Morgunblaðið - 13.06.2015, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 13.06.2015, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2015 Andrea Hjálmsdóttir er lektor í félagsfræði við Háskólann áAkureyri og hefur gegnt þeirri stöðu frá árinu 2009. „Sumar-fríið er ekki alveg skollið á, hjá mér taka við greinaskrif nú þegar nemendurnir eru farnir út úr húsi. Ég hef mikið verið að vinna í kynjatengdum rannsóknum og er núna að vinna að tveimur verk- efnum, annars vegar er ég að skoða Facebook-notkun hjá ungu fólki og svo er ég að skoða samræmingu fjölskyldu og atvinnu ásamt koll- egum mínum. Við stefnum að því að klára verkefnin fyrir áramót.“ Andrea var bæjarfulltrúi á Akureyri 2010-2014 en hætti eftir síð- asta kjörtímabil. „Það var pínu skrítið fyrst að detta út úr hringiðunni en svo vandist það vel og nú finnst mér það ótrúlega gott að vera ekki lengur í þessu. Núna nýtir maður tímann í annað og ég get frekar stundað rannsóknir. Ég er svo heppin að vinnan er mitt áhugamál og ekki er maður farinn að spila golf þrátt fyrir háan aldur. Núna erum við hjónin að gera upp húsið okkar, það er aðaláhugamálið núna. Við erum að taka húsið alveg í nefið og verðum í því fram á haust. Það er ágætt að nota þetta leiðindasumar í að vera inni að sparsla og mála. Það verða því engin ferðalög hjá okkur í sumar en við fórum í jóla- ferðalag, það bjargar okkur í íslenska sumrinu.“ Andrea er frá Akranesi en hefur búið á Akureyri síðan 2000. „Þetta átti bara að vera stutt stopp hérna en svo viljum við hvergi annars staðar vera.“ Þau bjuggu einnig í Vancouver í Kanada 2007-2009 þar sem Andrea tók meistarapróf í félagsfræði. Eiginmaður Andreu er Hallur Gunnarsson, tölvunarfræðingur hjá Þekkingu, og börn þeirra eru Fönn 16 ára og Dögun 11 ára. Í Marokkó Andrea stödd í bænum Essaouira í desember síðastliðnum. Notar sumarið í að sparsla og mála Andrea Hjálmsdóttir er 45 ára R agnar fæddist í Reykja- vík 13.6. 1935. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1955, stundaði nám á Spáni 1955-56, lauk embættisprófi í lögfræði við HÍ 1962, öðlaðist hdl.-réttindi 1962 og hrl.- réttindi 1966. Á ungligs- og námsárum sinnti Ragnar margvíslegum sumar- störfum: „Ég held ég hafi komið að flestum störfum til sjós og lands sem þá tíðkuðust. Ég var sjö sumur í sveit, var á togara og vann við virkj- anir svo dæmi séu nefnd.“ Ragnar var fulltrúi á málflutnings- skrifstofu Lárusar Fjeldsted, Ágústs Fjeldsted, Benedikts Sigurjónssonar og Benedikts Blöndal 1962-69 en hef- ur rekið eigin málflutningsskrifstofu í Reykjavík ásamt öðrum frá 1969. Hann starfrækir nú, ásamt fleirum, lögmannsstofuna Rétt í Reykjavík. Þá hefur hann verið stundakennari og prófdómari við Tækniskóla Ís- lands og lagadeild HÍ og hefur kennt við HA. Ragnar sat í stjórn Trygginga- eftirlitsins 1974-78, í stjórn Lífeyris- sjóðs lögmanna 1971-83, í stjórn Lög- mannafélags Íslands 1974-76 og frá 1992-95, varaformaður 1975-76 og formaður 1992-95, sat í kjaranefnd félagsins 1979-81, var fulltrúi Lög- fræðingafélags Íslands í fulltrúaráði BHM og í varastjórn bandalagsins 1971-79, varamaður í Kjaranefnd 1974-78, varaformaður stjórnar Sjúkrasamlags Reykjavíkur 1974-78, í höfundarréttarnefnd 1978-87 og frá 1992, varaformaður Barnaverndar- ráðs 1979-83, í stjórn SÁÁ frá 1980- 2014, í stjórn Höfundarréttarfélags Íslands frá stofnun 1981 og um ára- bil, í stjórn Innheimtumiðstöðvar gjalda skv. höfundarlögum frá 1984- 2005, formaður Fjölíss frá stofnun 1985-2005, í nefnd um endurskoðun höfundarlaga frá 1988-2010 og fyrsti formaður Mannréttindaskrifstofu Ís- lands 1994-95 og aftur 1996-1999. Ragnar hefur samið fjölda rita og ritgerða um lögfræðileg efni. Hann Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður – 80 ára Með eiginkonu og sonum Ragnar og Steinunn Ruth á búðarrölti í vorblíðunni, með sonum sínum, Ragnari og Artúr. Enn á fullu í lögmennsku Afmælisbarnið Ragnar stundar enn lögmennsku, ungur í útliti og anda. Hinn 16. júní nk. verður hundrað ára Björg Baldvinsdóttir frá Eyrarlandi á Akureyri. Hún tekur á móti vinum og vandamönnum í hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík milli kl. 15 og 17. Árnað heilla 100 ára Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 AVIGONON 258X203 KR. 316.200 MARBLE KERTASTJAKAR YUMI CAPPUCINO 80 cm NÝTT CARMEN KR. 3.490 KR.. 99.800 KR.. 55.300 KR.. 32.400 FRÁBÆRT ÚRVAL AF PÚĐUM FLINGA TÍMARITA- HILLA 160 CM KR. 16.700

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.