Morgunblaðið - 13.06.2015, Page 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2015
Jóhann Hjartarson er efsturíslensku skákmannannasem taka þátt í opna mótinuá Sardiníu sem nú stendur
yfir. Eftir sjö umferðir er Jóhann
með 5 vinninga og er í 4.-7. sæti en
Friðrik Ólafsson kemur næstur ís-
lensku skákmannanna eftir auðveld-
an 29 leikja sigur í 7. umferð með
4½ vinning. Hann er í 8.-20. sæti.
Friðrik hafði orð á því eftir hina
glæsilegu vinningsskák sem hann
tefldi á mánudaginn og birtist hér í
blaðinu á miðvikudaginn, að aldrei
fyrr hefði hann tekið þátt í skák-
móti þar sem skákmaður tefldi tvær
skákir sama daginn en sl. þriðjudag
voru tvær umferðir á dagskrá.
Hann tefldi hinsvegar í fjölmörgum
mótum þar sem fleiri en ein og fleiri
en tvær biðskákir voru til lykta
leiddar samdægurs, en skákir eru
ekki lengur settar í bið nú til dags.
Margeir Pétursson, Áskell Örn
Kárason og Loftur Baldvinsson eru
með 4 vinninga í 21.-46. sæti.
Yngsta kynslóðin hefur staðið sig
vel og er að ná árangri langt um-
fram ætlaða frammistöðu. Svo
dæmi séu tekin þá er Heimir Páll
Ragnarsson með árangur upp á
1.915 elo-stig, Veronika Steinunn
Magnúsdóttir með árangur upp á
tæplega 1.900 elo-stig og Óskar
Víkingur er með árangur upp á tæp
1.800 elo-stig.
Íslensku þátttakendurnir eru 16
talsins af samtals 124 keppendum.
Því er alltaf sá möguleiki fyrir
hendi að þeir mætist innbyrðis.
Þannig drógust Jóhann Hjartarson
og Margeir Pétursson saman í 6.
umferð, gerðu stutt jafntefli og rifj-
uðu í leiðinni upp fjórðu einvíg-
isskák Tigrans Petrosjans og
Bobby Fischers frá Buenos Aires
1971.
Á fimmtudaginn tefldu svo Áskell
Örn Kárason og Jóhann Hjart-
arson. Áskell, sem var farsæll for-
seti SÍ um skeið, og ágætur skák-
kennari, hefur undanfarið verið að
bæta sig heilmikið sem skákmaður
eins og fram kom á síðasta Reykja-
víkurskákmóti. Hann hefur yfirleitt
verið sterkur í byrjunum en á það
til að vera fullhvatvís í flóknum
stöðum. Þar sem mótshaldarinn í
Sardiníu stendur fyrir beinum út-
sendingum af helstu skák hverrar
umferðar beið greinarhöfundur
þessarar skákar með nokkurri eft-
irvæntingu. Jóhann var öruggið
uppmálað og þekking Áskels ekki
nægilega djúp að þessu sinni.
Áskell Örn Kárason – Jóhann
Hjartarson
Enskur leikur
1. Rf3 Rf6 2. c4 b6 3. g3 c5 4.
Bg2 Bb7 5. 0-0 g6 6. d4 cxd4 7.
Dxd4 g6 8. Rc3 d6 9. Hd1 Rbd7 10.
Be3 0-0 11. Dh4 Hc8 12. Hac1 a6
13. b3 He8 14. g4!?
Hafi þetta átt að vera sókn-
arleikur er ekki alveg ljóst hverju
hvítur er að slægjast eftir. Staðan
hefur margoft komið upp og algeng-
ustu leikir hvíts eru 14. Bh3 og 14.
Bh6.
14. … b5 15. g5
Eftir 15. cxb5 sem kann að vera
besti leikur hvítur getur svartur
valið á milli þess að leika
15. …Rxg4 og 15. …. Da5.
15. … Rh5 16. Rd5 bxc4 17. Hxc4
e6 18. Hxc8 Dxc8 19. Hc1 Db8 20.
