Morgunblaðið - 26.06.2015, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 26.06.2015, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2015 netið,“ segir Auðunn og hvetur les- endur til að horfa á myndand Him- brim við lagið „Running in Circles“. Verður rosaleg „Platan sem ég er að fara að gefa út undir nafninu Auður mun heita al.one og ég get ekki beðið eftir því að dæla út þessu efni. Ég hef verið að sýna fólki demó og ég finn fyrir mjög miklum meðbyr. Þessi plata verður rosaleg!“ segir Auðunn. Frekari upplýsingar um RBMA má finna á vef akademíunnar: red- bullmusicacademy.com . helgisnaer@mbl.is Heiður Auðunn Lúthersson tónlistarmaður hlaut inngöngu í hina eftirsóttu tónlistarakademíu Red Bull sem verður haldin í París í nóvember. Bandaríska Guggenheim-safnið kynnti í vikunni verðlaunateikningar ungra hjóna, sem reka fransk- japönsku arkitektastofuna Moreau Kusunoki Architects, að nýju útibúi safnsins í Helsinki. Þegar starfrækir Guggenheim útibú í Feneyjum, í Bilbao á Spáni og innan skamms verður það þriðja opnað í Abu Dhabi. Samkvæmt frétt The New York Times færist safnið með kynn- ingunni nær því að hrinda fram- kvæmdum við safn í Helsinki af stað en ásteytingarsteinar eru þó margir. Alls óvíst er hvort borgaryfirvöld samþykki teikningarnar að safninu, sem stjórnendur þess vilja að rísi við suðurhöfnina í Helsinki, og þá er tekist á um kostnaðinn, 147 milljónir dala. Verðlaunateikningarnar voru valdar úr 1.715 tillögum sem voru sendar inn undir dulnefni. Dökkt timbur og gler eru áberandi í útliti samtengdra safnabygginganna, sýn- ingarskála sem tengdir eru saman með yfirbyggðri götu sem turn rís upp úr svo minnir á vita. Tekist á um kostnaðinn Skoðanakönnun sem gerð var árið 2011 leiddi í ljós að meirihluti borg- arbúa var á móti safninu og þá taldi meirihluti listamanna að útibú frá Guggenheim myndi skyggja á lista- safn Helsinkiborgar, þar sem áherslan er lögð á list Finna og ná- grannalandanna. Þeir sögðu Gugg- enheim einkum sýna listamenn sem kunnir eru á hinu alþjóðlega sviði en lítið list heimamanna. Átökin um Guggenheim-safnið hafa þó einkum snúist um peninga. Borgarstjórinn og atvinnurekendur í Helsinki eru hrifnir af hugmynd- inni og telja víst að þetta fræga safn hefði góð efnahagsleg áhrif; sam- kvæmt skýrslu sem gerð hefur verið kann safnið að skapa um 500 störf og 800 til meðan á byggingunni stend- ur. Andstæðingarnir spyrja á móti hvort byggingarkostnaðurinn, 147 milljónir dala eða þeir 20 milljarðar króna, sem ætlast er til að hið opin- bera í Finnlandi greiði, sé ekki allt of hár. Forstöðumaður Guggenheim- safnsins, Richard Armstrong, segir þó í samtali að hann telji að safninu muni að lokum verða vel tekið enda muni borgin njóta aukins ferða- mannastraums og fjárfestinga, eins og raun varð á í Bilbao. Heimamenn sem rætt er við í New York Times telja verðlauna- tillöguna sýna byggingar sem væru of frekar í miðborg Helsinki; finnsk- ur arkitekt segir svartan viðinn í andstöðu við bjarta ímynd helstu kennileita borgarinnar. Borgar- yfirvöld í Helsinki hafa ákveðið að skoða kostnaðaráætlun verkefnisins betur, áður en ákvörðun verður tek- in um þátttöku. efi@mbl.is Safnadeilur í Helsinki  Guggenheimsafnið hefur kynnt verðlaunateikningar að útibúi safnsins