Morgunblaðið - 26.06.2015, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2015
Göngugreining
Pantaðu
tíma
í síma
5173900
Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900
Vandamál sem göngugreining Flexor getur
hjálpað til við að leysa eru til dæmis:
• þreytuverkir og pirringur í fótum
• verkir í hnjám
• sársauki eða eymsli í hælum
(hælspori, „plantar fasciitis“ o.fl.)
• beinhimnubólga
• óþægindi eða verkir í baki
og/eða mjöðmum
• verkir í tábergi og/eða iljum
• hásinavandamál
• óþægindi í ökklum
• þreytu- og álagsverkir
hjá börnum og unglingum
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Eftirlitsdeild Vinnumálastofnunar
hefur að eigin frumkvæði haft til
skoðunar Facebook-hópinn „Skutl-
arar!“. Rúmlega 15 þúsund ein-
staklingar eru skráðir í hópinn, en
þar bjóðast einstaklingar til að keyra
fólk á milli staða gegn gjaldi.
Svipar hópnum nokkuð til Uber-
skutlþjónustunnar, sem hefur rutt
sér til rúms víða um heim á sviði far-
þegaflutninga, þar sem einstaklingar
skutla farþegum á milli staða á einka-
bifreiðum sínum gegn gjaldi. Flestir
þeirra sem auglýsa skutl gegn gjaldi
í Facebook-hópnum hafa ekki leyfi til
farþegaflutninga og er þeim því ekki
heimilt að hagnast fjárhagslega af
skutlinu.
Gæti misst bætur í eitt ár
Unnur Sverrisdóttir, aðstoðarfor-
stjóri Vinnumálastofnunar, segir að
mál einstaklings sem er á 65 prósent
atvinnuleysisbótum og auglýsti skutl
á síðunni hafi hlotið efnislega með-
ferð skv. stjórnsýslulögum hjá
Vinnumálastofnun. Á það bæði við
hvað varðar tíma og efni máls-
meðferðarinnar.
78 mál komu upp hjá VMST árið
2014 vegna ótilkynntrar vinnu og
segir hún málin koma til kasta stofn-
unarinnar t.d. með vinnustaðaeftirliti
á vegum aðila vinnumarkaðarins,
ábendingum á heimasíðu VMST og
samkeyrslu VMST við gögn hjá Sam-
göngustofu.
Unnur segir að lykti málum með
þeim hætti að ákvörðun sé tekin um
viðurlög felist þau í því að ein-
staklingur missi rétt til greiðslu at-
vinnuleysisbóta í eitt ár.
„Einhver af þessum málum geta
flokkast undir svarta atvinnu-
starfsemi en ekki endilega öll. Jafn-
framt geta einhver þeirra verið
vegna leigubifreiðaaksturs,“ segir
Unnur og gefur þær skýringar að töl-
ur VMST séu ekki flokkaðar eftir
starfsgreinum heldur brotateg-
undum.
Kári Friðriksson, sem er tenór-
söngvari, kórsöngvari og menntaður
tónmenntakennari, hefur auglýst
skutl á síðunni og barst honum at-
hugasemd frá VMST. Hann segist
ekki vita hvort hann sé sá eini undir
smásjá VMST. „Ef þeir eru að skoða
þetta taka þeir væntanlega alla sem
eru atvinnulausir,“ segir hann og
bætir við að þar sem skutlið sé á gráu
svæði lagalega séð sé ekki öruggt að
hann geti gefið skutlið upp til skatts.
„Maður fær nokkra þúsundkalla af
og til og er að hjálpa fólki. Ég hef
ekkert verið að fela þetta. Kannski
hefði maður átt að gera það, en mér
fannst ekkert ólöglegt við þetta.“
Morgunblaðið/Júlíus
Skutlarar Rúmlega 15 þúsund einstaklingar eru skráðir í Facebook-hóp þar
sem hægt er að óska eftir fari á milli staða eða auglýsa skutl gegn gjaldi.
