Morgunblaðið - 13.06.2015, Síða 18

Morgunblaðið - 13.06.2015, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2015 Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is Spennandi bókaútgáfa Eigendur Bókaútgáfunnar Sölku hafa ákveðið að selja fyrirtækið eftir 15 ára rekstur. Salka er öðruvísi bókaútgáfa sem leggur áherslu á fjölbreytt verk, ekki síst bækur fyrir konur, handbækur af ýmsu tagi svo sem heilsubækur, hannyrðabækur, ferðabækur og matreiðslubækur. Útgefnir titlar í fyrra voru 30 og á útgáfulista 2015 eru spennandi bækur. Fyrri útgáfubækur gefa einnig ýmsa möguleika til arðbærrar endurnýtingar. Nánari upplýsingar : Gunnar Svavarsson; gunnar@kontakt.is. Sími 4141200 H a u ku r 0 6 .1 5 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hafið er átak bæjaryfirvalda og íbúa til að bæta ásýnd miðbæjar Akraness. Bærinn veitir húseig- endum við tvær götur styrki til að gera við og mála hús sín að utan. Ef vel tekst til er ætlunin að taka aðrar götur fyrir á næstu árum. Sveitarfélög hafa stuðlað með ýmsum hætti að húsverndun og uppgerð gamalla húsa. Bæjar- stjórn Akraness fór nýja leið, að taka fyrir ákveðið svæði og bjóða styrki til að koma ytra byrði sem flestra húsa í betra horf. Í fram- haldi af stefnumörkun núverandi meirihluta var stofnaður sérstakur sjóður til að veita styrki til við- halds fasteigna til að bæta ásýnd ákveðinna svæða í bænum. Regína Ásvaldsdóttir bæjar- stjóri vonast til að með þessari að- ferð sjáist breytingin fyrr en með öðrum aðferðum. „Ef vel gengur munum við færa okkur og taka fyrir önnur svæði í gamla bænum,“ segir Regína. Hvatning til húseigenda Nú hefur verið úthlutað styrkj- um til eigenda 14 húseigna við Skólabraut og Kirkjubraut. Flestir styrkirnir eru 600 þúsund eða 1.200 þúsund, eftir viðhaldsþörf. Gert er ráð fyrir 50% mótframlagi eigenda og er styrkupphæð því aldrei hærri en helmingur af áætl- aðri þörf. Styrkirnir eru að sögn Regínu fyrst og fremst hugsaðir sem hvatning til húseigenda til að bæta útlit húsa sinna. Á þessu svæði eru um 35 eignir. 16 umsóknir bárust og fengu 14 styrki, samtals rúmar 10 milljónir króna. Regína segir að áherslan sé á miðbæinn vegna þess að hann sé sameign íbúanna. Þar séu hátíðir haldnar og flestir sæki þjónustu þangað. Þar séu einnig mörg hús sem liðið hafi fyrir umrót undan- farinna ára. „Brýnt er að bæta ástandið þarna. Við höfum ekki lagastoð til að skikka fólk til að mála eða halda húsum sínum við. Þetta var niðurstaðan. Með því að horfa til miðbæjarins náum við fram ávinn- ingi fyrir alla bæjarbúa,“ segir Regína. Bæta ásýnd miðbæjar Akraness fljótt og vel  Akraneskaupstaður beinir styrkjum í miðbæinn Ljósmynd/Akraneskaupstaður Akratorg Miðbærinn er sameign allra íbúa Akraness og þess vegna er lögð áhersla á að hvetja íbúa til að mála og gera hús sín fín. BÆJARLÍFIÐ Albert Eymundsson Höfn Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur að venju. Á hátíðar- samkomunni voru Sigtryggur Bene- dikts og Haukur Helgi Þorvaldsson heiðraðir fyrir störf sín og þátttöku í sjávarútvegi. Sigtryggur var útgerð- armaður og skipstjóri til margra ára og Haukur Helgi byrjaði ungur til sjós en þjónaði bátaflotanum lengst sem netagerðarmeistari.    Vigur SF 80, nýr sérstaklega velbúinn línubátur, kom í heimahöfn í síðustu viku. Eigandi er samnefnt dótturfyrirtæki Skinneyjar- Þinganess. Báturinn er 29,9 brúttó- tonn, 15 m að lengd og 4,75 m að breidd. Vigur er mjög vel tækjum búinn. Pláss er fyrir 20 tonn af fiski í körum í lest. Krapavél, forkælir og tímastillt blæðikar gera það að verk- um að öll umgengni um fiskinn á eft- ir að gjörbreytast til batnaðar með komu bátsins. Fjórir menn verða í áhöfn bátsins og er skipstjóri Karl Guðni Ólafsson.    Grynnslin, sandrif fyrir utan Hornafjarðarós, hafa gert sjófar- endum erfitt fyrir í siglingum til og frá Höfn. Eins og víða við Suður- ströndina geta þar verið miklir efn- isflutningar á sandi og malarefni vegna öldufars og strauma. Það er eitt stærsta hagsmunamál byggðar- innar í héraðinu að úrbætur fáist á þessum vanda.    