæknir og
meinafræðingur á Keldum, tilrauna-
stöð Háskóla Íslands, hefur einnig
komið að krufningum og viðbótar-
rannsóknum vegna ærdauðans.
Hann segir óvíst hvenær rannsókn-
um muni ljúka en bændur geti líklega
ekkert gert fyrir fé sitt úr þessu.
Þúsundir dauðra skepna
Sífellt fleiri bændur tilkynna ærdauða Tilkynningar eru einnig farnar að
berast frá Suðurlandi Engar skýringar komnar Verið er að rannsaka málið
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sauðfé Bændur reyna allt hvað
þeir geta til að bjarga sauðfé sínu.
Seglskipið Kruzenshtern er 89 ára
gamalt. Það hefur gengið gegnum
ýmislegt en í dag er það notað í
þeim tilgangi að kenna sjóliðum
handtök í gömlum skipum. Ás-
grímur segir að nokkurt pláss
þurfi til að snúa stórum skipum
sem hafa takmarkaðan stjórnbún-
að eins og Kruzenshtern, slysin
geri þó ekki boð á undan sér. Hann
fullyrðir ekkert um orsök slyssins,
rannsókn muni leiða hana í ljós.
Skipinu snúið í höfninni
SKÓLASKIPIÐ KRUZENSHTERN VAR SMÍÐAÐ ÁRIÐ 1926
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Glæsilegt skip Rússneska skólaskipið
Kruzenshtern er óneitanlega fagurt.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Ljóst er að töluverðar skemmdir
urðu á varðskipunum Þór og Tý á
fimmtudag þegar rússneska skóla-
skipið Kruzenshtern hugðist halda
úr Reykjavíkurhöfn, þar sem varð-
skipin lágu hlið við hlið. Langt bug-
spjót rússneska skipsins rakst inn í
bol Þórs, sem lá nær höfninni áður
en stefni þess stímdi á Tý, sem olli
árekstri milli varðskipanna tveggja.
Bæði skipin skemmdust nokkuð
Á bakborða Þórs eru stór göt eftir
bugspjótið en búkurinn er einnig
mikið genginn til á stjórnborða eftir
að varðskipin tvö slógust saman. Þá
eru skemmdir inni í skipinu eftir
bugspjótið en þar gekk innrétting til
við höggið. Ásgrímur Ásgrímsson,
framkvæmdastjóri aðgerðasviðs
Landhelgisgæslunnar, segir bráða-
birgðaviðgerðir á götunum á bak-
borða nægja í bili en Þór siglir út til
landhelgisgæslustarfa eftir helgina.
Skemmdir á Tý eru meiri, en stefni
rússneska skipsins rakst í hlið skips-
ins. Mastur Týs beyglaðist mikið við
áreksturinn en bugspjótið rakst í
mastrið eftir að það stakkst inn í búk
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mastrið Bugspjót rússneska skipsins beyglaði mastur varðskipsins Týs.
Áreksturinn olli tölu-
verðum skemmdum
Þór og Týr eru laskaðir eftir ásiglingu rússnesks skips
Bakborði Ásgrímur Ásgrímsson
sýnir skemmdir á bakborða Týs.