Morgunblaðið - 13.06.2015, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 13.06.2015, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2015 ✝ Ásdís Krist-jánsdóttir fæddist í Klambra- seli í Aðaldal 16. júlí 1938. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 3. júní 2015. Foreldrar Ásdís- ar voru Kristján Jó- hannesson bóndi í Klambraseli, f. 29. nóvember 1892, d. 21. júlí 1987, og Kristín Þuríður Þorbergsdóttir húsmóðir, f. 7. janúar 1895, d. 18 ágúst 1977. Systkini Ásdísar eru Sigþór Jó- hannes, f. 7. desember 1920, d. 8. júní 2006, Kristín, f. 24. mars 1922, d. 25. júlí 1942, Sveinbjörn, f. 23. nóvember 1923, Þorbergur, f. 6. júlí 1926, d. 13. mars 2008, Sigurveig, f. 26. nóvember 1928, d. 23. nóvember 2000, Sigríður Kristjana, f. 12. júlí 1930, og Gísli, f. 5. desember 1931. b) Björn Guðberg, f. 23. apríl 2003, og c) Ásgeir Bjartur, f. 31. október 2004. Ásdís og Haraldur bjuggu á Húsavík, fyrst á Túngötu 6, keyptu síðan húsið við Túngötu 17b. Árið 1971 fengu þau lóð við Garðarsbraut 36 til að byggja á og fluttu þar inn árið 1973. Tveimur árum eftir and- lát Haraldar festi Ásdís kaup á helming fasteignar að Skóla- garði 10 af Gunnari Páli Jó- hannessyni og átti þar góða sambúð með honum þar til hann féll frá árið 2012. Síðustu ár ævi sinnar bjó Ásdís í Mið- hvammi, Vallholtsvegi 17. Ás- dís stundaði nám við hús- mæðraskólann á Laugalandi í Eyjafirði. Hún stundaði margs konar vinnu á Húsavík í gegn- um árin auk þess að vera hús- móðir. Til dæmis fiskvinnslu, afgreiðslustörf í versluninni Búrfell, við saumastofuna Prýði, saumastofu sjúkrahúss- ins og Fatahreinsun Húsavíkur. Þá var hún meðlimur í kirkju- kór Húsavíkur árum saman. Útför Ásdísar fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag, 13. júní 2015, kl. 15. Hinn 25. desem- ber 1960 giftist Ás- dís Haraldi Þór- arinssyni, f. 15. apríl 1937, d. 13. ágúst 1990. For- eldrar Haraldar voru Þórarinn Þór- arinsson, f. 22. jan- úar 1911, d. 26. des- ember 1995, og Jóhanna Haralds- dóttir, f. 3. júlí 1900, d. 28. apríl 1983. Ásdís og Haraldur eignuðust tvo syni: 1) Sigþór, f. 7. nóvember 1960, kvæntur Brynju Ragnarsdóttur, f. 18. apríl 1966. Börn þeirra eru a) Heba Karín, f. 29. júlí 1991, b) Haraldur Björn, f. 15. júlí 1994, og c) Ragna Margrét, f. 15. apríl 2000. 2) Kristján Viðar, f. 20. febrúar 1965, kvæntur Hugrúnu Ingu Ingimundardóttur, f. 6. júní 1970. Börn þeirra eru a) Karen Helga, f. 10. mars 1995, Elsku mamma! Það virðist svo stutt síðan þú borðaðir með okkur jólamatinn með þitt fal- lega en hægláta bros á vörum. Þessi stund var svo fjarlæg þá. Þó svo að atvik sem kom upp þá dagana hafi ef til vill gefið vísbendingu um það sem var í vændum var sennilega gott að fáir hafi verið að velta því of mikið fyrir sér. Nú er þessi stund runnin upp. Stundin þeg- ar við þurfum að kveðja. Þó svo að það sé vissulega erfitt og sárt er mér þó efst í huga þakklæti. Þakklæti fyrir að hafa fengið að vera þess heiðurs aðnjótandi að alast upp undir handleiðslu þinni og pabba. Hlýjan og kærleikurinn sem ég og aðrir fjölskyldumeðlimir fengum að njóta var ætíð til staðar. Alveg sama hvað gekk á. Ég er líka þakklátur fyrir það hversu hvetjandi þú varst alla tíð. Svo hvetjandi að sjálfs- traustið gat jafnvel farið með mann lengra en gott þykir. Þú sagðir oft að þú hefðir verið einstaklega heppin með menn- ina í lífi þínu. Það er vafalaust rétt að nokkru leyti. En gæði laða til sín gæði. Ætli þeir blessaðir hafi ekki verið alveg jafn heppnir og þú. Þú varst ein- staklega þægileg í allri um- gengni og ég man hversu stolt- ur ég var þegar ég sá hversu mörg börn á Húsavík kölluðu þig ömmu þau árin er þú vannst við afgreiðslu í Búrfelli. Þá varst þú tæplega orðin nógu gömul til þess að geta verið amma. Börn sjá oft það sem fullorðnir sjá ekki. Sérstaklega þegar kemur að góðmennsku og kærleika. Heimsins þegar hjaðnar rós og hjartað klökknar. Jesús gefðu mér eilíft ljós sem aldrei slökknar. (Höfundur