Morgunblaðið - 13.06.2015, Síða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2015
STUTTAR FRÉTTIR
● Framlagning aðgerðaráætlunar til los-
unar fjármagnshafta er jákvæð fyrir
lánshæfi Íslands, að því er fram kemur í
tilkynningu alþjóðlega matsfyrirtækisins
Fitch Ratings í gær. Áhrif áætlunarinnar
á BBB lánshæfiseinkunn Íslands hjá
Fitch munu hins vegar ráðast af því
hvernig til tekst við að skapa stöðugleika
í peninga- og gjaldeyrismálum við fram-
kvæmd áætlunarinnar á komandi mán-
uðum. Fitch bendir á að jafnvel vel út-
hugsuð áætlun um losun fjármagnshafta
felur í sér umtalsverða áhættu, þar sem
skyndilegt útstreymi mikils fjármagns
getur leitt til óstöðugs gengis og valdið
þrýstingi á innflutningsverð og greiðslu-
jöfnuð. Þá kunni erlendar fjárfestingar
lífeyrissjóða og fyrirtækja að setja þrýst-
ing á gengi krónunnar til lækkunar. Á
hinn bóginn mun losun hafta bæta
rekstrarumhverfi fyrirtækja, auk þess
sem nauðasamningar slitabúa fallinna
fjármálafyrirtækja munu bæta erlenda
stöðu þjóðarbúsins verulega. Þá ætti
framkvæmd áætlunarinnar að styðja
verulega við ríkisfjármálin, hvort sem um
verður að ræða nauðasamninga eða
stöðugleikaskatt.
Fitch hækkar ekki lánshæfiseinkunnina að sinni
Undirrituð hefur verið viljayfirlýs-
ing um samruna Fjarðalax og Arctic
Fish. Í samtali við Sigurð Pétursson,
framkvæmdastjóra Arctic Fish,
kemur fram að mjög náið samstarf
hafi verið á milli fyrirtækjanna frá
upphafi. „Þetta eru tvö stærstu fyr-
irtækin í sjófiskeldi á Vestfjörðum
en við höfum þó byggt upp fyrirtæk-
in á ólíkan hátt. Arctic Fish leggur
mikla áherslu á annars vegar seiða-
eldið og hins vegar á virðisaukandi
framleiðslu. Fjarðalax hefur lagt
meiri áherslu á mun hraðari og betri
uppbyggingu á sjóeldishlutanum hjá
sér.“
Sigurður segir að eigendur og
stjórnendur fyrirtækjanna sjái mikil
tækifæri þar sem þessi tvö fyrirtæki
hafi hvort um sig byggt sig ólíkt upp
en séu að vinna á sama svæði. „Við
gætum hugsanlega sameinað krafta
okkar og orðið í raun enn sterkari
saman en í sitt hvoru lagi.“
Hann segir að viðræðurnar séu
rétt að hefjast, starfsfólki hafi verið
kynnt áformin og að sumarið verði
notað til að meta hvort það séu fletir
á nánari samstarfi en fyrirtækin eru
nú þegar í, með samruna í huga.
Arctic Fish er með starfsemi á
nokkrum stöðum á Vestfjörðum og
víðar, en fyrirtækið hyggst taka í
gagnið nýja seiðaeldisstöð í botni
Tálknafjarðar innan skamms.
Fjarðalax er með sína meginstarf-
semi í Tálknafirði en vörur Fjarðalax
eru seldar undir vörumerkinu Arctic
Salmon. margret@mbl.is
Áform um sam-
runa í laxeldi
Fjarðalax og
Arctic Fish gætu
orðið eitt
Laxeldi Samruni Fjarðalax og
Arctic Fish stendur fyrir dyrum.
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Greiningardeildir bankanna hafa all-
ar birt verðbólguspá sína fyrir júní-
mánuð og gera þær ráð fyrir að árs-
verðbólgan verði á svipuðum slóðum
og í síðasta mánuði. Þannig spá Arion
banki og Íslandsbanki því að hún
verði áfram 1,6% og að vísitala
neysluverðs hækki um 0,3% milli
mánaða. Landsbankinn gerir ráð fyr-
ir meiri hækkun vísitölunnar eða
0,4% og að vegna þeirrar hækkunar
muni verðbólgan fara í 1,7%.
Daníel Svavarsson, forstöðumaður
hagfræðideildar Landsbankans, seg-
ir að þeir geri ráð fyrir meiri hækkun
flugfargjalda til útlanda í mánuðinum
og sömuleiðis að matur og drykkjar-
vara hækki nokkuð. Hann bendir
einnig á að húsnæðisliður vísitölunn-
ar sé mjög illlæsilegur en að það skýr-
ist af því að engum kaupsamningum
hefur verið þinglýst á höfuðborgar-
svæðinu frá því í byrjun aprílmánaðar
eftir að verkfall lögfræðinga við emb-
ætti Sýslumannsins í Reykjavík fóru í
verkfall.