Fylgjast með skutlurum
Guðríður Guðbrandsdóttir lést á
dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund í gær, 109 ára gömul. Hún
var elsti Íslendingurinn í tæp fjögur
ár. Aðeins þrjár íslenskar konur
hafa náð hærri aldri.
Guðríður fæddist á Spágilsstöðum
í Laxárdal í Dalasýslu 23. maí 1906.
Foreldrar hennar voru hjónin Guð-
brandur Jónsson bóndi þar og Sig-
ríður Margrét Sigurbjörnsdóttir
húsfreyja. Guðríður var sjötta í röð
ellefu systkina, sem öll eru látin.
Eiginmaður Guðríðar frá árinu
1932 var Þorsteinn Jóhannsson,
verslunarmaður í Búðardal og
Reykjavík. Hann lést 1985. Dóttir
þeirra var Gyða Þorsteinsdóttir og
fósturbörn þeirra Sigurður Markús-
son og Halldóra Kristjánsdóttir. Þau
eru öll látin.
Guðríður Guð-
brandsdóttir
Andlát
SVIÐSLJÓS
Ísak Rúnarsson
isak@mbl.is
„Það voru þarna í upphafi ákveðin
varnaðarorð, þannig að við í fjár-
málaráðuneytinu létum gera ítarlega
greiningu sem ráðgjafarfyrirtækið
IFS gerði. Niðurstaðan var sú að
áhættan væri inn-
an raunhæfra
marka,“ segir
Oddný G. Harð-
ardóttir, fv. fjár-
málaráðherra, en
hún mælti fyrir
frumvarpi um lán-
veitingu til þess
að fjármagna
Vaðlaheiðargöng
á sínum tíma. Nú
hefur komið í ljós að stjórn Vaðla-
heiðarganga telur að kostnaður fari
1.500 milljónum fram úr áætlun, eða
um 14%. Áætlaður umframkostnaður
er því hærri en allt eigið fé
Vaðlaheiðarganga hf.
Vísar gagnrýni á bug
Því hefur verið haldið fram að ekki
hafi verið hlustað á gagnrýni sem
kom fram þegar málið fékk þinglega
meðferð en spurð hvort það reynist
rétt segir Oddný: „Ég vísa því alger-
lega á bug. Það voru gerðar tvær góð-
ar greiningar, bæði frá Vegagerðinni
og frá IFS. Að því loknu voru allar
þær upplýsingar vegnar og metnar af
Ríkisábyrgðasjóði sem Seðlabankinn
sér um. Það sem snýr að fjár-
málaráðuneytinu var mjög vandað.“
Hún bætir við að byggt hafi verið á
þeim greiningum sem gerðar voru en
í kjölfar þeirra hafi verið ákveðið að
styrkja þyrfti eiginfjárstöðu
Vaðlaheiðarganga úr 440 milljónum
og upp í 600 milljónir. Hún segir jafn-
framt að öllum gangaframkvæmdum
fylgi einhver áhætta og svo hafi einn-
ig verið í þessum framkvæmdum.
Spurningin hafi snúið að því hvort
áhættan hafi verið viðunandi eða
ekki. „Niðurstaða okkar var sú að
hún væri viðunandi. Það er heldur
ekki full vissa um hver lokaniður-
staðan verður. Það gæti farið svo að
héðan í frá muni allar framkvæmdir
ganga mjög vel og kostnaður jafnast
út,“ segir Oddný.
Hún bendir á að samkvæmt
skýrslu IFS standist rekstrar-
forsendur ganganna jafnvel þótt
stofnkostnaður aukist um 14% og að-
eins muni taka lengri tíma að greiða
niður lánið, en það verður greitt niður
með tekjum af veggjöldum. „Eftir
hrunið var staðan í ríkisfjármálunum
sú að ekki var hægt að ráðast í stórar
framkvæmdir á vegum hins opinbera
og þar sem greiningarnar leiddu í ljós
að veggjöld gætu staðið undir kostn-
aði var þetta ákjósanleg leið til þess
að örva hagkerfið,“ segir Oddný og
bætir við að göngin séu einnig mik-
ilvæg samgöngubót fyrir svæðið.
