Morgunblaðið - 26.06.2015, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 26.06.2015, Blaðsíða 11
Lesskilningur íslenskra drengja hefur löngum reynst lakari en stúlkna samkvæmt fjölþjóðlegum samanburði á lesskilningi grunnskólabarna, PISA-könnuninni. Ein möguleg ástæða fyrir því er að val á lesefni í skól- um endurspegli frekar áhugasvið stúlkna en drengja. Minni áhersla er lögð á textagerðir sem drengir hefðu frekar áhuga á, til dæmis mynda- sögur, vísindaskáldsögur og furðusögur, við val á lesefni í grunnskólum. Árni Árnason, þýðandi bókanna, segir Óvættaför fylla í þetta skarð. „Þeir alveg elska þetta og bíða spenntir eftir næstu bók.“ „Þeir alveg elska þetta“ ÖRVAR LESSKILNING Morgunblaðið/Ómar ar þeirra raunir. „Þetta er ekki nein ástarsaga heldur samvinna kynjanna, sem gerir þau sterkari saman,“ segir Árni. Eru bækurnar því jafnt fyrir stelpur sem stráka. Margir höfundar í einum Bækurnar Óvættaför (e. Beast Quest) eru skrif- aðar af höfundinum Adam Blade. Það er þó enginn einn maður þar að baki þar sem safn höfunda sér um að skrifa bækurnar. Sögusvið hverrar bókar er fyrst ákveðið af hópi ritstjóra hjá útgáfufélaginu í Bretlandi og því næst er leitað eftir höfundi sem gæti fyllt í eyðurnar og skrifað sög- una. Hver höfundur er beðinn um að senda inn prufu og sá sem nær best þeirri rödd sem verið er að biðja um hreppir hnossið. Bókunum hefur verið lýst sem „skýrum og einföldum sögum, sem ná réttu jafnvægi á milli ævintýra og skáldskapar“. Gagnrýnendur hafa einnig haft orð á því að þær séu vel til þess fallnar að fá drengi til að lesa. Kathryn Flett, blaða- maður hjá The Observer í London, sagði bækurnar vera hreina útgáfu- snilld. „Narnía hittir Pokemon í gegnum Harry Potter.“ Árni tekur í sama streng og segir að bækurnar séu æsispenn- andi og haldi manni vel við efnið. Samvinna kynjanna, gerir þau sterkari saman. Yndislestur Það skiptir máli að vekja áhuga drengja á lestri svo þeir geti tekið þá dýrð með sér út í lífið. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2015 Í dag kveð ég fjölskyldumeðlim. Það eru blendnar tilfinningar yfir þessu fráfalli. Ég hef elskað hann, ég hef hatað hann. Hann hefur læst mig úti, hann hefur læst mig inni. Fjölskyldumeðlimurinn sem um ræðir er 1996-módel Suzuki Sidekick, dökkgrænn. Ég man eins og gerst hefði í gær þegar „súkk- an“ eins og við kölluðum hana kom inn í líf mitt. Lengi hafði pabbi minn talað um að nú þyrftum við að fá okkur jeppa. Helsta ástæðan var sú að von var á hundi í fjöl- skylduna og þá þurfti sko hunda- bíl. Mér, ómótuðum og yfirborðs- kenndum unglingnum, leist nú bara ágætlega á þetta. Sá fyrir mér kannski einhvern kagga, jafn- vel með leðursætum eða topplúgu. Á hverjum laugardegi rúntaði fað- ir minn, oft með mig í framsætinu, á bílasölur. Vonir mínar um að þessi nýi jeppi yrði einhver glæsi- kerra dvínuðu þegar ég gerði mér grein fyrir að sá gamli hafði auga- stað á ákveðinni týpu; Suzuki Sidekick. Einn daginn birtist hann; dökk- grænn og glæsilegur. Þetta var árið 2003, góðærið rétt handan við hornið og allir glaðir. Mér fannst þetta nú hálfgert prump, en samgladdist pabba mínum og