ókunnur) Megi guð fylgja þér hvert sem leið þín liggur nú. Minning þín mun hlýja mér og mínum um ókomin ár. Ég mun leggja mig fram um að kenna afkom- endum mínum allt það góða og fallega sem þú kenndir mér. Kristján Viðar Haraldsson. Ásdís Kristjánsdóttir Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför systur okkar, KRISTÍNAR RUNÓLFSDÓTTUR, Ásbrandsstöðum, Vopnafirði. Sérstakar þakkir til læknishjónanna á Vopnafirði. Guð blessi ykkur öll. . Gunnar Runólfsson, Guðný Runólfsdóttir, Lára Runólfsdóttir, Sigrún Runólfsdóttir, og aðrir aðstandendur. www.uth.is uth@uth.is Stapahrauni 5, Hfj. Sími 565-9775 Frímann s: 897 2468 Hálfdán s: 898-5765 Ragnar s: 772-0800 Ólöf s: 898 3075 ÚTFARARÞJÓNUSTA HAFNAFJARÐAR FRÍMANN & HÁLFDÁN ÚTFARARÞJÓNUSTA Innilegustu þakkir fyrir samúð við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, MARGRÉTAR JÓNSDÓTTUR frá Stapakoti, sem jarðsungin var frá Keflavíkurkirkju 1. maí. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hrafnistu DAS, Hlévangi í Keflavík, fyrir umönnun, alúð og nærgætni. . Guðni Kjartansson, Magnea Erla Ottesen, Lisbeth Thompson, Guðmundur Magnússon, börn og barnabörn. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RAGNHEIÐAR ARNFRÍÐAR ÁSGRÍMSDÓTTUR frá Teigi, Stekkjarholti 24, Akranesi. . Ásbjörn Hagalín Steinarsson, Jóhanna S. Gylfadóttir, Þórunn Úrsúla Steinarsdóttir, Stefán Jónsson, Berglind Steinarsdóttir, Þórólfur H. Jóhannesson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns, föður, afa og langafa, BJÖRGVINS ODDGEIRSSONAR, Ársölum 5, Kópavogi. . Lára Egilsdóttir og fjölskylda. Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát móður okkar, tengdamóður og ömmu, VILBORGAR GUÐJÓNSDÓTTUR frá Oddsstöðum, Vestmannaeyjum, sem lést þann 8. maí. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund fyrir einstaka umhyggju og vinsemd. . Jón Viðar Jónsson, Guðjón Jónsson, Elísabet Jóna Sólbergsdóttir, Sigríður Sía Jónsdóttir, Birgir Karl Knútsson, og ömmubörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýju við andlát og útför yndislegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, VIBEKKU BANG, Hólmagrund 19, Sauðárkróki. Sérstakar þakkir til starfsfólks sjúkrahússins á Sauðárkróki fyrir einstaklega góða umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, . Brynjar Pálsson. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur vináttu og samúð við andlát og útför eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR SIGURMONSSONAR, Grenhóli, Staðarsveit. Sérstakar þakkir til starfsfólks sjúkrahúss Akraness og hjúkrunarþjónustu Karitas. . Jónína Þorgrímssdóttir, Þorgrímur H. Guðmundsson, Erla María Markúsdóttir, Garðar S. Guðmundsson, Kr. Pétrún Gunnarsdóttir, Grétar O. Guðmundsson, Christina Laursen og barnabörn Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför systur okkar, RAGNHILDAR HALLDÓRSDÓTTUR SKEOCH, Mánatúni 4, Reykjavík. . Guðný Ó. Halldórsdóttir, Kristín H. Halldórsdóttir. Þökkum innilega fyrir samúð og hlýhug við andlát eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ÞÓRÐAR ÁRSÆLS ÞÓRÐARSONAR frá Stykkishólmi. . Ólafía Gestsdóttir, Elfa Hauksdóttir, Svanur Steinarsson, Þórður Þórðarson, Sædís Björk Þórðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför okkar elskulegu systur og frænku, ERLU HAFLIÐADÓTTUR frá Ögri við Ísafjarðardjúp, Hátúni 12, Reykjavík. . Lára Hafliðadóttir, Ragnhildur Hafliðadóttir, Helga Sævarsdóttir og aðrir aðstandendur. Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur auðsýnda samúð, hlýhug og sendu kveðjur við andlát okkar ástkæra BENTS BJARNA JÖRGENSEN. . Aðalheiður Jörgensen, Sigurbjartur Halldórsson, Margrét Ragnarsdóttir, Bjartur Freyr Heide Jörgensen, Sigrún Ásta Jörgensen, María Guðrún Nolan, Þorsteinn Böðvarsson, Jóhanna Astrid, Ragnar Aron, Guðrún Jörgensen, Bent Bjarni Jörgensen, Sigrún Á Sigurbjartsdóttir, Halldór Hjartarson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.