Morgunblaðið - 13.06.2015, Blaðsíða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2015
ÓSKASTJARNAN
Þann 17. júlí hittir einn af áskrifendum Morgunblaðsins á óskastund
þegar við drögum út glæsilegan, fjórhjóladrifinn Mercedes-Benz B-Class
með 7 þrepa sjálfskiptingu að verðmæti 6.970.000 kr.* í áskriftarleik
Morgunblaðsins.
Víkkaðu hringinn með Morgunblaðinu í sumar.
*Innifalinn í verðinu er ríkulegur aukabúnaður: bakkmyndavél, rafstillanleg framsæti með minni, regnskynjari o.fl.
Síðustu sinfóníutónleikarvetrarins 2014-15 voruhelgaðir aldarafmæli kosn-ingarréttar kvenna á Ís-
landi. Til samræmis voru öll tón-
verk dagskrár eftir konur, og
einleikur og hljómsveitarstjórn
sömuleiðis í höndum fulltrúa fríða
kynsins.
Veðrið var því miður aldrei þessu
vant upp á sitt bezta. Kann það að
hafa dregið úr æskilegri aðsókn, ef
marka má áður viðraða tilgátu und-
irritaðs um truflandi áhrif þess
þegar bezt – eða verst – lætur.
Alltjent virtist Eldborgarsalurinn
varla nema hálfsetinn og var það
að ófyrirsynju, enda áttu jafnt við-
fangsefnin sem túlkun þeirra betra
skilið.
Að vísu, og alfarið háð persónu-
legum smekk þess er hér ritar sem
höfðar að sama skapi ekki til allra
hlustenda, var ánægjan af víðróm-
uðu Norðurlandaráðsverðlauna-
verki Önnu Þorvaldsdóttur, Dreymi
[2012; 16’] ekki með öllu einhlít.
Stafaði það ugglaust sumpart af
kynslóðagjánni illræmdu, þar sem
yngri hlustendur varðar nú meira
um andrá og stemningu augna-
bliksins en hefðbundnari kröfur um
markvissa frásögn og framvindu.
Allt um það kom mér sumt engu
að síður skemmtilega á óvart. Þótt
kyrrstæð „trans“kennd áferð réði
oftast ríkjum, þá gat hún á köflum
samt verkað skáldleg, t.a.m. á lýs-
ingarnótum auðnar og dulúðar ís-
lenzkrar náttúru – og m.a.s. stöku
sinni kallað fram átakanlega hljóð-
sýn af hamförum eins og eldgosi.
Píanókonsert Jórunnar Viðar,
Slátta [1957; 31’] var framúrskar-
andi fallega fluttur í góðri sam-
vinnu brazílsku maestrunnar Ligiu
Amadio og Ástríðar Öldu Sigurð-
ardóttur er brilleraði í klingtærri
kadenzu I. þáttar. Þessi tónsmíð
sló mann, eins og flest sem frá Jór-
unni hefur komið, sem sífersk og
undrafrjó tjáning úr mörgum
áhrifaáttum, jafnt gömlum sem nýj-
um. Má kannski helzt harma að
hún léti sér aðeins 3 lúðra í blæstri
og xýlófón í slagverki nægja á móti
strengjasveit – svona upp á kraft-
inn að gera sem vel hefði mátt
þenja meira. Allavega gilti hið
sama um Sláttuna og verk Amyar
Beach eftir hlé, er slagað gat allt
upp í hið herskáa, að oft hefur
maður heyrt væmnari verk eftir
mun þekktari karltónskáld!
Af einhverjum torskildum völd-
um virðist Amy Beach (1867-1944),
fyrsta meiriháttar kventónskáld
BNA, hafa legið í nánast algjöru
þagnargildi héðra þar til nú. Varð
allavega ekki annað séð en að Gel-
ísk sinfónía hennar frá 1896 (svo
nefnd af því að höfundur byggði
sinfóníu sína á gömlum skozk-írsk-
enskum þjóðlagastefjum) hafi aldr-
ei áður verið leikin hér á landi, og
var því tími til kominn.
Til þess er raunar tekið að Amy
hafi verið heppin að mega yfirhöfuð
fást við jafn
,karllæga‘ iðju og
tónsmíðar, t.d. í
minningu stall-
systra á við
Fanny Mendels-
sohn og ótal
fleiri fyrr á öld-
um. En í miðri
kynjajafnrétt-
isbaráttu má
heldur ekki
gleyma því að jafnrétti snýst líka
um efnahag. Vel ættuð og efnuð
konan frá Boston hlaut af þeim
sökum forskot sem fátækari hæfi-
leikamönnum beggja kynja stóð
ekki til boða – og hvorki þá né nú.
Sinfónían var óhætt að segja
leikin af miklum glæsibrag, og voru
undirtektir að vonum heitar. Ligia
Amadio sýndi bæði ötula drift og
haldgóða reynslu í fjölbreyttri með-
ferð sinni á þessari líklega fremstu
hljómkviðu Nýja Englands eftir
kventónskáld frá síðrómantískum
tíma svo sópaði að, hljómsveitinni
til mikils sóma og öllum nær-
stöddum til augljósrar ánægju.
