Morgunblaðið - 26.06.2015, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.06.2015, Blaðsíða 12
BAKSVIÐ Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gærmorgun öll ákærðu í SPRON- málinu svonefnda. Fjórir fyrrver- andi stjórnarmenn SPRON; þau Rannveig Rist, Ari Bergmann Einarsson, Margrét Guðmunds- dóttir og Jóhann Ásgeir Baldurs, sem og fyrrverandi sparissjóðs- stjóri, Guðmundur Örn Hauksson, voru ákærð í málinu fyrir umboðs- svik. Áttu þau að hafa misnotað aðstöðu sína og stefnt fé sjóðsins í verulega hættu með því að fara út fyrir heim- ildir til lánveitinga þegar samþykkt var á stjórnarfundi hinn 30. septem- ber 2008 að veita Exista tveggja milljarða króna peningamarkaðslán. Fóru yfir „helstu tölur“ Exista Dómurinn taldi að skilja yrði ákæru málsins svo að hún takmark- aðist við að ákærðu væri gefið að sök að hafa misnotað aðstöðu sína með því að fara út fyrir heimildir sínar, annars vegar með því að meta ekki greiðslugetu og eignastöðu Existu í samræmi við útlánareglur sjóðsins og hins vegar með því að veita lánið án trygginga. Varð ákæran því ekki skilin á þá leið að ákærðu hefði verið gefið að sök að hafa rýrt lausafjár- stöðu sjóðsins óhóflega með lánveit- ingunni. Hinir ákærðu stjórnarmenn höfðu réttmæta ástæðu til að áætla að upp- lýsingar sem starfsmenn sjóðsins veittu þeim hefðu verið fullnægjandi og traustar að mati dómsins. Á stjórnarfundinum hefði legið fyrir síðasta árshlutauppgjör Existu og farið var yfir helstu tölur úr uppgjör- inu sem skiptu máli um lánshæfi fyr- irtækisins. Exista var skráð á mark- að og bar upplýsingaskyldu sem slíkt. Einnig hefði Exista fengið pen- ingamarkaðslán hjá SPRON fyrr á árinu og því verið metið hæft til að eiga í slíkum viðskiptum við sjóðinn. Benti því allt til þess að stjórnar- menn hefðu byggt ákvörðun sína á nýjustu upplýsingum um félagið. Þá segir í dómnum að lánareglur sparisjóðsins hafi aðeins getað veitt takmarkaðar leiðbeiningar um með- ferð peningamarkaðslána og því sé ljóst að stjórn sjóðsins hafi haft formlega heimild til að lána traust- um fyrirtækjum fé án trygginga. Málsvarnarlaun voru rúmlega 30 m. kr. og greiðast úr ríkissjóði. Öll ákærðu sýknuð í SPRON-málinu  Lánveiting til Exista braut ekki gegn lánareglum sjóðsins Morgunblaðið/Þórður Héraðsdómur Rannveig Rist var viðstödd dómsuppkvaðninguna í gær. 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2015 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Bæjarstjórn Hafnarfjarðar sam- þykkti nýverið tillögu meirihluta fjölskylduráðs Hafnarfjarðar um að nýtt 60 rýma hjúkrunarheimili verði reist á Sólvangsreitnum. Tillagan var samþykkt með sjö at- kvæðum meirihluta Sjálfstæðis- flokks og Bjartrar framtíðar en bæj- arfulltrúar Samfylkingar og VG sátu hjá. Áður hafði fjölskylduráð sam- þykkt tillöguna með þremur at- kvæðum meirihlutans gegn tveimur atkvæðum minnihlutans. Mikilvægt verkefni komið af stað eftir áralanga töf Fulltrúar minnihlutans í bæjar- stjórn Hafnarfjarðar sögðu í bókun um málið að með þessari ákvörðun væri „kastað á glæ fjármunum og margra ára undirbúningsvinnu sem hefur frá upphafi einkennst af virku samráði, samstarfi við hags- munaaðila og þvert á stjórn- málaflokka“. Gagnrýni þeirra bein- ist einkum að staðsetningu heimilis- ins á Sólvangsreitnum, þar sem ekki liggi fyrir hvort nýtt hjúkrunar- heimili rúmist innan svæðisins. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar bókaði eftirfar- andi: „Með ákvörðun fjölskylduráðs um staðsetningu nýs hjúkrunar- heimilis á Sólvangsreitnum er þetta mikilvæga verkefni loksins komið af stað eftir áralanga töf. Verkefna- stjórn verður skipuð á næstu vikum með fulltrúum allra flokka. Sól- vangur verður þannig öldrunar- miðstöð Hafnarfjarðar og verk- efnastjórn verður jafnframt falið að skoða samþættingu verkefna í öldr- unarþjónustu.