Da4?
Eftir þennan ónákvæma leik hall-
ar snögglega undan fæti. Hvítur
áttu tvo frambærilega leiki, 20. Rb4
eða 20. Rf4 með jafnri stöðu.
20. … Rc5!
Krókur á móti bragði.
21. Bxc5 dxc5 22. Rc7?
Tapar strax. Hvítur gat barist
áfram með 22. Re3.
22. … Hc8 23. Rxa6 Dd6!
Fangar riddarann.
24. Rb4 Rf4
24. … cxb4 25. Hxc8+ Bxc8 26.
De8+ Df8 vinnur einnig.
25. Db5 cxb4
– og Áskell gafst upp.
Jóhann efstur Íslending-
anna á Sardiníu
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Til sölu eða leigu stórglæsilegt fullbúið 131 m2 iðnaðarhúsnæði
Stór innkeyrsluhurð, um 7 m lofthæð, þjófavörn.
Á sama stað er til sölu Corvetta árg ´94 og Kavazaki Vulcan 2,1 árg ´07
Jón Egilsson, hrl. sími 896 3677 og 568 3737
Lækjarmelur 12 - Esjumelum
Reykjavíkurborg - skrifstofa eigna og atvinnuþróunar ı Ráðhúsi Reykjavíkur - Tjarnargötu 11 ı www.reykjavik.is/sea ı s. 411 11 11
Tækifæri fyrir verslun
og veitingar íMjódd
Öflugur rekstraraðili óskast
R
E
Y
K
J
A
V
ÍK
U
R
B
O
R
G
Reykjavíkurborg tekur brátt yfir húsnæði Strætó í Mjódd
og leitar að rekstraraðila til samstarfs. Nýr rekstraraðili
mun taka þátt í að skipuleggja breytingar á hlutverki
húsnæðisins í samvinnu við Reykjavíkurborg og núverandi
rekstraraðila í Mjódd. Hann velur verslanir og veitingastaði
til samstarfs, aflar tilskilinna leyfa, sér um kynningar- og
markaðsmál og annast allan daglegan rekstur hússins, þar
með talið rekstur á salernum og öryggisvörslu.
Í Mjódd er áhugavert tækifæri fyrir veitingarekstur sem fer
vel með hlutverki húsnæðisins sem þjónustustöð Strætó.
Stöðin gegnir mikilvægu hlutverki innan leiðarkerfis Strætó
og fara yfir 3.000 manns um hana daglega. Gert er ráð fyrir
því að staðurinn auki fjölbreytni þjónustu í nærumhverfi
hans og dragi til sín fólk og verði öllum opinn.
Áhugasamir sendi umsókn á netfangið sea@reykjavik.is
í síðasta lagi 6. júlí 2015 ásamt hugmyndum um reksturinn,
viðskiptaáætlun og upplýsingum um rekstraraðila.
Við val á rekstraraðila verða nýnæmi hugmyndar, hönnun
og útlit, tenging við anda skipulags á svæðinu, þekking,
reynsla og fjárhagsgeta hans ásamt viðskiptahugmynd
metin.
Nánari upplýsingar um verkefnið
er að finna á reykjavik.is/leiga
Góðan daginn,
Sindri Einarsson hér.
Ég er flokksbundinn
sjálfstæðismaður og
hef ávallt verið það.
Það verður hins veg-
ar að taka það fram
að nokkur atriði eru
til skammar og
flokknum til óvin-
sælda. Hlutir sem
hægt er að leysa og
það með tiltölulega
einföldum hætti. Í fyrsta lagi má
nefna verkföll þau sem eru hjá op-
inberum starfsmönnum. Það er til
háborinnar skammar og lítilsvirð-
ingar hjá heilbrigðisstéttum að
lama starfsemi spítalanna. Um er
að ræða sameiginlegar aðgerðir að
yfirlögðu ráði sem kæmi mér ekki
á óvart að „hægt væri að túlka
sem skipulagða glæpastarfsemi“.
