Morgunblaðið - 26.06.2015, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 26.06.2015, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2015 VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Við viljum vera virkur vettvangur fyrir nýsköpun,“ segir Sigurður Halldórsson sellóleikari um Sum- artónleika í Skálholti sem haldnir verða í 41. sinn dagana 28. júní til 2. ágúst. Sigurður er fráfarandi list- rænn stjórnandi Sumartónleika í Skálholti eftir tíu ár, en situr nú í nýju listrænu teymi Sumartón- leikanna ásamt Huga Guðmunds- syni tónskáldi og Elfu Rún Krist- insdóttur fiðlu- leikara, en kom- andi tónleika- sumar er það fyrsta undir stjórn nýja teym- isins. „Hollvinafélag Sumartónleika í Skálholti stóð fyrir málþingi í fyrra- sumar þar sem framtíð tónlistar- hátíðarinnar var rædd. Í framhald- inu var ákveðið að gera ákveðnar breytingar, s.s. að auka vægi fram- kvæmdastjóra hátíðarinnar og koma upp nýju listrænu teymi. Von okkar er að hátíðin gangi í endurnýjun líf- daga, m.a. með aukinni áherslu á ungt tónlistarfólk,“ segir Sigurður og tekur fram að eftir sem áður verði ókeypis á alla viðburði Sum- artónleikanna, þó tekið sé við frjáls- um framlögum. „En það er gert til þess að gera öllum kleift að kynnast barokktónlist auk þess að festa Skál- holt í sessi sem menningarlegan höf- uðstað á Íslandi,“ segir Sigurður og fagnar því hversu ötullega sr. Krist- ján Valur Ingólfsson, vígslubiskup í Skálholti, hefur staðið við bakið á Sumartónleikunum. Schröder fagnar 90 ára afmæli Hátíðin hefst sunnudaginn 28. júní kl. 17 í Skálholtskirkju með nokkurs konar upphitunartón- leikum. Þar leikur Skálholts- kvartettinn verk eftir Boccherini, Schubert og Haydn í tilefni af 90 ára afmæli Jaaps Schröder fiðluleikara, en tónleikarnir eru helgaðir minn- ingu Agnesar Schröder sem lést í desember 2014. „Jaap Schröder hef- ur komið til Íslands árlega síðan 1993 og komið fram árlega með Skálholtskvartettinum allt frá stofn- un hans 1996,“ segir Sigurður sem leikið hefur með kvartettinum frá stofnun. „Með þessum tónleikum og upp- tökum samhliða erum við að ljúka við að taka upp öll verkin úr þessum flokki kvartetta eftir Schubert,“ seg- ir Sigurður og bendir á að Schröder hafi á farsælum ferli sínum verið mjög ötull í upptökumálum, en eftir hann liggja a.m.k. 200 plötur. „Við vinnum sem stendur að útgáfu á helstu strengjakvartettum Schubert með upprunalegum hljóðfærum hjá bandarískri útgáfu, sem Schröder lítur á sem lokapunktinn á sínum ferli í þeirri vegferð að rannsaka strengjakvartetta á upprunalegum hljóðfærum,“ segir Sigurður og rifj- ar upp að Schröder hafi verið braut- ryðjandi þegar kom að því að taka upp klassíska kvartetta með upp- runalegum hljóðfærum. Samstarf við Listaháskólann Fyrstu helgina í júlí hefst dagskrá sumarsins á samstarfsviku Sumar- tónleika í Skálholti og Listaháskóla Íslands. „Þá dvelja nemendur í Skál- holti og vinna með franska barokk- hópnum Nevermind, sem sópað hef- ur að sér verðlaunum síðustu misserin. Hópurinn mun bæði standa fyrir námskeiði og sameig- inlegum tónleikum með nemendum úr LHÍ, sem og leika tónleika með eigin dagskrá,“ segir Sigurður, en laugardaginn 4. júlí kl. 15 flytja nemendur LHÍ svítu úr óperu eftir Elizabeth-Claude Jacquet de La Gu- erre ásamt Nevermind, en kl. 17 verða tónleikar franska hópsins þar sem flutt verður m.a. tónlist eftir Telemann, Couperin og Guillemain. Að sögn Sigurðar sér LHÍ einnig um dagskrá sunnudagsins 5. júlí, en kl. 14 flytur Þorgrímur Þorsteinsson erindi byggt á BA-lokaverkefni sínu í skapandi tónlistarmiðlun, þar sem myndað var teymi flytjenda, tón- skálda og framleiðenda um hljóðrit- anir, miðlun og útgáfu á nýrri tón- list. Í framhaldi af erindinu heldur Kór Listaháskóla Íslands tónleika með verkum nemenda úr skólanum kl. 15, en stjórnendur verða auk Sig- urðar þeir Steinar Logi Helgason og Sigurður Árni Jónsson. Tvö staðartónskáld Að sögn Sigurðar verða staðar- tónskáldin tvö þetta árið, annars vegar Stefán Arason, sem lauk námi í tónsmíðum við tónfræðadeild Tón- listarskólans í Reykjavík 2001 og frá Det Jyske Musikkonservatorium (DJM) í Árósum árið 2004, og hins vegar Finnur Karlsson, sem útskrif- aðist með BA-próf af tónsmíðabraut Listaháskóla Íslands vorið 2012 og masterspróf í tónsmíðum frá Kon- unglega danska konservatoríinu í vor sem