Morgunblaðið - 13.06.2015, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2015
Orkuverð skiptir Íslendingamiklu máli og Pétur Blöndal,
framkvæmdastjóri Samáls, gerir
það að umfjöllunarefni í pistli á
mbl.is.
Því er iðulegahaldið fram að
verð á orku til stór-
iðju sé allt of lágt
hér á landi. Pétur
vitnar í skrif grein-
ingarfyrirtækisins
CRU, sem fylgist með orkuverði í
heiminum og orkusamningum hér
landi, en þar segir: „Á fyrsta árs-
fjórðungi 2015, var vegið meðaltal
raforkuverðs sem íslensk álver
greiða, samkvæmt helstu sérfræð-
ingum CRU International, nánast
það sama og meðalverð til frum-
framleiðslu á áli í heiminum, fyrir
utan Kína.“
Pétur bendir einnig á að á síð-ustu tveimur áratugum hafi
orðið gríðarleg verðmætamyndun
í íslenskum orkufyrirtækjum
vegna þess að orkusamningar hafi
verið öllum aðilum hagfelldir.
Þetta hafi leitt til þess að Lands-
virkjun sé nú margfalt verðmætari
en fyrir tæpum áratug og að verð-
mætin hafi að langstærstum hluta
myndast með viðskiptum við álfyr-
irtækin, sem kaupi 75% af orku
Landsvirkjunar.
Fjárhagsstaða Landsvirkjunarhefur batnað hratt og er
sterk og Pétur segir að hún sé
„ein verðmætasta eign íslensku
þjóðarinnar, sem skila mun innan
fárra ára tugum milljarða árlega í
arðgreiðslur án þess það skerði
fjárfestingargetu fyrirtækisins.“
Sumir hafa horn í síðu orkunýt-ingar hér á landi og aðrir vilja
senda orkuna ónotaða úr landi.
Hvort tveggja vekur upp spurn-
ingar í ljósi þeirrar þróunar sem
lýst er hér að ofan.
Pétur Blöndal
Ótvíræð arðsemi
í orkuframleiðslu
STAKSTEINAR
Reykjavíkurborg - skrifstofa eigna og atvinnuþróunar ı Ráðhúsi Reykjavíkur - Tjarnargötu 11 ı www.reykjavik.is/sea ı s. 411 11 11
Reykjavíkurborg tekur brátt yfir húsnæði á Hlemmi og
leitar nú að rekstraraðila til að koma þar á fót veitinga-
og matarmarkaði sem verði opinn alla daga.
Viðskiptavinir eiga að geta notið veitinga á staðnum og
þar verði einnig í boði fjölbreytt úrval matar svo sem
kjöt, fiskur, grænmeti, ávextir auk tengdrar sérvöru á
borð við blóm og kaffi.
Nýr rekstraraðili mun taka þátt í að skipuleggja breyt-
ingar á hlutverki hússins í samvinnu við Reykjavíkurborg.
Hann velur verslanir og veitingastaði til samstarfs, aflar
tilskilinna leyfa, sér um kynningar- og markaðsmál og
annast allan daglegan rekstur hússins, þar með talið
rekstur á salernum og öryggisvörslu.
Vilt þú sjá ummatarmarkað á Hlemmi?R
E
Y
K
J
A
V
ÍK
U
R
B
O
R
G
Umsóknir sendist á netfangið sea@reykjavik.is
í síðasta lagi 6. júlí 2015 ásamt viðskiptaáætlun og
upplýsingum um rekstraraðila.
Við val á rekstraraðila verður lagt til grundvallar
nálgun við hugmyndina, hönnun og útlit, tenging
við anda skipulags á svæðinu, þekking, reynsla og
fjárhagsgeta viðkomandi ásamt viðskiptaáætlun.
Nánari upplýsingar um verkefnið
er að finna á reykjavik.is/leiga
Öflugur rekstraraðili óskast
Veður víða um heim 12.6., kl. 18.00
Reykjavík 9 skýjað
Bolungarvík 6 léttskýjað
Akureyri 6 heiðskírt
Nuuk 2 léttskýjað
Þórshöfn 7 léttskýjað
Ósló 21 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Stokkhólmur 25 heiðskírt
Helsinki 17 heiðskírt
Lúxemborg 23 léttskýjað
Brussel 27 léttskýjað
Dublin 16 skýjað
Glasgow 20 heiðskírt
London 23 heiðskírt
París 22 léttskýjað
Amsterdam 23 heiðskírt
Hamborg 27 heiðskírt
Berlín 26 heiðskírt
Vín 31 léttskýjað
Moskva 20 heiðskírt
Algarve 22 léttskýjað
Madríd 22 léttskýjað
Barcelona 25 léttskýjað
Mallorca 25 léttskýjað
Róm 27 skýjað
Aþena 27 léttskýjað
Winnipeg 25 alskýjað
Montreal 20 skúrir
New York 27 heiðskírt
Chicago 22 alskýjað
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
13. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2:59 23:57
ÍSAFJÖRÐUR 1:33 25:33
SIGLUFJÖRÐUR 1:16 25:16
DJÚPIVOGUR 2:15 23:40
Sigvaldi Arnar Lárusson, lögreglu-
þjónn í Keflavík og göngugarpur,
gengur frá Sauðárkróki til Hofsóss í
dag og klárar þar með göngu sína
sem hófst í Keflavík fyrir rúmri
viku. Kveikjan að göngunni var spá
sem Sigvaldi setti fram um val á
íþróttamanni ársins í fyrra en hann
hét því að ganga til Hofsóss ef spáin
stæðist ekki. Spá Sigvalda rættist
ekki og því hélt hann af stað í lok
síðustu viku. Ferðalagið hefur geng-
ið vel en þegar hann kom að Staðar-
skála voru ökklar hans orðnir bólgn-
ir og þrútnir. „Ég náði þarna einum
hvíldardegi. Ég hef gott fólk á bak
við mig, það er vel hugsað um
mann,“ segir Sigvaldi sem vill nýta
tækifærið og standa við bakið á Um-
hyggju, félagi sem styður við lang-
veik börn. Hann vekur athygli á
styrktarsímanúmerum Umhyggju
þar sem hægt er að styðja starfsemi
félagsins með fjárframlögum.
Göngu lögregluþjóns frá Keflavík til Hofsóss lýkur í dag
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Tilbúinn Sigvaldi ásamt syni sínum áður
en hann lagði af stað í langferðina.