hundinum sem gat durgast þarna aftur í að vild. Með árunum jókst ást pabba míns á þessu far- artæki og var nostrað við hann við hvert tæki- færi sem gafst. Stundum hélt ég að hann elskaði „gamla græna“ meira en mig og tók það pínu per- sónulega þegar ég var vinsamlegast beðin að nota hann ekki í æfinga- akstri. Kenning ungl- ingsins var einfaldlega sú að hann tæki ekki sénsinn á að jeppinn félli skyndilega frá með mig bak við stýrið. En líklega var súkkan bara aðeins of mikið tryllitæki fyrir æfingaakstur, enda búið að „pimpa“ hana allsvakalega upp þegar þarna var komið. En svo liðu árin og „gamli græni“ varð slappari. Við hvert tækifæri reyndi pabbi að gera eitt- hvað fyrir hann og ferðirnar til bifvélavirkjans verða líklega taldar í þúsundum. Hún tók upp á ýmsu, blessunin. Það var til dæmis ekk- ert rosalega skemmtilegt að læs- ast inni í bílnum einn febrúar- morgun þegar frostið var sem mest eða þurfa að skríða inn í gegnum skottið þegar bílstjóra- dyrnar bara vildu ekki opnast á leiðinni í jólaboð. En það fylgdi alltaf þess- um bíl einhvers konar sjarmi. Nema kannski þeg- ar farþegadyrnar ákváðu að opnast á 90 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni. Þá hugsaði ég honum þegjandi þörfina. En fyrr á þessu ári þurfti pabbi að taka þá erfiðu ákvörðun að súkkan væri komin með nóg og hún verður ekki keyrð meira, nema kannski á einhverjum öðrum stað. Er ekki annars alveg örugglega himnaríki fyrir bíla? »Nema kannski þegarfarþegadyrnar ákváðu að opnast á 90 kílómetra hraða á Reykjanesbraut- inni. Þá hugsaði ég honum þegjandi þörfina. Heimur Auðar Auður Albertsdóttir audura@mbl.is blanda geði við 600 manns úr efri lög- um þjóðfélagsins í garðveislu við bú- stað sendiherrans í úthverfi Berlínar. Um þrettán hundruð manns kepptu um fjögur pláss í samkvæminu. Í leiðarvísinum var hinum heppnu bent á að reyna hvorki að snerta drottninguna né prinsinn og láta alveg eiga sig að trana sér fram og kynna sig fyrir drottningunni. Ef gestunum hlotnaðist sú gæfa að vera kynntir fyr- ir drottningunni bæri þeim ekki skylda til að hneigja sig, en hins vegar væri litið með velþóknun á slíka kurteisis- venju. Ennfremur voru tilmæli um að taka ekki myndir og hafa slökkt á far- símum. Talsmaður Buckinghamhallar sagði sendiráðum í sjálfsvald sett hvort þau byðu gestum upp á leið- arvísa af þessu tagi. „Það eru engar konunglegar siðareglur og konungs- fjölskyldunni er alltaf mikið í mun að fólki líði vel í návist hennar,“ sagði hann. AFP Heilsast með kurt og pí Angela Merkel kanslari bauð Elísabetu Englandsdrottningu og eiginmanni hennar, Filip prins, hertoga af Edinborg, til kvöldverðar í forsetahöllinni í Berlín í opinberri heimsókn þeirra hjóna til Þýskalands. Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Blómapottar MIKIÐ ÚRVAL AF RISAPOTTUM Risa Leca blómapottamöl 10 l. 990 Gróðurmold 40 l 890 Gróðurmold 20 l 490 CUBO Leirpottur 30x30 cm 2.495,- Leirpottur ø35cm H33 cm 1.495,- LISO leirpottur ø30cm H30 cm 1.995,- Plastpottur 6.495,- 20% AFSLÁTTUR 20% AFSLÁTTUR 20% AFSLÁTTUR 1.9961.5961.195 5.196 20% AFSLÁTTUR 792

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.