Hvalir hafa verið að laumast inn um Ósinn undanfarið sem er ekki al- gengt. Fyrir nokkru urðu menn var- ir við hrefnu innanfjarðar og í vik- unni strandaði hnúfubakur á Austurfjörum. Undanfarin ár hefur óvenju- marga hvali, m.a. búrhvali, rekið á land á Suðausturlandi. Nýsköpunarkeppni grunnskól- anna lauk með lokahófi í Háskól- anum í Reykjavík. Athygli vekur hversu oft Grunnskóli Hornafjarðar og einstaka nemendur hans hafa hlotið viðurkenningar fyrir góðar hugmyndir á undanförnum árum. Að þessu sinni hreppti skólinn far- andbikar smærri skóla fyrir að senda hlutfallslega flestar hug- myndir í keppnina. Einn nemandi skólans, Birkir Þór Ingólfsson, fékk sérstaka við- urkenningu fyrir bestu kynningu á verkefni sínu sem var koddadagbók, sambland af kodda og dagbók. Humarhátíðin verður dagana 26.-28. júní nk. Sérstaða hátíðar- innar felst í að áhersla er lögð á humarinn enda gjöfulustu humar- mið landsins fyrir Suðausturlandi. Fastir liðir eru m.a. að heima- menn bjóða gestum í humarsúpu í heimahúsum, barnadagskrá, þjóða- kvöld kvennakórsins, gömlu- dansaball karlakórsins, kúadellu- lottó, heimsmetstilraun í gerð lengstu humarlokunnar, heims- meistaramót í Hornafjarðarmanna, kassabílarall auk stórdansleikja, tónleika, skemmtidagskrár o.fl. Morgunblaðið/Maríus Sævarsson Heiðraðir Sigtryggur Benediktsson og Haukur Helgi Þorvaldsson voru heiðraðir á sjómannadaginn. Haukur Helgi setti upp sparisjóhattinn. Nýr bátur til Hornafjarðar Bjarni Steinar Ottósson bso@mbl.is Brautskráning nemenda fer fram í dag frá Háskólanum á Akureyri og á Bifröst. Frá Akureyri útskrifast 322 nemendur, 232 úr grunnnámi og 90 úr framhaldsnámi. Frá Bifröst út- skrifast svo 41 háskólanemi, 23 úr grunnnámi og 18 framhaldsnemar. Hjá báðum skólum er hægt að merkja fækkun útskriftarnema frá meðaltali síðustu ára en greina má mikla aukningu í aðsókn að skólun- um í kjölfar bankahrunsins og hafa þeir árgangar nýnema nú að mestu verið útskrifaðir. Rekja má því fækkunina til þess að horfið sé aftur í eðlilegra ástand samhliða því að efnahagslífið hefur tekið við sér. Athöfn Háskólans á Akureyri hefst kl. 11 og fer fram í húsnæði skólans. Beint verður sýnt frá at- höfninni á vefnum www.n4.is en Vig- dís Finnbogadóttir verður sérstakur heiðursgestur. Tuttugu útskrifast frá auðlinda- deild, 70 frá félagsvísindadeild og þar af 46 úr sálfræði, 48 úr hjúkr- unarfræði, 18 úr iðjuþjálfun, 80 úr kennarafræðum og þar af 63 úr meistaranámi. Sextán útskrifast úr lagadeild, jafnt skipt milli grunn- og framhaldsnáms, og 53 viðskipta- fræðinemar úr grunnnámi auk eins úr framhaldsnámi. Athöfn Háskólans á Bifröst hefst kl. 14 og verða sex nemendur út- skrifaðir frá félagsvísindasviði og fimm úr lögfræði en frá hvoru svið- anna er einungis einn útskrifaður úr grunnnámi nú. Þrjátíu útskrifast frá viðskiptasviði, 21 af þeim úr grunn- námi. Einnig verður útskrifað úr há- skólagátt skólans en þaðan verða brautskráðir 78 nemendur og sí- menntunarnámi í verslunarstjórnun þaðan sem fimm útskrifast. Í samanburði á tölum frá Bifröst og Akureyri þarf að hafa í huga að Bifröst hefur þegar útskrifað einu sinni í ár en á Akureyri er einungis brautskráð í júní. Sextíu og tveir út- skrifuðust úr háskólanámi frá Bif- röst í febrúar. Tölur liggja ekki fyrir enn um fjölda útskrifaðra frá HÍ og HR. Færri útskrifast á Bifröst og hjá HA  Fjölgun nemenda eftir hrun að ganga til baka  Brautskráningar hefjast í dag Ljósmynd/SteinarH HA Vigdís Finnbogadóttir verður viðstödd brautskráninguna. Brautskráningar » Meðalfjöldi útskrifaðra frá HA á árunum 2007-2014 er 346 en 322 útskrifast nú. 426 útskrifuðust 2011. » Meðalfjöldi frá Bifröst á timabilinu er 145 og 103 hafa útskrifast í ár. 179 útskrifuðust árið 2011. » Aukningin sem fylgdi eftir- hrunsárunum virðist vera að ganga til baka.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.