Morgunblaðið - 13.06.2015, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 13.06.2015, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2015 ákaflega breytilegt. Það einkennist mest af vorflóðum, jökulrennsli að hausti og snöggum en óreglulegum leysingum yfir vetrarmánuðina. Vatnsborð Þórisvatns fór að hækka eftir 22. maí í vor. Í fyrra varð vatnsborð þess lægst hinn 4. apríl. Samkvæmt meðalgildi áranna 2002 til 2014 var vatnsborðið lægst 31. mars á því árabili. Landsvirkjun segir að lónferill Þórisvatns sé mjög tengdur vatnafari hverju sinni en innrennsli til lónsins er nokkuð breytilegt. Það einkennist helst af stöðugu grunnrennsli, vorflóðum og jökulrennsli að hausti. Vatnsnotkun virkjananna hefur vitaskuld einnig áhrif á lónhæðina þannig að fleira en leysingar og úr- koma ráða því á endanum hvað hátt er í lónunum hverju sinni. um sem sýna hæðir Blöndulóns og Þórisvatns. Hækka tók í Blöndulóni mun seinna í vor en í fyrra. Nú fór aftur að hækka í lóninu í kringum 11.-12. maí en í fyrra fór að bætast í lónið hinn 6. apríl. Samkvæmt með- altali áranna 1997 til 2014 hefur lón- ið tekið að vaxa hinn 8. apríl á und- anförnum árum. Tekið er fram á síðu Landsvirkj- unar að innrennsli í Blöndulón sé Guðni Einarsson gudni@mbl.is Leysingar eru byrjaðar á hálendinu en þar snjóaði víða mikið í vetur. Vel sést á myndunum sem teknar voru fyrir um tveimur vikum hve mikill snjór var í Landmannalaugum og þar í kring. Mikill snjór er á sunnan- verðu hálendinu og það hefur sett strik í reikning ferðaþjónustunnar sem var búin að skipuleggja m.a. gönguferðir um Laugaveginn sem áttu að hefjast á mánudaginn kem- ur. Ástandið nú minnir á fyrri ár þegar snjóaði fyrir alvöru á fjöllum. Vegurinn inn í Landmannalaugar hefur verið lokaður líkt og fleiri há- lendisleiðir. Vegagerðin skoðaði fyr- ir helgina með að opna hluta leiðar- innar. Í gær fóru vegagerðarmenn á vélsleðum að kanna aðstæður. Leið- in verður ekki opnuð fyrir almenn- ingi fyrst um sinn heldur einungis fyrir rétt útbúnum bílum sem þurfa að lúta ströngum skilyrðum, að sögn Vegagerðarinnar. Ljóst er að það tekur marga daga að opna leiðina fyrir þessa takmörkuðu umferð. Vegagerðarmenn fóru á miðviku- dag inn að Hnausapolli, sem er um 7 km norðan við skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum. Þar var þá allt í bláma og mikið vatn. Farið að hækka í lónunum Vatnsbúskapur Landsvirkjunar var mikið betri í vetur sem leið en í fyrravetur, samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun. Það má þakka því að milt var og vætusamt fram eftir síðasta hausti. Þess vegna var meira vatn í miðlunarlónunum í vetur en í fyrravetur. Kuldatíðin í vor olli því að vorleys- ingar byrjuðu seint og vorflóða hef- ur ekki gætt svo neinu nemi. Þess vegna er lítið farið að safnast í miðl- unarlónin fyrir næsta vetur miðað við það sem menn þekkja á sama árstíma frá undanförnum árum. „Tiltölulega mikill snjór er á há- lendinu, þannig að reiknað er með talsverðum vorleysingum þegar þær hefjast. Jökulbráðnun hefst síðan venjulega í byrjun júlí og ræðst end- anleg fylling miðlunarlóna af því hversu mikil hún verður,“ segir í svari Landsvirkjunar við fyrirspurn Morgunblaðsins um stöðu vatnsbú- skapar fyrirtækisins. Enn er verið að nota vatn úr miðl- un Hálslóns sem sér Fljótsdals- virkjun fyrir vatni. Lónhæð Háls- lóns er mjög tengd vatnafari en innrennsli til lónsins er ákaflega breytilegt að milli ára, að sögn Landsvirkjunar. Samkvæmt línuriti um vatnshæð Hálslóns, sem sjá má á heimasíðu Landsvirkjunar, var vatnshæð lóns- ins 579,449 metrar yfir sjávarmáli (m.y.s.) á fimmtudag. Um óyfir- farnar mæliniðurstöður er að ræða. Vatnshæðin var aðeins farin að stíga eftir að hafa náð lágmarki hinn 8. júní síðastliðinn en þá mældist hún vera 579,224 m.y.s. Á síðasta vatns- ári voru leysingar hafnar af krafti á þessum tíma. Árið 2014 var vatns- borð Hálslóns lægst hinn 27. maí þegar það var 567,921 m.y.s. Sam- kvæmt áætluðu meðaltali áranna 2008-2014 náði vatnshæð lónsins lægstu stöðu að meðaltali hinn 26. maí á því árabili. Það má því segja að leysingarnar séu nú um hálfum mán- uði seinna á ferðinni þar fyrir austan en undanfarin ár. Sömu sögu er að segja af línurit- Morgunblaðið/RAX Landmannalaugar að vetri Horft er inn eftir Jökulgili og Norðurbarmur er fyrir miðri mynd. Neðst til hægri sjást skálar Ferðafélags Íslands. Gríðarmikill snjór hefur verið á þessum slóðum. Leysingar eru byrjaðar á hálendinu  Gríðarmikill snjór féll á sunnanverðu hálendinu í vetur  Vegagerðin er að athuga opnun leið- arinnar í Landmannalaugar  Farið er að hækka í virkjanalónum Landsvirkjunar eftir veturinn Háifoss í Þjórsárdal Innst í Þjórsárdal er Fossárdalur og þar fellur Háifoss sem líklega er þriðji hæsti foss lands- ins. Vatnið fossaði fram af brúninni og vatnsúðinn hafði frosið og myndað klakabrynju þegar myndin var tekin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.