leið. „Kammerkórinn Hljómeyki frum- flytur nýtt verk eftir Stefán auk þess að syngja eldri kirkjuleg kórverk eftir hann á tónleikum laugardaginn 11. júlí og sunnudaginn 12. júlí kl. 15 báða daga, en kynning á nýja verk- inu fer fram í Skálholtsskóla laug- ardaginn 11. júlí kl. 14,“ segir Sig- urður og bendir á að Finnur hafi samið nýtt verk fyrir nýstofnaða Barokkbandið Brák sem Elfa Rún Kristinsdóttir leiðir. „Bandið er skipað ungu fólki og mun fyrst um sinn verða sett upp í vinnustofuformi þar sem markmiðið er að þjálfa unga hljóðfæraleikara í upprunalegum flutningi eldri tónlist- ar. Elfa Rún mun leiða bandið á þessum fyrstu tónleikum hópsins. Auk frumflutningsins flytur bandið franska barokktónlist og fær liðs- auka frá þeim Ellu Völu Ármanns- dóttur og Emil Friðfinnssyni sem munu leika á náttúruhorn,“ segir Sigurður og tekur fram að það sé skemmtileg áskorun fyrir ung tón- skáld að semja fyrir barokkhljóð- færi. Tónleikar Barokkbandsins Brákar verða fimmtudaginn 16. júlí kl. 20 og laugardaginn 18. júlí kl. 21, en kynning verður á verki Finns í Skálholtsskóla 16. júlí kl. 19.30. Barokk í bland við nýja tónlist „Elfa Rún kemur einnig fram á fjölbreyttum tónleikum ásamt Elinu Albach semballeikara fimmtudaginn 9. júlí kl. 20. Þar flétta þær saman tónlist frá afar ólíkum tímum og stöðum,“ segir Sigurður, en á efnis- skránni eru verk eftir György Ligeti, J.S. Bach, G.A.P. Mealli, James Dillon og Sciarrino. „Fimmtudaginn 23. júlí kl. 20 leikur franski hópurinn Corpo di Stru- menti fiðlusónötur eftir einn villt- asta og áræðnasta könnuð fiðlunnar, hinn tékknesk-austurríska Heinrich Ignaz Franz von Biber,“ segir Sig- urður. „Söngtríóið White Raven mun heimsækja Skálholt og flytja írsk og skosk þjóðlög laugardaginn 25. júlí kl. 17, en það er hvalreki á okkar fjörur að fá þennan hóp hingað,“ segir Sigurður. Tríóið tekur einnig þátt í flutningi á „Mjög hneigist þar til mannslundin hrein“ eftir Huga Guðmundsson með Hildigunni Ein- arsdóttur altsöngkonu og hópi ís- lenskra hljóðfæraleikara sama dag kl. 15 og sunnudaginn 26. júlí á sama tíma. Hópurinn mun einnig flytja tónlist eftir Snorra Sigfús Birgisson og Claudio Puntin, en sá síðast- nefndi fjallar um tónlist sína í tónum og tali í Skálholtsskóla laugardaginn 25. júlí kl. 14. „Verk Huga samdi hann fyrir Sumartónleika fyrir hálf- um öðrum áratug þegar hann var hér staðartónskáld og afar ánægju- legt að það fái að hljóma aftur.“ Sjónum beint að konum Að sögn Sigurðar lýkur Sumar- tónleikunum um verslunarmanna- helgina með heimsókn frá Nordic Affect og dagskrá sem byggist á rannsóknum Höllu Steinunnar Stef- ánsdóttur, listræns stjórnanda hóps- ins, í Bibliothèque nationale de France í París. „Verkefninu er ætlað að beina sjónum að hlutverki kvenna í sögunni, en á dagskrá verður bar- okktónlist sem búin var til útgáfu af fremstu nótnariturum Frakklands og gefin út af einum helsta útgáfu- risa Parísar um miðbik 18. aldar,“ segir Sigurður, en með hópnum kemur fram Eyjólfur Eyjólfsson tenór. „Það er gaman að segja frá því að Nordic Affect þreytti frum- raun sínar þegar hópurinn kom fram á Sumartónleikum í Skálholti árið 2005, sem var fyrsta sumarið mitt sem listrænn stjórnandi.“ Þess má að lokum geta að Holl- vinir Sumartónleika í Skálholti standa fyrir kynningu á dagskrá sumarsins í Sölvhóli, tónleikasal Listaháskóla Íslands við Sölvhóls- götu, fimmtudaginn 2. júlí kl. 20.30. Kór Listaháskóla Íslands kemur fram og Sigurður kynnir dagskrána. Allar nánari upplýsingar um flytj- endur og einstaka tónleika eru á vefnum sumartonleikar.is. „Vettvangur fyrir nýsköpun“  Sumartónleikar í Skálholti haldnir í 41. sinn  Dagskráin hefst 28. júní og stendur til 2. ágúst Sigurður Halldórsson Finnur Karlsson Stefán Arason Ljósmynd/Tim Mintiens Barokk Franski hópurinn Nevermind hefur sópað að sér verðlaunum. Brák Elfa Rún Kristinsdóttir. Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is Aldrei hefur verið auðveldara að heyra Enn er bætt um betur með nýju ReSound heyrnartækjunum sem gefa eðlilega og áreynslulausa heyrn. Taktu þátt í framþróuninni og prófaðu þessa hágæða tækni. GOLDEN LOBE AWARDS 2014 ASSOCIATION OF INDEPENDENT HEARING HEALTHCARE PROFESSIONALS Most Innovative Concept 2014 presented to: Resound - LiNX made for iPhone

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.