“ Í greinargerð meirihluta fjöl- skylduráðs Hafnarfjarðar kemur fram að í skýrslu Capacent um samanburð valkosta um staðsetn- ingu hjúkrunarheimilis komi fram að samkvæmt veginni einkunn sé staðsetning á Sólvangsreitnum valin hagkvæmasti kosturinn, sérstaklega ef horft sé til rekstrar og stofnkostn- aðar. Morgunblaðið/Júlíus Sólvangur Meirihluti bæjarstjórnarinnar segir að Sólvangur verði öldr- unarmiðstöð Hafnarfjarðar. Þar á að reisa 60 rýma hjúkrunarheimili. Deila um stað- setningu nýs hjúkrunarheimilis  Meirihluti bæjarstjórnar Hafnar- fjarðar valdi Sólvangsreitinn „Ég held að meginniðurstaðan sé sú að það hafi ekki verið svokölluð fjártjónshætta. Staða Exista var ekki þannig að menn gætu fyrir- sjáanlega séð að þetta væri glatað lán og þar með hefði ekki átt að veita það,“ segir Andri Árnason, lögmaður Guðmundar Arnar Haukssonar, og bætir við að eitt af frumskilyrðum þess að um um- boðssvik sé að ræða sé að hætta skapist á því að fjármunir tapist. „Að því er varðar sparisjóðs- stjórann sjálfan þá var það tekið fram í dómnum að hann hefði ekki samþykkt umrædda lánveitingu. Það var umfram hans heimildir. Hvorki sam- þykkti hann lán- veitinguna né hvatti til hennar á nokkurn hátt,“ segir Andri. Helgi Magnús Gunnarsson vararíkis- saksóknari vildi ekki tjá sig við Morgunblaðið um hvort málinu verður áfrýjað af hálfu ákæruvaldsins að öðru leyti en að áfrýjunarfresturinn sé fjórar vikur. „Dómurinn er nýgenginn og ákæruvaldið hefur ekki tekið ákvörðun um framhaldið.“ Engin fjártjónshætta á ferð VERJANDI SPARISJÓÐSSTJÓRA TJÁIR SIG UM DÓMINN Andri Árnason Atvinnuveganefnd Alþingis mælir fyrir um það að ef erfðaefni erlends holdanautakyns verði flutt inn skuli gera það með innflutningi fósturvísa og það verði gert á vel skilgreindu einangrunarbúi eða einangrunarstöð. Einnig að ekki megi flytja gripi út af stöðinni fyrr en eftir 18 mánaða aldur. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Bjartrar framtíðar standa að nefndaráliti með fulltrúum stjórnar- flokkanna en fulltrúi VG ekki. Frumvarpið gerir ráð fyrir að heimilaður verði innflutningur á sæði og fósturvísum til að kynbæta holda- nautastofninn, á sama hátt og gert er í svínaræktinni. Það felur í sér að hægt verði að sæða holdanaut á búum sem uppfylla settar kröfur og nota gripina sem fæðast til áframhaldandi kyn- bóta. Nefndin gerir ekki breytingar á lagatextanum en mælir fyrir um áhættuminni leið í nefndaráliti, að sögn Haraldar Benediktssonar nefndarmanns. Þar er tekið mið af til- lögum Eggerts Gunnarssonar, dýra- læknis á Keldum. Annars vegar að gerðar verði ríkar kröfur til einangr- unarstöðva sem nota megi erfðaefnið og að aðeins verði notaðir fósturvísar. Þá lagði Eggert til að ekki mætti flytja gripi út af einangrunarstöð fyrr en ári eftir að innflutta erfðaefnið hefði verið notað í gripi þar og að gripi sem vaxnir væru af innfluttu sæði mætti ekki flytja út af stöðinni fyrr en eftir 18 mánaða aldur og að undan- gengnum rannsóknum. Gengur þessi leið þvert á vilja Landssambands kúabænda, sem lengi hefur óskað eftir heimild til að kynbæta holdanautastofninn og studdi frumvarp landbúnaðarráð- herra eins og það var lagt fram. helgi@mbl.is Mæla fyrir um áhættuminni leið  Atvinnuveganefnd þrengir skilyrði um innflutning erfðaefnis holdanauta Morgunblaðið/Árni Sæberg Holdanaut Gripir af erlendum holdanautakynjum í Kjósinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.