Ég fer þess á leit við yfirmenn
ríkisstjórnarflokkanna að setja lög
á öll verkföll sem tengjast spítöl-
unum. Ef starfsmenn þeirra halda
áfram að ætlast til þess að nám sé
metið til launa er það lágkúrulegt.
Það eru forréttindi að fá yfirhöfuð
að læra æðra nám (háskólanám).
Vissulega er það erfitt og mikil yf-
irlega að standast þær kröfur sem
lagðar eru á nemendur þeirra
stofnana. Fólk þarf að borga af
námslánum og oft að sjá fyrir fjöl-
skyldum. Auðvitað væri æskilegt
að það borgi sig fjárhagslega að
fara í nám. En það er einfaldlega
svo að sumt háskólanám dugar
ekki eitt og sér til atvinnuréttinda.
Það má nefna mannfræði, þjóð-
fræði, o.fl. nám sem gefur ekki at-
vinnuréttindi nema lært sé auka-
lega, kennsluréttindi eða eitthvað
annað sem skiptir máli. Ég skil því
kröfur þessa fólks. En enn og aft-
ur, nám er forréttindi, það er ekki
sjálfgefið að fólk öðlist háskóla-
próf. Víða erlendis eru sett tak-
mörk af námsstofnunum hversu
margir komist í háskólanám, tak-
mörk eru sett hérlendis á sumar
greinar, þar má nefna læknisfræði.
En skelfilega á það fólk bágt
sem auk þess að hafa staðist til-
tekið nám, heimtar að græða pen-
inga á því. Peningar skapa oft
vandræði, hvort sem um er að
ræða skort, ríkidæmi, að ekki sé
talað um þá glæpi sem peningar
oft valda. Það er einmitt glæpa-
starfsemi út af fjárhagskröggum
þar sem nauðsynlegustu stofn-
unum landsins er haldið í gíslingu
eingöngu út af peningum. Ég
skora því á stjórnendur flokksins
að setja lög á þessi verkföll og
vísa deilu þeirra til kjaradóms.
Einnig vil ég að kannað verði
hvort skipulögð glæpastarfsemi að
yfirlögðu ráði kunni að vera á
ferðinni, ég tel svo vera. Það kann
að vera réttlætiskennd mín sem
segir mér þetta, ég var í lög-
fræðideild HÍ.
Annað mál er það að ég var að
leysa út vikuskammt
af lyfjum sem venju-
lega kosta 1.300 kr. en
í dag rúmlega 7.300
kr. vikuskammtur.
Mér skilst að þetta sé
vegna laga sem sett
voru um kostnað lyfja.
Þetta er hins vegar of
dýrt til að ég ráði við
það. Ég er í dag 75%
öryrki og þetta er
þungur biti þar sem
aðeins er um 200.000
kr. bætur mán-
aðarlega fyrir mig að ræða. Ég
skora á heilbrigðis- og fjár-
málaráðherra að breyta þessum
lögum. Ef það gerist ekki veit ég
ekki hvort ég hafi efni á að merkja
xd á kjörseðilinn næst þegar ég
kýs, það væri sorglegt því hjarta
mitt slær til hægri og er ég grjót-
harður sjálfstæðismaður, hins veg-
ar þarf ég að hafa efni á að lifa.
Ég þarf að borga sambærilegt
gjald í næstu viku. En það get ég
ekki.
Ég tek það fram að mér finnst
ríkisstjórnin vera til fyrirmyndar,
valinn maður í hverju verkefni og
þeir ekki af lakari endanum. Enda
er hvergi að finna fallegri stefnu-
skrá.
Varðandi verkfall
starfsmanna
Landspítala
Eftir Sindra
Einarsson
Sindri
Einarsson
»Ég skora því á
stjórnendur flokks-
ins að setja lög á þessi
verkföll og vísa deilunni
til kjaradóms.
Höfundur er öryrki.
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift