Morgunblaðið - 13.06.2015, Side 28
28 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2015
Aðventkirkjan í Reykjavík |
Biblíufræðsla kl. 11 í dag, laugardag.
Guðsþjónusta kl. 12. Ræðumaður er
Jóhann Þorvaldsson, barna- og ung-
lingastarf.
Aðventkirkjan í Vestmannaeyjum |
Guðsþjónusta kl. 12 í dag, laugardag.
Bein útsend. frá Reykjavíkursöfnuði.
Aðventsöfnuðurinn á Akureyri |
Biblíurannsókn kl. 11 í dag, laugardag.
Guðsþjónusta kl. 12. Barnastarf.
Aðventsöfnuðurinn Suðurnesjum |
Biblíufræðsla kl. 11 í dag, laugardag.
Guðsþjónusta kl. 12. Ræðumaður er
Stefán Rafn Stefánsson.
Aðventsöfnuðurinn í Árnesi |
Biblíufræðsla kl. 10 í dag, laugardag.
Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður er
Eric Guðmundsson. Barna- og ung-
lingastarf.
Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði |
Guðsþjónusta kl. 11 í dag, laugardag.
Ræðumaður er Jóel Matchett. Biblíu-
fræðsla kl. 11.50. Umræðuhópur á
ensku. Súpa og brauð eftir samkomu.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Þór Hauksson þjónar og pré-
dikar. Organisti er Guðmundur Ómar
Óskarsson. Kirkjukórinn leiðir safn-
aðarsöng. Kirkjukaffi á eftir.
ÁSKIRKJA | Sameiginleg 17. júní-
guðsþjónusta safnaðanna við Laug-
ardalinn verður við íhugunarbrautina í
Rósagarðinum í Laugardal (gengið inn
frá Sunnuvegi) kl. 11, að þessu sinni í
umsjá Laugarneskirkju.
ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Sig-
urður Jónsson sóknarprestur prédikar
og þjónar fyrir altari ásamt Lindu Jó-
hannsdóttur djákna. Kammerkór Ás-
kirkju syngur. Organisti er Magnús
Ragnarsson. Molasopi eftir messu.
ÁSTJARNARKIRKJA | Árleg hjól-
reiðamessa kirknanna í Hafnarfirði og
Garðabæ hefst samtímis í Ástjarn-
arkirkju og Vídalínskirkju kl. 10. Síðan
er hjólað til Hafnarfjarðarkirkju og það-
an á milli kirknanna í Hafnarfirði og á
Álftanesi. Einn messuliður verður í
hverri kirkju, örstutt ágrip af starfi og
einn sálmur sunginn. Boðið verður upp
á hressingu.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Sameiginleg
göngumessa þjóðkirkjusafnaðanna í
Breiðholti. Gengið frá Fella- og Hóla-
kirkju kl. 19 að Breiðholtskirkju í
messu sem hefst kl. 20. Sr. Sigurður
Grétar Helgason þjónar ásamt messu-
hópi. Þorgils Hlynur Þorbergsson guð-
fræðingur prédikar. Kór Breiðholts-
kirkju syngur, organisti er Örn
Magnússon. Boðið er upp á veitingar
eftir messu og rútuferð að Fella- og
Hólakirkju.
BÚSTAÐAKIRKJA | Sumarmessa kl.
11. Kór Bústaðakirkju leiðir sönginn
undir stjórn kantors Jónasar Þóris.
Messuþjónar aðstoða. Heitt á könn-
unni eftir messu. Prestur er sr. Pálmi
Matthíasson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti | Messa
kl. 10.30, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á
ensku. Virka daga kl. 18, og mán.,
mið. og fös. kl. 8, lau. kl. 16 á
spænsku og kl. 18 er sunnudags-
messa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, séra
Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyr-
ir altari. Dómkórinn syngur undir stjórn
Kára Þormar, dómorganista.
EIÐAKIRKJA | Messa í Eiðakirkju 13.
júní kl. 14. Fermdur verður Logi Bene-
diktsson, Einbúablá 2, Egilsstöðum.
Prestur er Þorgeir Arason. Organisti er
Kristján Gissurarson. Kór Eiðakirkju
syngur.
FELLA- og Hólakirkja | Göngumessa
Breiðholtssafnaðanna, hreyfing, sam-
vera og helgihald. Safnast verður sam-
an við Fella- og Hólakirkju kl. 19 og
gengið saman til Breiðholtskirkju þar
sem messa hefst kl. 20. Að messu lok-
inni verður boðið upp á akstur aftur að
Fella- og Hólakirkju. Boðið upp á kirkju-
kaffi eftir messu.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjón-
usta kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jó-
hannsson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Sönghópurinn við Tjörnina leiðir
tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni
organista.
GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 20. Sr.
Jón Ómar Gunnarsson þjónar. Kór Gler-
árkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars
Väljaots.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Séra Arna Ýrr Sigurð-
ardóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Forsöngvari leiðir safnaðarsöng. Org-
anisti er Hákon Leifsson. Kaffisopi eft-
ir messu.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl.
10, bænastund kl 10.15 og messa kl.
11. Altarisganga, samskot til Hjálp-
arstarfs kirkjunnar, messuhópur þjón-
ar og Kirkjukór Grensáskirkju syngur.
Organisti er Erla Rut Káradóttir. Prestur
er sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi eft-
ir messu.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Guðfræðineminn Aldís Rut Gísladóttir
leiðir helgistund kl 11. Organisti er
Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju
syngur. Meðhjálpari er Kristbjörn Árna-
son og kirkjuvörður er Lovísa Guð-
mundsdóttir. Kaffisopi eftir messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Hjólað
milli kirkna í Hafnarfirði, Garðabæ og
Álftanesi. Stutt helgistund í Hafn-
arfjarðarkirkju kl. 10.30, síðan hjólað
áfram, og lýkur ferðinni í Bessastaða-
kirkju kl. 12.30. Hressing í lokin. Sjá
nánar á hafnarfjardarkirkja.is.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt hópi messu-
þjóna. Félagar úr Mótettukór Hallgríms-
kirkju syngja. Organisti er Hörður Ás-
kelsson. Sögustund fyrir börnin í umsjá
Ingu Harðardóttur. Alþjóðlegt orgels-
umar hefst í Hallgrímskirkju á vegum
Listvinafélags Hallgrímskirkju með tón-
leikum laugardag kl. 12 og sunnudag
kl. 17. Björn Steinar Sólbergsson leik-
ur á orgelið.
HÁTEIGSKIRKJA | Sumargleði í Há-
teigskirkju kl. 11. Stutt messa, léttur
málsverður í safnaðarheimili og leikir
með börnum.
HOFTEIGSKIRKJA | Messa 14. júní
kl. 14. Fermd verða: Mikael Helgi Ernu-
son, Egilsstöðum. Sigríður Tara Jó-
hannsdóttir, Giljum. Styrmir Freyr
Benediktsson, Hofteigi. Prestur er Þor-
geir Arason. Organisti er Tryggvi Her-
mannsson. Meðhjálpari er Ingifinna
Jónsdóttir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Samkoma og vitnisburðir kl. 11. Kaffi
og samfélag eftir samkomuna. Sam-
koma á ensku hjá Alþjóðakirkjunni kl.
14.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sam-
koma kl. 20 14. júní með lofgjörð og
fyrirbænum. Friðrik Schram prédikar.
Einnig verður heilög kvöldmáltíð.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudaginn
14. júní. Göngumessa um gamla bæ-
inn hefst á tröppum Keflavíkurkirkju kl.
20. Rifjaðar verða upp sögur og við-
burðir sem tengjast kirkjunni og sungn-
ir sálmar þess á milli. Organisti er Arn-
ór Vilbergsson og sr. Erla
Guðmundsdóttir leiða gönguna.
KÓPAVOGSKIRKJA | Útvarpsmessa
kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson, sókn-
arprestur, prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn
Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar.
LANGHOLTSKIRKJA | Jóhanna Gísla-
dóttir guðfræðingur leiðir guðsþjón-
ustuna og prédikar guðs orð. Organisti
er Grétar Einarsson. Heitt á könnunni
að athöfn lokinni.
LAUGARDÆLAKIRKJA í Flóa |
Kvöldguðsþjónusta 14. júní kl. 20.
Prestur sr. Axel Á Njarðvík, organisti er
Ingi Heiðmar Jónsson.
LAUGARNESKIRKJA | Hátíðleg
stund í Rósagarði í Laugardalnum kl.
11 17. júní í umsjón safnaðanna í daln-
um. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir,
sóknarprestur Laugarneskirkju, þjónar
og félagar úr Kór Laugarneskirkju
syngja undir stjórn Arngerðar Maríu
Árnadóttur. Barn borið til skírnar. Ath.
breyttan messutíma.
LÁGAFELLSKIRKJA | Almenn guðs-
þjónusta kl. 11. Kirkjukór Lágafells-
sóknar syngur. Organisti er Aðalheiður
Þorsteinsdóttir.
Þjóðhátíðardagurinn 17. júní: Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður er
Salome Þorkelsdóttir fv. alþing-
ismaður. Tindatríóið syngur ásamt
Kirkjukór Lágafellssóknar undir stjórn
Arnhildar Valgarðsdóttur organista.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Barn borið til skírnar.
Lofjörðar og fyrirbænastund kl. 20.
Óskar Einarsson og Ávextir andans sjá
um tónlistina. Valdís Ólöf Jónsdóttir
gefur okkur sinn vitnisburð og sr.
Sveinn Alfreðsson flytur hugvekju. Boð-
ið verður upp á persónulegar fyrirbænir
í lok stundarinnar. Kaffi eftir stundina.
NESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-
Njarðvík | Guðsþjónusta 14. júní kl.
11. Sr. Hulda Hrönn Helgadóttir hér-
aðsprestur prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Kór Njarðvíkurkirkna syngur undir
stjórn Stefáns Helga Kristinssonar org-
anista. Meðhjálpari er Pétur Rúðrik
Guðmundsson.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Göngu-
guðsþjónusta 13. júní kl. 9. Prestur er
séra Pétur Þorsteinsson. Mæting á
gönguskóm og galla til messu. Sam-
einast í einkabíla eftir messu og ekið
að Fitjum í Skorradal. Gengið að Eiríks-
vatni og til baka aftur. Sund og sauna í
Borgarnesi og viðurgerningur.
Lesmessa sunnudaginn 14. júní kl.
11.
SAFNKIRKJAN í Árbæjarsafni |
Guðsþjónusta kl. 14. Sigrún Stein-
grímsdóttir organisti stjórnar almenn-
um kirkjusöng. Prestur sr. Kristinn
Ágúst Friðfinnsson.
SALT kristið samfélag | Samkoma
kl. 17 í Kristniboðssalnum Háaleit-
isbraut 58-60, 3. hæð. Ræðusería um
bænina. Ræðumaður er Agnes Taras-
senko.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur sr. Axel Á Njarðvík. Organisti er
Glúmur Gylfason. Kirkjukór Selfoss
leiðir söng. Súpa og kaffi í hádeginu að
vanda. Að þessu sinni er hugað sér-
staklega að skírninni og þeim merka
degi sem skírnardagurinn er.
SELJAKIRKJA | Göngumessa Breið-
holtssafnaðanna. Gengið frá Fella- og
Hólakirkju kl. 19 til Breiðholtskirkju þar
sem messa hefst kl. 20. Kaffi eftir
messu og akstur til baka að Fella- og
Hólakirkju. Göngumessurnar eru sam-
starfsverkefni Seljakirkju, Fella- og
Hólakirkju og Breiðholtskirkju og sam-
eina, hreyfingu, samveru og helgihald.
SELTJARNARNESKIRKJA |
Messa kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason
sóknarprestur þjónar. Friðrik Vignir
Stefánsson er organisti. Félagar úr
Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða
almennan safnaðarsöng. Kaffiveit-
ingar og samfélag eftir messu. Guðs-
þjónusta kl. 11, 17. júní, með þátttöku
félaga í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Guðmundur Snorrason flytur hugleið-
ingu. Sr. Bjarni Þór Bjarnason sókn-
arprestur þjónar fyrir altari. Gunnar
Kvaran og Elísabet Waage leika á selló
og hörpu. Friðrik Vignir Stefánsson er
organisti. Félagar úr Kammerkór Sel-
tjarnarneskirkju leiða almennan safn-
aðarsöng. Kaffiveitingar.
SLEÐBRJÓTSKIRKJA í Jökuls-
árhlíð | Hátíðarmessa á17. júní kl. 14.
Fermd verða: Arna Skaftadóttir, Ein-
búablá 31, Egilsstöðum, og Hólmar
Logi Ragnarsson, Skriðufelli, Jökuls-
árhlíð. Prestur er Þorgeir Arason. Org-
anisti er Magnús Magnússon. Kór
Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna syng-
ur. Meðhjálpari er Margrét Dögg Guð-
geirsdóttir Hjarðar.
VALÞJÓFSSTAÐARKIRKJA | Messa
kl. 14, ferming. Prestur sr. Ólöf Mar-
grét Snorradóttir. Organisti er Drífa Sig-
urðardóttir, Kór Valþjófsstaðarkirkju
ásamt Kór Áskirkju syngur og leiðir al-
mennan safnaðarsöng.
VÍDALÍNSKIRKJA | Hjólreiðamessa
sem er samstarfsverkefni kirkna í
Garðabæ og Hafnarfirði. Leiðangurinn
hefst í Vídalínskirkju kl. 10. Sjá garda-
sokn.is og Vídalínskirkja á fb.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Guðsþjón-
usta 17. júní kl. 12.30. Sóknarprestur
prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór Njarðvíkurkirkna syngur undir
stjórn Stefáns Helga Kristinssonar org-
anista. Meðhjálpari er Ástríður Helga
Sigurðardóttir
ÞINGVALLAKIRKJA | Hátíðarguðs-
þjónusta 17. júní kl. 14, sr. Karl Sig-
urbjörnsson biskup prédikar og þjónar
fyrir altari. Organisti er Guðmundur Vil-
hjálmsson.
ORÐ DAGSINS:
Hin mikla kvöld-
máltíð
(Lúk. 14)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisso
Patreksfjarðarkirkja (Eyrarkirkja)
✝ MatthildurJónsdóttir
fæddist á Akranesi
11. júlí 1942. Hún
lést á dvalar-
heimilinu Sæborg á
Skagaströnd 5. júní
2015.
Foreldrar henn-
ar voru Jón Hall
Magnússon, f. 25.
ágúst 1910 á
Broddadalsá í
Fellshreppi, Strandasýslu, d. 26.
nóvember 2000, og Guðrún
Bjarnadóttir, f. 16. desember
1920 á Akranesi, d. 14. janúar
2003. Matthildur var elst fimm
systkina en eitt þeirra dó mjög
ungt.
Matthildur bjó með Björgvin
Hanssyni og áttu þau saman tvö
börn: 1) Sigurbjörn, f. 1960,
kvæntur Þóreyju Jónsdóttur, f.
1961, og eiga þau tvo syni, Unn-
ar Leví og Guðjón Hall, í sam-
búð með Aðalheiði Rögnvalds-
dóttur og eiga þau tvær dætur.
2) Guðrúnu Jónu, f. 1963, sam-
býlismaður hennar er Hall-
grímur Karl Hjaltason, f. 1953,
og eiga þau sjö börn, Höllu Lín-
björgu, sambýlismaður Kristján
Bjarnason, og eiga þau fjögur
börn. Björgvin Matthías, Sigþór
Ottó, sambýliskona Andrea Rún
Andrésdóttir, og eiga þau tvö
börn, Ingvar Páll, Lilja Svandís,
Guðrún Hjaltey og Sveinn Hall-
dór. Fyrir á Hallgrímur þrjú
börn: Sólveigu, Sigurð og Magn-
ús.
1966 giftist Matthildur Ottó
Ákasyni, f. 12. júní 1921, d. 17.
september 2005, frá Brekku á
Djúpavogi. Foreldrar hans voru
Áki Kristjánsson og Áslaug
Jónsdóttir. Saman
áttu Matthildur og
Ottó fimm börn,
Rögnvald, f. 1965,
og á hann tvö syni,
Ragnar Stefán og
Björn Halldór. Guð-
finnur Bjarni, f.
1966, kvæntur
Jensínu Lýðs-
dóttur, f. 1968, þau
eiga þrjú börn. Pat-
rik Snæ, Telmu
Dögg og Birgittu Rut. Ársæll
Anton, f. 1968, kvæntur Jó-
hönnu Guðrúnu Guðbjörns-
dóttur, f. 1976, og eiga þau fjög-
ur börn. Dreng og stúlku, d.
2000, Árnýju Þóru, d. 2005, og
Helgu Bjarneyju. Erling Sig-
urjón, f. 1971, kvæntur Oddnýju
Ösp Gísladóttur, f. 1978, og eiga
þau þrjá syni, Arnar Smára,
Steinar Snorra og Ástþór Ottó.
Áslaugu, f. 1981, gift Sigurði
Sverri Ólafi Hallgrímssyni, f.
1980, og eiga þau þrjú börn, Sig-
urð Hjalta, d. 2003, Hugrúnu
Antoníu og Alexander Áka Hall.
Mestan hlut ævi sinnar vann
Matthildur við fiskvinnslustörf,
fyrst hjá fiskverkun Haraldar
Böðvarssonar á Akranesi en á
Akranesi sleit hún barnsskónum
eða allt þar til hún flutti til
Reykjavíkur.
Árið 1963 flutti Matthildur á
Djúpavog sem ráðskona og vann
síðar við fiskvinnslustörf.
Árið 1975 lá svo leið þeirra
Matthildar og Ottós norður á
Skagaströnd.
Útför Matthildar fer fram frá
Hólaneskirkju í dag, 13. júní
2015, kl. 14.
Nú er komið að því að við þurf-
um að kveðja þig í síðasta skipti.
Síðustu mánuðirnir voru þér erf-
iðir og hvíldin því kærkomin, en
eftir sitjum við með minningar
um mömmu sem alltaf var til
staðar. Seinna voru það heim-
sóknirnar með fjölskylduna í
Réttarholt þar sem alltaf var til
heimabakað. Að geta tekið upp
símann hvenær sem var og
hringt í þig bara til að heyra í þér
hljóðið. Við erum þakklát fyrir að
hafa fengið að hafa þig öll þessi
ár, hin fullkomna amma, alltaf
heima, alltaf til staðar og alltaf
tilbúin með hjálparhönd. Þín
verður sárt saknað.
Erlingur, Oddný, Arnar,
Steinar og Ástþór.
Matthildur
Jónsdóttir
Með þessum fáu
orðum langar okkur
til að kveðja ást-
kæra frænku okk-
ar. Ásta bjó hjá fjöl-
skyldu minni í
Eskihlíð á sjöunda áratugnum
ásamt Helgu móður sinni, föður-
ömmu minni. Þarna bjuggum við
sjö saman í fjögurra herbergja
íbúð og mér fannst ég vera svo
lánsamur að eiga ömmu og
frænku heima hjá mér. Ég fædd-
ist aðeins nokkrum klukkustund-
um eftir að fimmtugsafmæli
hennar Ástu lauk. Mamma hafði
verið að hella upp á kaffi í afmæl-
inu og fann að ég var að boða
komu mína. Ég náði ekki að verða
afmælisgjöf til Ástu en við höfum
verið samstíga með afmæli og
tímamót þar til nú þegar leiðir
skilur. Ásta var með eindæmum
hlýleg og hjálpfús manneskja
sem mátti ekkert aumt sjá. Með-
an hún bjó hjá okkur í Eskihlíð-
inni sá hún um aldraða móður
sína ásamt því að passa okkur
bræðurna ef foreldrar okkar
þurftu að bregða sér frá. Seinna
þegar hún eignaðist eigin íbúð
tók hún manni alltaf vel og hafði
tíma til að spjalla við ungan
frænda sinn ef maður bankaði
Ásta Eyjólfsdóttir
✝ Ásta Eyjólfs-dóttir fæddist
21. júní 1911. Hún
lést 25. maí 2015.
Útför Ástu fór
fram 9. júní 2015.
upp á heima hjá
henni eða leit við í
Sjúkrasamlaginu
þar sem hún vann
sem gjaldkeri. Fram
yfir nírætt var hún
mjög hraust og
spræk þ.a. oft hrein-
lega gleymdi maður
á hvaða aldri hún
var. Síðustu árin
fjaraði hratt undan
og þrekið minnkaði
en inni á milli var hún brött og
skýr í hugsun. Hún var vön að
koma til systkinabarna sinna í
mat um jól og ég man hvað hún
var vonsvikin þegar hjúkrunar-
heimilið tók fyrir slík ferðalög
þegar hún var að nálgast 100 ár-
in. Mig langar í lokin til að vitna í
Bókina um veginn eftir Lao Tse
sem finna mátti í bókaskáp Ástu
og endurspeglar að mínu mati
hennar æviskeið og lífsviðhorf:
„Sá sem hefur fáar óskir, mun fá
þær uppfylltar. Sá, sem girnist margt,
missir af því.
Þess vegna ástundar hinn vitri einfeldni
og verður fyrirmynd allra.
Hann býst ekki í skart, þess vegna
ljómar hann; hann heldur sér ekki
fram, og það er ágæti hans; hann er
laus við sjálfhælni, og þess vegna er
hann virtur; hann er laus við sjálfs
þótta og ber því af öðrum.
Of af því að hann keppir ekki við
aðra, getur enginn keppt við hann.“
Halldór Guðmundsson
og fjölskylda.