Morgunblaðið - 13.06.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2015
tímanlega. Ekki geyma það til síðasta dags
skila atkvæði þínuMundu að
FLÓABANDALAGIÐ
ATH! Atkvæði póstleggist í síðasta lagi 18. júní
22. júní er síðasti dagurinn sem þú hefur til að hafa áhrif á niðurstöður í atkvæðagreiðslunni um kjarasamningana
V
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég veit vel að ég er umdeild-ur, því ég hef gert þannighluti í gegnum tíðina. Égheyri líka að fólki finnist
ég klikkaður. Stundum leyfi ég mér
að stinga á kýlum, ég hef reglulega
haft áhrif á samfélagsumræðuna
með „samfélagsgjörningum mínum“,
til dæmis framboðum mínum, fyrst
framboði Vinstri Hægri Snú í
borgarstjórnarkosningunum 2002,
forsetaframboðinu 2004 og framboði
mínu í formannskjöri Sjálfstæðis-
flokksins 2009. Ég var beðinn um að
koma upp í listaháskóla og halda fyr-
irlestur sem aktivisti, en ég hef aldr-
ei skynjað mig þannig, mér hundleið-
ist pólitísk myndlist. En þegar mér
er ofboðið þá rís ég upp og hendi
bombu frá mér,“ segir myndlistar-
maðurinn Snorri Ásmundsson og
bætir við að hann sé maður fyrir-
gefningarinnar. „Ég hef selt afláts-
bréf í áratugi. En það má alveg
hvæsa stundum, það er nauðsyn-
legt.“
Í listsköpun sinni hefur Snorri
ekki bundið bagga sína sömu hnút-
um og samferðamenn hans.
„Ég er sjálfmenntaður og minn
myndlistarferill hófst með ákvörðun
í fangelsi þegar ég var í gæslu-
varðhaldi. Þá spurði ég mig: Ætlarðu
að vera glæpamaður eða listamaður?
Ég tók ákvörðun um að verða lista-
maður. Þarna fann ég farveg fyrir
óþekktina í mér. Og þó mér hafi ver-
ið haldið niðri þá held ég alltaf
áfram,“ segir Snorri sem verður með
sólótónleika í Mengi í kvöld, en þar
ætlar hann að spinna í söng og spili, í
bland við gjörninga og óvæntar
uppákomur.
„Það er ekki hægt að flokka mig
eftir skóla eða öðru, ég er bara eins
og svarti sauðurinn eða óþekka barn-
ið. Og sá titill er ekki velkominn alls
staðar. Ég er búinn að vera í tuttugu
ár í bransanum og ég hef oft mætt
því að ég sé óvelkominn, þess vegna
býð ég mig sjálfur velkominn. Mér
Mér finnst gaman að
vera ófullkominn
Snorri Ásmundsson hefur engan áhuga á því hvað öðrum finnst um hann og
hann er óhræddur við að fara sínar eigin leiðir í listsköpun sinni. Hann er sjálf-
menntaður og lætur flæðið ráða för. Hann segir óttann allt of oft stýra manninum
og stærsta fangelsið sé hræðslan við álit annarra.
Snorri og gínan Mynd tekin á vinnustofunni í Los Angeles í vetur. Uppstill-
ingin var í tilefni dagsins eða dagsformsins. Leikið með stígvél og hatt.
Flóruvinir, sem eru samstarfshópur
sjálfboðaliða um rannsóknir á ís-
lensku flórunni og verndun hennar,
halda upp á samnorrænan Dag villtra
blóma á morgun, sunnudaginn 14.
júní. Boðið verður upp á tvær leið-
sagðar gönguferðir um náttúruna í
borgarlandinu. Annars vegar verður
lagt upp í gönguför um Elliðaárdal kl.
11 frá hesthúsi Fáks við Sprengisand
og hins vegar um Fossvog kl. 14 frá
Ylströndinni í Nauthólsvík.
Fjallað verður um gróðurfar svæð-
anna og plöntur greindar til tegunda.
Gestir eru eindregið hvattir til að
taka með sér flóruhandbækur og
stækkunargler.
Hjörtur Þorbjörnsson, grasafræð-
ingur og forstöðumaður Grasagarðs
Reykjavíkur, verður í fararbroddi í
göngunni um Elliðaárdalinn, en
Snorri Sigurðsson, líffræðingur og
verkefnastjóri „Reykjavík – iðandi af
lífi“, í göngunni um Fossvog.
Á vefsíðu Flóruvina eru upplýs-
ingar um fleiri plöntuskoðunarferðir
sem þeir vinirnir standa fyrir á Degi
villtra blóma, auk sem þar er alls kon-
ar fróðleikur um flóru Íslands.
Vefsíðan www.floraislands.is/Annad/blomdag.html
Þjóðarblómið Holtasóley var valin þjóðarblóm Íslendinga í könnun árið 2004.
Dagur hinna villtu blóma
Ef veðurspár ganga eftir viðrar vel til
kvennahlaups í Viðey sem ÍSÍ efnir til
í sjötta sinn kl. 10.45-13.00 í dag.
Spáð er sól og hægum vindi. Hlaupa-
leiðin þykir mjúk undir fæti og þægi-
leg, náttúran og fuglalífið skarta sínu
fegursta og því er margs að njóta á
leiðinni.
Hlaupið verður ræst frá Viðeyjar-
stofu og geta konurnar valið milli
tveggja hlaupaleiða, annaðhvort 3
km eða 7 km.
Siglt verður frá Skarfabakka kl.
10.15. Hlaupakonur fá afslátt í ferj-
una og greiða 2.500 kr. í þátttöku-
gjald og ferjutoll. Börn undir 13 ára
aldri greiða 1.500 kr. Innifalið í þátt-
tökugjaldinu er kvennahlaups-
bolurinn og verðlaunapeningur.
Skráning fer fram í miðasölu Eld-
ingar á Skarfabakka þar sem
Viðeyjarferjan leggur frá bryggju.
Siglt verður til baka frá Viðey á hálfa
tímanum allan daginn frá 11.30 til
18.30. Konunum gefst því góður tími
til að slappa af eftir hlaupið og fá sér
kannski eitthvað í svanginn í
Viðeyjarstofu.
Kvennahlaup ÍSÍ haldið í sjötta sinn í Viðey
Konur spretta
úr spori í eyju
Morgunblaðið/Ómar
Viðey Hlaupið hefst við Viðeyjarstofu.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Hin árlega bókmenntadagskrá Vestan-
vindar verður kl. 17 á morgun, sunnudag
í Edinborg menningarmiðstöð á Ísafirði.
Friðrika Benónýsdóttir bókmenntarýnir
heldur erindið Hafði lagði þennan veg,
sem fjallar um birtingarmyndir hins
vestfirska þorps í íslenskum bók-
menntum. Friðrika beinir sjónum sínum
að rithöfundunum Eiríki Guðmunds-
syni og Eiríki Erni Norðdahl og verk-
um þeirra. Báðir hafa búið fyrir vest-
an, Bolungarvík var heimabær Eiríks
Guðmundssonar í æsku og bók hans
1983 lýsir horfnum þorpsanda. Eirík-
ur Örn bjó lengst af á Ísafirði, þar
sem hann skrifaði Illsku.
Bókmenntadagskráin Vestanvindar í Edinborg á Ísafirði
Vestfirsk þorp í bókmenntum
Eiríkur Örn
Norðdahl
Eiríkur
Guðmundsson.