í Helsinki  Mótstaða meðal heimamanna AFP – Lehtikuva / Heikki Saukkomaa Vinningstillagan Arkitektarnir Moreau og Kusunoki við módel af verð- launatillögu þeirra að nýju útibúi Guggenheim-safnsins í Helsinki. Sýning finnska myndlistarmanns- ins Tuomas A. Laitinen, Al Dente, verður opnuð í dag, föstudag, klukkan 17 í Gallerí Skilti, Duggu- vogi 3 í Reykjavík. Laitinen, sem verður viðstadur opnunina, hlaut í fyrra verðlaun finnsku myndlist- arakademíunnar sem veitt eru ann- að hvert ár til sérlega áhugaverðs ungs finnsks myndlistarmanns. Um verkið á Skiltinu segir Lait- inen það vera framhald og nokkurs konar viðbót við rannsóknir sínar í Kína, þar sem hann hefur unnið að ýmsum verkefnum síðan árið 2005. Það sé endurgerð raunverulegs auglýsingaskiltis á matsölustað við húsasund í miðborg Peking, þar sem síaukið upplýsingaflæði setur mark á umhverfið, meðal annars fyrir tilstilli „Google translate“. Laitinen vinnur verk í hinum ýmsu miðlum, einkum myndbands- verk og innsetningar, og hefur hann undanfarið starfað í Banda- ríkjunum, Þýskalandi, Kína og Eist- landi. Finnski listamaðurinn Tuomas A. Laitinen opnar sýningu í Gallerí Skilti Meðalharka Hluti myndverks Laitinen. Vorhefti Sögu 2015, tímarits Sögu- félags, er komið út. Þar heldur um- ræðan um söguna af morðinu á Natani Ketilssyni áfram í við- brögðum Vilhelms Vilhelmssonar við skrifum Eggerts Þórs Bern- harðssonar og Helgu Kress um það efni. Í grein eftir Steinunni Krist- jánsdóttur er fjallað um einsetu- lifnað sem undankomuleið frá hjónabandi á miðöldum. Þá skrifar Gunnar Óskarsson arkitekt um Verkamannabústaðina við Hring- braut og hönnun þeirra í samhengi evrópskrar byggingarsögu. Viðhorfsgrein Sögu er eftir Erlu Huldu Hall- dórsdóttur og fjallar um stöðu fræðimannsins í ævisögulegum verkum, birtar eru andmæla- ræður við dokt- orsvörn Sumarliða Ísleifssonar og þá er fjöldi ritdóma í heftinu. Umræða um morð, einsetulifnaður, byggingarsaga og fleira í Sögu Erla Hulda Halldórsdóttir Vefverslunin Amazon mun 1. júlí nk. taka upp nýtt fyrirkomulag á greiðslu höfundarlauna til rithöf- unda sem gefa sjálfir út rafbækur fyrir Kindle-lestölvur og greiða þeim fyrir lesnar síður í stað þess að greiða fyrir fjölda keyptra nið- urhala af bókum þeirra. Höfund- arnir fá því lítið fyrir sinn snúð ef lesendur hætta að lesa bókina eftir nokkrar síður, eins og gefur að skilja. Í frétt Independent segir að fyrirætlanir Amazon leggist afar illa í marga rithöfunda sem telji þetta fyrirkomulag eiga eftir að skaða rafræna bókaútgáfu. Þá hafi menn einnig áhyggjur af því hversu miklar upplýsingar Amazon geti sótt í tölvur viðskiptavina sinna. Hið nýja fyrirkomulag mun í fyrstu aðeins eiga við þær bækur sem höfundar gefa sjálfir út í gegn- um þjónustuna Kindle Direct Pu- blishing Select en með henni geta lesendur fengið lánaðar bækur úr bókasafni Kindle á Amazon. Amazon greiðir fyrir lesnar síður Morgunblaðið/Sigurgeir Kindle Lestölva Amazon vefversl- unarinnar eins og hún leit út 2012. Ódýrt í bíó TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS SÝND KL. 5 SÝND KL. 5 Miðasala og nánari upplýsingar ÍSL TAL ÍSLENSKT TAL Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI - bara lúxus

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.