Morgunblaðið - 26.06.2015, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.06.2015, Blaðsíða 23
Maríu mey og Jesúbarninu með fallegu litlu englunum, og amma kom inn og sagði hlýlega „góðan daginn, elskan mín“ og síðan þá er falleg kveðja að morgni mér svo dýrmæt. Og ég minnist hennar ekki síst fyrir hlýjan og öruggan faðminn hennar, sem var stór og mjúkur þegar ég var barn, og sem ilmaði af nýbökuðum kleinum, sápu og fersku sveitalofti. Amma mín í sveitinni var falleg og góð amma í sveitinni eins og öll börn ættu að eiga. Og seinna þegar ég áttaði mig líka á því hve greind og merkileg kona hún var, breyttist viðhorf mitt til hennar úr tómri væntumþykju og ást og djúp og mikil virðing bættist við, fyrir öllu hennar starfi og öllu því sem hún gerði og öllu því sem hún var og þannig verður hennar minning, um aldir alda, allt til enda verald- arinnar. Rakel Halldórsdóttir. Elsku hjartans amma mín. Það er sárt að kveðja hetjuna sína og eina af merkilegri manneskjum sem ég hef kynnst um ævina. Minning um stórsnjalla og dug- lega konu lifir alltaf í hjarta mínu og barnanna minna. Og börnin þeirra munu fá að heyra sögur um ömmu og afa í sveitinni þegar þar að kemur. Ég elska þig amma mín og takk fyrir allt. Aftur heim Fyrir svefninn langa söng ég þér sefandi lag um fegurð fjallatanga fjörðinn og sólardag. Um sveitina sætu og hlýju og sælu í unaðs reit að hittir þú ástina að nýju sem hjartfólgnum augum þig leit. Þar dansið þið dugleg saman og draumurinn ykkar skín. Mikið verður það gaman þegar ég kem til þín. (Höf: Guðrún Lilja Hólmfríðardóttir) Guðrún Lilja, Hákon og börn. Hún kallaði okkur alltaf elsku drengina sína, líka löngu eftir að við urðum fullorðnir. Og, við vor- um það drengirnir hennar, sem höfðu notið þeirra forréttinda að fá að vera í sveit hjá Ásu og Valda á Núpi í Dýrafirði. Þetta voru dýrðardagar fyrir stráka að fá að fara í sveit og taka þátt í búskap sem var, kýr handmjólkaðar úti á bóli, róið til fiskjar, svartfugl og selur skotinn, æðardúnn tekinn og allar nytjar landsins til boða. Á Núpi var tvíbýli bræðranna Valdimars og Hauks Kristinssona og mikill höfðingjabragur á bú- skap þeirra bræðra en þeir höfðu tekið við af föður sínum Kristni Guðlaugssyni sem í félagi við bróður sinn, Sigtrygg, hafði byggt upp staðinn með mikilli reisn. Núpur var því ekki einungis rausnarbú heldur líka menningar- setur og viðkomustaður margra sem lögðu leið sína um Vestfirði og áttu ættir eða tengsl við staðinn eða fjörðinn. Sú staðreynd þýddi að oft var gestkvæmt og margt um manninn á Núpi og hvíldi það á húsfreyjunni Ásu að halda stór- heimili sem í minningunni líkist helst hóteli í alfaraleið. Hjónin voru samhent og jöfn, þrátt fyrir hefðbundna verkaskiptingu, og voru nokkuð ólík. Hún var ávallt orðhög og rösk með breiðan faðm sem hafði alið allan sinn aldur í firðinum. Hann var sigldur skip- stjóri og íþróttamaður, yfirveguð og lítillát kempa. Saman stafaði frá þeim hlýja og öryggi sem gott var að leita til fyrir ættingja og sveitunga enda bæði valin til for- ystu í félagsmálum og sveitar- stjórn. Smitandi áhugi