Morgunblaðið - 13.06.2015, Síða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2015
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Önnumst alla þætti útfararinnar með virðingu að leiðarljósi
Minn hinsti vilji · Erfðaskrár · Kaupmálar · Dánarbússkipti · Reiknivélar · Minningarsíður
Vesturhlíð 2 · Fossvogi · Sími 511 1266 · utfor.is · Við þjónum allan sólarhringinn
Við kynnum nýja
þjónustuþætti
Kynnið ykkur nýja heimasíðu – www.utfor.is
Nýlega hafa verið stofnuð mörg
svokölluð öldungaráð innan sveit-
arfélaga landsins þar sem eldri
borgarar í sveitarfélaginu geta
komið málum sínum á framfæri við
sveitastjórnir. Slíkt ráð hefur verið
lengi í Hafnarfirði en Lands-
samband eldri borgara hefur gert
það að áherslumáli að efla þetta
formlega samstarf við sveitar-
félögin víðar.
Sveitarfélögin sinna margþættri
þjónustu við eldri borgara og þó
Landssambandið hafi formlega ráð-
gefandi stöðu innan velferðarráðu-
neytisins hefur þótt skorta á þenn-
an samstarfsflöt innan sveitar-
félaganna.
Ráðin sækja fyrirmynd sína til
Norðurlandanna en þar hefur
myndast hefð fyrir þeim. Öldung-
aráð eru starfandi í hátt í tíu sveit-
arfélögum, þ.á m. í Reykjavík, en
þar var fyrsti fundur ráðsins hald-
inn í mars síðastliðnum en unnið er
að stofnun samskonar ráða víðar á
landinu. Skipulagi ráðanna er hátt-
að eftir atvikum í hverju sveitarfé-
lagi en til dæmis er sameiginlegt
ráð á Suðurnesjum fyrir öll bæjar-
félögin þar.
Haukur Ingibergsson, formaður
Landssambands eldri borgara, seg-
ir ráðin vera „eflingu beins lýðræð-
is og mikilvægur samvinnu- og
samskiptagrundvöllur milli eldri
borgara og sveitarfélaganna. Með
þessu fyrirkomulagi geti kjörnir
fulltrúar sest niður með fulltrúum
eldri borgara einhver skipti á ári
og átt bein samskipti um það sem
skiptir þá máli.“ Ráðin séu ekki
stofnuð sem viðbrögð við einstöku
máli en þegar hafi náðst árangur af
samstarfinu, meðal annars hvað
varðar gæði matarþjónustu, aðstoð
í heimahúsum og samgöngumál.
bso@mbl.is
Samstarf aldraðra og sveitarfélaga eflt
Morgunblaðið/Ómar
Öldungaráð Dansað á góðri stund.
„Mér sýnist stað-
an vera sú að við
séum nokkurn
veginn á pari.
Vonandi erum
við að ná þeim
umskiptum sem
þarf en það getur
alltaf eitthvað
óvænt komið
upp,“ segir
Kristín Björg Al-
bertsdóttir, forstjóri Heilbrigðis-
stofnunar Austurlands, HSA.
Fram kom í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar að HSA hafi um árabil
glímt við alvarlegan rekstrar-
vanda. Í lok síðasta árs nam upp-
safnaður rekstrarhalli um 278
milljónum og hvatti Ríkisendur-
skoðun velferðarráðuneytið og
stjórnendur til að taka á vandanum.
Kristín Björg segir að stofnunin
reyni að bregðast við þessum
vanda. Það sé fyrst og fremst gert
með því að halda rekstrinum innan
fjárlaga og vonandi skila örlitlum
afgangi upp í uppsafnaðan halla.
„Það er ekki raunhæft að við náum
að greiða hallann upp á næstu ár-
um,“ segir Kristín.
Hún tekur fram að lítið megi út
af bregða í rekstrinum. Til dæmis
séu allir kjarasamningar lausir.
Vitað er að þeir verði stofnuninni
dýrir þegar stofnanasamningar
fylgi í kjölfarið. helgi@mbl.is
Ekki raunhæft að
greiða halla HSA
upp á fáum árum
Kristín Björg
Albertsdóttir
Geysisdagurinn verður haldinn há-
tíðlegur í fimmta sinn í dag, laugar-
dag. Klúbburinn Geysir stendur
fyrir deginum, en Geysir er fyrir
fólk sem á eða átt hefur við geðræn
veikindi að stríða.
Dagskráin, sem stendur frá
klukkan 11 til 15, verður í húsnæði
Geysis, Skipholti 29 í Reykjavík.
Geysisdagurinn er fjáröflunar-,
skemmti- og fjölskyldudagur. Með-
al annars verður keppt í 92 metra
löngu „örþoni“ með frjálsri aðferð,
sem Adolf Ingi Erlingsson útvarps-
maður ræsir. Hljómsveitin Lily of
the Valley, Svavar Knútur og Pete
Uhlenbruch flytja tónlist og hús-
band klúbbsins, Keli og kiðling-
arnir, leikur. Veitingar verða seld-
ar til styrktar Geysi.
Örþon með frjálsri
aðferð á Geysisdegi
Í vikunni var efnt til fundar í
Þorlákshöfn um Kambinn, sem er
hár sjávarkambur milli Óseyrar-
brúar og Þorlákshafnar. Á liðn-
um árum hafa myndast skörð í
Kambinn og sandurinn á greiða
leið í gegnum þau, en vind-
styrkur í þessum skörðum er oft
gríðarlega mikill. Ef svo fer sem
horfir munu skörðin stækka og
þar með eykst sandfok á þjóðveg-
inum og ljóst er að vandamál
munu koma upp vegna raflínu,
sem er á Kambinum, segir á
heimasíðu Landgræðslunnar.
Aukinn sandburður frá strönd-
inni sem fýkur yfir Kambinn mun
valda miklum vanda á golfvell-
inum sem er í næsta nágrenni.
Melgrasið á erfitt með að skjóta
rótum efst í Kambinum og hamla
því að sandurinn berist ekki inn á
landið – og nóg er af honum á
ströndinni, eins og segir á vefn-
um.
Á fundinum var rætt um hvaða
leiðir eru færar til að koma í veg
fyrir að sandurinn geri þann
óskunda sem að framan er lýst.
Ákveðið var að stofna samráðs-
hóp hlutaðeigandi aðila til að
vinna í málinu. Fundinn sátu full-
trúar Landgræðslunnar, Vega-
gerðarinnar og landeigenda auk
starfsmanna sveitarfélagsins Ölf-
uss og fulltrúa úr bæjarstjórn og
bæjarráði.
Skörð í sjávarkambi
skapa vandamál