Stjórnandinn Ligia Amadio stýrði tónleikum SÍ í fyrrakvöld.
Kraftur í kvennakögglum
Eldborg í Hörpu
Sinfóníutónleikarbbbmn
Anna Þorvaldsdóttir: Dreymi. Jórunn
Viðar: Slátta, píanókonsert. Amy Beach:
Gelíska sinfónían (ísl. frumfl.). Ástríður
Alda Sigurðardóttir píanó og Sinfóníu-
hljómsveit Íslands. Stjórnandi: Ligia
Amadio. Fimmtudaginn 11. júní 2015.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Jórunn
Viðar
Ástríður Alda
Sigurðardóttir
Anna
Þorvaldsdóttir
Norski samtímamyndlistartvíær-
ingurinn Momentum 8 verður sett-
ur í dag í borginni Moss í Noregi
með tónleikum eins af listamönnum
tvíæringsins, Svíans Zahla. Birta
Guðjónsdóttir er einn fjögurra sýn-
ingarstjóra en hinir eru Jonatan
Habib Engqvist, Stefanie Hessler
og Toke Lykkeberg. Íslenskir lista-
menn á tvíæringnum eru Hrafn-
hildur Arnardóttir, sem notar lista-
mannsnafnið Shoplifter,
Steingrímur Eyfjörð, Bjarni H.
Þórarinsson og Steina Vasulka.
Þema tvíæringsins er „tunnel
vision“, eða rörsýn. Frekari fróð-
leik um tvíæringinn má finna á
www.momentum.no.
Morgunblaðið/Golli
Shoplifter Hrafnhildur Arnardóttir.
Momentum 8 opnaður í Moss í Noregi
Sýningin White-
less verður opn-
uð af Kunst-
schlager í D-sal
Listasafns
Reykjavíkur í
Hafnarhúsi í
dag kl. 15. Á
henni sýna
Hrönn Gunnars-
dóttir og Þor-
gerður Þórhalls-
dóttir ný myndbands- og hljóð-
verk, takast á við „manngerða
orku, eftirlíkingar á náttúrunni
og hið fysíska í staðleysunni/
tóminu“, eins og segir í tilkynn-
ingu. „Whiteless hljómar eins og
orðið weightless og verkin á sýn-
ingunni eru af slíkum toga, þau
eru án þyngdar, ójarðbundin og
lifa sjálfstæðu lífi í öðrum heimi.
Þau skapa dýnamík á milli hins
lífræna og vélræna, hins skamm-
lífa og eilífa. Þá verða verk Mar-
grétar Helgu Sesseljudóttur sýnd
á korknum í Kunstschlagerstofu,“
segir um sýninguna.
Whiteless opnuð í Hafnarhúsi
Þorgerður
Þórhallsdóttir
Sýningin Að bjarga heiminum verður opnuð í dag kl. 14
í Verksmiðjunni á Hjalteyri. Sýningin er öllum opin til
þátttöku og hefur á sjöunda tug listamanna boðað þátt-
töku sína, íslenskir og erlendir, þ.á m. Björg Þorsteins-
dóttir, Eggert Pétursson, Guðrún Pálína Guðmunds-
dóttir, Guðrún Vera Hjartardóttir, Hildur Hákonar-
dóttir, Jonna, Joris Rademaker og Sigrún Eldjárn.
Sýningin mun standa yfir tvær helgar og um næstu
helgi verður dagskrá með fyrirlestrum, gjörningum,
ljóðlist, söng og hljóðfæraslætti. Þar koma m.a. fram
Anna Richardsdóttir, Arna Valsdóttir, tim tir og Tonn-
atak. Sýningin er „afrakstur hugsjónavinnu og þeirrar trúar að ein-
staklingurinn skipti máli og að saman getum við tekist á við hin erfiðu
vandamál sem við okkur blasa og skapað framtíðarheim þar sem lífið er
virt framar öðru,“ eins og segir í tilkynningu.
Að bjarga heiminum er hugarfóstur Aðalsteins Þórssonar, myndlistar-
manns og aðgerðasinna, og má finna frekari upplýsingar um verkefnið á
www.adbjargaheiminum.blogspot.com.
Að bjarga heiminum opnuð á Hjalteyri
Sigrún Eldjárn
Enski leikarinn Cristopher Lee lést sunnudag-
inn sl., 93 ára að aldri. Leikferill hans spannaði
nær 70 ár og vakti hann upphaflega athygli í
hlutverkum illmenna í Hammer-hryllings-
myndunum og þá einkum fyrir túlkun sína á
Drakúla greifa. Af öðrum eftirminnilegum hlut-
verkum hans má nefna illmennið Francisco Sca-
ramanga í James Bond-myndinni The Man with
the Golden Gun, Saruman í Hringadróttinssögu
og Hobbitanum og Dooku greifa í þremur
Stjörnustríðsmyndum. Lee var aðlaður fyrir
störf sín í þágu leiklistar og góðgerðarmála ár-
ið 2009.
Leikarinn Cristopher Lee látinn
Cristopher Lee