á menn- ingu og samfélagi markaði spor í huga okkar og skilur eftir fyrir- myndir og leiðbeiningu um hvern- ig haga beri lífinu. Ása var skáld og það fór ekki milli mála þegar hún sagði frá eða rifjaði upp sögur. Hún rúllaði err- inu eins og skáld eiga að gera, þannig að rétt varð miklu réttara og rangt dálítið alrangt, hersingin og herlegheitin í frásögninni miklu mikilfenglegri og oftast fylgdi hlýr og innilegur hlátur vel- meinandi gríni sem aldrei var meinfýsið en alltaf góðlegt og oft- ar en ekki af börnum, barnabörn- unum eða kúarektorum eins og okkur bræðrum. Að leiðarlokum er ljúfsárt að kveðja stórmenni eins og Ásu á Núpi, ljúft því góðar minningar leita á og vitneskja um heilla- drjúga ævi og hæfileikaríka af- komendur sem spjara sig vel. Sárt því þótt hvíldin sé verðskulduð tekur allt enda og jafnvel góðir dagar hverfa að kveldi. Við bræð- ur þökkum fyrir okkur. Blessuð sé minning Áslaugar Sólbjartar Jensdótttur frá Núpi. Heimir og Hilmar. Við andlát Áslaugar Sólbjartar Jensdóttur hvarflar hugurinn aft- ur til miðbiks síðustu aldar. Þá var Áslaug eða Ása á Núpi eins og hún var kölluð af nágrönnum og vin- um, húsmóðir í Kristinshúsinu, en það var kennt við tengdaföður hennar, Kristin Guðlaugsson. Ás- laug og Valdimar eiginmaður hennar bjuggu á efri hæðinni og brátt fylltist íbúðin af glaðværum börnum, átta stúlkum og einka- syninum. Á neðri hæðinni bjuggu Haukur bróðir Valdimars og Vil- borg Guðmundsdóttir eiginkona hans. Heimilið var í næsta nágrenni við Héraðsskólann á Núpi og oft í mörg horn að líta. Þau hjónin sáu um símstöð fyrir nemendur skól- ans meðan símasamband var tak- markað í sveitinni. Bæði voru þau áhugasöm um velferð Dýrafjarðar og tóku mikinn þátt í öllu félagslífi í sveit og firði. Áslaug var lengi formaður Kvenfélags Mýra- hrepps og síðar heiðursfélagi þess. Þrátt fyrir erilsöm störf á fjölmennu og gestkvæmu heimili náði Áslaug að lesa margar góðar bækur. Þá var hún ágætur ljóða- og sagnasmiður. Kynni fólksins á Mýrum hófust á meðan Áslaug var heimasæta í Litla-Garði og styrktust eftir því sem árin liðu. Segja má að sér- staklega yngri börn Gísla og Guð- rúnar á Mýrum hafi verið heima- gangar í Kristinshúsinu. Tveim sonum þeirra, þeim Davíð og Valdimar, var komið þar fyrir til vetrardvalar er þeir gengu í barnaskóla á Núpi eftir að skólinn á innsveitinni var lagður niður, Valdimar á efri hæðinni og Davíð á þeirri neðri. Þar nutu þeir þeirr- ar hlýju og glaðværu gestrisni sem jafnan var í boði á báðum hæðum. Fjölbreytt félagsstarf fór fram á heimili Valdimars og Áslaugar. Þar voru haldnir hreppsnefndar- fundir um árabil meðan Valdimar var hreppsnefndaroddviti. Hreppsnefndarmönnum eru í minni hinar miklu og góðu veit- ingar sem húsmóðirin reiddi þar jafnan fram. Að leiðarlokum þakka börn Gísla og Guðrúnar á Mýrum og makar þeirra Áslaugu trausta og einlæga vináttu og votta aðstand- endum samúð. Davíð og Valdimar Haukur Gíslasynir. Árið 1918 var um margt við- burðaríkt á Íslandi, frosthörkur og mannskæðar farsóttir herjuðu á landsmenn og ógurlegri styrjöld lauk úti í heimi. Góðu