Eiginfjárhlutfall um 7%
Í umræddri skýrslu IFS kemur
fram að Moody’s-ráðgjafarfyrirtækið
ráðgeri að eigið fé í framkvæmdum
sem þessum sé á bilinu 8-20%. Í til-
felli Vaðlaheiðarganga var það upp-
haflega 4,9% en eftir eiginfjáraukn-
inguna um 7%. Oddný segir að
stjórnvöld hafi talið eðlilegt að vera í
neðri mörkunum og jafnvel rétt fyrir
neðan þau vegna þess að á bak við
fyrirtækið standi opinberir aðilar en
það ætti að hækka lánshæfið.
Að baki Vaðlaheiðargöngum
standa Vegagerðin annars vegar og
Greið leið ehf. hins vegar, en hlut-
hafar Greiðrar leiðar samanstanda af
öllum sveitarfélögum á Norðurlandi
eystra ásamt fyrirtækjum á svæðinu.
Ágúst Torfi Hauksson, formaður
stjórnar Vaðlaheiðarganga, segir að
ekki hafi formlega verið leitað til hlut-
hafa eftir frekari hlutafjáraukningu
þó að þeir séu vissulega vel upplýstir
um stöðu mála.
„Það sem snýr að fjármála-
ráðuneytinu var mjög vandað“
Fyrrverandi fjármálaráðherra vísar því á bug að gagnrýni á Vaðlaheiðar-
göngin hafi verið hundsuð Segir áhættuna hafa verið innan raunhæfra marka
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Vatnselgur Töluvert magn af heitu og köldu vatni hefur verið leitt út úr
Vaðlaheiðargöngum eftir að mikill leki kom upp síðastliðinn vetur.
Oddný G.
Harðardóttir
191 hjúkrunarfræðingur á Land-
spítalanum hefur sagt upp starfi
sínu undanfarið. Frá því að lög
voru sett á verkfall þeirra 13. júní
sl. hefur 181 hjúkrunarfræðingur
sagt upp en 10 uppsagnir bárust í
gær. Engin uppsögn hefur verið
dregin til baka.
Það á einnig við um þá 13 hjúkr-
unarfræðinga sem hafa sagt upp
störfum á Heilbrigðisstofnun
Reykjanesbæjar nýverið. Þar hafa
hins vegar ekki bæst við fleiri upp-
sagnir. Að minnsta kosti hafa því
ríflega 200 hjúkrunarfræðingar
sagt upp störfum.
Fleiri hjúkrunar-
fræðingar segja upp
Við útboð á Vaðlaheiðargöngum bjuggust menn við
töluverðu magni af köldu vatni vestan megin í
göngunum en einnig að hiti gæti leynst austan
megin. Nú hefur komið á daginn að kalda vatnið
hefur sprottið fram austan megin en mikið af heitu
vatni vestan megin, þvert á allar áætlanir. Nú sé
áætlað að jarðhiti geti verið töluverður á allt að 2,5
km löngu svæði.
Stjórn Vaðlaheiðarganga segir í svari sínu við
spurningum fjárlaganefndar að heita vatnið sé það
sem valdi mestum erfiðleikum og telur málið með
miklum ólíkindum. Á svæðinu vestan megin, þar sem heita vatnið hefur
leikið framkvæmdaraðila grátt, hafi ekki verið vitað um jarðhita þó að
leitað hafi verið á þessu svæði eftir heitu vatni fyrir Akureyri í áratugi.
„Allt með miklum ólíkindum“
VATNSLEKINN Í VAÐLAHEIÐARGÖNGUM
Vatnið í göngunum