Verkfallslok hafa áhrif
Greiningaraðilar telja almennt að
spár bankanna þriggja sem allar gera
ráð fyrir 0,03% áhrifum húsnæðislið-
arins til hækkunar vísitölunnar sé
varlega áætlaður og að líkur standi til
að nokkur hækkun geti komið úr
þeirri áttinni inn í vísitöluna nú þegar
lög hafa verið sett á verkfall og þing-
lýsingar komast smám saman í eðli-
legt horf. „Það er mikil óvissa með
húsnæðisliðinn í spánni. Alla jafna
miðar Hagstofan við þriggja mánaða
meðaltal en nú er svo komið að þeir
geta aðeins miðað við einn mánuð,
það er síðastliðinn marsmánuð.
Hækkun fasteignamats um daginn
gæti haft áhrif til hækkana á mark-
aðnum. Ef hækkanir hafa orðið frá
því að verkfall skall á má búast við því
að áhrif húsnæðisliðs vísitölunnar
geti tekið nokkurt stökk upp á við,“
segir Daníel.
Í spá Arion banka er birt áhuga-
verð nálgun á fyrri reynslu Íslend-
inga af launahækkunum og áhrifum
þeirra á verðbólguþróun. Þar er litið
sérstaklega til áranna 1999-2002,
2003-2007 og 2011-2012. Þar sést að
ársbreyting launa hefur gjarnan far-
ið úr 4% og upp í 10%, þ.e. verulega
yfir það svigrúm sem verðbólgu-
markmið Seðlabankans leyfir. Við
það hefur einatt myndast verðbólgu-
þrýstingur þar sem ársveðbólgan
hækkar í 6-9%.
Áhrif haftaáætlunar hverfandi
Verðbólguspárnar fjalla afar tak-
markað um þau áhrif sem haftaáætl-
un ríkisstjórnarinnar muni hafa á
efnahagslífið. Verður það að teljast
sérstakt í ljósi þess hversu mikið um-
fang aðgerðanna er, hvort sem leið
stöðugleikaframlags eða stöðugleika-
skatts verði ofan á. Þó bendir Íslands-
banki á að búast megi við meira flökti
á gengi krónunnar þegar höftum
verði aflétt. Þá segir Daníel í samtali
við Morgunblaðið að mikil óvissa ríki
um útfærslu aðgerðanna og einnig sé
langt í að þeir fjármunir sem þær eigi
að skila komist í hendur ríkissjóðs.
„Skatturinn á ekki að koma til
greiðslu fyrr en í apríl á næsta ári. Ef
stöðugleikaframlagið verður að veru-
leika þá mun það ekki koma til
greiðslu fyrr en upp úr áramótum og
þá er einnig óljóst hvernig greiðslun-
um verður háttað. Það er ekki nema
að ríkið fari að eyða þessum fjármun-
um fyrirfram eða að ráðist verði í ein-
hverjar meiriháttar framkvæmdir
sem að áhrifa þessara aðgerða fari að
gæta á hagkerfið,“ segir hann.
Spá verðbólgu yfir 3%
áður en árið er á enda
Húsnæðisliðurinn hækkar nú við lok verkfallsaðgerða
Verðbólga Hækkun húsnæðisverðs hefur drifið verðbólguna áfram síðasta
árið en hún mældist 0,8% á síðasta ári. Án húsnæðis mældist verðhjöðnun.
Morgunblaðið/RAX
Staðan í árslok
» Íslandsbanki spáir því að
verðbólgan verði komin í 3,1%
í árslok og standi í 3,7% í árs-
lok 2017.
» Landsbankinn telur að verð-
bólgan í árslok verði um 4%.
» Arionbanki telur, líkt og Ís-
landsbanki að verðbólgan
skríði yfir 3% um áramót.
!"
""
"
#
!$
#%
#""
"#
%
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
"
$"
#"
%%
#
!
%%
#!
"!
"$
!
"!
%%!
# "
!#"
$%
#$#
"!##
"%
%#"
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á ● Eva Sóley Guð-
björnsdóttir hefur
verið ráðin fjár-
málastjóri Advania
á Íslandi frá og með
1. júlí. Eva Sóley
hefur undanfarið ár
gegnt starfi for-
stöðumanns á fjár-
málasviði hjá Öss-
uri, en starfaði áður
lengst af hjá Kaupþingi, m.a. í fjárstýr-
ingu, fjármögnun, á fyrirtækjasviði og í
fyrirtækjaráðgjöf og síðast í stöðu fjár-
málastjóra frá árinu 2009 til 2011. Eva
Sóley hefur verið varaformaður banka-
ráðs Landsbankans frá árinu 2013.
Eva Sóley verður fjár-
málastjóri Advania
Eva Sóley
Guðbjörnsdóttir
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
• Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
• Hnoðar deig
• Býr til heita súpu og ís
• Uppskriftarbók og
DVD diskur
fylgja með
Lífstíðareign!
Tilboðsverð kr. 109.990
Með fylgir Vitamix sleif
drykkjarmál og svunta
Fullt verð kr. 137.489
Meira en bara
blandari!
HLJÓMSÝN kynnir:
Ármúla 38 | Sími 588 5010
hljomsyn.com
HLJÓMSÝN
mbl.is
alltaf - allstaðar