fréttirnar fyrir Íslendinga voru að 1. desem- ber það ár varð Ísland frjálst og fullvalda ríki í konungssambandi við Danmörku. Sá áfangi náðist eftir langa og þrotlausa baráttu Íslendinga, sem í nær 700 ár höfðu lotið valdi og á tíðum harðstjórn erlendra frændþjóða, sem heimt- uðu skatt af Íslendingum, nýttu sér gjöful fiskimið, einokuðu verzl- un og viðskipti og héldu niðri at- vinnu- og lífskjaraþróun í landinu. Því rifja ég þetta upp að á þessu herrans ári fæddust vestur í Dýrafirði tvíburasystur en aðra þeirra, Áslaugu Sólbjörtu Jens- dóttur, kveðjum við í dag. Hún átti eftir að taka þátt í endurreisn þjóðarinnar og uppbyggingu og sjá hana þróast frá sárri fátækt til almennrar velmegunar. Á ung- lingsárunum missti Áslaug móður sína frá mörgum börnum og gekk þeim síðan í móðurstað 17 ára gömul og stóð sig með prýði. Hún gekk að eiga Valdimar Kristins- son skipstjóra, sem þá var ásamt bróður sínum landeigandi og bóndi á Núpi í Dýrafirði. Þau hjónin urðu brátt sveitarhöfðingj- ar í Dýrafirði enda falin margvís- leg ábyrgðar- og trúnaðarstörf. Jafnframt ólu þau upp börnin sín níu og umvöfðu þau kærleika en einnig voru agi og reglusemi í há- vegum höfð á heimilinu. Tónlist og ljóðlist voru aldrei langt undan en Áslaug var hagyrðingur góður. Fáa þekki ég, sem tala um for- eldra sína af jafn mikilli virðingu og væntumþykju og afkomendur þeirra Áslaugar og Valdimars, einn og átta. Öllum, sem kynntust þeim hjónum, mátti vera ljóst, hversu samrýnd þau voru og samband þeirra fallegt. Jafnvel eftir fráfall Valdimars fyrir nokkrum árum, þá var hann nær 100 ára, var sem hún skynjaði nærveru hans sterkt og hann átti áfram drjúgan sess í huga hennar. Áslaug unni landi og þjóð og tengdist fósturjörðinni sterkum böndum ekki sízt heimabyggðinni fyrir vestan. Þar var hugurinn jafnan eftir að þau hjónin brugðu búi og fluttu til höfuðborgarinnar fyrir aldamótin. Hún, sem hafði séð land og þjóð dafna, tækifæri verða til, menntun og menningu sækja fram og virðingu fyrir land- inu og umgengni við það eflast, mátti ekki til þess hugsa að neitt yrði gert til að skerða fullveldi þjóðarinnar né forræði Íslendinga yfir þessu landi, sem var henni svo kært. Blessuð sé minning Áslaugar Sólbjartar Jensdóttur, megi hún hvíla í friði. Ástvinum hennar sendi ég samúðarkveðjur um leið og ég þakka henni allar góðu sam- verustundirnar á liðnum árum. Sigurður Björnsson. Daginn sem fréttist af hjarta- áfalli Áslaugar Sólbjartar vildi svo til að ég var á safninu að fletta minningarorðum sóknarprestsins í Dýrafjarðarþingum yfir moldum látinna Mýrhreppinga. Þeirra var ein Ásta Sóllilja Kristjánsdóttir dáin frá fárra mánaða dóttur sinni í janúar 1936. Líklega var það í sama rúmstæðinu í Litla-Garði og móðir mín, Kristín Jónsdóttir, hafði fæðst á haustmánuðum frostavetrarins 1917-1918. Áslaug tæpu árinu seinna á Læk. Ásta Sóllilja, móðir Áslaugar, var tengdadóttir Jóns Gabríels- sonar, útvegsbónda á Skaga. Jón gekkst fyrstur manna, utan stúlk- unnar Gyðu, í ábyrgð fyrir stúku- húsinu á Núpi, skólahúsinu sem varð. Presturinn var sr. Sigtrygg- ur Guðlaugsson, hinn verðandi skólastjóri og Skrúðsbóndi. Elsti sonur Jóns var í byggingarnefnd- inni. Jón Gabríelsson var einnig fyrstur kvaddur til liðs við þá bræður sr. Sigtygg og Kristin Guðlaugsson á Núpi í skólanefnd sem sr. Sigtryggur kallaði stjórn- endur Ungmennaskólans á Núpi. Nú er Núpsskóli allur og síð- asta seinni tíma húsfreyja á Núpi kveður. Það eru sannarlega kafla- skil langrar sögu, mikils mannlífs, margra gleðistunda, barnsradda margra kynslóða. Heimili Áslaug- ar, Kristinshúsið, Núpsbærinn var bernskuheimur, allt að því annað bernskuheimili, okkar elstu systkinanna. Við sóttum kýrnar saman, Ásta, Pétur og ég, háðum keppni um fundinn hreiðurfjölda, lékum fallin spýtan, yfir, sto og höfðingjaleik. Kristinshúsið var óþrjótandi uppspretta leikja, brottfararstaður berjaferða inn í Holt, vettvangur snjóhúsagerðar, baksturs í búinu, jurtafræðslu og draugasagna. Þar var „Leikhúsið“ litla með undursamlegu veggfóðri. Sr. Sigtryggur sagði um Ástu Sóllilju að á því heimili hafði hann séð auð hjartans mega sín mest. Gleðiljúfa, aðlaðandi viðmótið mætti gestinum. Hugþekkt hrein- lætið, „snyrtnin“, hagnýtni og smekkvísi prýddu það sem þessi kona umgekkst. Ása á Núpi, Áslaug Sólbjört, átti augsýnilega ekki langt að sækja sína gerð. Margt hefði hún getað lagt fyrir sig. Við spjölluð- um stöku sinnum saman síðustu árin. Aldrei heyrði ég hana tala um að til væri betra hlutskipti en heimili og börn. Saknaði þess þó að komast ekki á Núpsskóla. Fía „litla systir“, móðurlaus, fyrsta æfing í barnfóstri. Alltaf var nóg af öllu, hvort heldur það var af grösum eða um sjávargötuna frá Litla-Garði um hlaðið á Læk eða frá Núpsbót að Núpi. Nei, á betra líf varð ekki kosið. Það er líka bjart yfir minningu þessarar konu og samskiptum for- eldra minna við hana og hennar fjölskyldu. Þær Litla-Garðs dæt- ur, Kristín og Áslaug, yrktu ekki litla garða. Ellefu og níu áttu þær börnin. Ekki einungis gáfu þær þeim öllum gleðiríka og farsæla bernsku og æsku. Núpsnemendur áttu þeim fleira að þakka en þeir vissu. Þau hjónin Áslaug og Valdi- mar, Haukur og þau öll höfðu að sínu leyti hagsmuni skólans og skólastaðarins í fyrirrúmi í gjöfulli hefð þeirra bræðra Kristins og sr. Sigtryggs á Núpi. Mörg eigum við þar þakkir að flytja við leiðarlok. Aðalsteinn Eiríksson. MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2015 Hjartans þakkir fyrir sýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, PETRU ÓSKAR GÍSLADÓTTUR, áður Hólavegi 26, Sauðárkróki. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild 2, Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks, fyrir góða umönnun og kærleika í garð móður okkar. Einnig færum við Flugumýrarsystkinum og mökum ástarþakkir fyrir ómetanlega hjálpsemi og umhyggju. Guð blessi ykkur. . Gísli Hafsteinn Einarsson, Kolbrún Sigurðardóttir, Guðlaug Ragna Jónsdóttir, Einar Stefánsson, Ingimar Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEINAR HARALDSSON frá Hringsdal í Arnarfirði, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 26. maí. Útförin hefur þegar farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Aðstandendur þakka auðsýnda samúð. . Bergljót S. Steinarsdóttir, Magnús Ingólfsson, Valdís I. Steinarsdóttir, Sigurður V. Ragnarsson, Arndís J. Steinarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, SIGRÍÐAR GÍSLADÓTTUR. . Gísli Jón Júlíusson, Valgerður Valgarðsdóttir, Herdís María Júlíusdóttir, Egill Jónsson, ömmu- og langömmubörn. Okkar ástkæri, RUNÓLFUR RUNÓLFSSON bóndi, Fljótsdal í Fljótshlíð, sem lést sunnudaginn 21. júní, verður jarðsunginn frá Hlíðarendakirkju laugardaginn 27. júní kl. 14. . Margrét Runólfsson, Anna Runólfsdóttir, Þorkell Daníel Eiríksson, Pétur Runólfsson, Þorgerður Rán Þorkelsdóttir, Runólfur Mar Þorkelsson. Ómar Björns- son, kær vinur minn, er fallinn frá allt of snemma. Ég kynntist Óm- ari 2002 þegar hann flutti á sambýlið Lyngmóa 17 í Njarð- vík, en þar var ég að vinna. Þau voru æði mörg árin sem ég sá um hans mál og aðstoðaði hann eftir bestu getu með allt sem honum viðkom. Að sjálfsögðu kom annað starfsfólk við sögu en ábyrgðin var mín. Ekki vor- um við nú alltaf sammála um alla hluti, hvernig best væri að haga hlutunum, en alltaf endaði allur ágreiningur vel. Ómar var mikill gleðigjafi og kom sér vel við alla sem hann hitti, þó að hann tæki ekki alveg öllum. Það er margs að minnast frá árunum sem við áttum samleið. Ómar að horfa á Friends-þætt- ina þar sem ég heyrði nafnið mitt reglulega þegar hann var að lifa sig inn í atburðarásina. Ómar að spila tónlist, en hann var smekkmaður á tónlist sem Ómar Björnsson ✝ Ómar Björns-son fæddist í Keflavík 19. desem- ber 1959. Hann lést 15. júní 2015. Útför hans fór fram 23. júní 2015. hann hafði gaman af að hlusta á. Ég minnist tveggja ferða með honum til Noregs. Einnig þegar hann upp úr þurru sagð- ist ætla að gefa mér blóm ef ég hætti að reykja. Þegar hann kom og færði mér kaffi í bolla eða nammi ef honum fannst hann hafa gengið of langt. Eða vatn í glas ef ég fékk hiksta. Umhyggjan var því ekki einhliða milli okkar. Ómar átti oft í erfiðum veikindum og það var aðdáunarvert hvað hann var æðrulaus gagnvart þeim. Það er svo ótalmargt sem ég minnist frá árunum sem ég var svo heppin að þekkja Ómar. Það er líka svo ótalmargt sem ég hefði viljað gera fyrir hann en gat ekki. Það var líka margt sem stóð til að gera þegar hann næði heilsu, en það fór á annan veg. En eins og hann sagði sjálfur reglulega þegar hann var smá mæddur: Svona er lífið. Ég sakna þín, elsku Ómar, og að fá aldrei meira knús fá þér. Minning þín er ljós í lífi mínu. Þín vinkona, Helga Gísladóttir. Elsku Kata, þú varst alltaf skemmtileg, það var alltaf gaman að syngja með þér. Kata og ég vorum saman í Katrín Sigrún Guðjónsdóttir ✝ Katrín SigrúnGuðjónsdóttir fæddist 23. apríl 1948. Hún lést 14. júní 2015. Útför Katrínar fór fram 22. júní 2015. skóla, í söng og í Húsi. Kata gat verið alger stríðnispúki og stríddi mér stundum þegar ég kíkti í kaffi til hennar í Lækjar- ás og hafði ég bara gaman af því. Elsku Kata, ég á eftir að sakna þín og ég bið góðan Jesú um að passa þig. Kveðja, þín vinkona, Birna Rós.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.